Morgunblaðið - 21.07.1968, Page 2
2
MORG-UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1968
Nýtt fiskvinnsluf yrirtæki
Rœtt við Karl Jónsson
framkvœmdastjóra á Seyðisfirði
ÍSLENZKA þjóðin hefur löng
um horfzt í augu við erfið-
leika, og átt líf sitt undir
óútreiknanlegum náttúruvið
burðum — lagt allt sitt á eitt
spil, og nú horfa meim með
ugg til síldveiðanna. Síldveið
arnar eru svo mikilvægur þátt
ur í efnahagslífinu, eða í raun
inni ræðst það af þeim, hvort
við getum vænzt svipaðra lífs
kjara og undanfarin ár. Um
allt land eygja menn nýja
von, en auðvitað er spennan
mest í síldarbæjum. Fersk haf
golan og tjörulyktin frá plön-
unum fyllir sálina og undir
drungalegum fjöllum líður hve
dagur með vaxandi eftirvænt
ingu. Kemur hún á morgun?
Blaðið hefur undanfarið
reynt að leyfa þeim, sem ekki
búa í nábýli við síldariðnað-
inn, að fylgjast með líka og
hefur birt fréttir og viðtöl
úr síldinni. Nú verður sagt
frá fyrirtæki í einum elzta síld
arbæ landsins, Seyðisfirði, en
þar hefur kannske verið lagt
mest undir seinni árin til að
hagnýta síldaraflann.
FISKIÐJUVERIÐ
Nýlega hefur hlutafélagið
Hrólfur, tekið á leigu fiskiðju
verið á Seyðisfirði, sem er
mikið mannvirki í fasteigna-
bókum, en hefur hinsvegar
ekki gengið sem bezt þau 15
—20 ár, sem það hefur starf-
að. Þær vonir, sem 1 upphafi
voru við það bundnar eru
löngu týndar, og sakar ekki
að geta þess, að bygging þess
var umdeild á sínum tíma.
Nú hefur nýtt hlutafélag tek-
ið við rekstri hússins og hef-
ur í hyggju að reyna að gera
enn aðra tilraun. Við hittum
að máli Karl Jónsson, fram-
kvæmdarstjóra félagsins, en
hann starfar nú af miklum
dugnaði við að koma húsinu
í rekstrarhæft ástand. Fórust
Karli orð á þessa leið:
— Hlutafélagið Hrólfur tók
fiskiðjuverið á leigu af ríkis-
sjóði nú fyrir skömmu. Nokkr
ir aðilar höfðu gefið sig fram
til að reka hús, þetta, en
úrslitum mun hafa ráðið, að
Hrólfur hf. hefur í hyggju
að reka húsið allt árið og mun
reyna að fullnýta möguleika
iðjuversiná. í stuttu máli verð
ur rekstrinum hagað þannig
að húsið verður gert klárt
fyrir móttöku á bolfiski til
flökunar og frystingar. Að
vísu eru nokkur vandamál í
bili um framleiðslu og sölu
fiskaflans, en við höfum góðar
vonir um, að úr rætist. Þá
mun hér verða fryst síld í
sumar, og eins síld til beitu.
Loðna verður fryst í vetur
til beitu, og til útflutnings,
og svo verður síldarsölitun
eftir því sem tækifæri gefast.
Merkasti þátturinn er þó flök
un síldar. Félagið á væntan-
legar síldarflökunarvélar, sem
og eru á leiðinni til landsins.
Eru á döfinni samningar um
sölu á ca. 2000 tonnum af
síldarflökum til innlends og
erlends aðila. Síldarflökun í
húsinu er sú iðja, sem mest
verður lagt upp úr hér. Þá
er og gert ráð fyrir að reynt
verði að sjá síldarflotanum
fyrir ís, til ísunnar á síld.
ísframleiðsla hússins miðað við
núverandi afköst er um 15
lestir af skelís á sólarhring,
en í athugun eru nú áætl-
anir um að þrefalda ísfram-
leiðslu strax í sumar, með nýj-
um vélakosti. Tekur um 6—8
vikur að ganga frá þeirri
stækkun. Ennfremur verður
aðstaða til íslestunar gerð
sjálfvirk.
ATVINNUASTAND
Ég vil, heldur Karl Jóns-
son framkvstj. áfram, undir-
strika það, að auðvitað bygg
ist allt þetta á komu síldar-
göngu að landimu. Hópur
m’anna hefur hætt fé sínu
til þess að endurvekja störf
fiskiðj'uversins og miikil og
nákvæm áættun verið gerð,
sem mikil vinna ligguir á bak
við.
Einkum er það merki-
legt að við gerum ráð fyrir,
að verkefni verði allt árið.
Gert er ráð fyrir að um 60—
70 manns starfi að staðaldri
við fyrirtækið — vetur og sum
ar, og er nauðsynlegt til þess
að Seyðisfjarðarkaupstaður
geti haldið eðlilegum vexti.
— Óskaði Seyðisfjarðarkaup
staður eftir að fá Fiskiðju-
verið á leigu?
— Nei. Ekki bærinn sjálfur
Hinsvegar hafði bæjarstjór-
inn okkar áhuga á því og
ritaði hréf til fyrirtækjá þar
sem fitjað var upp á samstarfi
fyrirtækjanna í bænum um
reksturinn, en áhugi var ekki
fyrir hendi. Að vísu hafa
Seyðfirðingar álhuga á að
fiskiðjuverið starfi, og ég full
yirði, að svo é um alla eyð-
firðinga. Ég er Seyðfirðingur
sjálfur og ég vildi gjarnan að
það kæmi fram, að fyrirtækið
hefur mætt miklum skilningi
og vinsemd hjá þeim aðilum,
sem við það skipta.
— Ertu bjartsýnn á síld-
veiðina.
— Nei. Ég er búinn að fást
lengi við síld. En ég undir-
strika að það er skoðun mín,
að afla munum við ekki auka
til muna. Það er úrvinnsla
aflans sem fer að skipta megin
máli. Eigendur Herjólfs hf.
gera sér grein fyrir, að þeir
hafa hætt fjármunum sínum,
en við teljum, að hugmyndir
okkar um nýtingu fiskiðjuvers
ins allt árið, hljóti að vera
tím'aibærar. Við erum ekki
sí'ldarispekúlantar. Við erum
iðnrekendur. etta sjónarmið
kemur víða fram í atvimnu-
málastjórn ofckar, í ríkistjórn
inni og í tefnu bankanna.
Draumurinn um kjótan auð
aif síldarafla er efeki lenigur
fyrir hendi. Farsæl fram-
leiðealustefnu hefur verið tek-
inn upp í staðinn.
Þótt áliðið sé kvölds heyrast
köll og hamarshögg um þver-
an fjörð. Seyðisfjörður er að
fullmótast fyrir síldarvertíð-
ina. Fyrir tveim áratugum var
hér allt í aldamótastíl hús og
kaupmenn Sá tími kemur
aldrei aftur fremur en síldar
spekúlantarnir sem vissu ekki
aura sinna tal, miMi gjaldiþrot
anna. Nýja iðnaðarstefnan er
að fullmóta þennan srtað.
Kiarvalsmólverk-
ið af Freysteini
OKKUR varð á í measunni í gær
í sambandi við myndina af mál-
verkinu af Freysteini Gunnars-
syni, íyrrverandi skólastjóra
Kennaraskólans, sem birtist með
grein eftir sr. Árelíus Níelsson.
Sagt var að málverkið væri eft-
ir Kjarval, en svo er ekki, mynd
in var af málverki af Freysteini
eftir Örlyg Sigurðsson.
Kjarvals-málverkið af Frey-
steini er í skrifstofu núverandi
skólastjóra Kennaraskólans, dr.
Brodda Jóhannessonar, og er hér
mynd af því.
Morgunblaðið hringdi til Frey
steins Gunnarssonar í gær oig
spurði hann hvernig honum lit-
ist á myndina af honum eftir
Kjarval. „Myndin er ákaflega
falleg sem listaverk", sagði hann,
„bæði að lit og allri gerð. Það
er álit margra að hún sé ekki
nógu lík mér. En maður er allt-
af að breytast. Hún er máluð
löngu á undan hinni og því eðli-
legt að þær séu ekki líkar. Þetta
fer eftir því hver horfir og hve-
nær.“
- FLOTAÆFINGAR
Framhald af bls. *
„í æfingunum sýndu áhafnir
kafbáta, flotaflugvéla, herskipa
og landgönguliðar að þeir eru í
góðri þjálfun, hafa gott vald á
hernaðaraðferðum og eru þess
albúnir að framkvæma með góð-
um árangri erfiðar hernaðarað-
gerðir við hvaða skilyrði sem
er“, segir í Tass-tilkynningunni.
í tilkynningunni segir að fengizt
hafi dýrtmæt reynsla að því er
snertir eflingu sameiginlegra
varna kommúnistalandanna.
Vatninu hleypt á
leiðsluna í gær
1 GÆR átti að hleypa vatni á I
nýju vatnsleiðsluna til Yest-
mannaeyja í fyrsta skipti og átti
þaS að gerast við hátíðlega at-
höfn. Bæjarstjórnin i Eyjum
bauð gestum til Eyja í gær og
tvoru meðal þeirra samgöngu-
ímálaráðherra, Ingólfur Jónsson,
félagsmálaráðherra, Eggert G.
Þorsteinsson og þingmenn kjör-
dæmisins auk nokkurra meðlima
í Fjárveitinganefnd. Danir þeir,
sem að verkinu hafa staðið voru
einnig meðal boðsgesta við at-
höfnina.
Hleypa átti vatninu á leiðsl-
una á Landeyjarsandi um kl. 15
í gær, en þar sem ekki hafði
reynzt unnt að tengja leiðsluna
við dæluhúsið í Eyjum vegna veð
urs, átti að taka á móti því um ’
borð í danska skipinu, sem lagði mmm
leiðsluna. *sgp
f gærkvöldi ráðgerði bæjar-
stjórnin að halda gestum sínum
kvöldverðarboð og að sögn Magn
úsar H. Magnússonar, bæjar-
stjóra, átti að fara með gest-
ina í hringferð um eyna, ef veð-
ur leyfði. Sagði Magnús, að
leiðslan yrði síðan tengd um
leið og veðurskilyrði bötnuðu
nægjanlega.
Útiskemmtun Árbæj-
arhverfis við Árbæ
FRAMFARAFÉLAG Seláss og
Árbæjarhverfis gengst í dag
fyrir árlegri útiskemmtun sinni.
Að þessu sinni verður skemmt-
unin haldin á túniu neðan við
Magnús H. Magnússon, bæjarstjóri ræðir við Þórhali Jónsson,
verkfræðing, sem hefur annazt umsjón verksins fyrir hönd
bæjarins.
Árbæjarsafnið í stað þess að
halda hana við Árbæjarskólann,
eins og gert hefur verið undan-
farin ár. Fjölbreytt skemmtidag-
skrá verður í dag og lýkur
skemmtuninni með því, að dans-
að verður á paiii.
Háitíðahöldin hefjast með því,
að gengið verður með Lúðrasveit
verkalýðsins frá skúlanum niður
Árbæ, þar sem sfeemimitiatriðiin
verða. Munu þar verða haldin
ávörp og upplestur, en síðan
syngja fjórar ungar stúlkiur nokk
ux l'ög. Á milli aitriða leifcur
lúðrasveitin lög. Ef veður verð-
ur gott muinu þekktir skemimti-
krafar koma fram með skemmti-
atriði, sem eru þjóðdansar, sem
ekki hafa verið sýndir áður.
Framfarafélag Seláss og Ár-
baejarhverfiis hefur nokkra sér-
stöðu í boriginni, að því er Sigur-
jón Ari Sigurjónsson, formaðiur
félagsins sagði í gær. Féilagið
tekux hagsmiuni hverfanna fyrir
á funduim, en þá fundi hafa sótt
borgarstjóri, símastjóri, hita-
veiustjóri, er þeim heifur verið
boðið. Felaigið byggði gamla
barnaskólann við Rofabæ og
hefúr staðið fyrir öðruim fnaim-
faramiálum í hverfunum..
Erindi um yogn
n þriðjudng
SÉRA Þór Þóroddsson frá Kali-
forníu heldur erindi í Tjarnar-
bæ n.k. þriðjudag þar sem hann
mun kynna hið tíbezka yoga-
kerfi og segja frá spádómum
tíbezku meístaranna.
Hefur Þór lagt stund á yoga-
kerfið, sem hann hyggst kynna
hér, í 20 ár hjá Edwin J. Dingle,
en Dingle hefur starfrækt skóla
í Bandaríkjunum frá 1927.
Veðurútlit í dug
SPÁÐ er hægviðri um allt
land yfir helgina, eins og í
gær. Búast má við súld á Suð
urlandi og þá einkanlega við
ströndina. Vestanlands er bú-
izt við súld með köflum, eink
um þó að næturlagi. Skýjað
veður verður væntanlega á1
Norðurlandi, en bezta veður
á Norðausturlandi, þar sem
búizt er við bjartviðri um
helgina. Hlýtt verður um
mestallt land, einkanlega á
Norðausturlandi. Má búast
þar við 15-20 stiga hita.