Morgunblaðið - 26.05.1968, Page 2
2
MORGUTNTBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1908,
Jökulfell í ísnum út af Skaga í gær. Sigurjón Einarsson tók myndina. Sjá frétt á baksíðu.
Fyrrverondi viðskiptamdlnráð-
herra Breta staddur hér
HINGAÐ tii lands er kominn, í
boði Verzlunarráðs tslands og
Félags íslenzkra stórkaupmanna,
formaður Verzlunarráðsins í
London, Lord Erroll of Hale,
fyrrverandi viðskiptamálaráð-
herra. 1 för með honum er kona
hans Lady Elizabeth Erroil.
Á mánudagsmorgun n.k. mun
Lord Erroll ræða við stjóm Verzl
unarráðsins um skipulag og starf
semi Verzlunarráðsins í London,
og á hádegisfundi sama dag, sem
haldinn ver’ður á Hótel Sögu í til
efni 40 ára afmælis Félags ís-
lenzkra stórkaupmanna, mun
hann flytja erindi um EFTA.
Lord Erroll of Hale er 54 ára,
verkfræðingur að mennt, og hef-
ur setið á þingi fyrir thaldsflokk
inn síðan 1954, en árið 1964 tók
hann sæti í Lávarðadeildinni.
Lord Erroll hefur gegnt ýms-
um mikilvægum nefndarstörfum,
og árin 1959—61 var hann ráðu-
neytisstjóri í viðskiptamálaráðu-
neytinu. Hann var viðskiptamála
ráðherra 1961—63 og orkumála-
ráðherra 1963—64.
Formaður Verzlunarráðsins í
London hefur Lord Erroll verið
síðan 1966. Hann hefur vfðtæka
reynslu á sviði efnahags- og við-
skiptamála og nýtur mikils
trausts í landi sínu.
Ferðuðust um landið
fyrir falsaðar ávísanir
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
hefur haft hendur í hári fjögurra
félaga, sem á ferðalagi sínu norð
ur um land og í nágrenni Reykja
víkur undanfarið hafa skilið eftir
sig slóð af fölsuðum ávísunum og
nemur upphæð þeirra tugum þús
unda króna. Hér er um að ræða
þrjá menn og eina konu, sem öll
hafa komið við sögu hjá lögregl-
unni áður.
Ferðafélagarnir lögðu fyrst lefð
sína norður um land og höfðu þá
með sér ávísanahefti, sem einn
maðurinn hafði stolið í innbroti
í Reykjavík. Þessi maður annað-
ist að mestu einn útgáfustarfsem-
ina. Rannsóknarlögreglan veit,
að falsaðar ávísanir voru seldar
á Akranesi, Blöndósi, Haganes-
vík, Akureyri og í Reykjavík,
Kópavogi, Hafnarfirði og Hvera-
gerði, en þær hafa ekki allar
Mólverkosýning
a Aknreyri
Akureyri, 24. maí. —
HRINGUR Jóhannesson, mynd-
listarkennari opnaði málverka-
sýningu í Landsbankasalnum í
gær. Á sýningunni eru 50 verk,
olíukrítarmyndir, teikningar og
olíumálverk. Margar myndir
seldust þegar við epnun sýning-
arinnar, sem verður opin daglega
kl. 14 til 22. — Sv. P.
Fiiuui skip úr fastoflota
NATO til Reykjovíkur í dag
HAUKUR nýtt iréttablað
FIMM skip úr fastaflota Atl-
antshafsbandalagsins leggjast að
bryggju hér í Reykjavík í dag
og halda hér kyrru fyrir þar til
á morgun. í þessum flota eru
norski tundurspillirinn Narvik,
þýzka freigátan Köln, hollenzki
tundurspillirinn Holland, brezka
freigátan Brighton og banda-
ríski tundurspillirinn Holder.
Yfirmaður flotans er Captain
G. C. Mitchell úr brezka flotan-
um.
Skipin verða almenningi til
sýnis í dag frá kl. 2,30 til kl. 6
síðdegis.
Blómsveigur lagður við styttu séra Friðriks i gærmorgun. (Ljósm.:
Mbl. Sv. Þorm.)
SL. FÖSTUDAG hóf nýtt frétta-
blað göngu sína hér í Reykja-
vík. Heitir það Haukur Nýtt
Hótíðarfundur
stórkaapmanna
f TILEFNI af 40 ára afmæli Fé-
lags íslenzkra stórkaupmanna
hafa Verzlunarráð íslands og Fé-
lag ísl. stórkaupmanna ákveðið að
halda hádegisverðarfund í
Súlnasal Hótel Sögu, mánudag-
inn 27. maí, kl. 12 á hádegi.
Vegna þessa hafa Verzlunarráð
ið og Stórkaupmannafélagið boð-
ið hingað til lands Lord Erroll of
Hale, fyrrv. viðskiptamálaráð-
herra Bretlands og núverandi for
manni Verzlunarráðsins í London
og ' mun hann halda ræðu um
EFTA-mál á fundinum.
Félagsmenn eru vinsamlegast
beðnir um að tilkynna þátttöku
sína til skrifstofu samtakanna,
sem fyrst og ekki síðar en kl.
12, föstudaginn 24. þ.m.
(Frá Fél. ísl. stórkaupmanna
og Verzlunarráði íslands).
Sýning til styrkt-
ar drengjum
í Breiðuvik
I S.L. VIKU var opnuð listsýn-
ing í Sjómannaskólanum til
styrktar menntasjóði drengja í
Breiðuvikurheimilinum á Barða-
strönd.
Sýningin er hluti úr einu nám-
skeiði af 3, sem frú Sigríður Jóns
dóttir listkona hafði í skóla sín-
um i vetur. Munirnir eru unnir
af ncmendum Sigrúnar eftir eig-
in hugmyndum og er því aðeins
einn hlutur af hverri gerð. Mikil
aðsókn hefur verið á sýninguna
og hafa um 2000 manns skoðað
hana. Sýningunni lýkur í kvöld
og sem fyrr segir rennur hann í
menntasjóð drengja í Breiðuvík,
en aðgangseyrir er 25 kr.
fréttablað og segir í ávarpi til
lesenda að það muni koma út
einu sinni í viku, á föstudögum,
til að byrja með. Ritstjóri blaðs-
ins og ábyrgðarmaður er Ás-
mundur Einarsson, en útgáfu-
stjóri Bjarni Sigtryggsson og
framkvstj. Helgi Gunnar.^on.
Fyrsta eintak Hauks er 8 síður,
fjölbreytt að efni og myndum.
borizt rannsóknarlögreglunni enn
þá. Samt er vitað, áð þær nema
tugum þúsunda króna.
Skömmu eftir að fólkið kom úr
ferðalaginu varð það uppi-
skroppa með peninga. Brutust
þau þá inn í verzlun í Kópavogi
og stálu þaðan þremur ávísana-
heftum og tveimur peningaköss-
um. í kössunum voru um 4l50
krónur og fundust þeir skömmu
eftir innbrotið og voru þá um 200
krónur í skiptimynt ennþá í
þeim.
Þegar félagarnir höfðu þannig
orðið sér úti um ný ávísanahefti
hugðust þeir á ný leggja land
undir fót og áðu fyrst í gistihúsi
skammt fyrir utan Reykjavík.
Lengra komust þau ekki í þetta
skiptið, því þar handtók lögregl-
an þau daginn eftir. Var útgáfu-
stjórinn þá búinn að selja þrjár
falsáðar ávísanir og hafði útfyllt
tvær í viðbót til að hafa til taks
í upphafi ferðalagsins.
Rolvaag talar
uoi íorsetakosn-
ingar í USA
Á AÐALFUNDI íslenzk-amer-
íska félagsins, sem haldinn verð-
ur nk. miðvikudag, 29. maí, í
Áttbagasal Hótel Sö’gu, flytur
Karl Rolvaag, sendiherra erindi
um forsetakosiningarnar í Banda-
ríkjunum.
Rolvaag sendiherra hefur ver-
ið einn af leiðtogum demókrata,
m. a. ríkisstjóri í Minnesota,
og náinn samstarfsmaður Mc-
Carthys og Humpreys. Hann hef-
ur veriS fulltrúi á öillum flokks-
þingum demókrata frá 1948 og
þekkir því náið til bandarískra
stjórnmála af eigin reynslu. Á
eftir verður sýnd kvikmynd frá
flokksþingum beggja flokkanna
1964.
Þessi bíll byrjaði hægri umferðin heldur snemma. Myndin er tekin
í gærmorgun, en bílstjórinn hafði villzt inn á hægri helming
Lækjargötunnar. (Ljósm.: Sv. Þorm.)
Um 800 iengu undanþágu lrá
almennu umferðarbanni
LÖGREGLAN í Reykjavík gaf
ýmsum aðilum undanþágu frá
hinu almenna umfer’ðarbanni,
sem gilti í nótt. Allar leigubif-
reiðir höfðu undanþágu, en þó
aðeins þær er hafa L-merki við
skrásetningarnúmerið. Einnig
fengu - læknar undanþágu, sem
höfðu læknamerki á bílum sín-
um.
Allir lögreglumenn, slökkviliðs
menn, tollverðir og hafnsögu-
menn höfðu undanþágu, en þó
aðeins væru þeir i einkennisbún-
ingi. Þá höfðu að sjálfsögðu
starfsmenn Reykjavíkurborgar
undanþágu, þeir er unnu að
merkjabreytingum, fulltrúar H-
nefndarinnar, Umferðarnefndar
Reykjavíkur, svo og ýmsir sem
starfa að öryggismálum í slysa-
tilfellum eða ef um vatnsveitu
bilanir eða hitaveitubilanir yrði
að ræða. Allir þessir síðastnefndu
aðilar hafa þó undanþágu með
skilyrðum um nauðsyn hennar.
Nokkrar sérleyfisbifreiðar, sem
eru á ferð að nóttu til hafa undan
þágu og síðast og ekki sízt starfs
menn fjölmiðlunartækja — frétta
menn blaða, útvarps og sjón-
varps.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Hermannssonar, áðstoðar
yfirlögregluþjóns mun láta nærri
að aðilar þessir séu um 800 tals-
ins.