Morgunblaðið - 19.05.1967, Síða 32
FYRSTAR
MEÐ
TÍZKU-
LITINA
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1967
Dregið eftir 4 daga
Landshappdrcetti
Sjálfstœðistlokksins
Beið bana af slysaskoti
SJÖTÍTJ og átta ára gamall mað-
nr beið bana af slysaskoti í gær-
dag. Sá sem skaut var 14 eða
15 ára gamall piltuir. Ingólfur
Þorsteinsson, hjá rannsóknarlög-
reglunni, sagði Morgunblaðinu
að gamli maðurinn hafi verið að
huga að kindum, sem hann átti
á svokölluðu Múlatúni við Foss-
vog. Stóð hann við skýli sem
hann hafði þar fyrir þær.
Neðar með læk, sem skýlið
stendur við, votu þrir unglingar
að leika sér með fjárbyssu og
höfðu skotið úr henni allmörgum
skotum. Að sögn þeirra munu
þeir hafa verið staddir í um 127
metra fjarlægð frá gamla mann-
inum og ætlað að reyna að hitta
járnrör sem stóð upp úr lækn-
um í um 57 metra fjarlægð. Sá
sem á byssunni hélt lagðist á
magann á lækjarbakkanum til
að geta miðað betur. Þeim ber
FUNDAFERÐALOG
forsætisrAðherra
BJARNI Benediktsson, for-
sætisráðherra, hefur að und-
anförnu ferðazt víða um
land til fundarhalda en kosn-
ingabaráttan er nú víðast
hvar að komast í fullan gang.
Fram til þessa hefur forsætis
ráðherra haldið ræður á
fundum í þremur kjördæm-
um, í Vesturlands-, Suður-
lands- og Austurlandskjör-
dæmi en á næstunni mun
hann mæta á fundum í Vest-
fjarða- og Norðurlandskjör-
dæmunum báðum.
Þegar hefur verið skýrt frá
fundum forsætisráðherra á Akra
nesi og að Flúðum en sl. mið-
vikudagskvöld flutti hann ræðu
á almennum fundi í Sindra-
bæ, Austur-Skaftafellssýslu. Auk
hans töluðu á fundinum Sverrir
Hermannsson, viðskiptafr. sem
skipar 2. sæti á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Austur-
iandskjördæmi, Egili Jónsson,
Seljawöllum og Einar í Hval-
nesi. Fundarstjóri var Eymund-
ur Sigurðsson, hafnsögumaður.
Fundur þessi tókst mjög vel og
var fjölsóttur.
Nú um helgina mun forsætis-
ráðherra tala á þremur fundum
í Vestfjarðakjördæmi, á Patreks-
firði, Flateyri og ísafirði en auk
hans tala á þessum fundum þrír
efstu menn á framboðslista Sjálf
stæðisfiokksins í Vestfjarðakjör-
dæmi. Um aðra helgi mun for-
sætisráðherra tala á fundum á
Blönduósi og Akureyri
saman um að þeir hafi séð kúl-
una lenda í vatninu nær þeim
en rörið var. Jafnframt sá einn
þeirra að gamli maðurinn dettur
og segir hinum strax frá því.
Þeir ganga upp með læknum og
að skýlinu og sjá hann liggja
utan í girðingu við það. Gerðu
þeir sér þegar grein fyrir að
eitthvað alvarlegt hafði skeð því
að blóð rann úr höfði hans. Þeir
hlupu heim til foreldra eins
piltsins, sem bjó þar skammt frá,
og sögðu frá því sem fyrir hafði
borið. Fullorðna fólkið fór strax
niður eftir, fann manninn liggj-
andi þar og hringdi í lögreglu
og sjúkralið. En þegar þessir að-
ilar komu á vettvang var maður-
inn látinn og talið að hann hafi
látizt samstundis.
Við yfirheyrslur viðurkenndu
piltarnir að hafa stolið byssunni
úr sportvöruverzluninni Vestur-
röst, 6. apríl sl., ásamt einum
pakka af skotum, cal. 22.
Þegar skotið er skáhallt á
vatnsflöt er alltaf mikil hætta
á því að kúlan breyti stefnu
eftir að hafa snert vatnið og
getur farið langar leiðir eftix
það eins og sjá má á því að frá
rörinu og þangað sem gamli
maðurinn stóð voru rúmir 70
metrar. Nafn hins látna verður
ekki birt að sinni, vegna óska
aðstandenda.
Is kominn inn
á Vopnafjörð
Kaupið
miða —
gerið skil
STUÐNINGSMENN og velunn-
arar Sjálfstæðisflokksins, sem
fengið hafa senda miða í Lands-
happdrættinu, eru vinsamlega
beðnir að gera skil hið fyrsta.
Nú eru aðeins fjórir daga þar til
dregið verður í haj>pdrættinu,
en vinningarnÍT eru fimm glæsi-
legar og evrópskar fólksbifreið-
ir. Skrifstofa happdrættisins er
til húsa í Sjálfstæðishúsinu við
Austurvöll, og er hún opin til kl.
22 daglega. Þeir sem hafa hug á
að kaupa miða í happdrættinu
geta keypt þá i happdrættisbif-
reiðunumr sem eru til sýnis víðs
vegar um miðbæinn. Myndin er
af einni happdrættisbifreiðinni,
og er hún af gerðinni Fíat 1500.
HAFÍSINN er nú kominn alla
leið inn á VopnafjörS. Jósep
Guðjónsson, bóndi að Strand-
höfn sá tíl íssins út fjörðinn
kl. 5 í gær, en Strand-
höfn er ysti bærinn í norðan-
Hafís á miðum
H úsavíkurbáta
verðum Vopnafirði. Tveimur
tímum síðar var svo ísinn kom-
inn innfyrir bæinn og á hraðri
leið inn eftir firðinum. Þetta
eru ekki stórir jakar heldur
spangir og þétt hröngl. Það nær
svo langt út sem auga eygir og
telur Jósep það vera komið suð
ur undir Bjarnarey.
Húsavík, 18. maí.
HÚSAVÍKURBÁTAR sem róið
hafa undanfarínn hálfan mánuð
á mið Norð-Austur af Rauðu-
núpum urðu þaðan frá að
hverfa í nótt vegna hafíssreks.
Bátarnir Andvari og Svanur
höfðu lagt helming línunnar
áður en þeir töldu sér hættu
búna. Andvari mun hafa náð
línu að mestu en Svanur tap-
aði fjórum bjóðum. Aðrir bát-
ar reyndu ekki að leggja á þess-
um slóðum heldur færðu sig
annað. ísinn er þarna á hröðu
reki. Afli hefur verið góður á
þessum slóðum undanfarið svo
að slæmt er að hafís skuli
hamla sjósókn þangað og harð-
indalegt um miðjan maímánuð.
Nauðlenti á Akranesi
EINS hreyfils Cessna flngvél
frá Birni Fálssyni, nauðlenti á
flugvellinum á Akranesi í fyrra
kvöld. Hún var á leið frá Flat-
eyri tii Reykjavíkur þegar
hreyfillinn bilaði. Flugmaðurinn
tilkynnti nauðlendingu á Akra
nesi og fóru sjúkralið og slökkvi
lið á staðinn. En lendingin tókst
vel og án þess að nokkur
meiðsli yrðu á þeim f jórum sem
í vélinni voru. Þegar Morgun-
blaðið hafði samband við Flug-
þjónustu Björns í gær, var hún
ennþá á Akarnesi og ekki vitað
hvað valdið hafði biluninni.
Kjörskrórhænu
Kærufrestur til borgarráðs vegna kjörskrár er til 21. maí n.k. Rétt
til þess að vera á kjörskrá í Reykjavík hafa allir þeir, sem
þar voru búsettir 1. des. sl. og verða 21 árs eigi síðar en á
kjördegi. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Lækjar-
götu 6B, aðstoðar við kjörskrárkærur. Skrifstofan er opin
daglega frá 10—10. Upplýsingar um kjörskrá eru veittar
í síma 20671 Kjörskrárkærur sérstaklega á milli 9—5 í
síma 24940.
Mögur síld
og kaldur sjór
MORGUNBLAÐH) hefur
fregnað að veiðst hafi síld
um 300 sjómílur austur af
Langanesi. Síld þessi er mög-
ur eða aðeins 7.9 prósent að
fitumagni, að meðaltali 33,3
sm. að lengd og þyngdin 252
grömm. Sjórinn á þessum
slóðum er óvenju kaldur eða
um 0 gráður og ís er mikill
undan landinu.
Hjálmar Vilhjálmsson, fiski
fræðingur, sem nýkominn er
úr síldarleitarleiðangri á
Ægi skýrði Morgunblaðinu
frá því að hann teldi að ekki
myndi borga sig fyrir bátana
að fara héðan á þessar slóðir
eins og nú stæðu sakir. Aftur
á móti skýrði hann frá því að
þarna virtist vera allmikið
síldarmagn og stórar torfur á
2000 fermílna svæði. Hann
bætti því við að nokkrir fær-
eyingar hefðu fengið allgóð
köst. Á þessu stigi sagði
Hjálmar væri ómögulegt að
segja hvar eða hvenær sildin
kæmi upp að ströndum lands-
ins.
Bifreið valt
FÓLKSBIFREIÐ valt á mótum
Lönguhlíðar og Miklubrautar í
gær. Hún kom akandi suður
Lönguhlíðina og mætti á gatna-
mótunum annarri bifreið sem
var á leið norður sömu götu.
Ökumaðurinn mun eitthvað hafa
fipazt með þeim afleiðingum að
hifreiðin fór um koll. Hann var
fluttur á Slysavarðstofuna en
meiðsli hans voru ekki alvarleg.
Reykjanes-
kjördæmi
ÞEIR Sjálfstæðismenn, sem vilja
lána Sjálfstæðisflokknum bíla
eftir hádegi nk. sunnudag, haft
samband við kosningaskrifstof-
urnar í kjördæminu.
Framkvæmdastjóra
kosninganna.
Friðjón Skarphéðinsson
yfirborgarfógeti
FORSETI fslands skipaði í gær
Friðjón Skarphéðinsson, bæjar-
fógeta á Akureyri og sýslumann
í Eyjafjarðarsýsiu, yfirborgar-
fógeta í Reykjavík frá 1. okt.
nk. að telja.
Friðjón Skarphéðinsson fædd-
ist 15. apríl 1909 á Oddsstöðum
í Miðdalahreppi, sonur hjón-
anna Skarphéðins Jónssomar
bónda þar og Kristínar Pálma-
dóttur.
Hann varð stúdent 1930 og
cand. juris frá Háskóla íslands
1935. Að loknu námi gerðist
hann fulltrúi hjá sýslumannin-
um í Gullbringu- og Kjósarsýslu
og gegndi því starfi til ársloka
sama ár. Hann var starfmaður
hjá Olíuverzlun íslands h.f. í
Reykjavík frá 1. jan. 1936 til
1. nóv. árið eftir. Veturinn 1937
—33 var hann við framhaldsnám
í Khöfn og varð þá um vorið
bæjarstjóri í Hafnarfirði en það
embætti sat hann til þess er
hann var skipaður sýslumaður
í Eyjafjarðarsýslu og bæjarfó-
geti á Akureyri árið 1945. Frá
23. desember 1958 til 20. nóv-
ember 1959 gegndi Friðjón emb-
ætti dóms-, landbúnaðar- og fé-
lagsmálaráðherra í minnihluta-
stjórn Emils Jónssonar en tók
aftur við störfum sínum fyrir
norðan að fenginni lausn frá
því embætti.
Bæiarfulltrúi á Akureyri var
hann 1946—1950; alþm. fyrir
Akureyri 1956—1959; landskjör-
inn alþm. 1959—1963; tók við
þingmennsku af Guðmundi f.
Guðmundssyni, sendiherra, á þvl
kjörtímabili, sem nú er að ljúka,
og Forsetd sam. alþ. var hann
1959—63.
Friðjón var kjörinn í mann-
réttindanefnd Evrópuráðs 1957
og sat í henni til 1962. Hann var
ög fltr. á Ráðgjafarþingi Evrópu-
ráðsins 1958—60.