Morgunblaðið - 02.08.1967, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. AGÚST 1967
Gísli Gestsson, safnvörður fyriir framan hellinn. (Mynd: Þór
Magnússon).
Fundu ekkert nýtt
,beinahelHnum
i
GÍSLI Gestsson, safnvörður fór
suður undir Grindavík í gær til
þess að kanna hellinn, sem
beinagrind og ýmsir smáhlutir
fundust í fyrir skömmu. Gísli
sagði fréttamanni Mbl. að þeir
hefðu ekkert fundið athyglis-
vert á staðnum, þar hefðu ekki
verið neinar frekari leifar.
Bandaríkjainennirnir þrír, sem
fundu beinin, höfðu farið
nokkru áður til þess að
44
fundu þá fatadruslur, sem þeir
kanna hellinn betur og
fóru með til Hafnarfjarðar og
afhenti lögreglunni. Gísli sagði,
að erfitt væri að átta sig á aldri
þeirra, en þær væru nokkuð
fornlegar í útliti, eins og hníf-
urinn og beltissylgjan sem
fannst í hellinum. Ekki hefur
enn verið skorið úr um aldur
heinanna og ekki ákveðið hvort
frekari rannsókn á þeim fari
fram.
ELDING VERÐUR 10
BÖRNUM AÐ BANA
Tókíó, 1. ágúst, NTB
ELDING varð í dag tí« japönsk-
um skóladrengjum að bana sem
voru í fjallgöngu í japönsku
Ölpunum svo nefndu, ásamt 22
öðrum skólafélögum sínum. Er
spurðist um slysið voru björg-
unarsveitir þegar sendar af
SAMLÐAR-
VERKFALL
ENGINN samningafundur hefur
verið boðaður í vinnudeilunni í
Straumsvík ennþá, en á hinn
bóginn hefur verið boðað til sam
úðarverkfalls hjá verkamönnum
sem vinna við uppskipun og út-
skipun á varningi til Straums-
víkur. Kemur samúðarverkfaliið
til framkvæmda 7. ágúst.
i stað, en sökum veðurs töfðust j
þær í nokkra klukkutíma.
Fjallgöngumaður, sem kom á
I slysstaðinn skömmu eftir að eld-
I ingunni laust niður, sagði, að
engu hefði verið líkara, en
| sprengju hefði verið varpað á
1 drengjahópinn. Börnin, sem eft-
I ir lifðu, og kennari þeirra, sem
fór fyrir þeim, voru lömuð af
I hræðslu og gátu sig ekki hreift
I tii þess að hefja björgunarað-
gerðir.
Forstöðumaður skólans, sem
börnin eru frá, í borginni Mat-
sumoto, sagði í dag, að allar ör-
yggisráðstafanir hefðu verið
gerðar áður en börnin lögðu af
stað og þau hefðu verið vel út-
búin til fjallgöngunnar.
Þrumuveður eru tíð á norðan-
verðum japönsku Ölpunum á
þessum tíma árs og talið er, að
börnin hafi lent í slíku veðri.
If/t
/029
'iA
LLi
V!o.
■!°
L23<
6
13
3! n
<
ItiV
Um nónbilið var hæg aust
læg átt og léttskýjað á land-
inu, og á S-v-landi var 14—16
stiga hiti. Við norður- og
austurströndina var hitinn
hins vegar aðeins 5—7 stig.
Á Austfjörðum var stinnings
kaldi og víða rigning.
Horfur eru á að góðviðrið
haldist enn um sinn hér suð-
vestan til á landinu, því að
lítilla breytinga er að vænta
á afstöðu hæða og lægða á
mánudag við landið.
Jarðsérfræöingur á vegum
Rannsóknarst. Landbúnaöarins
Prófessor Steenbjerg með ísle nzkum landbúnaðarsérfræðing-
um t.v. Pétur Gunnarsson og að baki þeirra Pálmi Einarsson
landnámsstjóri. Ljósm. Sv. Þ.
Mikil leit ai
írskri konu nyrira
UM ÞESSAR mundir dvelur
hér á landi danskur prófessor
við Landbúnaðarháskólann 1
Kaupmannahöfn. Er það pró-
fessor Folmer Steenbjerg. Hann
er hér á vegum Rannsóknar-
stofnunar landbúnaðarins og í
boði hennar.
Prófessor dr. Steenbjerg er
öðrum landbúnaðarprófessorum
fróðari um ísland, og einkum
íslenzkan jarðveg, þar sem hann
vann hér að jarðvegsrannsókn-
um á vegum dró Lauge Koch
árið 1936 og tók þá m.a. á þriðja
hundrað jarðvegssýnishorn hér
á landi. Pétur Gunnarsson for-
stöðumaður Rannsóknarstofnun-
ar landbúnaðarins vann á þeim
árum að þessu verkefni með dr.
Steenbjerg bæði hér heima og
er Pétur dvaldist við Landbún-
aðarháskólann í Kaupmanna-
höfn.
Sl. mánudag flutti prófessor
dr. Steenbjerg fræðilegan fyrir-
lestur um efnagreiningu á jarð-
vegi og grÖsum hvernig notfæra
ætti sér þá efnagreiningu í sam-
bandi við næringarþörf jarðvegs
og jurta. Erindi þetta var vís-
indalegs eðlis og hlýddu á það
allmargir landbúnaðarsérfræð-
íngar hér.
Pétur Gunnarsson kynnti
prófessorinn og að loknum fyrir
lestri hans voru lagðar fyrir
hann spurningar, er hann síð-
an svaraði.
Prófessor dr. Folmer Steenbjerg
Sviíflugo
luskuðist
í lendingu
LÍTIL sviffluga laskaðist í lend
ingu skammt frá Leirvogsvatni
í gær. Flugmanninn sakaði ekki.
Svifflugan var að koma úr
langflugi og ætlaði að lenda á
Sandskeiði. En áður en hún náði
þangað hafði hún misst svo
mikla hæð, að flugmaðurinn
var tilneyddur að reyna lend-
ingu á túni við Leirvogsvatn.
Við lendingu vildi svo óheppi-
lega tii, að flugan skall á steini
með þeim afleiðingum að hún
brotnaði.
Washington, 31. júlí NTB
Gullforði Bandaríkjanna
minnkaði um 45 millj. dollara
í júlí og er það mesta lækkun
gullforðans á einum mánuði síð-
an í október í fyrra.
MIKIL leit var gerð að írskri
konu, sem hvarf frá Völlum í
Seyluhreppi hinn 14. síðasta
mánaðar og fannst ekki fyrr en
í gærkvöldi. Kona þessi heitir
Virginia Barcley, er útlærð,
hjúkrunarkona, rúmlega fertug
að aldri. Hún kom hingað til
lands í júnímánuði síðastliðnum
og var um stund hjá kunningja-
fólki sínu að Laugarvatni. Þaðan
fór hún að Þorsteinsstöðum í
Skagafirði, þar sem hún átti
kunningjafólk og var svo ráðin
að Völlum, í sumarvinnu. Þang-
að kom hún 11. júlí og ætlaði að
vera í einn til einn og hálfan
mánuð.
Fjórtánda júlí hafði hún orð
á því, að hana langaði til að sjá
Aík'ureyri og ætlaði að taka sér
FRANSKI vísindaleiðangurinn,
sem hér er staddur á landi við
rannsóknir á rafögnum, sem
berast út úr geimnum inn í há-
loftin, hefur nú þegar sent tvo
loftbelgi á loft í þessu skynL
Leiðangursstjóri er prófessor
Cambou frá háskólanum í Tou-
louse, en vísindamennirnir hafa
far með áætlunarbifreið þang-
að. Ekki fór hún þó með áætlun-
arbílnum en fékk far með einka
bifreið, sem í var einn karl-
maður. Hún hafði sagt, að tún
yrði Kklega tvo til þrjá daga í
burtu, svo þegar hálfur mánuður
var liðinn var fólkið á Völlum
orðið mjög hrætt um hana. Var
þá haft samiband við Jóhann
Salberg Guðmundisson, sý-slu-
mann, sem hóf eftirgrennslan,
ásamt lögreglunni á Akureyri. f
gærkvöldi kom svo í ljós, að
Virginia hafði heimsótt kunn-
ingja sinn í Eyjafirði og var
komin heilu og höldnu aftur til
Akureyrar. En henni hafði alveg
láðst að léta vita um ferðir sín-
ar. —
bækistöð við Reynisfjall,
skammt frá Vík í Mýrdal. Áform
að er að senda þriðja loftbelg-
inn á loft í kvöld, en síðan er
ætlunin að senda nokkra upp
til viðbótar eða þar tll Frakk-
arnir fara héðan af landi brott
um miðjan þennan mánuð.
Á myndinni eru tveir leiðang ursmanna ásamt tveimur ís-
lenzkum túlkum við bækistöðvar sínar á Reynisfjalli.
Þriðji loftbelgurinn
á loft i kvöld