Morgunblaðið - 17.06.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1967.
31
Þjóðhátíðin í Reykjavik
17. júni 1967
I. Dagskráin hefst:
Kl. 10.00 Samhljómur kirkjuldukkna í Reykjavík.
KL 10.15 Prófessor Þórir Kr. Þórðarson, varaforseti borgarstjórnar
leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sig-
urðssonar. ,
Karlakór Reykjavíkiur syngur.
Sjá roðann á hnjúkunum háu“.
Stjómandi: Páll P. Pálsson.
Kl. 10.45 Guðþjónustia í Dómkirkjunni.
Prédikun: Séra Guðmundur Guðmundsson.
Einsöngur: Guðmundur Jónsson, óperusöngvari.
Organleikari: Ragnar Björnsson.
Þessir sálmar verða sungnir: Nr. 664: Upp þúsund ára
þjóð. Nr. 671: Beyg kné þín, fólk vors föðurlands. Nr. 678:
Himneski faðir. Nr. 684: Ó, blessa, Guð vort feðrafrón.
Kl. 12.25 Forseti ísiands, herra Asgeir Ásgeirsson, leggur blómsveig
frá íslenzku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar.
Karlakór Reykjavíkur syngur þjóðsönginn. Stjórnandi:
Páll S. Pálsson.
II. Skrúðgöngur:
Kl. 13.15 Safnazt saman við Sunnutorg, Álftamýrarskóla, Hlemm-
torg og Hrafnistu. Frá Sunnutorgi verður gengið um
Langholtsveg, Holtaveg og Eengjaveg. Lúðrasveit Reykja-
víkur leikur, stjórnandi: Páll P. Pálsson. Frá Álftamýrar-
skóla verður gengið um Álftamýri, Hallarmúla, Suður-
landsbraut og Reykjaveg. Lúðrasveitin Svanur leikur,
stjórnandi: Jón Sigurðsson. Frá Hrafnistu verður gengið
um Brúnaveg, Sundlaugaveg og Reykjaveg. Lúðrasveit
barna og unglinga leikur, stjórnandi: Karl O. Runólfs-
son. Frá Hlemmtorgi verður gengið um Rauðarárstíg,
Skúlagötu, Hátún, Laugarnesveg og Sigtún. Lúðrasveit
verkalýðsins leikur, stjórnandi: Ólafur L. Kristjánsson.
Fánaborgir skáta gangia fyrir skrúðgöngunum.
III. Á LaugarduLvelli:
Kl. 13.50 Pánaborg skáta og lúðrasveitirnar ganga inn á Laugar-
dalsvöll.
Kl. 14.00 Ávarp formanns þjóðhátiðarnefndar, Valgarðs Briem.
Lúðrasveitirnar leika: „Öxar við ána“.
Stjórnandi: Jón Sigurðsson.
Kl. 14.07 Forsætisráðherra, dr. Bjarni Benediktsson, flytur ræðu. -
Lúðrasveitirnar leika: „ísland ögrum skorið". Stjórnandi:
Páll P. Pálsson.
Kl. 14.22 Ávarp fjallkonunnar. í fylgd með henni 6 ungar stúlkur
í ísl. búningi. Lúðrasveitirnar leika: „Yfir voru ættar-
landi'*. Stjórnandi: Ólafur L. Kristjánsson.
Kl. 14.32 fslenzkir dansar. Þjóðdansafélag Reykjavíkur.
Kl. 14.45 Skátar ganga af leikvelli við undirleik Lúðrasveitar
verkalýðsins. Stjórnandi: Ólafur L. Kristjánsson. Ýmis
„dýr“ fylgja á eftir og leika listir sínar. Skrúðganga skáta
fer hring á vellinum og gengur út um norðurhlið hans
og beldur til íþróttahallarinnar.
Kynnir: Baldur Bálmason.
1 Setning og íþróttamó.t.
2. Sundmót og
þjóðbúningasýning.
3 Barnatími og barnadans.
4 Kaffiveitingar.
5 Myndlistarsýning.
6 Lúðrasveit leikur.
7 Bifreiðasýning.
8 Hópreið hestamanna.
9 Húsdýrasýning.
IV. Barnaskemmlun vS5
Laugardalshöllina:
Kl. 14.45 Lúðrasveitin Svanur leikur. Stjórnandi: Jón Sigurðsson.
Kl. 15.00 Tvöfaldur kvartett syngur. „Söngur trúðanna". Atriði úr
Galdrakarlinum í Oz. Leikendur: Bessi Bjarnason, Mar-
grét Guðmundsdóttir og hundurinn Tótó. „Skrítin fjöl-
skylda". Guðrún Guðmundsdóttir, Ingibjörg Þorbergs og
fleiri syngja. „Gamlir kunningjar". Baldur og KonnL
„Nirfillinn“. Ómar Ragnarsson o.fl. syngja. Atriði úr
„Skugga Sveini". Söngvarar: Svala Nielsen og Guðmund-
ur Guðjónsson. Barnagaman". Ómar Ragnarsson. „Kalli
og Pétur“, gamanþáttur: Bessi Bjarnason og Árni
Tryggvason. Tvöfaldur kvartett syngur „Ti-úðarnir
kveðja“. Hljómsveit leikur undir stjórn Carl Billich.
Kynnir og stjórnandi: Klemenz Jónsson.
V. Íþróflahátíðin
á Lmigardalsvelli:
Kl. 16.00 Lúðrasveitin Svanur leikur. Stjórnandi: Jón Sigurðsson.
Kl. 16.15 Ávarp: Form. ÍBR, Úlfar Þórðarson. Glímusýning undir
stjórn Þorsteins Einarssonar íþróttafulltrúa. Úrval glímu-
manna, sem sýndu á heimssýningunni í MontreaL Fim-
leikaflokkur karla úr KR undir stjórn Jónasar Jónssonar.
Fimleikaflokkur kvenna úr Glímufélaginu Ármanni
undir stjórn Olgu Magnúsdóttur. Fimleikaflokkur karla
úr Glímufélaginu Ármanni undir stjórn Inga Sigurðs-
sonar. Knattspyrnukeppni drengja Austur- og Vesturbæj-
ar. Boðhlaup drengja og stúlkna frá fþróttanámskeiðum
Reykjavíkurborgar. Keppni í frjálsum íþróttum: 100 m
og 800 m hlaupi, kúluvarpi, hástökki, langstökki og
stangarstökki, 400 m grindahlaupi, 4x100 m boðhlaupi,
100 m hlaupi kvenna, 100 m hlaupi drengja, 110 m
grindahlaupi drengja og 100 m hlaupi sveina. Keppt er
um bikar, sem forseti íslands gaf 17. júní 1954. Leik-
stjóri: Sveinn Björnsson. Aðstoðarleikstjóri: Reynir Sig-
urðsson. Þulur: Þórður B. Sigurðsson.
VI. Sýníngar:
Kl. 16.00 Myndlistarsýning í Laugardalshöllinni.
Kl. 16.30 Hestasýning á svæði austan við íþróttaleikvang. Húj-
dýrasýning á svæði sunnan við íþróttahöll. Bifreiðasýa-
ing á bifreiðastæði vestan við íþróttaleikvanginn. Sv«
og sýning á hestakerru Jóns Guðmundssonar, Reykjum,
en fyrir henni fer hestur Stefáns Hilmarssonax.
VII. Leikur lúðrasveita:
Kl. 16.00 Lúðrasveit barna og unglinga leikur við Hrafnistw.
Stjórnandi: Karl O. Runólfsson.
Kl. 16.00 Lúðrasveit barna og unglinga leikur við Elliheimilið
Grund. Stjórnandi: Páll S. Pálsson.
Kl. 17.15 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur í Laugardalsgarðinum.
Stjórnandi: Páll S. Pálsson.
VIII. Við LaugardalssundBsuglna:
Kl. 17.15 Lúðrasveit verkalýðsins leikur, stjórnandi: Ólafur L.
Kristjánsson.
Kl. 17.30 Sundkeppni: 200 m bringusund karla, 100 m skriðsund
karla, 100 m skriðsund kvenna, 100 m bringusund kvenna,
50 m skriðsund sveina, 50 m bringusund telpna. Leik-
stjóri: Pétur Kristjánsson. Þulur: Einar Hjartarson.
Kynning á íslenzkum þjóðbúningum. Stjórnendur: Frú
Elsa E. Guðjónsson, safnvörður og frú Unnur Eyfells.
Þjóðminjasafn íslands, Þjóðdansafélag Reykjavi'kur og
fleiri aðilar lánuðu búninga.
IX. Dans barna og ungli^gi
við Laugardalshöllins:
Kl. 17.30 Stjórnandi: Hermann R. Stefánsson. Hljómsveit Toxic.
X. Dansskemmtun:
Kl. 21.00Almennur dans með sérstöku tilliti til unglinga. Hljóm-
sveitir: Hljómsveit Ólafs Gauks, Lúdó og Stefán, Toxic.
Kl. 01.00 Hátíðinni slitið'.
Barnagœzla:
Barnagæzla verður kl. 1—7 í búnings-
ingsherbergjum Laugardalshallar.
Snyrting:
Snyrtiherbergi (salerni) eru við áhorf-
endastúku og stæði á íþróttavelli og
Laugardalshöll. Einnig við Laugar-
dalssundlaug.