Morgunblaðið - 21.07.1968, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1968
21
Þróun æðri
menntunur
Umbætur og aukning æðri
menntunar í Evrópu nefnist rit,
sem nýkomið er út hjá Evrópu
ráðinu í Strasbourg. Bók þessi
er 264 bls. í stóru broti, og er
í henni að finna yfirlitsskýrslur
um þróun æðri menntunar í 14
Evrópuríkjum frá árunum 1926-
1967. Hér er um að ræða eina
af bókum í flokki, sem Evrópu-
ráðið hefur gefið út um mennta-
mál, en í flokki þessum hafa
alls komið út 38 rit. Umboðs-
maður bókaútgáfu Evrópuráðs
ins á fslandi er Snæbjörn Jóns-
son og Co h.f. Hinn enski titill
bókarinnar er: Reform and Ex-
pansion of Higher Education m
Europe. Bókin er einnig fáan-
leg á frönsku.
(Frá Evrópuráði.)
- ÚR VERINU
Framhald af bls. 3
Þjóðverjarnir sögðust mundu
leita annað, ef Norðmenn gætu
ekki uppfyllt þessar óskir
þeirra. Þeir keyptu af Norðmönn
um í fyrra 80.000 lestir af síld-
armjöli, sem nemur að verðmæti
um 500 millj. króna og er geysi-
mikið miðað við íslenzka fram-
leiðslu.
Afla fyrir 25 millj. króna.
Nýjasti verksmiðjutogari Norð
manna „Gadus“ kom nýlega til
hafnar í Noregi með 1150 lestir
af fiskflökum, að verðmæti 25
millj. króna. Það tók rúman 2 1/2
mánuð að fá þennan fisk, og var
hann veiddur við Vestur-Græn-
land.
„Gadus“ er 1600 lestir að
stærð, rúmlega 1/3 stærri en
nýjustu ísfisktogarar íslendinga.
Á skipinu eru 37 menn og þar af
vinna 24 að framleiðslunni. Vél-
arhúsið er að nokkru leyti sjálf-
virkt, svo að þar þarf engan
mann til gæzlu svo og svo lengi.
Um borð eru alls konar fisk-
vinnsluvélar.
Þetta er eins og ársafli ís-
lenzks nýsköpunartogara og
þætti gott. Á þeim. eru um 30
menn.
EBE
Hinum 6 aðildarlöndum Efna-
hagsbandalags Evrópu hafa nú
verið sendar tillögur um stefn-
una í sjávarútvegsmálum. Þetta
hefur lengi verið mikið deilu-
efni.
Eftir tillögunum eiga aðildar-
ríkin að njóta sömu aðstöðu, að
því er varðar aðgang að fiski-
miðunum og vinnslustöðvunum.
Leyfi til að veiða á vissum svæð-
um má þó takmarka við íbúa
landsins, þar sem þeir eru mjög
háðir heimaveiðunum. Lagt er
til að banna að leggja toll á
. sjávarafurðir innbyrðis, milli að
ildarlandanna. Hins vegar eiga
að vera háir tollar gagnvart öðr-
um löndum. Sérákvæði eiga þó
að geta gilt um síld og salt-
fisk.
Það er mjög mikilvægt fyrir
fslendinga að kynna sér stefnu
EBE í sjávarútvegsmálum, sem
lengi hefur dregizt, að væri birt,
því að fyrr eða síðar kemur að
því, að ísland tengist Evrópu-
löndunum nánar en nú er á við
skiptasviðinu.
Norðmenn auka innflutning á
freðfiski tU USA.
Frionor, Sölumiðstöð þeirra
Norðmanna, jók innflutning
sinn til Bandaríkjanna fyrstu 11
mánuði reikningsárs síns um
60%. Ekki er þó eins bjart yfir
þessum innflutningi í dag og áð-
ur.
Erfiðleikar í Noregi að losna við
fisk.
Miklir erfiðleikar voru oft og
tíðum I allan vetur á að losna
við fisk, vegna þess hve afla-
magnið jókst og erfitt var um
sölur, einkum á skreið og síðar
á saltfiski og nú síðast á freð-
fiski. Á sumum stöðum í Noregi,
eins og í Sogni og Fjörðunum,
hefur fiskmóttöku verið hætt að
mestu. Hefur útgerðarmönnum
verið bent á að leita til annarra
staða, ef unnt væri að losna þar
við fiskinn.
-
4
i
i
1
<
1
Winston
mest seldu
fílter sígarettur í heímí
vwnston
eru framleíddar af
Catnel verksmíSfunum
EITTHVAÐ ER ÞAÐ SEM VELDUR
AÐ MENN VELJA WINSTON HELDUR
• •