Morgunblaðið

Dato
  • forrige månedmaj 1968næste måned
    mationtofr
    293012345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    272829303112
    3456789

Morgunblaðið - 26.05.1968, Side 16

Morgunblaðið - 26.05.1968, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1968. Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konróð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri: Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100. Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið. Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði innanlands. H-DAGUR j dag er H-dagur, þegar tekin er upp hægri umferð á íslandi. í dag reynir mikið á samstarfsvilja allra um að tryggja örugga akstursbreyt- ingu. Umfangsmikil fræðslu- starfsemi og undirbúnings- vinna hefur farið fram til þess að umferðarbreytingin fari sem bezt og öryggi veg- farenda verði ekki stefnt í voða með henni, en allt þetta er unnið fyrir gýg, ef almenn- ingur tekur ekki höndum sam an við umferðaryfirvöld og starfar með þeim. í dag eru allir hvattir til þess að byrja strax að reyna hæfni sína í hægri umferð. Menn munu flykkjast út á stræti og torg á farartækjum sínum eða fótgangandi og má því búast við gífurlegri um- ferð. Lögreglan mun taka vægt á öllum minniháttar um ferðarbrotum, en fylgja strangt eftir þeim hraðatak- mörkunum, sem settar hafa verið. Mun hún beita allri þeirri tækni, er hún hefur yfir að ráða til þess að gegna því starfi. Alls staðar verða allir, sem við löggæzlu fást, á götum úti til leiðbeiningar og ber að fara eftir fyrirmæl- um þeirra í einu og öllu. Fjöldi sjálfboðaliða mun einnig starfa við umferðar- vörzlu, áhugasamt fólk, sem hefur sérstaklega fræðzt um umferðarbreytinguna, og er öllum ráðlagt að leita upplýs inga til þess um allt, sem ein- hver vafi kann að ríkja um. Að sjálfsögðu má búast við umferðartruflunum í dag og næstu daga. Vegfarendur verða að átta sig á nýjum akstursleiðum, og margir verða vafalaust alveg að breyta um leið til vinnu eða á aðra staði, sem þeir heim- sækja reglulega. Þegar fram líða stundir og reynsla fæst, kemur ef til vill í Ijós, að ýmsu má haga á annan veg, en nú er ráð fyrir gert. Þess vegna skiptir tillitssemi mjög miklu máli nú í upphafi. Morgunblaðið hvetur alla til þess að hefja strax hægri umferð og láta ekki á sig fá, þótt treglega kunni að ganga í fyrstu að laga sig eftir breyttum aðstæðum, en vera heldur bjartsýna og brosa við smávægilegum mistökum. Við verðum öll að leggjast á eitt og fara varlega, þannig tryggjum við bezt öryggi okk ar og annarra. ÍSLENDINGAR OG HAFIÐ CJjómannadagurinn er í dag, ^ hann er dagur þeirra, sem afla fanga úr greipum Ægis og flytja varninginn heim, auk þeirra, sem tryggja ör- yggi á hafinu. Hátíðahöld sjó- manna fara fram víðsvegar um land og þeir, sem eru á hafi úti, minnast dagsins um borð í skipum sínum. Á liðn- um vetri hefur veðrátta og hafís gert sjómönnum gramt í geði og hindrað þá við störf, en sjómenn láta ekki bifast, heldur leggja þeim mun meira að sér, þegar færi gefst. Á föstudag var opnuð ein yfirgripsmesta sýning sem haldin hefur verið á íslandi, og nefnist hún „íslendingar og hafið“, en samtök sjó- manna standa að henni. Eink- unnarorð sýningarinnar eru gerð að fyrirmynd Sigurdrífu mála í Sæmundar-Eddu og hljóða svo: „Brimrúnar skalt kunna“. Um þau segir svo í sýningarskrá: „Brimrúnar 20 ustu aldar eru með öðrum hætti en fyrir þúsund árum. I stað blindrar galdratrúar og tilbeiðslu verndareldsins er komin þekking, sem sprottið hefur af hinni löngu leit. Nú eru tæki komin í stað rúna- ristunnar og varnareldsins. Kunnátta og þekking sitja í fyrirrúmi, og árvekni bjargar nú „á sundi seglmörum" og færir heill af hafi. — Einkunn arorðin tengja nútíð við fortíð og boða nýja framtíð rfteð auknu öryggi og heillum handa sæfarendum á grund- velli stöðugrar leitar.“ Morgunblaðið óskar sæfar- endum allra heilla á hátíðis- degi þeirra og gæfu um ó- komna tíð. Þá færir blaðið sjó mönnum hamingjuóskir með hina glæsilegu og fróðlegu sýningu, er þeir hafa opnað. STÚDENTAR OG NATO í ályktun stjórnarmeirihluta * Stúdentafélags háskólans er fyrirhuguðum ráðherra- fundi Atlantshafsbandalags- ins í háskólanum mótmælt og talið, að hann kunni að valda háskólanum og stúdentum erf iðleikum, einkum vegna þess að þátttaka íslands í Atlants- hafsbandalaginu sé umdeild og meðal fundarmanna verða fulltrúar Grikkja og Portú- gala. Stjórnarminnihluti stúd entafélagsins hefur gefið út ueMim Sierra Leone lítið land mikillar stjórnmálaðkyrrðar Eftir Suzanne Cronje — FYRIR nokkru var gerð borg- araleg bylting í Lierra Leone. Var hún framkvæmd af sveit- um úr her og lögreglu, en til- gangurinn með henni var að steypa af stóli herstjórn Jux- on-Smiths hershöfðingja og að koma leiðtogum landsins, sem kjörnir höfðu verið í ai- mennum kosningum, aftur til valda. " Herbyltingar eru orðnar al- gengar í Afríku. Þær eru oft eina leiðin til þess að hrekja frá völdum spillta stjórn- málamenn, sem beita embætt isvaldi sínu til þess að hag- ræða kosningaúrslitum. f fyrstu að minnsta kosti ríkir venjulega almenn hrifning gagnvart herforingjunum, sem megnað hafa að leysa land sitt undan þessari ógæfu. Þannig voru t.d. herstjórn- irnar, sem við völdum tóku í Nigeriu og Ghana, mjög vin sælar í fyrstunni. Þessu var ekki þannig far- ið í Sierra Leone, þar sem herinn greip í fyrsta sinn sæti þeirra eru venjulega ópólitísk, enda þótt þeir sam- kvæmt venju greiði atkvæði með þeim stjórnmálaflokki, sem með völdin fer. Það gekk seint að skýra frá úrslitunum í kosningunum. Flokkur Sir Albert Margais, Alþýðuflokkurinn, (SLPP), sem farið hafði með stjórn, og flokkur stjórnarandstöðunn- ar, Sambandsflokkur allrar þjóðarinnar (APC), undir forystu Siaka Stevens, voru svo jafnir að fylgi, að varla mátti í milli sjá. Hinn 21. marz tilkynntu báðir flokkarn ir, að þeir hefðu hlotið aðeins meira fylgi en hinn sam- kvæmt lokatölunum. Sir Henry Lightfott-Boston land- stjóri, ákvað að tilnefna Stev ens sem forsætisráðherra. Hann byggði þessa ákvörð- un sína á grundvelli þeirra úrslita, sem fyrir lágu og kunn voru en jafnframt vegna þess, að mikill hluti almennings var því fylgjandi í höfuðborginni, Freetown. Freetown, höfuðborg Sierra Leone og stærsta horg landsins. Hún er ein af helztu hafnarborgum Vestur-Afríku. fram í eftir kosningar þær, sem fram fóru í fyrra, í því skyni að koma í veg fyrir, að nýir valdhafar tækju við með lýðræðislegum hætti. Allur gangur þessara mála sýnir, að þjóð getur losað sig við herstjórn, ef fólkið er nógu ákveðið. Almennar kosn ingar í Sierra Leone fóru fram 17. marz í fyrra. Þann dag var kosið um „venjuleg" þingsæti. Kjör ættarhöfðingja fór fram 21. marz, en þing- En á meðan embættistaka Stevens fór fram, lýsti yfir- maður hersins, Lansana hers- höfðingi yfir herlögum í landinu og lét handtaka bæði landstjórann og nýja forsætis ráðherrann. Það var haft að yfirvarpi fyrir þessari ráð- stöfun, að skipun Stevens væri ólögmæt, vegna þess að úrslitin úr kosningum höfð- ingjanna væru ekki kunn enn. Við viljum ekki herstjórn. Almenningur var þeirrar Kortið sýnir legu Sierra Leone skoðunar, að Lansana hers- höfðingi hefði farið svona að sökum þess að hann hefði viljað, að flokkur Sir. Alberts Margais, SLPP, tæki aftur við völdum. Mikill mannfjöldi mótmælti handtöku Stevens og kastaði grjóti í lögregluna, sem beitti táragasi á móti. Lansana var sjálfur hand- tekinn tveimur dögum seinna af foringjum hersins, sem síð an komu á fót Þjóðlega end- urbótaráðinu (NRC). Það kann að vera, að þessi valda- taka hafi komið í veg fyrir harkalega stjórnmálaárekstra, en fólkinu í Sierra Leone fannst sem það hefði verið svikið um það tækfæri, sem svo lengi hafði verið sótzt eftir, að fá að kjósa sér heið- arlega ríkisstjórn. I stað þess að vera hylltur sem þjóðhetja varð Juxon Smith hershöfð- ingi, forsætisráðherra NRC, að sæta grjótkasti stúdenta, sem veifuðu skiltum, þar sem á stóð: „Við viljum ekki her- stjórn". Fimm vikum eftir valda- töku sína, neyddist NRC til þess að láta fara fram opin- bera rannsókn á kosningun- um, sem fram höfðu farið í fyrra. Skýrslan, sem skýrt var frá opinberlega í desember sl. benti til þess, að ofboðs- legt kosningasvindl hefði átt sér stað af hálfu SLPP. í skýrslunni var komizt að þeirri niðurstöðu, að APC hefði unnið meiri hluta þing- sæta og að Stevens hefði ver- ið réttilega tilnefndur for- sætisráðherra. Ekki var nein ástæða til þess að álíta, að kosningaúrslitin gæfu til kynna ættflokkaríg. Þrátt fyrir það að Juxon- Smith og félögum hans bæri skylda til þess að láta völdin af hendi í hendur réttskipaðr- ar ríkisstjórnar, ákváðu þeir að fara ekki að tilmælum skýrslunnar. í stað þess báru þeir fyrir sig, að allt of mikl- Framh. á bls. 23. álit í tilefni þessa, þar sem lýst er yfir stuðningi við Atlantshafsbandalagið og að- ild íslands að því, auk þess sem því er lýst yfir, að það virðist hefðbundin venja hjá háskólanum að lána húsnæði sitt til ráðstefnu- og fundar- halda margvíslegra aðila. Furðulegt er að sjá, hvernig stjórnarmeirihlutinn ruglar saman öryggismálum íslands og húsnæðismálum háskólans. Telji vinstri menn í háskólan- um öryggi landsins ekki meira virði en lesa má úr álýktun þeirra, er óljóst hverja framtíð þeir óska land inu. Þátttaka íslands í Atlants- hafsbandalaginu hefur tryggt öryggi landsins sem annarra bandalagsríkja. Frá stofnun þess hefur ríkt friður í Evrópu, sem áður var eitt mesta ófriðarsvæði heims. Telji menn þessa staðreynd eiga að víkja fyrir húsnæðis- málum, enda þótt um háskóla sé að ræða, eru þeir vægast sagt einkennilegir fulltrúar menntaæskunnar á Islandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar: 107. tölublað (26.05.1968)
https://timarit.is/issue/113797

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

107. tölublað (26.05.1968)

Handlinger: