Morgunblaðið - 27.07.1967, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1967
13
Kemst Afríka öll
í hers hendur?
EFTIR DENNIS LEE ROYLE
Tveir elztu leiðtogar Afríku, sem mjög greinir á í skoðunum. Til vinstri er Haile Selassie,
Ethíópíukeisari, og til hægri dr. Hastings Banda, óvinsælasti forseti í Afríku, þar sem hann
hefur neyðzt til að gera við viðskiptasamninga við ríki hvítra manan, sem mnlykja land
hans á alla vegu, Suður-Afríku, Rhodesíu og Mozambique.
Jóhannesarborg, (Associated
Press),
FYRSTI áratugur frelsis
svertingja í hitabeltislöndum
Afríku er lliðinn og hrópið
„Uhurn" heyrist sjaldan nú
orðið, eftir því sem fleiri
negraríki falla undir stjórnir
herforingja.
Ghana reið á vaðið fyrir 10
árum, er Kwame Nkrumah
mótaði frelsi úr hráefni
brezkrar nýlendustjórnar.
Síðan hafa rúmlega 30 Afríku
lönd, flest af meiri vdlja en
mætti, dottið hvert um ann-
að þvert í kapphlaupinu um
að fá sjálfstæði.
f dag eru margir brautryðj
endur svertingja í Afríku
- látnir, eða sitja í útlegð eins
og Nkrumah, og bíða í þeirri
von, að einhvern tíma nái
þeir völdum á ný.
Elztu stjórnmálamenn
Afríku eru að hverfa úr sög
unni, og ný kynslóð herfor-
ingja mótar stefnu stjórnmál
anna.
Fjármálaspilling í upphafi
sjálfstæðisins gerði sum
Afríkuríki gjaldþrota. Marg-
ar milljónir sver.tingja, sem
fynir fáum árum glöddust yf-
ir sjálfstæðinu, tilbáðu leið-
toga sína, er hötuðu hvíta
mepn, eru nú mjög vonsvikn
ir, vegna innbyrðis baráttu
kvnflokka, fátæktar og blóðs
úthellinga.
Efstur á lista gömlu leið-
toganna er „Mzee“ (öldung-
urinn) Jomo Kenyatta, fyrsti
forseti Kenya. Hann man
ekki, hvenær hann var fædd
ur, en iæknar telja hann á
áit’'æðisaldri.
Þótt Kenyatta sætd í fang-
eisi Breta fyrir samband sitt
við Mau Mau hreyfinguna,
leiddi hann ýmsa frumstæða
og villimannlega ættflokka
inn á virðingarverðari braut-
ir, eftir að ofbeldi uppreisn-
arinnar lauk.
Margar götur í Nairobi
heita eftir Mau Mau leið-
togum ,sem síðar hafa verið
teknir af lífi. Kenyatta
komst sjálfur naumlega hjá
aftöku í herforingjaupp-
reisn árið 1964, — og var
bjargað með aðstoð brezks
herliðs.
Hinn 46 ára gamli forseti
Tanzaníu, Julius Nyerere,
sem kallaður ér „Mwalimii“
(kennafinn) flýði í felur
þegar hinn svarti her hans
gerði uppreisn árið 1964.
Brezkt herlið koni honutri
aftur til valda.
Sjálfstæðið hefur ekki
bréytt högum hinna 10 millj,
íbúa Tanzaníu til háns betra,
Mitljónir eru oft að dauða
komnar af hungri og vin-
átta Nyereres við kínverska
kommúnista hefur ekki fært
landinu neina björg í bú
né linnað þjáningu þeirra,
sem svelta.
Milton Obote, forseti
Uganda, neyddist til að fá
aðstoð brezkra hersveita til
að bæla niður uppreisn hers
síns í byltingafaraldrinum,
sem geisaði í Austur-
Afríku árið 1964. Síðar
sigraði hann uppredsnarher
arfakóngsins af Buganda,
Freddie konungs, sem nú er
í útlegð í Englandi. Fimm
af ráðherrum Obotes gerðu
uppreisn gegn einræðisvaldi
hans og voru þegar í stað
fangelsaðir.
Hir.n 61 árs gamli forseti
Malawi, dr. Hastings Banda,
hefur algera sérstöðu með-
al aldraðra Afríkuledðtoga.
Titill hans „Ngwazi" þýðir
höfðingi höfðingjanna. Marg
ir ráðherrar hans gagn-
rýndu eitt sinn óhlutdræga
afstöðu hans til ríkja í Suð-
ur-Afríku, þar sem hvítir
menn stjórna. „Þeir skulu fá
að grotna niður í fangels-
inu, þar til þeir biðjast fyr-
irgefningar á hnjánum,"
sagði hann.
Hann hefur fyrirskipað
öllum 4V2 milljón íbúum
Malawis að berjast gegn
hvenri uppreisnartilraun
gegn stjórn hans. Banda er
hataðasti leiðtogi svertingja
ríkja Afríku. Hann gerði ný
lega viðskiptasamning við
hina illræmdu stjórn Suður-
Afríku.
Aldursforseti Afríkuleið-
toga á valdastóli er „Ljónið
af Júda“, hinn 74 ára gamli
keisari Haile Selassie. Hann
hefur stjórnað Ethíópíu, sem
22 milljónir manna byggja,
í meira en 25 ár. En þessum
aldraða keisara lá við falli,
þegar lífvarðasveitir hans
gerðu byltingartilraun, árið
1960. Tíu af helztu ráðherr-
um Selassies voru drepnir í
þessari skammlífu uppreisn.
í einhverju versta lofts-
lagi á strönd Vestur-Afriku
hefur William Vaccanarat
Shadrach Tubman, forseti,
sem er 71 árs að aldri,
stjórnaði Líberíu um 24 ára
skeið. Hann býr í 8 milljón
dollara (næstum 350 millj.
ísl. kr.) forsetahöll. Líbería
var stofnuð árið 1822 sem
nýlenda fyrír ameríska
þræla, sem gefið hafði verið
frelsi. Amerískir dollarar
eru lögfestur gjáldmiðill
Líberíu.
Forseti Ghana, Kwame
Nkrumah, hrökklaðist frá
völdum, vegna herforingja-
uppreisnar undir stjórn
Josephs A. Ankraíhs, hers-
höfðingja, árið 1966. Hann
settist að í grannrikinu
Guineu, er Ghana sat eftir
með 700 milljón dollara al-
þjóðlegan skuldabagga. Mis-
heppnuð uppreisn gegn hin-
um nýju yfirvöldum endaði
með opinberum fjöldaaftök-
um og handtöku hundruða
manna.
Nígería, sem eitt sinn virt
ist ætla að verða fyrirmynd
stjórnarfars í Afríku, hefur
einnig orðið fyrir herfor-
ingjauppreisnum og kyn-
flokka óeirðum. Fyrsti for-
setinn, Sir Abubakar Taf-
awa Balewa, var drepínn í
janúar 1966. Eftirmaður
hans, Aguiyi hers-
höfðingi, varð sömu örlög-
um að bráð sjö mánuðum
síðar.
Núverandi einræðisherra
er hinn 32 ára gamli Ya-
.kubu Gowon, hershöfðingi.
Hann stendur nú í styrjöld
við nýjasta negralýðveldi
Afríku, Biafra, austurhérað
Nígeríu, sem sagði sig úr
lögum við Nígeríu og lýsti
yfir sjálfstæði undir stjórn
hins 33 ára gamla Ode-
megwe Ojukwu.
Togoland á vesturstrond
inni, hlaut sjálfstæði frá
Frökkum árið 1960.. Þremur
árum síðar var fyrsti forseti
þess ríkis, Sylvanus Olym-
pio, myrtur í heruppreisn.
Eftirmaður hans, Nieholas
Grunitzky, lifði af byltingu
árið 1966, en var steypt af
stóli snemma á þessu, ári af
nýrri herforíngjastjórn, sem
Etiene Eyadema stýrir. Eya
dema lifði naumlega af
morðtilraun í apríl sl.
Zanzibar, kryddeyjan úti
fyrir Austur-Afríkuströnd,
fékk sjálfstjórn í desember
1963. Mánuði síðar setti
(„Uppreisnarþð þjóðarnnar“
soldáninn af og slátraði þús
undum Araba.
Leo M‘Ba, forseti Gabon,
sem áður var frönsk ný-
lenda, sigraðist á byltingar-
tilraun árið 1964 aðeins fyr-
ir íhlutun franskra her-
manna ,sem flogið var með
til landsins honum til bajrg
ar.
Landskiki sá á vestur-
ströndinni, sem nefnist
Dahomey og er aðeins um
650 km á lengd og 130 km
breidd, hlaut sjálfstæði úr
henidi Frakklands árið 1960.
Þar hafa orðið þrjár mis-
munandi stjórnarbyltingar
síðan 1963.
Á síðastliðnum 18 mánuð-
um hafa herforingjar tekið
með valdi í sínar hendur
stjórn 10 Afríkuríkja: Alsír,
Nígeriu, Ghana, Mið-Afríku-
lýðveldinu, Efri Volta,
Kongó (Kinshasa), Daho-
mey, Togo, Burundi og
Sierra Leohé. Herforingjar
ráða því yfir um 100 milljón
um manna í Afríku nú, eða
meira en þriðjungi 270
milljón íbúa álfunnar.
Smáríkið Sierra Leone var
hið tíunda og síðasta til að
falla í herforingjabyltingu í
apríl sl. án blóðsúthellinga.
Hinir hrjáðu íbúar Kongó
tóku illa undirbúið sjálfstæði
sitt geyst, árið 1960, og þús-
undir manna féllu á fyrstu ár-
um frelsisins. Fyrsti forsætis-
ráðherráhn, Patfice Lum-
umba, var myrtur eftir 2%
mánuð í embætti. Cyrille
Adoulla héít velli í þrjú róst-
ursöm ár. Moise Tshombe tók
við forsætisráðherraembætt-
inu, en Joseph Kasavubu, for-
seti, rak hann aftur frá 15
mánuðum síðar. Ewriste
Kimba varð næsti forsætis-
ráðherra Kongó, en honura
var steypt af stóli ásamt
Kasavubu, er hinn 36 áfa
gamli Joseph Mobutu, hers-
höfðingi, brauzt til valda.
í júní 1966 voru Kimba,
fyrrum forsætisráðherra, og
þrír aðrir fyrrverandi ráð-
herrar, hengdir opinberlega,
eftir misheppnaða tilraun til
að bylta stjórn Mobutus, hers-
höfðingja.
Eitt af erfiðustu vandamál-
um Afríku er skortur á sam-
hug. Sameiningarbandalag
A’fríku er mjög óvirkt.
Negrasvæðum Afríku h'efur
verið skipt í tugi sjálfstæðra
ríkja, e.n lítill gaumur verið
gefinn því, hvort jaðrar
þessara ríkja fyigja þeim
mannfræðilegu iandamærum,
sem þarna eru fyrir hendi,
þ.e.a.s. svæðaskiptingu eftir
kynflokkum, sem eru auk
þess venjulega margir í
hverju ríki. í Nígeríu einni
eru næstum 200 mismunandi
kynflokkar, sem margir tala
ólíkar mállýzkur.
Ríkjum sver.tingja í Afríku
er skipt í þrjá aðskiida hópa,
ekki eftir innbyrðis skyld-
leika, heldur því hvort lönd-
in tilheyrðu áður Frökkum,
Bretum eða Belgíumönnum.
Sumir Afríkuleiðtogar, sem
staðið hafa af sér byltingartil
raunir herforingja, berjast
vasklega við að halda völd-
um. Þeir óttast þó stöðugt
byltingu hersins.
Milljónir Afríkumanna, sem
lifað hafa í sigurvímu sjálf-
stæðisins, eru teknir að ger-
ast bitrir og vonsviknir. Lof-
orð leiðtoga þeirra hafa ekki
orðið að veruleika. Óteljandi
íbúar frumskóganna hafa
aldrei séð eða jafnvel aldrei
.heyrt nefnda þá stjó'rnmála-
menn, sem leiddu þá til sjálf-
stæðis. Lífskjör þeirra hafa
lílið batnað, hvort sem borg-
araleg stjórn eða herforingja-
stjórn hefur verið við völd
Þá hefur yfirtaka svertingja
á ýmsum skipulags- og stjórn
arstörfum, sem hvítir menn
áður sáu um, valdið ringul-
reið í mörgum nýju ríkj-
anna.
„Afríka er í hers höndum
í dag“, sagði forseti Tanzan-
íu, Julius Nyerere. „Það er
djöfull að verki í þessari
heimsálfu, sem varnar okkur
framfara og efnda á loforðum
sjálfstæðisins".