Morgunblaðið - 15.06.1968, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.06.1968, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JIJNÍ 1968 3 Grösin spretta og garðar blómgast Garðgróður44 í nýrri útgáfu 99 Nú sprettur jörðin óðum og ilmur gróðursins er farinn að anga í andrúmsloftinu og fólk ið teygar vorið í sig eftir and- kaldan vetur. Jörðin er að verða sumargræn og menn eru farnir að dytta að görðum sín- um, róta í moldinni, hreinsa til og planta jurtum, runnum og trjám. Vaxandi áhugi virðist hérlendis hjá fólki fyrir fall- egum görðum og gróðri og æ fleiri fá áhuga fyrir garðrækt í eigin görðum. Um þessar mundir er að koma út 2. útgáfa af bókinni „Garðagróður" eftir Ingólf Davíðsson og Ingimar Óskars son, útgefandi er Isafoldar- prentsmiðja. Fyrri útgáfan kom út 1950; þeir félagar höfðu þá unnið að bókinni í 3 ár, eða frá 1947 er Valtýr Stefánsson ritstjóri hafði kom ið að máli við þá og beðið þá vinna að slíkri bók. Bókin „Garðagróður“ er mjög vönduð að frágangi og prýða hana fjöldi mynda í lit og svart hvítu. Bókin er mjög góð handbók fyrir garðeigend ur og er hún sett up þannig, að bæði almenningur og fræði menn geta haft mikið gagn af. Ingimar Óskarsson skoðar rguðsmára í flmásjá Bókin skiptist í megindrátt- um í tvo kafla, ýmsa sérkafla og flóru. M.a. eru sérkaflar um blómabeð, blómlauka, steinhæðir, grasbletti, blóm á veggsvölum, limgirðingar, stöðu trjáa og runna í garð- inum o. fl. Segja má að allar mögulegar upplýsingar séu í bókinni, sem garðeigendur þurfa að vita. Við ræddum við höfundana og brugðum okkur siðan í Grasagarð Reykjavíkurborgar í Laugardal, sem er ekki að- eins grasagarður, heldur eru þar 2500—3000 mismunandi jurtir útivið. — Við spurðum Ingimar Óskarsson fyrst að því hvort a'ð það væri ekki hentugt fyr- ir garðeigendur að eiga bók- ina „Garðagróður." — Það er áreiðanlegt. Bók- in er í raun og veru tvískipt. Hún er handbók fyrir garð- eigendur og þar er hægt að fá hverskonar upplýsingar um garða, hvort sem er um rækt- im, skipulag, sjúkdóma eða yfirleitt hvað sem er í sam- bandi við garða. Þetta er sá hluti bókarinnar, sem snýr að beinni ræktun, en síðari hlut- inn er í raun og veru flóra og þá m.a. lýsingar á plöntum og þá greinarlyklar. — Notið þfð eitthvað sér- stakt form á bókinni? — Þessi bók er einstök á þann hátt miðað við bæði er- lendar og innlendar bækur um samskonar efni að hún er bæði handbók og flóra. Bókin er hentug bæði fyrir almenn- ing og fræðimenn. Þá eru ýms ar sérstakar upplýsingar, svo sem mælingar á trjám og fleira, sem síðar er hægt að sjá og draga ályktanir af. — Er nógu mikill áhugi hér lendis fyrir garðrækt? — Það er orðinn mikill á- hugi og margir garðar, sem Valtýr Stefánsson eru orðnir prýðisfallegir. Þetta hefur stórlega aukizt og farið fram síðustu ár. Yfir höfuð finnst mér vera meiri áhugi fyrir ræktun í görðum, heldur en á villtum íslenzkum plöntum. Fólk virðist í aukn- um mæli vera farið að dytta að görðum sínum. Ef til vill hefur gróðrarstöðin í Laugar- dalnum haft sitt að segja í því efni og svo finnur fólk líka að gadðrækt er skemmti- legt tómstundagaman, eftir að byrjað er að rækta á annað borð. Margir fá líka garð- yrkjumenn til þess að koma görðunum í fast form, en, enn skemmtilegast er þegar eig- endur leggja sjálfir hönd á plóginn. Þá hittum við að máli Ingólf Davíðsson og ræddum við hann um vorgróður og garðrækt. — Hvað á fólk helzt áð hafa í huga þegar lagt er út í garð yrkju? — Það þarf fyrst að undir- búa jarðveginn og skipuleggja garðinn í aðalatriðum. I bók- inni Garðagróður er sér kafli um undirbúning fyrir gerð garðs og þar getur hver og einn lesið sér til á einfaldan hátt hvers beri að gæta og hvað gera þurfi fyrst. Einnig er sér kafli um hvaða plöntur eru heppilegar byrjendum, nú og sfðan er hægt að auka við plöntufjölda með aukinni reynslu, því að það er til ó- grynni af plöntum, sem hægt er að rækta i góðum jarðvegi og góðu skjóli. í bókinni eru einnig kaflar um æskilegar plöntur fyrir þá sem hafa öðl- azt nokkra reynslu í garðrækt og lýst er langflestum tegund um skrautblóma, trjáa og runna, sem til eru í íslenzkum görðum. Einnig eru myndir af allflestum tegundum. Það eru ekki aðeins svart hvítar myndir, heldur er einnig fjöldi litmynda frá görðum í Reykjavík og einstaka tegund um jurta. — Hvaða plöntum er hent- ugast að planta út á þessum tíma? — Það er mest verið að gróð ursetja ýmis sumarblóm og fjölærar jurtir. Laukjurtir, sem settar voru niður í haust standa í blóma núna, en fyrir flestum laukjurtum þarf að standa á haustin. Það má segja að blómagarðarækt sé í geysilegum vexti og fólk hef- ur aukinn áhuga fyrir blóm- um og trjám við húsin. — Er ekki mikill hluti í ís- lenzkum görðum af erlendu bergi? — Af þeim 600 teg. jurta, sem ræktaðar eru í blóma- görðum hér á landi eru lang- flestar erlendar, en áhugi fyr- ir íslenzkum jurtum fer vax- andi, enda fara þær margar vel í görðum. Einkanlega í steinhæðum og sumir safna þeim beinlínis og t.d. fára ís- lenzkir burknar mjög vel á skuggsælum stöðum þar sem fáar aðrar jurtir þrífast. — Hafið þið unnfð lengi að þessum bókum um garðagróð- ur? — Við unnum í 3 ár að fyrri útgáfunni, sem kom út 1950, en aðdragandinn var sá að Valtýr Stefánsson ritstjóri hitti okkur að máli og bað okkur að vinna slíka bók og síðan höfum vfð fylgzt stöð- ugt með í þessu máli. — Hafið þi'ð ekki þurft að rækja efni til úrvinnslu víða? — Það er óhætt að segja það og t.d. hafa margir íslenzk ir garðyrkjumenn og áhuga- menn veitt okkur mikilvæga aðstoð með því að skýra okk- ur frá reynslu sinni í garð- rækt. Það er lang skemmti- legast að fólk reyni að skipu- leggja garða sína sjálft, þá verða þeir misjafnlega frum- legir og breytilegir. Að síðustu brugðum við okkur í Grasagarð Reykjavík urborgar sem var opnaður 1961, með 200 íslenzkum plönt um, sem hjónin Katrín Viðar og Jón Sigurðsson skóla- stjóri gáfu á 175 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Nú eru alls um 2500—3000 plöntur í garðinum. Við ræddum stutt- lega við Sigurð Albert Jóns- son, sem sér um grasagarðinn, en yfirmaður stofnunarinnar er Hafliði Jónsson garðyrkju- Ingólfur Davíðsson stjóri. — Hvaða jurtategundir eru hér helzt? — Það kennir hér margra grasa, þó að hér séu ekki ein- ungis grös. Vi'ð reynum hér allt mögulegt í ræktun, sér- staklega það sem gildi hefur fyrir íslenzka garðrækt. Við höfum t.d. fræviðskipti við 35 erlenda grasgarða og sendum þeim lista yfir fræ, sem við söfnum og svo pöntum við aftur á móti fræ frá þeim. — Hvað eru margar tegund ir jurta hér í garðinum? — Hér eru á milli 2500— 3000 tegundir og þar af eru um 270 íslenzkar. — Kemur margt fólk hing- að til að skoða? — Já, mjög mikið. Sérstak- lega á sumrin og hér getur fólkið fræðzt um plöntur, sem þáð hefur áhuga á að útvega sér, skrifað nöfn þeirra og kýnnt sér meðferð þeirra. — Þið gerið hér tilraunir með hvaða plöntur hæfa ís- lenzkum görðum. — Já, við gerum mismun- andi tilraunir og könnum hæfni hverrar plöntu fyrir ís- lenzkt veðurfar og það þarf í raun og veru nokkuð mörg ár til þess að finna út möguleika hverrar plöntu vegna mismun andi vetra, en hér er nú allt að færast í fullan skrúða. ' W f ’ 'M tlfmmmr:m-k Ung blómarós dyttar að bló mum í beðL Ljósmynd Mbl. Árni Johnse n. STAKSTEINARS Hvcu er málefnið? Kommúnistamálgagnið leggnr ríka áherzlu á það í gær að stappa stálinu í fylgismenn sína og efla þá til mótmæla vegna ráðherrafundar Atlantshafs- j bandalagsins, sem hefst hér eft-i ir rúma viku. Fjöldi greina er birtur um þetta mál og á einum stað segir, að nokkrir „her- j námsandstæðingar“ hafi „feng- ið“ kommúnistablaðið „til þess að Ijá rúm greinarkornum sem helguð verða málefnum hernað- arbandalagsins og þeim rökum sem mæla gegn áframhaldandl aðild okkar íslendinga að því'Vj Birtist fyrsta „málefnalega greiií arkornið" í blaðinu í gær, í þvl er einkum fjallað um hið „grófa táknmál Morgunblaðsins”, „und- irsátana við Aðalstræti", „of- beldisupphrópanir Morgunblaðs- ins“ og „ofbeldishneigð“ þeirra sem í það rita í því augnamiði „að rækta með lesendum sínum það ofstækishugarfar“, sem veldur því, að fulltíðamenn‘ koma í Ríkisútvarpið þannig á sig komnir að: „Ofstækið hefur borið dómgreind þeirra (og lýð ræðisást!) svo algjörlega ofur-* liði, að þeir hafa jafnað hvers kyns mótmælaaðgerðum við of— beldi". j Á forsíðu kommúnistablaðsins er talað um „svívirðingaskrif'** og „æsingaskrif" Morgunblaðs- ins og á enn öðrum stað er f jall- að um „rógsherferð Morgunblaðs ins“ og að: „Dag eftir dag spúa áróðursmeistarar Morgunblaðs- ins óhroðanum yfir lesenduf- sína" og síðan: „Slíkt er gjald- þrot ritstjóra Morgunblaðsins j siðferðilegum efnum“. Fróðlegt verður að fylgjasi með „málefnalegum skrifum'* kommúnistablaðsins um Atlants- hafsbandalagið á næstunni, þeg- ar spekingar þess eru svo „rök- fastir" og „orðheppnir“ þegar i upphafi. > ísland í smásjá Tíminn fjallar um AtlantshafS bandalagið af öllu meiri hóg- værð og stillingu í forystugrein sinni í gær ,en þar segir m.a, að það sé tvímælalaust skoðun meirihluta íslenzku þjóðarinnar, að landið eigi að halda áfram þátttöku í Atlantshafsbandalag- inu, enda eigi starf þess að bein- ast enn meira að því en áður að bæta sambúðina milli austurs og vesturs. t lok greinarinnar seg- ir orðrétt: „Þrátt fyrir það, sem hér hef- ur verið rakið, eru til menn, sem af ýmsum ástæðum eru andvíg- ir Atlantshafsbandalaginu. Við því er ekkert að segja, ef þessir menn sækja mál sitt með rökum, því í lýðræðislöndum hafa menn fullan rétt til að vera ósammála meirihlutanum. En það væri illt verk, ef einstakir öfgamenn úr þessum hópi, gripu tækifæri f sambandi við ráðherrafund Nato til að stofna hér til óláta, er væri ósamboðið þjóð, sem vill verðskulda það álit, að hún út- kljái deilumál sín með frjálsum rökræðum en ekki með ólátum og róstum. Slíkt myndi að sönnú spilla málstað þeirra manna, sem slíkum aðförum beittu, en það myndi ekki bæta þjóðinni tjón ,ef settur væri blettur á þann skjöld, sem hún vill halda hreinum, og það einmitt á þeim tíma, sem smásjá umheimsina hvilir á íslandi. ; , Um það eiga allir íslendingag að sameinast, að slíkt komi ekkl fyrir“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.