Morgunblaðið - 15.06.1968, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.06.1968, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 19«! Þessi mynd er tekin i bás Slysavarnaféiagsins á sýningunni íslendingar og hafið og sýnir hluta þess er félagið sýnir. Fyrir miðju sést þyrla vera að bjarga mönnum í gúmbjörgunarbát og til vinstri sést líkan af björgun úr strönduðum togara við brimaða strönd. Ýmsar myndir frá starfi félagsins eru á veggjum. „Íslendingar og hafið44 Dagur Slysavarnafélagsins í dag — með flugeldasýningu og skemmtidagskrá kl. 20,30 ívar Guðmundsson iréttastjóri Útvarpsins f DAG er dagur Slysavarnafé- lags fslands á sýningunni „fslend ingar og hafið.“ Bás Slysavama- félagins er byggður upp á tækj- um félagsins, ýmsum líkönum og myndum úr starfi félagsins. Mjög skemmtilega gerð líkön eru í básnum af þyrlu, seem er að bjarga mönnum úr gúmmi- bát og er þyrlan í gangi og einn ig er líkan af björgun úr strönd uðum togara með öllum tilheyr- andi útbúnaði. í bás félagsins verða menn frá Slysavarnafélag inu og munu þeir segja frá sýn- ingarmunum. Þá mun Slysavarnafélagið sýna í Laugarásbíói kl. 3 í dag kvikmyndirnar „Björgunin við Látrabjarg“ og „Meðferð gúmmí björgunarbáta", og er aðgangur ókeypis. Sérstök skemmti- og fræðslu- dagskrá verður í Laugardalshöll í kvöld og hefst hún kl. 20.30 með eftirfarandi atriðum: Gunn ar Friðriksson, forseti S.V.F.Í., flytur ávarp, kynning á bás S.V. F.f., björgunarbátur blásinn upp með háþrýstiflösku, mönnum bjargað í stól yfir sýningarsal- inn upp á áhorfendapalla, Eygló Viktorsdóttir syngur og Bíó trí- ó syngur og leikur. Hannes Haf- stein mun stjóma skemmtun Slysavarnafélagsins. KI. 22 verða sýnd reykblys, svifblys, handblys og merkjaskot fyrir utan Laugardalshöll. Ugg- laust munu margir fylgjast með dagskrá Slysavarnafélagsins og flugeldasýningu. Deildir Slysavarnafélagsins voru 206 árið 1967, þar af 26 kvennadeildir, og heildarfélaga tala var 30.157. Sæluhús og skips brotsmannaskýli á vegum Slysa- varnafélagsins voru þá 51, og björgunartæki hefur félagið nú handbær á samtals 149 stöðum á landinu. Félagið á ennfrem- ur, eða í aðild með öðrum, 4 björgunarskip, 3 minni mótor- báta og 14 brimbáta, 3 sjúkra- eða leitarflugvélar og eina þyrlu. Á undanförnum 40 árum hefur Slysavarnafélagið og aðrir aðil- ar hér á landi bjargað samtals Framhald á bls. 31 í FRÉTTATTKYNNINGU, sem Mbl. barst í gær frá menntamála- ráðuneytinu, segir á þessa leyð: „Staða fréttastjóra Ríkisút- varpsins var auglýst laus til um- sóknar í Lögbirtingablaði nr. 18, 1968, og rann umsóknarfrest- ur út hinn 15. apríl sl. Listkynning n Hnll- veigarstöðum MORGUNBLAÐINU hefur bor- izt fréttatilkynning frá Menn- ingar- og friðarsamtökum ís- lenzkra kvenna, þar sem þess er getið, að samtökin ætli að efna til listkynningar í tilefni af 17. júní, þjóðhátíðardegi íslands. Hefst kynningin í dag að Hall- veigarstöðum og henni lýkur 17. júní. Eftirtaldir listamenn sýna verk sín á kynningunni: Drífa Viðar, listmálari, Eyborg Guð- mundsdóttir listmálari, Guð- munda Andrésdóttir, listmálari, Hafsteinn Austmann, listmálari, Sverrir Haraldsson, listmálari, Valgerður Bergsdóttir, listmálari, Ólöf Pálsdóttir, myndhöggvari og listakonurnar Vigdís Kristjáns dóttir og Ásgerður Búadóttir sýna myndvefnað. Á kynningunni koma auk þess fram: Ásdís Þorsteinsdóttir og Agnes Löve, sem leika samleik á fiðlu og píanó. Helga Hjörvar og Sólveig Hauksdóttir, leikkon- ur, sem lesa upp. Auður Guð- mundsdóttir, leikkona sér um kvöldvöku. Edda Þórarinsdóttir, leikkona, flytur íslenzka söngva með undirleik Láru Rafnsdótt- ur. Þær flytja 3 ljóð eftir Stein Steinarr, lög eftir Jón Ingva Ingvason og Atla Heimi Sveins- son, eitt ljóð eftir Halldóru B. Björnsson, lag eftir Jórunni Við- ar. Þá les Guðrún Stephensen, leikkona, kafla úr Pétri Gaut. Tvær umsóknir bárust um stöð una, frá ívari Guðmundssyni, blaðafulltrúa og Margréti Indriða dóttur, varafréttastjóra. ívar Guðmundsson, blaðafull- trúi, hefur í dag verið skipaður fréttastjóri Ríkisútvarpsins frá 1. janúar 1969 að telja“. Ivar Guðmundsson ívar Guðmundsson er fæddur í Reykjavík 1912. Frá 1934 til 1951 var hann blaðamaður og fréttaritstjóri við Morgunblaðið, en tók síðan við blaðafulltrúa- starfi hjá upplýsingadeild Sam- einuðu þjóðanna í New York. Frá 1955 til 1960 var hann vara- forstjóri upplýsingaskrifstofu SÞ fyrir Norðurlönd í Kaup- mannahöfn og 1960-61 blaðafull- trúi forseta Allsherjarþings SíÞ í New York. 1961 tók hann við forstjórastöðu við upplýsinga- skrifstofu SÞ fyrir Pakistan í Karachi, en tók síðan við for- stjórastöðu við upplýsingaskrif- stofu SÞ á Norðurlöndum. Að undanförnu hefur ívar unnið hjá SÞ í New York. ívar Guðmundsson átti sæti í stjórn Blaðamannafélags íslands öðru hvoru á árunum 1935 til 1951 og var formaður þess um skeið. Kona hans er Barbara, dóttir Holly Hannah, frá Winni- peg í Kanada. Imre Nagys Örlög ÞEIR atburðir rsem í október mánuffi 1956 gerffust í komm- únistarík.jum Austur-Evrópu munu eflaust seint líffa úr minni þeirra, er meff þeim fylgdust. Uppreisnirnar í Pól- 1 landi og Ungverjalandi skóku kommúniska heimsveldið svo rækilega, aff þaff hefur aldrei beffiff þess bætur. Gerffar voru uppreisnir gegn ríkjandi stjómum ©g Moskvustjórnin, meff Nikita Krúsjeff í broddi fylkingar, varff aff sætta sig viff, aff vinsælli menn tækju viff stjórnartaumunum, a. m. k. um sinn. f Póllandi tók viff Wlagislaw Gomulka, í Ung- verjalandi Imre Nagy. Gom- ulka situr enn í dag í valda- stóli og á þó í vök aff verjast. f Ungverjalandi hins vegar Iifffi stjóm Nagys affeins skamma hriff — blófföxi Rauffa hersins bjó honum sömu örlög og byltinga þjóff- arinnar. Byltingin í Ungverjalandi hófst hinn 23 október með fjöldafundum og mótmæla- göngum gegn ríkjandi stjórn- arháttum og stjórnvöödum. Þar var þess krafizt, að Ung- verjar yrðu óháðari Rússum og Jýðræði yrði komið á i 1 landinu. Krafizt var frjálsra kosninga, ritfrelsis og prent- frelsis. 3t_' rn landsins lýsti aðgerðirnar ólöglegar en allt kom fyrir ekki. Áður en sólarhringur var liðin, hafði komið til alvar- legra átaka og nú bárust þær fréttir, að Imre Nagy hefði verið fenginn til að taka við stjórnartaumunum. Hann hafði áður verið rekin úr emb aetti forsætisráðherra sökum þess, að hann þótti of frjáls- lyndur. Hann fór frá embætti við skammir og svikabrigzl. Þótt Nagy væri trúr komm- únisti, var hann fyrst og fremst ungverskur þjóðernis- sinni og hafði setið í fangelsi fyrir skoðanir sínar. Ljóst var að hann var fenginn til að taka við embættinu vegna þess, að hann var vinsæll með al fólksins — m. a. vegna bar- áttu sinnar gegn ofbeldi kommúnista — og þó talinn nægilega tryggur kommún- istaflokknum til að hann missti ekki öll tök á þjóðinni. En skipan Nagys ein lægði ekki öldurnar. Óánægjan var orðin svo megn, að fólkið vildi fá frekari tryggingar fyrir breyttu stjórnarfari. Þegar ekki linnti kröfum og átök- um og Ijóst var, að jafnvel ungverski herinn hafði snúizt í lið með þjóðinmi, gripu stalín istar til sinna ráða. Erno Gero, formaður flokksins, gall harður stalínisti ákvað í sam- ráði við Nikita Krúsieff, að kalla Rauða herinn til bar- daga gegn ungversku þjóðinni og her hennar. Gerði hann þetta án vilja og vitundar Imre Nagys. Þetta varð síð- asta verk Gerös í embætti — skömmu síðar var hann rek- inn úr því og við tók Janos Kadar, — sem átti eftir að svíkja Imre Nagy og leiðtoga byltingarmanna, Pal Maleter, í hendur Rússum. Hinn 25. október taldi ung- versk alþýða sig hafa sigrað. Skipt hafði verið um stjórn og formann kommúnistaflokksins og Kadar flutti faguryrt ávarp þar sem hann lofaði því, að jafnskjótt og eðlilegt ástand hefði komizt á, yrðu teknir upp sammingar við Sovétríkin á jafnréttisgrundvelli og fund in lausn allra vandamála. En bardögum var haldið áfram fram til mánaðamóta og var ekki annað sýnna en Ungverj- ar hefðu í fullu tré við að- komuherinn rauða. 1. nóvem- ber gekk Nagy á fund rúss- neska sendiherrans í Búda- pest og tilkynnti honum, að samkvæmt kröfu þjóðarinnar mundu Ungverjar ganga úr Varsjárbandalaginu og þeir krefðust þess, að Rússar köll- uðu her sinn á brott úr land- inu. Daginn áður hafði hann lýst því yfir, að aðrir stjórn- málaflokkar en kommúnista- flokkurinn mundu fá frelsi til að starfa og mynduð yrði þjóð leg stjórn á breiðum grund- velli. Og senn gat Nagy sagt landsmönnum sínum þau tíð- indi, að sóvésku yfirvöldin hefðu fallizt á að kalla her sinn heim og í kjölfarið mundu fylgja aðrar vel þegn- ar aðgerðir. Hætt yrði við samyrkjubúskap og verkalýðs félögin yrðu viðurkennd á ný. Næstu daga var Ungverja- land sjálfstætt ríki. Rússneski herinn hvarf úr borgum og lífið í landinu virtist ætla að taka á sig nýja og frjálsari mynd. En stund sjálfstæðisins var ekki löng. Aðfararnótt 4, nóv. streymdu rússneskar hersveit. ir yfir landamærin og þús- udum skriðdreka og orrustu- flugvéla var beitt til að bæla niður uppreisnina. Um morg- uninn heyrðist síðast frá Imre Nagy, er hann flutti útvarps- ávarp og sagði: „Við dögun í morgun réðust sovézkar her- sveitir á höfuðborg okkar í þeim augljósa tilgangi að steypa hinni lögmætu ung- versku ríkisstjórn. Hermenn okkar eiga í bardögum. Ríkis- stjórnin er á verði. Ég til- kynni þjóðinni og umheimin- um þessa staðreynd‘‘. Þegar dagurinn var að kvöldi liðinn var ljóst, að Janos Kadar hafði tekið við stjórnartaumunum og Imre Nagy var flúinn í júgóslavn- eska sendiráðið í Búdapest. Daginn áður hafði PalMaleter, leiðtogi byltingarmanna og nýskipaður landvarnaráð- herra verið handtekinn, er hann sat að samningum við sóvézk yfirvöld. Nagy dvaldist í júgóslavn- eska sendiráðinu til 21. nóv. Þá fór hann þaðan eftir að Janos Kadar og stjórn íians höfðu heitið honum því, að hann gæti farið frjáls ferða sinna, honum yrði ekkert rnein gert. En það loforð reyndist haldlitið. Síðan hef- ur ekki til Imre Nagys heyrzt. Honum var rænt á leiðinni úr sendiráðinu og hann færður í hendur Rússum. Þeir fluttu hann ásamt öðrum handtekn- um forystumönnum uppreisn armanna, m. a. Fal Maleter til Rúmeníu og þar voru þeir teknir af lífi eftir leyniteg réttarhöld. >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.