Morgunblaðið - 21.07.1968, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1968
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrfu.
Fréttastjón
Auglýsíngast j ór i
Ritstjóm og afgreiðsla
Auglýsingar
Askriftargjald kr 120.00
1 lausasölu.
Hf Arvakur, ReykjavQc.
Haraldur Sveinsson.
Sigurður Bjamason frá Vigur
Matthias Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjöm Guðmundsson.
Bjöm Jóhannsson.
Arni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
á mánuði innanlands.
Kr. 7.00 eintakið.
HVERS KONAR
TILRAUNIR?
Ctjórnarandstæðingar klifa á
því nú sem fyrr, að
stjórnarstefnan sé röng og
grundvallarbreytingar þurfi
að gera til þess að bæta á-
stand efnahagsmála. Ekki
geta þeir þó nú, fremur en
fyrri daginn, skýrt frá því í
hverju þessar breytingar eigi
að vera fólgnar, og þýðir sjálf
sagt lítið að biðja þá að út-
skýra það.
Ljóst er hins vegar að þeir
mundu leitast við, ef þeir
hefðu ráðin, að gera einhverj
ar víðtækar breytingar á skip
an efnah'ags- og viðskipta-
mála. Þeir mundu hefja til-
raunastarfsemi, þar sem til-
raunadýrin væru landslýður
allur.
Einna líklegast er, að til-
raunir þeirra yrðu í því fólgn
ar að vita hver viðbrögðin
yrðu, ef komið yrði á víðtæk
um höftum og pólitískri of-
stjórn. Þeir mundu sjálfsagt
. reyna að koma á nýju fjár-
hagsráði, nýrri innflutnings-
skrifstofu, nýju skömmtunar
fargani og bíða svo og sjá
hvort allt læknaðist ekki og
öllum farnaðist vel.
En sannleikurinn er sá, að
við íslendingar höfum reynt
þetta allt saman áður, og
aldrei hefur mönnum ver
farnazt en á tímum haftanna
og ofstjórnarinnar. Af þeirri
reynslu drógu menn þann
lærdóm, að fólkið er ekki
eins heimskt og sósíalistarnir,
mennirnir sem öllu vilja ráða
fyrir fólkið, halda.
Stefna frjálsræðis í við-
skipta- og efnahagsmálum
hefur sigrað í öllum hinum
lýðfrjálsa heimi, og það svo
rækilega, að jafnvel kommún
istaríkin eru nú hvert af öðru
að feta sig í áttina til frjáls-
ræðis og kasta fyrir róða
kreddukenningum sósíalis-
mans og sjónarmiðum of-
st j órnarmanna.
Við íslendingar eigum nú
við mikla erfiðleika að etja
og höfum raunar búið við þá
’ á annað ár. Ríkisstjórninni
hefur tekizt að halda þannig
á málum, að þrátt fyrir þessa
erfiðleika býr fólkið við
sæmileg kjör og engin vá er
fyrir dyrum. En ef nú yrði
farið að stunda tilraunastarf-
semi vinstri manna, er eins
víst eins og að nótt fylgir
degi, að atvinnuleysi og neyð
mundi dynja yfir íslenzkan
almenning.
EKKIÁ HNJÁNUM
Alþýðublaðið er sármóðgað
** í gær út af því að Morg-
unblaðið benti á, hve vafa-
samt það væri af íslending-
um að neita tilmælum Rússa
um að taka upp frjáls við-
skipti milli landanna. Segir
Alþýðublaðið að þetta sé ekki
vilji viðskiptamálaráðherra
eins heldur allrar ríkisstjórn
arinnar, rétt eins og það
breytti eitthvað eðli málsins,
ef ráðherrann hefði fengið
samþykki stjórnarinnar fyrir
þessari málaleitun.
Morgunblaðið benti á það,
sem allir þeir vita, sem við
samningaumleitanir fást, að
hættulegast af öllu er að setja
sig fyrirfram í varnarstöðu
og tjá viðsemjandanum, að
samningar verði að nást hver
sem kjörin verða. Rússar eru
mjög harðir samningamenn.
Það ber öllum saman um, sem
við þá hafa skipt, og auðvitað
reyna þeir að ná sem beztum
kjörum. Það er þeirra skylda
alveg eins og okkar samn-
ingamanna. Þeim hefur nú
verið sköpuð sterk samnings-
aðstaða, þegar við komum til
þeirra á hnjánum og biðjum
þá að skipta ekki við okkur
á frjálsum, viðskiptalegum
grundvelli.
Alþýðublaðið þykist telja
það hættulegt, er á þessa
staðreynd er bent, en Morg-
unblaðið vill undirstrika, að
það benti einmitt á þessa
hættu til þess að Rússar héldu
ekki, að íslendingar allir
væru svo aumir, að þeim
mætti bjóða hvað sem er í
viðskiptum.
SKIPASMÍÐAR
INNANLANDS
17iðskiptamálaráðherra
" greindi frá því á blaða-
mannafundi að Pólverjar
hefðu hug á að gera tilboð í
smíði skuttogara fyrir íslend
inga.
Að undanförnu hefur verið
unnið að því að koma upp
fullkomnu skipasmíðastöðv-
um hérlendis, og hefur iðn-
aðarmálaráðherra mjög beitt
sér fyrir framgangi þess máls.
Að sjálfsögðu á að fela ís-
lenzkum skipasmíðastöðvum
það verkefni að byggja skut-
togara fyrir landsmenn, ef
bygging þeirra verður afráð-
in, en ekki pólskum fyrirtækj
um.
VŒJ
UTAN ÚR HEIMI
Ríflega helmingur heildarveltu ríkisverzlananna á Grænlandi stafar a fsölu á áfengi og
tóbaki.
Skömmtunar á áfengi kraf
izt á Grænlandi
Grænlendingar drekka helmingi
meira áfengi en Danir
OFDRYKKJA á Grænlandi
er orðin svo gífurleg, að öll
önnur þjóðfélagsvandamál
Grænlendinga hverfa í
skuggann, að því er segir í
athyglisverðri skýrslu, sem
Áfengisnefnd Grænlands hef
ráðinu. Formaður nefndarinn
ar, Jörgen Hertling lögreglu-
stjóri, hefur skorað eindreg-
ið á landsstjórnina að gera
róttækar ráðstafanir til þess
að hjálpa áfengissjúklingum
á Grænlandi. Hann leggur
meðal annars til, að tekin
verði upp áfengisskömmtun
og að ríkið selji þeim sem erf-
iðast eigi með að venja sig
af ofdrykkju, skömmtunar-
miða á svörtum markaði, en
slík sala fari aðeins fram á
sérstökum aðlögunartíma,
meðan reynt sé að færa á-
standið í eðlilegt horf.
Landsstjórnin á Græn-
landi setti Áfengisnefndina á
laggirnar í fyrrahaust. Vit-
að var, að áfengisneyzla
Grænlendinga var gífurlegt
vandamál, en þegar hafizt var
handa um að rannsaka málið
kom í ljós, að ofdrykkja var
langtum meiri en nokkurn
hafði grunað, og hún jókst
hröðum skrefum. Sala á öli
og sterkum vínum fór hrað-
vaxandi meðan unnið var að
rannsókninni, og þess vegna
hraðaði nefndin störfum sín-
um eftir mætti, svo að unnt
yrði að leggja skýrslu um
þetta alvarlega þjóðfélags-
vandamál fyrir landsstjórn-
ina, þegar hún kemur sam-
an til fundar í ágúst.
550 bjórflöskur á mann
Á Grænlandi þúa um það
UPPSÖGN
ALDRAÐRA
ITerkamannafélagið Dags-
" brún hefur sent frá sér
ályktun, þar sem það er mjög
bil 20.000 Grænlendingar,
sem náð hafa 15 ára aldri,
og um 5.000 Danir. Áfengis-
neyzla þeirra er að meðal-
tali því sem næst helmingi
meiri en árleg neyzla áfeng-
is í Danmörku. f Danmörku
er áfengisneyzla á hvern ein-
stakling 15 ára og eldri tæp-
ir 8 lítrar af hreinum vín-
anda á ári, en í Grænlandi
nemur neyzlan 14.9 lítrum.
Síðustu tölurnar frá Græn
landi eru frá 1967. Þá voru
fluttir inn 210.400 lítrar af
sterkum vínum, 81.00 litrar af
borðvínum (13% áfengismagn
og minna) og 80.267 lítra af
heitum vínum (yfir 13%).
Innflutningur á öli sló
öll fyrri met. Keyptar voru
13,8 milljón flöskur miðað við
11.1 1966 og 8.6 milljónir
1965. Ölneyzlan á ári er kom-
in upp í 550 flöskur á
mann. Heildarinnflutningur-
inn nam 319.600 lítrum í fyrra
miðað við 289.200 árið áður
og 246.200 1965 ef reiknað
er með hreinum vínanda.
Að sögn Jörgen Hertlings
lögreglustjóra sýna bráða-
birgðaathuganir, að náið sam
band er á milli ofneyzlu á-
fengis og brota á græn-
lenzku refsilöggjöfinni. Rúm-
lega 50% allra afbrota eru
framin undir áfengisáhrifum.
Rúmlega 70% allra líkamsá-
rása og rúmlega 50% ky nferð
isglæpa eru framdir undir
áfengisáhrifum.
f Góðvon einni, þar sem
fjöldi bifreiða er aðeins 496,
voru 54 teknir fyrir ölvun
við akstur í ffrra, er það þýð
ir, að 11% bifreiða bæjarins
gagnrýnt, að öldruðum mönn
um hafi verið sögð upp vinna.
Ekki veit Morgunblaðið, hve
mikil brögð kunna að vera af
þessu, en það tekur undir með
Dagsbrúnarmönnum, að
vinnufærum verkamönnum á
hafa verið eknar af ölvuðum
ökumönnum svo vitað sé.
Rúmlega þriðjungur þeirra,
sem fórust í slysum 1966,
voru illa drukknir, en rík á-
stæða er til að ætla, að langt-
um fleiri þeirra 44, sem fór-
ust hafi verið ölvaðir, þó að
ekki hafi tekizt að ganga ör-
ugglega úr skugga um það.
Bann stoðar ekki.
Hartling segir, að áfengis-
nefndin viðurkenni að líta
verði á áfengisvandamálið í
víðu þjóðfélagslegu sam-
hengi. Það sé til dæmis mikil-
vægt í þessu sambandi að of
margt fólk búi saman í íbúð-
um vegna húsnæðisskorts og
að léleg aðstaða sé til tóm-
stundaiðkana. En nefndin tel
ur á grundvelli lauslegrar at
hugunar sinnar á vandamál
inu, að brýna nauðsyn beri
til að gera ráðstafanir til að
takmarka áfengisneyzluna,
segir Herling.
f álitsgerðinni, sem send
hefur verið formanni lands-
ráðsins, Erling Hóegh, er
bent á ýmsa möguleika til úr
bóta. Til dæmis er á það
bent, að sala á áfengi, sem er
aðeins leyfð á þriðjudögum
og miðvikudögum í Góðvon,
verði flutt á föstudaga og
laugardaga, jafnframt því
sem launagreiðslur fari fram
fyrr í vikunni. Núverandi til
högun í Góðvon hefur reynzt
mjög óheppileg. Þriðjudagar
og miðvikudagar voru áður
fyrr öruggustu vinnudagarn-
ir í bænum, en síðan hætt
var að selja áfengi á föstu-
dögum og laugardögum, hef-
ur verið mjög mikið um for-
föll þá tvo daga, sem áfeng-
issalan fer fram og daginn
eftir. Ekki hefur það heldur
bætt úr skák, að verktaka-
fyrirtæki neita að launa-
greiðslur þess færu fram á
þriðjudögum, þegar áfengis-
sala var takmörkuð við fyrstu
Framhald á bls. 8
ekki að víkja frá störfum,
þótt þeir nái ákveðnu aldurs-
marki.
Vissulega er það illt, ef
vinna er takmörkuð fyrir
yngri menn, en það réttlætir
þó ekki að hinir eldri séu
sviptir lífsframfæri sínu.