Morgunblaðið - 27.07.1967, Síða 1
28 8IÐDR
54. árg. — 166. tbl.
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
DE GAULLE GEKK OF LANGT
Kom til Parísar í gær án þess að heimsækja
höfuðborg Kanada og ræða við forustumenn
þar. Forsetinn sætir mikilli gagnrýni heima
í nótt 300 fjölskyldum, sem
leitað höfðu hælis á húsaþök-
um í borginni, um borð í smá-
kænur. Stífla í ánni Lyari í
grennd við Karachi hefur ver-
ið sprengd í loft upp svo vatnið
renni til sjávar. í nótt var vatns
borðið í úthverfum borgarinnar
þrír metrar.
Viðurstyggð eyðileggingarinnar í Detroit.
Karachi, 26. júlí — NTB —
RÚMLEGA 100.000 manns hafa
misst heimili sín og að minnsta
kosti 19 manns hafa farizt í mestu
flóðum sem orðið hafa i Karachi
í Pakistan. Úrkoman undan-
farna daga hefur mælzt 32 sentí
metrar og spáð er áframhald-
andi rigningum.
Pakistanskir sjóliðar björguðu
fyrir og víðast annarsstaðar
Ottawa, París, London
og Montreal, 26. júlí,
AP-NTB.
DE GAULLE, Frakklands-
forseti, aflýsti í dag heim-
sókn sinni til Ottawa, höfuð-
borgar Kanada, og hélt þegar
í stað heimleiðis, en flugvél
hans lenti á Orly-flugvelli í
París kl. 21.30 að ísl. tíma í
Slakað á
klónni í
Rúmeníu
Búikarest, 26. júlí NTB-AP.
RÚMENSKA þjóðþingið sam-
þykkti í dag lög, sem eiga að
miða að því að vernda rúmenska
borgara gagnvart yfirvöldunum
og draga úr skriffinsku í ríkis-
stofnunum. Samkvæmt lögunum
verður borgurum gert kleift að
leita leiðréttingar á misferli af
hálfu yfirvaldanna fyrir dómstól
unum, bæði ef gert er á hlut hins
almenna borgara og ólöglegar á-
kvarðanir yfirvalda valda hon-
um fjárhagslegu tjóni.
Lögin ná hins vegar eklki til
ákivarðana, er stofnanir þær sem
fara með öryggisimál og löggæzlu
taka, og gilda helduir ekiki í öðr-
uim tilvilkiuffn, þar sem hags-
Framhald á bls. 27
kvöld. Pearson, forsætisráð-
herra Kanada, setti sem
kunnugt er ofan í við de
Gaulle í stjórnartilkynningu
í gær, vegna hegðunar og
ummæla de Gaulles og sagði
í tilkynningu Kanadastjórnar,
að hún og kanadíska þjóðin
gætu ekki sætt sig við um-
mæli de Gaulles. Talsmaður
franska utanríkisráðuneytis-
ins, sem var í fylgd með de
GauIIe, sagði í dag að Frakk-
landsforseti gæti ekki sætt
sig við orðalag þessarar
stjórnartilkynningar. Fregn-
in um brottför de Gaulles
kom engum í hópi kanadískra
stjórnmálamanna á óvart, en
lögð er áherzla á að de
Gaulle hafi sjálfur tekið á-
kvörðunina um að fara ekki
til Ottawa og að það hafi
verið franska sendiráðið í
Ottawa, sem skýrði Kanada-
stjórn frá ákvörðun forset-
ans.
„Lifi frjálst Quebec“
Heimsókn de Gaulles til Kan-
ada tók ranga stefnu þegar í upp
hafi. Kanadastjórn vildi að
'hann byrjaði heimsóknina í ihöf-
uðborginni Öttawa í virðingar-
skyni við sitjórnina og færi rsið-
an til Monteal og Quebec. De
Gaulle krafðisit þess aftur á móti
að lenda skipi sínu í Quebec og
þaðan fiil Monteral og Ottawa.
Aðeins 14 klst. voru liðnar frá
því að tilkynninig Pearsoms, þar
sem ihann ávitar de Gaulle fyrir
að noita sla.gorðið „Liifi frjálst
Quebec“, þar til að ákvörðun de
Gau'lles um að snúa þegar heim-
leiðis var gerð kunnug. — De
Gaulle viðhafðd áðurnefnt slagorð
í ræðu sem hann hélt í ráðlhúsinu
í Montreal, en Pearson, sem hlust
aði á ræðuna í sjónvarpi, kall-
aði þeigar saman aukafund Ihjá
stjórninni, sem samþykikti ávít-
unartil'löguna.
Framhald á bls. 27
De Gaulle við brottförina frá Montreal í gær. Simamynd frá AP.
Útrvggt ástand víöa í Bandaríkjunum
— þó að rólegt sé á yfirhorðinu. IMillJarðatjón
Was'hington, New York,
Detroit og víðar, 26. júlí,
AP-NTB.
RÓLEGRA var í flestum
borgum Bandaríkjanna í dag,
eftir hinar ofsalegu kynþátta
óeirðir undanfarna daga. — í
Detroit var tilkynnt í dag, að
þjóðvarnarliðsmenn og fall-
hlífahermenn hefðu skapað
sér sterka aðstöðu. — Her-
stjórnirnar telja að mestu á-
tökin séu yfirstaðin, en eru
þó áfram við öllu búnar. Her
menn eru allstaðar á varð-
bergi og grípa þegar í stað
fram í hvar sem bólar á óróa.
Talsmaður herráðsins sagði
að hermenn réðu öllu í aust-
urhluta borgarinnar, en erfið
ara væri að segja til um vest-
urhlutann. Þar hafa leyni-
skyttur öðru hverju látið á
sér kræla.
Hermenn börðust í nótt við
leyniskyttur og óeirðahópa, sem
fóru rænandi og ruplandi um
blökkumannahverfin. í morgun
var tala látinna á Detroit kom-
in í 33 og hátt á annað þúsund
manns höfðu særzt og 2500 ver
ið handteknir. Þetta er næst-
mesta mannfall í kynþáttaóeirð-
um í Bandaríkjunum, en 1964
féllu 35 manns í Wattóeirðun-
um í Los Angeles.
Verzlunarráð Detroit hélt
fund í dag um ástandið sem
skapazt hefur í efnahagsmálum
borgarinnar undanfarna daga. Á
fundi þessum kom í ljós, að á-
ætlað tjón er allt er talið með
geti numið um einum milljarði
dollar (43 milljörðum ísl. kr.)
Segir i fundarskýrslunni að
beint tjón í verzlunum af völd-
um bruna og þjófnaðar nemi 60
milljónum dollara. Iðnaðarfyrir
tæki £ borginni eru í miklum
Framhald á bls. 27
100.000 missa heimili
sín í flóöum í Karachi