Morgunblaðið - 15.06.1968, Page 10

Morgunblaðið - 15.06.1968, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JTJNÍ 1968 Ragnar Halldórsson, verkfræðin gur — Alusuisse skal leggja til tæknikunnáttu og tryggja sölu á framleiðslu ISAL. iíjtsi! Líkan af súráliðjuverinu við G ove-flóann í Norður-Astralíu, ÁL er þriðja algengasta frum- efni, sem fyrir kemur í jarð- _ skorpunni og algengasti málm- " urinn eða 8% miða'ð við þyngd. Járn er næst algengasti málm- urinn eða 5% miðað við þyngd. Þar sem eðlisþyngd áls er ein- trngis rúmlega þriðjungur á við járn, er álið yfir fjórum sinnum meira að magni en járn, þegar miðað er við rúmmál. Þrátt fyrir að ál sé svona stór hluti jarðskorpunnar, hefur það einungis verið þekkt sem málm- tir í hálfa aðra öld. Þetta stafar af því, hvað ál hefur sterka til- hneigingu til að bindast súrefni, og hversu torvelt er að skilja álið frá súrefninu. Rómverski náttúrufræðingurinn Plinius, sem uppi var skömmu eftir Krists burð, nefnir alumen eða álún í hinni nafntoguðu náttúru- , fræði sinni, en álún, sem er ál- súlfat, og önnur málmsölt er notað til lækninga og við sút- un. Á átjándu öld komust menn að raun um, að þáð, sem við í dag nefnum áloxíð eða súrál (AL 0), sé hluti af efnasam- bandinu álún, en það var ekki fyrr en 1807, að Sir Humphrey Davy dettur í hug, að súrál (á ensku alumina) sé málmur bund inn súrefni. Hann nefndi þenn- an málm aluminum, sem hefur haldizt í Norður Ameríku, en breytzt í flestum öðrum löndum í aíuminium. Hér á landi stakk Orðabókarnefnd Háskólans upp á því að nefna þennan málm ál, og hefur það heiti þegar festst í málinu. Sir Humphrey tókst þó ekki að framleiða hreint ál. H. C. örsted er talinn hafa verið fyrstur til að framleíða hreint ál árið 1825, en það liðu yfir 60 ár þar til Frakkanum Héroult og Ameríkanum Hall hugkvæmdist, óháð hvor öðrum, að leysa súrálið upp í kríólíti líkt og sykur leysist upp í kaffi, og vinna síðan álið með raf- greiningu. Lögðu þeir þar með, ásamt Þjóðverjanum Siemens, sem uppgötvaði rafsegulmagnfð, og Bayer, sem fann upp aðferð til að vinna súrál úr báxíti, grundvöllinn að þeirri aðferð, sem enn í dag er notuð við ál- vinnslu. Súrál er með hörðustu efnum og er meðal annars notað sem slípiefni, kórund, og til fram- leiðslu gervigimsteina, svo sem roðasteina og safíra. Það er unnfð úr báxíti, sem svo er nefnt eftir fundarstað í Suður Frakklandi. Áætlað er, að vinnsluhæft báxít á jörðinni sé um 6.000 milljónir tonna, sem dreift er um allar heimsálfur. Með aðferð Bayer, sem áður er nefndur, eru unnin 2 tonn af súráli úr 4 tonnum af báxíti, en úr 2 tonnum af súráli fæst 1 tonn af áli. Auk súrálsins þarf yfir 500 kg af kolefni, um 60 kg kríólít og 15.000 kWh af raforku til að framleiða 1 tonn af áli. Þessi geypilega raforkuþörf gerir það að verkum, að ál hefur stund- um verið nefnt rafmagn í föstu ástandi. Sökum hinna mörgu góðu eig- inleika álsins og þeirrar stáð- reyndar, að tekizt hefur með aukinni framleiðni að halda verði álsins mjög stöðugu, vex álnotkun í heiminum risaskref- um, eða þannig, að hún rúmlega tvöfaldast á hverjum 10 árum. Álframleiðsla í heiminum er nú nær 8 milljónir tonna á ári eða tæplega 2 kg. á mann miðað við íbúafjölda jarðarinnar, en í Bandaríkjunum, þar sem álnotk unin er hæst, er hún um 10 sinn um meiri eða tæplega 20 kg. á mann. 1 Sviss, Kanada, Vestur- Þýzkalandi og Bretlandi er árs- notkunin rúmlega 10 kg. á mann, en í öðrum löndum minna, hér á íslandi t.d. tæplega 4 kg á mann miðað við verzlunar- skýrslur. En þess ber að gæta, að þá er það ál, sem flutt er inn sem hluti af flugvélum, skipum, bifreiðum og öðrum fullunnum vörum ekki meðtekið. Elzti álframleiðandi í Evrópu er Svissneska Álfélagið eða Alusuisse. Það hóf starfsemi eftirtalin ákvæði: — Stofna skal félag að ís- lenzkum lögum, íslenzka Álfélag ið h.f. (ÍSAL), sem skal byggja sína árið 1888 f Neuhausen við Rínarfossa í Sviss, en rekur nú starfsemi sína í 17 þjóðlöndum í öllum heimsálfum. Ársfram- leiðslugetan af hrááli í 9 áliðju- verum í Austurríki, Sviss, Þýzka landi, Italíu, Noregi, Hollandi og Bandaríkjunum nemur um 350. 000 tonnum e'ða nær 5% af heimsframleiðslunni. Auk ál- vinnslimnar, rekur Alusuisse fjöldan allan af verksmiðjum og orkuverum, bæði til að fram- leiða hráefnið til álvinnslunnar, þ.e. súrál, og til að framleiða hinar fjölbreyttustu vörur úr hráálinu. Alusuisse er sannkall- að almenningshlutafélag, enda eru hluthafar yfir 12.000 og á enginn einn hluthafi meira en um 5% hlutafjárins. Hjá fyrirtæk- inu og dótturfyrirtækjum þess starfa nú um 22.000 manns og varð heildarvelta félaganna sem svarar 22.000 milljónum króna á síðastliðnu ári. Tvö stærstu verkefni Alu- suisse á sviði nýbyginga eru iðjuver til að framleiða súrál í Ástralíu og álverið í Straums- vík. Afkastageta iðjuversins í Ástralíu verður í upphafi 1.000. 000 tonn, en það svarar til 500. 000 tonna af áli eins og áður er getið. Áætlað er, að virkjanlegt vatns afl á íslandi sé milli 3 og 4 milljón kílówött, og nýtanlegur jarðvarmi álíka mikill. Þar af eru í dag einungis um 2—3% nýtt. Þar sem álþörfin í heim- inum vex um yfir 500.000 torui Ég vil leyfa mér að fullyrða, að samningar þessir séu hag- stæðir fyrir báða aðila, enda er það forsenda þess, að þeir verði haldnir, eins og allir sanngjarn- ir menn vita. ISAL fær raforku á hagstæðu verði, en á móti kem- ur, a'ð ISAL mun hafa greitt byggingarkostnað, bæði virkjun- arinnar við Búrfell og hafnarinn- ar í Straumsvík, innan 20 ára, með greiðslum fyrir raforku og hafnargjöldum. Til þess að gefa nokkra hugi- mynd um þýðingu áliðjuversins ; '<•* Nýtízku fjós þar sem loftið er klætt „Aluman“ báruáli. Undirstöður álvinnslukerjanna i kerskálanum í Straumsvik, árlega, hefur Alusuisse hug á að færa út kvíarnar til þess að geta fullnægt þessari auknu eftir- spurn. Þessar tvær staðreyndir leiddu til þess, að forráðamenn Alusuisse, einmitt þeir tveir, er staddir voru hér á landi fyrir nokkrum dögum, sneru sér til Bjarna Benediktssonar, þáver- andi iðnaðarmálaráðherra, til þess að leita fyrir sér um möguleika til a'ð reisa áliðjuver á íslandi á grundvelli íslenzks fossafls. Viðtökur ríkisstjórnar- innar voru jákvæðar, þar sem það hefur lengi verið á dag- skrá að renna fleiri stoðum und ir íslenzkt atvinnulíf, þótt eng- an hafi rennt grun í, að nauð- syn þess sannaðist svo fljótt sem nú er í ljós komið. Viðræ'ður Alusuisse og ríkis- stjórnarinnar leiddu til þess, að gerður var samningur milli þess ara aðila, sem staðfestur var af Alþingi sem lög 30. apríl 1966. Svo sem kunnugt er, inniheldur samningur þessi meðal annars og reka áliðjuver í Straumsvík. Afkastageta áliðjunnar verður 33.000 tonn af hrááli árlega í fyrsta áfanga, en þau afköst verða aukin um helming innan fárra ára. Auk þess er hægt, ef reksturinn gengur að óskum, að auka ársafköstin í allt að 160.000 tonn. — Landsvirkjun skal reisa orkuver vi'ð Búrfell, sem sér ál- iðjunni fyrir raforku. Búrfells- virkjun verður í fyrsta áfanga 120.000 kW, en verður stækkuð í 210.000 kW um leið og árs- afköstin í Straumsvík verða aukin í 66.000 tonn. Þar af mun ISAL þá nota um 120.000 kW eða rúmlega helming. — Hafnarfjarðarbær skal gera höfn í Straumsvík fyrir áliðjuverið. Verður byggður 220 m langur hafnargarður, sem nægir fyrir losun skipa allt að 30.000 rúmlestir, en hægt verð- ur síðar meir a'ð dýpka höfnina þannig að hægt sé að losa þar skip allt að 60.000 rúmlestir. á þjóðarbúskap okkar, má nefna nokkrar tölur, og er þá miðað við 66.000 tonna ársframleiðslu. Heildarveltan mun nema yfir 1800 milljónum árlega. Þar af verða hreinar gjaldeyristekjur um 450 milljónir, en helmingur þeirrar upphæðar eru greiðslur fyrir raforku og útflutningstoll- ar. Þessar gjaldeyristekjur svara til yfir 12% af hreinum gjald- eyristekjum okkar á sfðastliðnu ári. Þessar . gjaldeyristekjur munu auka þjóðartekjur okkar um 1800 milljónir, þar sem reynslan hefur sýnt, að gjald- eyristekjur skapa grundvöll fyr- ir um það bil 4 sinnum hærri þjóðartekjum. Ég tel því, að deilur þær, sem um álsamningana hafa staðið, stafi fremur af meðfæddri þörf okkar íslendinga til þess að deila um alla skapaða hluti en því, að mikil sannfæring andstæðinga samningsins sé þar að baki. Dettur mér í hug í þessu sam- bandi sagan, sem faðir minn sagði mér einu sinni um aust- firzka bóndann og fjallfð, en hún er eitthvað á þessa leið: — Bóndi í austfirzkum afdal var ásamt nokkrum gestum sín- um staddur úti á hlaði og virtu þeir fyrir sér landslagið. Mælti þá einn gesturinn: „Geysilega er fjallið þarna bratt". „Nei, það er ekkert bratt", kvað bóndL „Mér virðist það nú býsna bratt“, sagði gestur. En bóndinn tók því fjarri. Annar gestur, sem þekkti skapferli bónda, lagði nú orð í belg og segir: „Þetta er annars alveg rétt hjá þér bóndi sæll, fjallið er ekkert bratt.“ Þetta kom öllum á óvart, bónda ekki síður en hinum. Snerist hann hvatlega að verjanda sín- um og segir af þjósti með mikl- um þunga: , ,Jú, víst er þa¥5 bratt.“ Hvort sem fleiri Islendingar eru eins þrætugjarnir og þessi austfirzki bóndi eða ekki, ætla ég að eitt muni sannast svo ekki verið um villzt, en það er, að álverið í Straumsvík verður, upphaf nýrrar sóknar til bættr- ar afkomu og aukinnar velferð- ar íslendinga allra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.