Morgunblaðið - 03.09.1967, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.09.1967, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. SEPT. 1967 o Skrifstofuhúsnæði óskast Tvö til þrjú herbergi eða 50—70 ferm. salur með möguleika á skiptingu. Tilboð leggist inn á af- greiðslu blaðsins merkt: „Teiknistofa — 707“. Heildsalar - sölumaður Vanur sölumaður, sem er að fara í hringferð, getur bætt við sig nokkrum góðum vörutegundum. Lyst- hafendur leggi nöfn sín inn á afgr. blaðsins fyrir mánudagskvöld merkt: „Sölumaður — 708“. Loftskeytaskólinn Nemendur verða teknir í I. bekk Loftskeytaskólans nú í haust. Umsækjendur skulu hafa gagnfræða- próf eða hliðstætt próf og ganga undir inntöku- próf í ensku, dönsku og stærðfræði. Umsóknir ásamt prófskírteini sendist póst- og símamálastjórninni fyrir 10. september nk. Póst- og símamálastjórnin, 24. ágúst 1967. Símvirkjanám Landssíminn vill taka nema í símvirkjun nú í haust. Umsækjendur skulu hafa gagnfræðapróf eða hlið- stætt próf og ganga undir inntökupróf í ensku, dönsku og stærðfræði. Umsóknir ásamt prófskír- teini sendist póst- og símamálastjórninni fyrir 10. september nk. Póst- og símamálastjórnin, 24. ágúst 1967. Kaupmenn — Kaupfélög Skóla- og pappírsvörur Stílabækur Reikningsbækur Glósubækur Teikniblokkir Skrifblokkir Spiralblokkir. Rúðustrikaðar blokkir Rissblokkir Blýantar — yddarar — strokleður, kúlupennar — blekpennar — patrónupennar, merkipennar — límmiðar — afritapappír, sellofanpappír — smjörpappír — frumbækur, reikningseyðublöð kvittanahefti — umslög, o. m. fl. Heildsölubirgðir: SKIPHOLT HF. Skipholti 1 — sími 2-3737. — Minjasafnið Framhald af bls. 19 myndum. í stærstu stofunum á þessari hæð er fleira og fjölbreytilegra en upp verði talið hér, en þó skal nokkuð nefnt, svo sem kven- og karl- mannabúningar, þ. á. m. amt- mannsbúningur Páls Bríems, svipur, reizlur og vogir, postulín, hljóðfæri, signet og stimplar, göngustafir, sjónaukar, byssur, kolur og týrur, kver.silfur, gler- augu og smááhöld margs konar, ístöð og beiziisstengur. Þar eru útskornar vindskeiðar af bæjar- húsum og fjölbreytt safn brauð- móta með skrauti og áletrunum með spegilskrift, askar, öskjur, lárar, kistur, kistlar, skrín og aðrar hirzlur og ílát úr tré, flest fallega útskori’ð. Ekki má gleyma forkunnargóðri galíonsfígúru. En það, sem mörgum þykir vænst um þarna, er skúfhólkur Rannveigar Jónasdóttur frá Hvassafelli, móður Jónasar skálds Hallgrímssonar. Þessi litli hlutur tengir okkur, sem nú lif- um, næsta fast við skáldið og móður þess eða flytur þau nær Nauðungaruppboð sem auglýst var í 44., 46. og 48. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1967 á húseign við Nesveg og Ægissíðu, hér í borg, talin eign Hjólbarðaverkstæðis Vestur- bæjar, fer fram eftir kröfu Árna Guðjónssonar hrl., Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Landsbanka ís- lands á eigninni sjálfri, fimmtudaginn 7. sept. 1967, kl. 2i/2 síðdegis. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 44., 46. og 48. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1967 á hluta í Hæðargarði 40, hér í borg, talin eign Magnúsar Gíslasonar, fer fram eftir kröfu Bjarna Beinteinssonar hdl., Jóns Arasonar hdl., Há- konar H. Kristjónssonar hdl., og Arnar Clausen hrl., á eigninni sjálfri, fimmtudaginn 7. sept. 1967, kl. iy2 síðdegis. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 44., 46. og 48. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1967 á hluta í Heiðargerði 41, hér í borg, þingl. eign Áslaugar Nikulásdóttur, fer fram eftir kröfu Gunnars Jónssonar lögmanns, á eigninni sjálfri, fimmtudaginn 7. sept. 1967, kl. 10 árdegis. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 44., 46. og 48. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1967 á Heiðargerði 43, hér í borg, þingl. eign Benjamíns Jónssonar fer fram eftir kröfu Sveins Finnssonar hdl., á eigninni sjálfri, fimmtu- daginn 7. september 1967, kl. IOV2 árdegis. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. ----------------------------------P_ Nauðungaruppboð sem auglýst var í 44., 46. og 48. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1967 á hluta í Hjallavegi 42, hér í borg, þingl. eign Jens Ragnarssonar fer fram eftir kröfu Hafþórs Guðmundssonar hdl., á eigninni sjálfri, fimmtudaginn 7. sept. 1967, kl. 11 árdegis. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. 6 herbergja íbúð um 142 ferm. á 2. hæð við Hvassaleiti, er til sölu. Stórar svalir, fallegt útsýni, bílskúrsréttur. Gott herbergi í kjallara fylgir. Vagn E. Jónsson, Gunnar M. Guðmundsson Austurstræti 9 — Símar 21410 og 14400. Heimasími 18965. Óskum eftir að ráða vana vélritunarstúlku. Góð enskukunnátta nauð- synleg. — pplýsingar á skrifstofunni KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR H.F. Kleppsvegi 33. Afgreiðslustúlka Góð, regusöm stúlka með fallega framkomu óskast í barnafataverzlun í Miðborginni. Ekki yngri en 25 ára. Eiginhandarumsókn sendist Morgunblaðinu fyrir mánudagskvöld 4. sept. merkt: „706“. okkur í tímanum, svo að við skynjum þau annari skynjun en ella. Eflaust hefir skúfhólkurinn oft snert höfuð listaskáldsins góða, þegar það hjúfraði sig í bernsku undir vanga móður sinn- ar í gleði og sorg. Þegar gengið er niður á ne'ðstu hæðina, hanga á veggjum forn- leg skíði, skautar og broddstaf- ir, enn fremur útskornar fjalir frá Espihóli, harla merkilegar. Á vinstri hönd, þegar niður er komið, er búr með kirnum, föt- um, strokkum, skilvindum, kötl- um, kertamótum, vöfflujárnum og miklu fjölgresi öðru gamalla búsáhalda, en í næsta herbergi eru munir úr sjávarútvegi og fiskveiðum, einnig reipi, aktygi, reiðtygi, klyfberar, pálar, rekur og mörg áhöld önnur úr tré, járni, horni og beinl, sem nú er velflest horfið úr daglegri notk- un. Þá er merkilegt herbergi eða smíðahús með mjög vönduðu safni smíðatóla og verkfæra úr trésmíði, málmsteypu, skó- og söðlasmíði o. fl. í ganginum eru margar heimagerðar korn- og kaffikvarnir úr tilhöggnu ís- lenzku grjóti með sveifum úr sauðarleggjum. Loks er stór stofa, þar sem sýndur er vefnað- ur, saumar, prjón, hekl og hvers kyns kvenlegar hannyrðir. Þar eru margar gamlar saumavélar, vefstóll, rokkar, snældur, hespu- tré, sokka- og vettlingamót og margt fleira, sem of langt yrði upp að telja. En sérstaka athygli vekur lítið skot eða skukkelsi inn af þessari stofu, sem ýmsir kalla „homið hennar ömmu". Þar er rúm og brekán breitt yfir og ofan á því liggur vettlingur á prjónunum. Yfir rúminu er mynd af síra Hallgrími Péturs- syni, stundaglas, hilla með stundaklukku o. fl., en framan við rúmið stendur rokkur og kambastóll. Undir rúminu eru vel gerðir sauðskinnsskór. Engu er líkara en „amma“ hafi brugð- ið sér snöggvast frá og sé vænt- anleg aftur að vörmu spori. Þessi stutta lýsing bregður ekki upp neinni tæmandi mynd af öllu því, sem í Minjasafninu er að sjá, en þó hygg ég, að af henni megi ráða, að safnið hefir vaxið furðu hratt á tiltölulega skömmum tíma. Það er eiokum að þakka velvild og áhuga fólks- ins í bæ og héraði ásamt miklu og merku starfi Þórðar Friðbjam arsonar, safnvarðar, og Jónasar Kristjánssonar, formanns safn- stjórnar. Fleiri hafa lagt hönd á plóginn, þótt hér verði ekki tald- ir, en skylt er þó að nefna nafn Helga heitins Eiríkssonar frá Þórustöðum, sem var vakinn og sofinn í söfnunarstarfinu, meðan hans naut við. Eins og áður er lauslega að vikið, er hugmyndin sú að flytja til safnsvæðisins gömul hús, sem á einn eða annan hátt eru eftir- sóknarverðir safngripir. Minja- safnið á nú þegar nokkur, þótt ekki hafi reynzt unnt að koma þeim á sinn stað enn vegna fjár- skorts og vöntunar á endanlegu skipulagi þessa svæðis. Má þar fyrst nefna smíðahús Þorsteins Daníelsens á Skipalóni, einnig gömlu kirkjuna á Svalbarði á Svalbarðsströnd og kornmyllu á Stokkahlöðum. Einnig eru til þil og viðir úr gamla bænum 1 Reykjahlfð við Mývatn. Þá kem- ur til greina að flytja ýmis merk hús á Akureyri til safnsins, þeg- ar fram líða stundir og áður en þau verða tortímingunni að bráð, svo sem Laxdalshúsið, sem nú er elzta húsið í bænum, reist árið 1795, og enn er búið í. Eitt er víst, að hér er risin enn ein menningarstofnun á Ak- ureyri, ekki ómerkari en ýmsar aðrar, og á vonandi fyrir henni að liggja að vaxa og dafna á kom andi árum. Sönn menning er ekki sízt fólgin í virðingu og ræktarsemi við gengna tíð og horfnar kynslóðir, sem háðu lífs- baráttu sína við mun harðari kjör en við getum nú gert okkur ljóst, en við nútíðarmenn eigum svo margt að þakka, að okkur ætti að vera ljúft að varðveita tengslin eins og kostur er, okk- ur sjálfum til skilningsauka og uppbyggingar. Sv. P.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.