Morgunblaðið - 27.07.1967, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1967
Valbjörn oriinn 7 faldur
íslandsmeistari
í 400 metra hlaupi
— Þorsteinn hjó nærri meiinu
ANNAR dagur Meistaramóts fs-
lands í frjálsum íþróttum bauð
upp á skemmtilegustu frjáls-
íþróttakeppni, er fram hefur
farið hér um nokkurn tíma. Það
er ekki oft sem hægt að færa
skipuleggjurum frjálsíþrótta-
móta hrós, en að þessu sinni átti
framkvæmdin sinn stóra þátt í
því hve mótið var skemmtilegt.
Aldrei var neitt hlé, að ráði á
keppninni og meira að segja boð
hlaupið fór fram á fyrirfram-
ákveðnum tíma. Þó voru í hverri
grein óvenjumargir þátttakend-
ur, og stóð því keppni yfir leng-
ur en venja er. Nú má bara ekki
slaka á, heldur halda slíku áfram
og er þá ekki að efa, að þeir
áhorfendur, sem gefizt hafa upp
á að horfa á einkar langdregin
og leiðinleg mót, mæta á vellin-
um aftur.
Keppni var skemmtileg í mörg
um greinum í fyrrakvöld og góð
ur ár-angur náðist.
í 400 metra hlaupi setti Þor-
steinn Þorsteinsson, KR, nýtt
unglingameí, hljóp á 48,2 sek.,
aðeins 2/10 lakari tími en ís-
landsmet Guðmundar Lárusson-
ar frá 1950 er. E'kki er fráleitt
að ætla að metið komi í sumar,
en Þorsteinn tekur miklum og
örum framförum og hefur náð
giæsilegum stíl í hlaupum sinum.
En Þorsteinn var ekki einn um
afrekin í 400 metra hlaupi. Þór-
arinn Arnórsson, ÍR, varð ann-
ar á sínum langbezta tíma 49.9
sek. Sömuleiðis Trausti Svein-
björnsson, FH og Jóhann Frið-
geirsson sem setti UM'SE met í
greininni.
Valbjörn Þorláksson stökk
4,30 metra í stönginni, og reyndi
næst við nýtt met 4,51, metra.
Var hann mjög nálægt því að
fara hæðina í einni tiilrauna
sinna. Hreiðar Júlíusson, KR,
setti enn á ný persónulegt met í
greininni og stökk 3.9I5 metr.
Hefur hann nú náð lagi á að
sveigja fiber-stöngina, en skortir
nokkuð á stíl yfir ránni.
í 100 metra hlaupi voru 12
keppendur, og sigraði Valbjörn
örugglega í úrslitahlaupinu, en
Ólafur og Reynir háðu harða
baráttu um önnur verðlaunin.
Þá var mjög jöfn keppni í
kringlukasti, en svo fór að lok-
um að Erlendur sigraði, kastaði
48.13 metra, en Þorsteinn Alfreðs
son náði sínu bezta í ár, 47,09
metra. »
í sleggjukastinu var Jón H.
Magnússon, ÍR, hinn öruggi sigur
' vegari, en það var ekki fyrr en
líða tók á keppnina að methaf-
inn, Þórður B. Sigurðsson, náði
öðru sæti, frá Þorsteini Löve, ÍR.
Keppni í þrístökki var mjög
jöfn. Karl Stefánsson, KR, leiddi
keppnina fram í síðustu umferð,
en þá heppnaðist Guðmundi
Jónssyni, HSK, að stökkva
14.16 metra, sem nægði til sig-
urs.
Halldór Guðbjörnsson bætti
svo tveimur meistaratitlum við
sig í gær. Sigraði í 1500 metra
hlaupinu, eftir skemmtilega
keppni við Gunnar Kristinsson
Þingeying og var með í sveit
KR er sigraði í 4x400 metra
hlaupi.
Sveit HSÞ, setti íslandsmet í
4x100 metra boðhlaupi kvenna
og Lilja Sigurðardóttir, HSÍ>,
setti Meistaramótsmet í 80 metra
grindahlaupi, hljóp á 12.8 sek.
Helztu úrslit mótsins í fyrra-
kvöld urðu þessi:
110 metra grindahlaup:
Valbjörn Þorláksson, KR 15,8
Reynir Hjartarsson, ÍBA 16,0
Sig'urður Láruisson, Á 16,2
Snorri Ásgeirsson, ÍR 18,1
Þrístökk:
Guðimmd'ur Jónsson, HSK 14,16
Karl Stefánsso-n, KR 14,09
Sigurðair Sigmundsson, UMSE 13,30
Jón Þ. Ólafsson, ÍR 13,38
Sleggjukast:
Jón H. Magnússon, ÍR 51,38
Þórður B. Sigurðsson, KR 50,51
Þorsteinn Löve, ÍR ' 50,02
Erlendur Vaddimarsson, ÍR, 42,44
Stangastökk:
Valbjörn Þorláikisson, KR 4,30
Hreiðar Júlíusson, KR 3,95
Páll Eiríksson, KR 3,65
Magnús Jakobsson, UMSK 3,50
400 metra hlaup:
t>orsteinn Þorsteinsson, KR 48,2
Þórarinn Arnórsson, ÍR 49,9
Trausti Sveinbjörnsson, PH 50,1
Jóhann Friðgeirsson, UMSE 52,8
100 metra hlaup:
Valbjörn t>orláksson, KR 11,2
Ólafur Guðmiundsson, KR 11,3
Reynir Hjartarsson, ÍBA 11,4
Trausti Sveinbjörnsson, FH 11,4
Kringlukast:
Erlendur Valdimars9on, ÍR 48,13
t>orsteinn Alfreð&son, UMSK 47,08
Hallgrím-ur Jónsson, Á 46,62
Þorsteinn Löve, ÍR 45,66
1500 metra hlaup:
Halldór Guðbjörnsson, KR 4:02,5
Gunnar Kristinssoh, HSt> 4:04,3
Þórarinn Arnórsson, ÍR 4:11,1
Gunnar Snorrason, UMSK 4:22,9
4x400 metra boðhlaup:
1. Sveit KR, (Ólafur, Valbjörn, Hall-
dór, Þorsteinn) 3:25,4 mdn.
2. Sveit Ármanns 3:44,7 —
KVENNACrREINAR:
Kringlukast:
Fríður Guðmundsdóttir, ÍR 32,50
Dröfn Guðmundsdóttir, UMSK 29,65
Sigrún Sœmundsdóttir, HSt» 28,81
80 metra grindahlaup:
Lilja Sigurðardóttir, HSt> 12,8
Þuííður Jónsdóttir, HSK 13,4
Bergþóra Jónsdóttir, ÍR 13,4
4x100 metra boðhlaup:
1. Sveit HSt> 53,2 sek.
2. Sveit HSK 54,9 —
3. Sveit ÍR 54,9 —
Fritz Buchloh og Hermann Hermannsson.
Það var gaman að starfa með
íslenzkwn knattspyrnumönnum
— rætt við Frizt Buchloh
HÉR á landi er nú staddur
Fritz Buchloh sem mun mörg
um . íslenzkum knattspyrnu-
mönnum að góðu kunnur.
Buchloh kom fyrst hingað til
Iands 1939 og þjálfaði þá
knattspyrnumenn Víkings og
seinna Vals. Á þeim tímum
var Buchloh frægasti mark-
vörður Þýzkalands og var þá
m.a. valinn í þýzka Iandslið-
ið 17 sinnum, og að auki í úr-
valslið. Þá kom hann aftur
árið 1948 og þjálfaði Valsliðið
til 1950.
Við hitlum Buchloh að máli
á heimili Hermanns Her-
mannssonar, hins gamalkunna
markvarðar Vals, og spurð-
um hann um ástæðu fyrir
fyrstu íslandsferð hans.
— Knattspyrnusamband
Þýzkalands fékk beiðni frá
íslandi, um að það útvegaði
knattspyrnuþjálfara til ís- '
lands, sagði Buchloh og lét ég
þá tilleiðast að fara. Ferðin
var þá jafnfram; brúðkaups-
ferð fyrir okkur hjónin, sem
vorum þá nýgift.
— Og þú byrjaðir með
Víking?
— Til að byrja með var ég
með Víking, en fór síðan til
Vals og var þar um nokkurn
tíma. Strá'karnir sem voru
hér í knattspyrnu þá voru
margir hverjir „tekniskir",
en mjög skorti á með leik-
aðferð og skipulagningu leiks
ins.
Til gamans má geta þess að
þann tíma, sem Buchloh var
þjálifari Víkings hófst þeirra
blómaskeið í knattspyrnu, en
1940 varð Víkingur Reykja-
víkurmeistari í knattspyrnu.
— Jafnframt því sem hann
þjálfaði þessi lið, tók hann
okkur markverðina, í auka-
tíma, skaut Hermann Her-
mannsson inn í. Ég var þá
byrjaður fyrir nokkru í mark
inu, en ég mundi segja að ég
ætti Buchloh mest að þakka
það sem ég gat í markinu.
Buchloh er búinn að sjá
nokkra knattspyrnuileiki hér
að undanförnu og lá því
beint við að spyrja hann
hvernig honum litist á knatt-
spyrnuna hjá okkur.
— Hún hefur breytzt tölu-
vert mikið hér að undanförnu,
sem og allsstaðar annars
staðar í Evrópu. Nú er lagt
meira upp úr hraða og fljót-
um mönnum og grófari leik
en áður var.
— Og á hvaða stigi telur
þú íslenzka knattspyrnumenn
vera?
— Þeir standa fyllilega jafn
fætis við áhugamenn í flest-
um löndum Evrópu. .Hins-
vegar er svo oft erfit.t að
segja um hver er atvinnumað-
ur og hver áhugamaður í
evrópskri knattspyrnu.
Mörkin eru óljós þar á milli
mjög oft.
— Hvernig hefur þér fund-
izt að starfa með íslenzkum
knattspyrnumönnum?
— Það fannst mér alltaf
mjög gaman. Þeir vildu
gjarnan læra og hlýddu vel
þeirri tilsögn sem maður gat
gefið þeim.
— Hvað finnst þér um ís-
lenzka markmenn núna?
— Sigurður Dagsson í Val
er mjög góður markvörður,
en mætti grípa betur inn í hjá
vörninni. Hann skilar líka
knettinum vel frá sér, —
kemur honum inn í spilið, en
það er mjög mikið atriði fyr-
ir markmann. Sigurður er að
verða markvörður á borð við
Hermann og Helga Dan.
Svo segir Buchloh okkur
frá því að Hermann hafi
ferðazt heilmikið um landið
með hann og þeir hafi komið
við hjá Helga Dan. á Akra-
nesi.
Buchloh sagðist vera mjög
hrifinn af íslenzku landslagi
og sérstaklega af sólarlaginu,
og auðheyrt var að sú hrifn-
ing hans var engin uppgerð.
■(■
Golfmótið
MEISTARAMÓT Golfklúbbs
Reykjavíkur hófst í fyrrakvöld
en verður fram haldið í kvöld
á velli Golfklúbbs Reykjavíkur
Grafarholti. Keppnin hefst stund
víslega kl. 6.
í fyrrakvöld voru leiknar 18
holur, í kvöld verða leiknar aðr-
ar J8 en síðan lýkur mótinu á
laugardag og sunnudag.
Vmm 1967:
1 ðligorio
2 Priðrik Clafason
3 Bemt Larser.
4 Fetsrose
5 O'Kelly
6 Kottnauer
7 Bario
8 Wade
9 I’ri.tohett
3
lll
im
11
111
i \ j
i 0 i Í
0 i '0 i
4 5
* i
i 1
§§:
X
|Íi|
111
i
8 9 Viaa. ;
11 6* 1
1 1 5i 2-3
i 1 1 1 1 5i 2-3
i T i 1 i 5 4-5
X 1 1 1 i 5 4-5
0 X i 1 i 3 6
0 0 0 i 0 i X
0 0 0 0 0 0 1
0 1 2 7-8
X 1 2 7-8
0 0 0 i i i ö 0 X li 9
Valbjörn sigrar í 100 metra hl .upinu.
Gf igoric efstur í Dundee
Larsen vann Friðrik
FRIÐRIK Ólaifsson tapaði fyrir
Berat Larsen í síðuisitu umtferð-
inni á sikákimótinu í Dundee,
Skiotlandi. Eftir að hafa al'gjör-
lega „yfirspilað" Lansen, lék
Friðrik einum ónáikrvæmum leik
og tapaði.
Úrslit biðiskáka úr 6. 7. og 8.
urnferð:
Davie vann Pritchett, O’Kelly
vann Kottnauer, en Pfenroise og
Pritchett gerðu jafntefli. Úrsldit
isíðuistu uimiferðar: Wade vann
Pritohett, Gligoric og O’Kelly
gerðai jafntefli, sömiuleiðis gerðu
Kottnauer og Davie jafratefli:
HeiMarúrslit í mótirau vísast
til töflu.