Morgunblaðið - 03.03.1968, Qupperneq 7
MORGUNBLAE>IÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1968
I
Kútmagakvöld Ægis
fimmtudag
Lifraraiagi og méimagri voru
orð ailmikið notuð á þessum
árstíma fyrr á árum, þótt nú
á öld hraðans og aukinnar vel-
megunar, fáir af yngri kynslóð
inni þekki þau. Hausastappa,
tros, súr sundmagi og annað
góðgæti sést heldur ekki á horð
um íslendinga.
Lionsklúbburinn Ægir hefur
í 10 ár eða frá stofnun klúbhs-
ins haldið herrakvöld, þar sem
á borðum er eingöngu fiskmeti,
nýtt og gamalt, en aðalréttur-
inn eru kútmagar fyrir þá, sem
þá geta borðað. Að sjálfsögðu
eru einstaka, sem velja sér ann
an aðalrétt af hlaðborðinu hvort
sem það er siginn fiskur, inn-
bakaður fiskur, humar, sildar-
réttir eða jafnvel hákarl.
Hlaðborð „kútmagakvöld"
Ægis samanstendur af fjöl-
breyttari fiskréttum en dæmi
eru til. Enda leggur veitinga-
maðurinn, Konráð Guðmunds-
son og starfsfólk hans sig mjög
fram um að gera hlaðborðið,
sem allra glæsilegast.
Auk þessa girnilega matar
hafa meðlimir Lionsklúbbsins
séð gestum fyrir skemmtiatrið-
um í 2—3 tíma á meðan að
matur sjatnar í mönnum, því
að ætlast er til að gestir hverfi
ekki heim strax að loknum
kvöldverðinum, en njóti hans
með hljóðfæraslætti, gamanvxs-
um, frásögnum eða öðru, sem
fram fer á sviðinu. Meðal með-
lima klúbbsins eru listamenn
og revíuskáld eins og Sigfús
Halldórsson, Svavar Gests, Om-
ar Ragnarsson og Guðxnundur
Guðmundsson.
Eins og allir Lionsklúbbar,
vinnur Ægir að mannúðarmál-
um, en verkefnið hefur verið
og verður aðstoð við Barnaheim
ilið að Sólheimum í Grímsnesi,
en „kútmagakvöldið", svo og
önnur fjáröflun hjá klúbbnum
fer í Sólheimasjóð. Ægisfélag-
ar, svo og aðrir, sem sótt hafa
„kútmagakvöldin" mega vera
þakklátir fyrir að hafa styrkt
Girnilegur er kútmaginn á hlað borðinu,
svo göfugt málefni að hjálpa
þeim, sem eiga ekki samleið
með fjöldanum, til að lifa í
birtu undir handleiðslu Sesselju
Sigmundsdóttur.
Næsta „kútmagakvöld" klúbbs
ins verður n.k. fimmtudag í
Súlnasal Hótel Sögu. Ef ein-
hver eða einhverjir, sem lesa
þessar línur og langar í kút-
maga eða til að styrkja Barna-
heimilið Sólheima, væri sjálf-
sagt fyrir hann eða þá að sækja
þetta í kvöld, ef miðar verða
þá enn fáanlegir og hafa sam-
band við einhvern klúbbmeð-
lim eða P og Ó, Austurstræti
14, sími 12345.
Bamaheimilið á Sólheimum sem Lionsklúbburinn Ægir styrkir.
HHW Jpii # v
Kirkjuvika r
Lágafellskirkju
Kirkjuvika heÆst í kiikjunni á
æskulýðsdaginn, 3 marz. og er
þetta sú 9. í röðinni, sem þar hefur
verið haldinn. Á samkomunni á
mánudagskvöldið verða ræðumenn
Páll V.G. Kolka læknir og Karl
Benediktsson kennari í Hlaðgerð-
arkoti.
Einsöngur: Hjálmtýr Hjálmtýsson
með úndirleik Gunnars Sigurgeirs-
sonar. Einnig kemur fram í fyrsta
skipti kór Tónlistarskóla Mosfells-
Ihrepps, undir stjórn Gunnars Reyn
is Sveinssonar. Meðal efnis á þriðju
dagskvöldið verður: Séra Frank M.
Halldórsson segir frá ísraelsför og
sýnir skuggamyndir. Ræðu flytur
frú Aðalbjörg Sigurðardóttir. Ein-
söngur: frú Guðrún Tómasdóttir
við undirleik Hauks Guðlaugsson-
ar. Kammerkórinn syngur undir
stjórn frú Ruth Magnússon, en und
irleik annast Jósef Magnússon og
Haukur Guðlaugsson. Föstumessa á
miðvikudagskvöldið. Prestur: séra
Ragnar Fjalar Lárusson. Kirkju-
kór Hallgrimskirkju syngur undir
stjórn Páls Halldórssonar.
Blöð og Tímarit
SAMVINNAN, 1. hefti 1968, er
komin út og hefur borizt blaðinu.
Höfuðmál hennar að þessu sinni
er: ísland og umheimurinn. For-
siða blaðsins er mjög skrautleg að
vanda, og getur þar að líta fjöl-
marga þjóðfána, þar á meðal þjóð-
fána allra Norðurlandanna, en
spurningin vaknar: Hvers vegna
ekki lfka fána Færeyja?
Af fjölbreyttu efni heftisins má
nefna m.a.: Bréf frá lesendum frá
öllum landshornum, ritstjóraspjall
s—a—ms um Viet Nam. Fróðlega
grein um Vinston Churchill,
prýdda mörgum myndum, en með
einni villu varðandi missi Breta í
orustunni við Malakkaskaga. Þá
koma margar greinar um aðalefni
blaðsins: fsland og umheimurinn.
Björn Th. Björnsson ritar um Dags
hríðarminni, dr. Sigurbjörn Einars
son skrifar: íslenzka kirkjan, sproti
á alþjóðlegum meiði, Sigurður A.
Magnússon birtir fullveldisræðu
sína: ísland á alþjóðavettvangi,
sem hann flutti í Háskóla fslands
1. des. 1967. Dr. Gylfi Þ. Gísla-
son á greinina: ísland og viðskipta-
bandalögin. Eysteinn Jónsson skrif
ar um ísland og markaðsbanda-
lögin. Erlendur Einarsson um fs-
land og alþjóðasamvinnusamband-
ið. Hjálmar Ólafsson um ísland og
norrænt samstarf. Þór Vilhjálmsson
um ísland og Evrópuráðið. Sigurð-
ur A. Magnússon um fsland og
Sameinuðu þjóðirnar. Guðjón B.
Ólafsson um Utanríkisþjónustu og
viðskipti. Njörður P. Njarðvík á
Ævintýri handa nútímamönnum,
Gísli J. Ástþórsson: Eins og mér
sýnist. Magnús Torfi Ólafsson skrif
ar: Vietnam logar. Matthías Jóhann
essen á heilsíðu af myndskreyttum
ljóðum. Bragi Ásgeirsson skrifar
um íslenzka myndlist, vandamál og
viðhorf. Gagnrýnendur blaðanna
rita um 5 beztu bækurnar 1967.
Þorgeir Þorgeirsson og Hjörtur
Pálsson eiga kvæði. Ritstjóri Sam-
vinnunnar er Sigurður A. Magnús-
son.
Gamalt og gott
Orðskviðaklasi
33. Margur inni maðurinn lafir,
matar sumir þiggja gjafir:
nokkrir eiga eina kú.
Um það kvarta ekki tjáir,
aðdrættir þó verði smáir.
Sultr er haldinn sauðlaust bú.
(ort á 17. öld.)
Spakmœli dagsins
Vertu þess viss, að það getur
ekki verið sönn trú, sem spillir
þeim, er tekur hana.
— W. Penn.
VISUKORN
Það veikist heldur vonin mín, sem
brást
á vegferð langri um bröttu klifin
fanna.
Þó kýs ég heldur hlýja þjóðarást,
en hundrað þúsund krónur listdóm-
endanna.
Hjálmar frá Hofi.
sá NÆST bezti
Baddi: „Pabbi, hversvegna þarf að víkja bílnum til hægri, þó
skip og flugvélar geri það?“
Matti: „Sjáðu nú til drengur minn. Nú ek ég bíl með vinstri
handar stefnu og mæti bíl, sem kemur brunandi á hægri handar
umferð, nefnilega báðir á sama kanti. Hvernig fer þá?“
Baddi: „Þið skellið saman, skemmið bílana og meiðið ykkur.“
Matti: „Já líklega stór slys. En hvað mundi þá, ef þetta hefði
verið flugvél á fjögur hundru'ð kílómetra hraða?"
Bílateppi, 160.60 kr. stykkið, baðhand klæði mjög falleg 128.20 stykkið. Þorsteinsbúð, Snorrabraut 61 og Keflavík Miðstöðvarketill með brennara til sölu. Uppl. í síma 35151.
Nýtt fallegt úrval lérefts- blúndur og bómullarblúnd- ur. Sængurveramilliverk. Þorsteinsbúð, Snorrabraut 61 og Keflavík Bíll Opel-Kapitan model ’57 til sölu í topp lagi. Uppl. í síma 38426.
Damask í vöggusett, bleyj- ur og uiigbarnanærföt, ungbarnaföt, ungbarnakjól- ar og ungbarnatreyjur. Þorsteinsbúð, Snorrabraut 61 og Keflavík Trillubátur Trillubátur 4ra til 6 tonna óskast til kaups. Uppl. ! síma 38426.
Ungan reglusaman mann vantar herb. Uppl. í síma 17570 í dag.
Sængurveradamask, sæng- urveraléreft, lakaléreft, dúnléreft, fiðurdúnn, listadúnn. Þorsteinsbúð, Snorrabraut 61 og Keflavík
Staðgreiðsla eða há útborgun fyrir 4-5 manna 2-3 ára bíl, milli- liðlaust. Tilboð er greini tegund, árgerð og verð leggist inn til Mbl. fyrir þriðjud.kvöld merkt 5310. Óska eftir konu, sem vill taka að sér heim- ili. Aldur 40-45 ára. Tilb. merkt „Ekkjumaður 5314“ sendist Mbl.
Keflavík Ódýru gluggatjaldaefnin eru komin í mörgum litum. Storisefni í nýjutn munstr- um. Verzl. Sigríðar Skúladóttur símj 2061.
Nýtt raðhús í Austurbænum til leigu nú þegar. Uppl í síma 21667.
Sníð og sauma kápur, dragtir og annan kven. og barnafatn. Tek breytingar. Saumast. Guðf Magnúsd. Safamýri 63. Símj 30328. Keflavík Erum að taka upp einlit og munstruð flauel, í kjóla og barnafatnað. Verzl. Sigríðar Skúladóttur sími 2061.
Sönderborgargarnið er komið. Gloria Freesia Oheri og dralon. Nýir glæsilegir litir. HOF. Vil kaupa vel með farinn einkabíl, ekki eldra módel en 1966. Uppl. í síma 16436 í dag og næstu daga.
Hof hefur ennþá garn á gamla verðinu. Ennfremur nokkra liti á niðursettu verði. HOF. Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu Keflavík — Útsala Útsala hefst á mánudag. ELSA, Keflavík.
Klæði og geri við bólstruð húsgögn á kvöldin og um helg ar. Kem og geri tilboð. Sími 51393.
ARABIA-hreinlætistæki
Sfórkostleg
nýjung
Hljóðlaust V/.C. Hið einasta í heimi
Verð á W.C.
Handlaugar
Fætur f. do.
aðeins kr. 3.375.00
— 930,00
— 735,00
Clœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Einkaumboð fyrir ísland:
HANNES ÞORSTEINSSON
heildverzlun, Hallveigarstíg 10. — Sími 2-44-55.