Morgunblaðið - 28.06.1967, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 28.06.1967, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 1967. 5 Endurvígsla Úlafsvallakirkju tilefni af kirkjuvígslunni, sagði Jón bóndi í Fjalli í greinargóðri ræðu: „Ég er viss um það, að í framtíðinni þegar við tölum um árið 1967, þá munum við það miklu lengur, að það var árið sem kirkjan var endurvígð en þó við ættum í nokkrum ÞAÐ var mannmargt við kirkju á Ólafsvöllum á Skeið um sunnudaginn 18. júní, en þá fór fram endurvígsla á kirkjunni eftir umfangsmikla viðgerð. Þessi endurvígða kirkja var upphaflega byggð 1897, árið eftir jarðskjálft- ana miklu, en þeir gerðu mik ið tjón í Ólafsvallasókn og var sagt að gjörfallið hafi 85 bæjarhús í sókninni af 228. Kirkjan sem þá var byggð var farin mjög að láta á sjá þegar viðgerð á 'henni hófst sumarið 1965. Bjarni Jónsson, bygginga- fulltrúi á Selfossi, teiknaði þær breytingar sem gerðar voru á kirkjunni, en henni var lyft af grunni og nýr grunnur steyptur. Skipt var um flesta glugga og annað það sem fúi var kominn í. Nú er kirkjan hin fegursta en langmestan þátt í því á altaristaflan, sem Baltasar málaði á allan gafl kirkj- unnar. Altaristafla þessi er mikið verk og fagurt og mun varla veglegri altaristöflu að sjá í kirkju á íslandi, nema ef vera skyldi mynd Nínu Tryggva- dóttur í Skálholtskirkju. Við- fangsefni Baltasars að þessu sinni var hin heilaga kvöld- máltíð en útfærslan er í gam- algrónum, hefðbundnum stíl. Litirnir eru dökkir og safa- miklir og áhrifin frá gamal- gróinni kirkjulist í heima- landi Baltasars leyna sér ekki. Þetta er þriðja kirkjan hér á landi sem hann skreyt- ir. Ein er vestur í Flatey og önnur er kapellan í Landa- kotsspítalanum, sem tekin var í notkun í fyrra. Öll þessi lista verk hefur Baltasar gefið. Á gólfi kirkjunnar er rautt teppi, en altarið er nýtt, gert af Ijósum viði og stendur þannig, að það myndar enda á borði þiví, sem Kristur og lærisveinarnir sitja við. Altaristaflan sem fyrir var í Ólafsvallakirkju er að vísu merkur gripur; hana málaði Þorsteinn Guðmundsson frá Hlíð í Gnúpverjahreppi, en hann var einna fyrstur ís- lendinga til þess að leggja stund á listnám erlendis. Hann nam við listaháskólann í Kaupmanna'höfn á árunum 1844-1848, en altaristöfluna málaði Þorsteinn árið 1850. Þorsteinn verður að vísu ekki talinn með merkari braut- ryðjendum í íslenzkri mynd- list og fræði akademíunar virðast hafa hripað nokkurn veginn af honum, en allt um það er merkilegt að Ólafs- vallarkirkja skuli eiga altaris töflu eftir þennan fyrsta- myndlistarmann héraðsins. Altaristöflu Þorsteins hefur verið valin annar staður í kirkjunni. Altaristafla Baltasars í Ólafs vallakirkju. Biskup fslands, Sigurbjörn Einarsson endurvígir Ólafsvalla kirkju sunnudaginn 18. júní. Biskupinn yfir fslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, endurvígði kirkjuna, en auk hans tóku þátt í athöfninni vígslubiskupinn, séra Sigurð- ur Pálsson á Selfossi, bisk- upsritarinn séra Ingólfur Ástmarsson og sóknarprestur- inn, séra Bernharður Guð- mundsson í Skarði, sem prédikaði, en auk þeirra voru þarna aðrir prestar prófastsdæmisins. í samsæti, sem 'haldið var að Brautarholti á Skeiðum í erfiðleikum með sauðtourð- inn vegna kuldanna. Fólkið hefur þann metnað fyrir kirkju sína að toúa hana eins vel og kostur er á. Það speglar á vissan hátt menningu okkar hvernig við búum að kirkjunum. Menning Vesturlanda er grundvölluð á kristinni trú. Boðskapur Krists er eitt af því fáa, sem ekki hefur Ureytzt síðustu tvö þúsund árin. Hann er alltaf jafn nýr hiverri kyn- slóð“. ' G. S. Ferðafólk Ferðafólk Þið sem eigið leið um Vestfirði munið að Hótel Bjarkalundur býður ykkur heitan mat allan daginn svo og smurt brauð og kökur með kaffinu. HÓTEL BJARKALUNHUR. 3ja lierk. íbíið Til sölu er rúmgóð 3 herbergja íbúð á 2. hæð í húsi við Mávahlíð. íbúðin er í ágætu standi. Stórar suðursvalir. Bílskúrsréttur. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Málflutningur. Fasteignasala. Suðurgötu 4. Sírni* 14314. 4ra herb. íbúð Til sölu er 4ra herbergja íbúð (1 stór stofa og 3 svefnherb.) í sambýlishúsi við Hvassaleiti. íbúðin er í ágætu standi og með miklum og góðum inn- réttingum. Góðar suðursvalir. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Málflutningur. Fasteignasala. Suðurgötu 4. Sími‘ 14314. Tveir foringjar úr Sýrlandsher — teknir af lífi fyrir landráð Damaskus, 26. júní — NTB-AP TVEIR foringjar úr Sýrlandsher voru teknir af lífi í dögun á mánudag fyrir meint samsæri um að steypa af stóli stjórn landsins, að því er Damasku - útvarpið sagði. í tilkynningu útvarpsins sagði, að majórarnir Salin Hatoum og Badr Jumaa, hafi verið sekir fundnir um landráð og hafi þeir komizt inn í landið með leynd þegar hæst stóðu átök Sýrlands og ísraels á dögunum og ætlað sér að steypa stjórn landsins með aðstoð leyniþjónustu Bandaríkj- anna, Breta og Vestur-Þjóðverja, að því er sagði í tilkynningunni. Herdómstóll dæmdi í máli for ingjanna og voru þeir sagðir hafa játað allt og lýst því yfir, að Bandaríkin hefðu staðið að baki samsærinu, sem beint hefði verið gegn stjórn landsins og leið togum aratoíska sósíalistaflokks- ins, Baath-flokksins, sem átt hefði að myrða unnvörpum. Hatoum majór, er sagður af ættflokki Drúsa, sem nokkuð er af í Sýrlandi en einnig í ísrael og Lítoanon, er bróðir hans sagð- ur gegna herþjónustu í liði Drúsa í ísraelsher, en sjálfur var Hatoum yfirmaður árásarsveita sýrlenzka hersins. Hatoum stóð að baki samsæri um að steypa stjórninni í Damaskus í septem- ber í fyrra. Sú tilraun mistókst en Hatoum komst undan til Jórdan og fékk þar hæli. Fregn- ir frá Beirut segja að Hatoum hafi komið til Sýrlands aftur er átök urðu með ísrael og Araba- ríkjunum og boðizt til að taka upp vopn í þágu lands síns á ný er tilkynnt hafði verið að náð- aðir hefðu verið í Sýrlandi allir pólitískir afbrotamenn. Er sam- særið nú mistókst líka reyndi Hatoum að flýja til Jórdan aft- ur og Jumaa með honum en þeir náðust á flóttanum og voru tekn- ir höndum. Þeir voru leiddir fyr- ir herrétt eins og áður sagði og dæmdir til dauða fyrir landráð. Var dóminum síðan fullnægt er stjórnin 'hafði samþykkt hann. Ibúð óskast í Reykjavík eða Kópavogi Fullorðin kona, sem vinnur úti, óskar eftir íbúð sem fyrst fyrir sig og tvo uppkomna syni sína. Þrjú svefnherbergi eru nauðsynleg. Nánari upp- lýsingar í síma 12277. Góð 3ja herb. íbúð um 86 ferm. á 3. hæð við Hamrahlíð til sölu. Bílskúrsréttindi. Nýja fasteignasalan Laugavegi 12, sími 24300.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.