Morgunblaðið - 03.09.1967, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. SEPT. 1967
VETRARTIZKAM
tíi 'S j|Bí:l
v f/H.M
NÚ HEFIJR verið gefið leyfi til að birta myndir frá vetrar-
tízkunni í París. Komu myndirnar mörgum mjög á óvart. I
rauninni varð engin meginbreyting á, frá því sem áður var,
en flestir höfðu búizt við eins konar byltingu í tízkuheimin-
um, líkt og varð 1947 er Dior kom með síðu pilsin.
Að vísu koma fram síð pils, en stuttu pilsin halda velli.
Tízkan, sem nú er ríkjandi, er ákaflega öfgafull, ýmist
afar stutt eða afar síð. Margir af tízkufrömuðunum taka
samt skýrt fram að síða tízkan sé eingöngu ætluð til jóla-
leyfa í fjöllunum, ferðalaga um sveitirnar, eða þá eingöngu
til spaugs á götum úti. Þrátt fyrir þessar fullyrðingar verð-
ur að taka með í reikninginn að kvöldkjólarnir eru síðir,
eða hálfsíðir, stundum hvorutveggja í senn, hálfstuttir að
framan en síðir að aftan.
Geta nú konur valið á milli, eftir aldri, vexti og per-
sónuleika, hvort þær vilja ganga í stuttri eða síðri tízku. En
eitt ber öllum tízkuhúsunum saman um, konan á að vera
kvenleg.
Mikið var af alls konar stígvélum, úr leðri, rúskinni,
lakki eða öðru efni, hattarnir eru yfirleitt hjálmlaga og falla
þétt að höfðinu. Mikið ber á herðaslám, hæði yfir dragtir og
í staðinn fyrir kápur.
Engar fastar reglur eru ríkjandi um mittið. Beltin mega
vera allt ofan frá brjóstum (empire-línan), í réttum mittis-
stað eða ofan á mjöðmum.
Tízkulitirnir eru margir, en aðallega svart, hvítt, dökk-
i v ' ' ^
Þessi mynd er dæmigerð fyrir vetrartízkuna í ár.
Paris.
Maxi- og mini-stúlkur á Concord-torginu í
hrúnt, grátt og dökkblátt. Skærrautt, hlátt, grænt, appel-
sínugult, gyllt og fölhrúnt (beige) eru „auka“-litir.
Sokkarnir eiga að vera dökkhrúnir.
Eins og sjá má af þessari upptalningu virðist vera á
markaðinum nánast eitthvað fyrir alla og birtast hér nokk-
ur sýnishorn af því sem fram kom.
Að sjálfsögðu gefur París „tóninn“, ef svo mætti segja,
en tískuhús um víða veröld framleiða síðan fyrir viðskipta-
vini sína föt hyggð á hugmyndunum, draga úr öfgunum,
þannig að venjulegt fólk geti notað fötin.
Nú skulum við líta á myndirnar.
Stutt-pils með stuttum jakka
og skemmtilegum hatti frá
Pierre Cardin.
Svört og hvít tweea-dragt frá Jacques Heim. Jakkanum er
lokað að framan með rennilás og beltið er dregið í gegn, takið
eftir slánni, sem er úr sama @fni og dragtin.
Það er Ungaro sem ber ábyrgð á þessum fótabúnaði, sem * að
notast við mjög stuttan kvöldkjól, hvort þetta eru sokkar eða
stágvél, Uggur ekki alveg Ijóst fyrir en okkur sýnist stúlkan
vera mjög göngugifs á báðum fótum!