Morgunblaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1668.
7
Sögur Biblíunnar í 10 þús. eint
Sannkölluð risabókaútgáfa er
að hlaupa af stokkunum á ís-
landi um þessar mundir. Að-
ventistar gefa út 1. bindi í 10
binda ritsafni, sem ber heitið
Sögur Biblíunnar eftir binn
heimskunna rithöfund, Arthur
S. Maxwell, sem hér dvaldist
snemma á þessu ári en bókin
er í þýðingu Bergsteins Jóns-
sonar.
Bókin hefur þegar verið prent
uð í 18 milljóna eintaka á 10
tungumálum, en íslenzka þýð-
ingin er prentuð í 10.000 ein-
tökum.
Fyrir skömmu kom til okk-
ar á Morgunblaðið sölustjóri
að bókaútgáfu Aðventista i flest
um Evrópulöndum og Vestur-
Afríku, Wickwier, að nafni,
hressilegur náungi og við innt-
Ein opna í bókinni um órkina hans Nóa
Wiukwier, sölustjóri
um hann tíðinda af þessari
miklu útgáfu.
„Sögur Bibluínnar hafa verið
gefnar út á 10 tungumálum,
í 4 heimsálfum, og þegar hafa
komið út af þeim 18 milljón
eintök. Verkið allt er í 10 bind
um, stórum, og hér hef ég með-
ferðis ensku útgáfuna. Aðeins
fyrsta bindið hefur enn séð
dagsins ljós á íslenzku, en
verði því vel tekið, mun varla
líða lengur en 3 ár, þar til
öll bindin hafa verið gefin út
á íslenzku.
Svo sem kunnugt er, kom
Arthur S. Maxwell til íslands
fyrr á þessu ári, en hann er
víðkunnur rithöfundur og af-
kastamikill. Eftir hann hafa ver
ið gefnar út 104 bækur, á 25
tungumálum. Sjálfsagt þekkja
íslendingar bezt Rökkursögur
hans (Bedtime Stories), en til
gamans má geta þess, að af
þeim hafa komið út 50 útgáf-
ur, og í lok ársins 1966 höfðu
verið prentuð af Rökkursögum
samtals 31.868.781 eintak.
Þetta hefur gefizt mjög vel,
myndum á hverri síðu, og eru
það allt litmyndir eftir þekkta
listamenn, Auðvitað getum við
lækkað útgáfukostnaðinn með
því að myndirnar eru allar
þær sömu í öllum bókunum, að-
eins textinn er þýddur á við-
komandi mál, og bækurnar eru
allar prentaðar í Englandi. Út-
gáfukostnaðurinn er samt sem
áður um 75 milljónir íslenzkra
króna. Maxwell er enskur rík-
isborgari, en býr í Bandaríkj-
unum og hafa bækur hans, sem
bæði eru barnabækur og bæk-
ur fyrir fullorðna, verið gefn-
ar út til ársloka 1966 í 45 millj.
eintökum.
Bókin nýja, Sögur Biblíunn-
ar, verður ekki seld í bóka-
verzlunum. Þannig seljum við
aldrei bækur okkar Aðventista
heldur sendum við sölumenn
af stað, sem ganga fyrir hvers
manns dyr og bjóða bækurn-
ar til sölu. Munu þeir í sumar
ferðast um allt landið, og er
verð bókarinnar 400 krónur.
Erlendis höfum við haft þann
hátt á einnig, að fá leyfi lækna
til að hafa bókiná á biðstof-
um þeirra, og þar eru einnig
spjöld til upplýsingar, hvar fólk
getur fengið nánari upplýsing-
ar um ritverkið.
Þetta hefur gefizt mjög vel
og margir læknar hafa skrifað
og beðið um annað eintak bók-
arinnar á biðstofurnar, eitt dug
ar skammt, og okkur hefur
verið sagt, að fólk hafi verið svo
spennt við lesturinn, að það
hafi leyft fólki, sem kom inn
á biðstofuna á eftir því, að
fara á undan inn til læknis-
ins, til þess að það geti lesið
lengur í bókinni. Við höfum
hugsað okkur að reyna að fara
þessa leið einnig hér.
Ég hef mikla trú á því, að
bókinni verði vel tekið hér eins
og annarsstaðar. Hún er eigin-
lega ekki síður skrifuð fyrir
börn og unglinga en fullorðna
fólkið, og við höfum komizt
að raun um, að eldra fólk kann
mjög vel að meta hana.
Að lokum vildi ég mega
segja, að mér hefur líkað heim-
sókn mín til íslands vel að
þessu sinni. Ég hef verið hepp-
inn með veður, ekkert séð til
íssins fyrir norðan. Hef oft
komið hingað áður, en máski
er allt bjartast á vorin, allt
fegurst í þessu landi miðnætur-
sólarinnar."
Og þá skildu leiðir okkar
Wickwiers að sinni. — Fr. S.
FRÉTTIR
Kaffisala Nemenðasambands Hús-
mæðrakennaraskóla íslands verð-
ur í Domus Medica á H-daginn, 26.
maí kl. 3. Auk kaffiveitinga verður
gestum gefinn kóstur á að sjá borð
skreytingar og fá nokkrar upp-
skriftir.
Kvenfélagið Esja.
Bazar og kaffisala í Fólk-
vangi, Kjalarnesi á H-daginn
26. maí kl. 3 síðd.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
Aðalfundur verður haldinn í Fé-
lagsheimilinu að Hallveigarstöðum
þriðjudaginn 28. maí kl. 8.30. Sýnd
verður kvikmynd um ræktun og
hagnýtingu grænmetis.
Félag íslenzkra orgenleikara
Fundur verður haldinn í Háteigs
kirkju mánudaginn 27. maí kl. 8.30
Heimabrúboðið
Almenn samkoma 1. og 2 Hvíta-
sunnudag kl. 8.30. Allir velkomnir.
Spakmæli
í gær voru gefin saman í
Fríkirkjunni af séra Ragnari
Fjalar Lárussyni ungfrú Sigríð-
ur I. Claessen, flugfreyja, Lang-
holtsvegi 157 og stud. oecon,
Júlíus S. Ólafsson, Hverfisgötu
104b. Heimilisfang þeirra verður
eftir 17. júní: Blönduhlíð 13.
(Birt aftur vegna leiðréttingar).
Mikil aðsókn er að Heddu Gabler hjá Leikfélagi R eykjavíkur, enda hlaut sýningin sem kunnugt er
góða dóma gagnrýnenda. 14. sýningin var á fimmtu dagskvöld og var hún fyrir fullu húsi, en 15. sýn-
ingin er í kvöld. Myndin er af aðalleikendunum og sjást frá vinstri frú Elvsted (Guðrún Ásmunds-
dóttir), Hedda (Helga Bachmann), Xesmann (Guð mundur Pálsson), Brack (Jón Sigurbjörnsson) og
Lövborg (Helgi Skúlason).
Hringsniðin pils í mörgum Htum, hvitir pífukragar, blússur og peys ur í úrvali. Hattabúð Reykjavíkur Laugavegi 10. BMW 1600 Vil kaupa 1—2ja ára BMW - 1600 milliliðalaust. Gjörið svo vel að hringja í síma 3-26-48.
Opel Kadett árg. 1966 til sölu, ekin 26 þúsund km., vel með far- in. Upp'l. í síma 38236. Bassaleikari Góður bassaleikari, sem getur sungið, óskast í ungl- inigahljómsveit strax. Upp- lýsingar í síma 36616 milli kl. 8—9.
Ungan mann vantar atvinnu nú þegar, er ýmsu van'ur. Uppl. í síma 16825. Krónpressa ■til sölu, lítið notuð, um 10 kg pr., sérdrifin, 1 ha. mótor. Tækifærisverð. — Upplýsingar í síma 11820.
Kona eða unglingsstúlka óskast til þess að gæta 14 mánaða stólkubarns alla virka daga nema laugard. frá kl. 9 til 5. Uppl. í síma 23167. Kópavogur 13 ára telpa óskar eftir barnagæzlu. Uppl. í síma 41267.
Getum bætt við nokkrum börnum til sumardvalar. Barnaheimilið Heiði í Gönjguskörðum, Skaga- firði. Sími um Sauðár- krók. Trilla Óska að taka á leigu trillu 2—5 tonn, í sumar. Tilboð sendist Mbl. fyrir mánu- dagskvöld, merkt „8708“.
Arnardalsætt III. bindi er komið út, afgreiðsla í Leiftri, Hverfisgötu 18 og Miðtóni 18, eldri bækumar aðallega afgreiddar þar. Vanur maður óskast í bifreiðaréttingar. Bifreiðaverkstæði Tómasar G. Guðjónssonar, Laugarnesi.
Ný sending Gloría Sþnderborg-garn með mynsturbókum. Hof Hafnarstræti 7. Ciun rýa-veggteppin komin, einnig í barnaher- bergi „Óli lokbrá", „Hans klaufi“ og fleira. Hof Hafnarstræti 7.
BjEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Suðumesjamenn — ferðafólk. Aðalver til- kynnir. Kaffi veitt allan daginn. Verið velkomin. Aðalver Keflaví'k.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í Lögbirtingablaði nr. 57., 58 og
60/1967 á vb. Braga SK. 74, eign Brimness h.f.,
Flateyri fer fram eftir kröfu Inga Ingimundarson-
ar hrl. o. fl. Reykjavík, í dómsal sýslumannsem-
bættisins á ísafirði miðvikudaginn 5. júní n.k.
kl. 13.30.
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu, 21. 5. 1968.
Jóh. Gunnar Olafsson.
ARABIA-hreinlætistæki
Hljóðlaust W.C.
Verð á W.C.
Handlaugar
Fætur f. do.
Hið einasta í heimi
aðeins kr. 3.375.00
— 930,00
— 735,00
Clœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Einkaumboð fyrir ísland:
HANNES ÞORSTEINSSON
heildverzlun, Hallveigarstíg 10. — Sími 2-44-55.