Morgunblaðið - 25.07.1968, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 25. JÚLI 1968
Heimsókn á Nordfjörð:
„Þaö er kuldinn, en ekki kaliö,
sem hefur leikið okkur verst“
Rætt við Aðalstein Jónsson, bónda
og oddvita að Ormsstöðum.
Skammt utan við Neskaup-
sta'tf stendur bærinn að Orms-
stöðum, þar býr Aðalsteinn Jóns
son, oddviti, búi sínu. Ýmsar
sögur eru sagðar um kal og
grasleysi víða á Austurlandi, þó
að ástandið sé hvergi nærri eins
slæmt þar og sums staðar á norð
ur og norðausturlandi.
— Það er nokkuð kalið víða,
en hitt er þó verra, að gróðri
hefur ekkert farið fram, ekki
einu sinni þar sem er óskemmd
jörð, vegna óhemju kulda og ó-
tíðar í vor og sumar. Ég býst
ekki við að menn hugsi til að
hefðja slátt á næstunni, ætli
menn reyni ekki að bíða enn um
stund og sjá, hvort ekki fer að
spretta, ef kemur góðviðristíð á
íiæstunni. Og engir bændur hér
um slóðir láta sér detta í hug,
að há verði slegin, þykir gott
ef við fáum skaplegt gras úr ein
um slætti. Víst fannst okkur
ljótt útlitíð sums staðar vegna
kalsins í vor, en það var þó
hvergi nærri jafn slæmt og árið
1965.
— Hvenær hefst sláttur í með-
alári hér í Norðfirði?
— Venjulega snemma í júlí,
oft í júni, þegar grasspretta og
hlýindi hafa verið góð. I sæmi-
legu ári hef ég heyjað 900-1000
hesta.
— Hefurðu orðið að fækka
skepnum?
— Ég hef þrjózkast við og
reynt að halda í þá von, að þetta
skánaði, sú von hefur brugðizt
hingað til. Síðustu ár hefur kóln
að stöðugt, og varla nokkurn
tíma veríð sæmilegt tíðarfar. Við
höfum orðið að gefa meira og
meira kjarnfóður og erum komn
ir í stórskuldir. Aldrei hefur þó
útlitið verið eins slæmt og í ár,
ég er hræddur um að ég og
ýmsir fleiri neyðumst til að
farga töluverðu af bústofninum.
Það er misjafnt eftir bæjum,
hversu mikið er kalið. En alls
staðar er sama sagan; grasvöxt-
ur er enginn. Margir bændur
hafa orðið að beita skepnrun á
tún lagt fram á sumar, ég hafði
fé á túnii fram til 2. júlí, Og enn
er svo lítill gróður í úthaga, að
þær leita alltaf heim á túnin
— Við getum ekki endalaust
keypt fóðurbæti og aukfð við
skuldirnar, heldur Aðalsteinn á-
— Ég man varla eftir verra
vori. Ekki svo að skilja að ekki
hafi áður komið köld vor og
gróðurlítil, til dæmis 1931, þá
var kalt og gróðurlaust að kalla
fram í júlí og sláttur hófst ekki
fyrr en seinni hluta þess mán-
áðar. En þá var öldin önnur og
maður nagaði þetta með ljá. ÞaJ
ár var septembermánuður aítur
á móti betri en nokkru sinni
fyrr í mínu minni, skafheiðríkt
og þurrt allan mánuðinn. Nú, ég
man að vorið 1949 var vont, og
Aðalsteinn Jónsson, oddviti.
fram — það eru líka áhöld um,
hversu langt megi ganga í því
að gefa skepnunum fóðurbæti.
Og hann hefur hækkað svo í
verði, að við verðum að stilla
kaupum okkar í hóf.
-— En þú hefur þó engin áform
um að hætta búskap?
— Við erum flestir nauðbeygð
ir að þrauka. Flestir bændur eiga
jarðir sínar og ertginn getur sel't.
Við gengjum slyppir frá. Ekki
væri okkur neinn akkur í að
bætast í atvinnuleysingjahópinn.
— Hvað heldurðu að langt
stí síðan tíðarfarið hefur verið
elns slæmt og í ár?
frost í jörðu lengi frameftir. En
kali höfðu menn varla kynnzt
hér eystra fyrr en 1965 og síðan,
auðvitað að undanskildum frosfa
vetrinum 1918.
— Finnst þér gæta almennrar
svartsýni með bændum?
— Því er ekki að neita, a'ð
hagur bænda hefur stórversnað
síðustu ár, segir Aðalsteinn —
þar hefur margt komið til, en
tíðarfarið á þó einna ríkastan
þátt í því. Og sömuleiðis erum
við nú lika þeirrar skoðunar, að
afurðir okkar hafi ekki hækk-
að í samræmi við tilkostnað,
sem við ver'ðum að leggja í.
m KARNABÆR
Tízkuverzlun unga fólksins. — Týsgötu 1. — Sími 12330. —
Nýkomnnr og væntnnlegnr
vörui beint frá London
Dömudeild:
★ Regnkápur
★ Buxnadragtir
★ Kápur
★ Peysur
★ Stakar buxur
★ Sportbuxur - flauel
★ Kjólar (væntanl.)
★ Blússur
Herradeild:
★ Jakkar í úrvali
★ Buxur - terylene
★ Skyrtur í miklu
úrvali (pífu)
★ Peysur
•k Sportblússur -
balloon
★ Bindi - Klútar
KynniÖ yður
verð og gæði.
— Eru góðar bújarðir í Norð-
firði?
—rFlestar eru ekki stórar, en í
venjulegu árferði ætti afkoma
flestra bænda hér um slóðir að
geta verið þokkaleg, ekki hvað
sízt, þar sem við höfum alltaf
tryggan markað fyrir vörur
okkar.
— Hefur þú blandaðan bú-
skap?
— Já, ég hef bæði kýr og sauð
fé. Svo mun um flesta bændur
og allir hafa kýr, vegna mjólk-
ursölunnar til Neskaupstaðar.
Ætii bændur hafi ekki þetta 200
fjár og frá 10—20 kýr.
— Eru'ð þið vel búnir að tækj-
um og vélum?
— Flestir hafa komið sér upp
vélum, sem nauðsynlegar teljast
í nútímabú.skap. Yfirleitt er vel
hýst, og landrými er alls staðar
nóg.
— Ég er smeykur um að dilk-
ar verði lélegir í haust, segir
Aðalsteinn síðan, vegna þess hve
úthagagróður er lítill. Það eru
helzt rollurnar sem leita í garð-
ana í bænum, sem fá fylli sína.
Og vegna tíðarfarsins undanfar-
in ár, hafa bændur ekki neinn
heyforða fyrir næsta vetur.
Haustið var erfitt í fyrra. Fé fór
á innistöður hjá mér í október-
byrjun og var á gjöf langt fram
á vor. En þrátt fyrir bágindi og
margs konar erfiðleika, er ég þó
þeirrar skoðunar, áð við bænd-
urnir seiglumst við enn um hríð.
Við höfum svo sem áður séð það
svart og hjörum enn.
h.k.
Sumurferð
Rotoryklúbbs
Akroness
AkraneS'i, 22. júid.
SÍÐASTLIÐINN þriðjudag fór
Rotarykilúbbu'r A'braness að
venju sumarferð mieð eldri borg-
ara þessa bæjar. Farið var um
Lundarreykjadal, yfir Uxa-
hry.ggi, til Þingvalla og mataast
þar. Gengið var í kirkj.u og stað-
urinn skoðaður, Sumt af eldri
gestunum höfðu ekki séð Þin,gr
velli áðux. Haldið var átfram., sem
leið liggur yfir Mosfelilsiheiði,
meðfram Hvalfirði tiil Akraness.
Veðrið var hið á'kjósanlegasta.
Níutíu og fimm manns tóku þátt
í þessari ferð. HJÞ.
URVALS
NESTISPAKKAR
í FERÐALAGK)
fyrir félög, starfshópa og einstaklinga.
Þér sparið tíma og fyrirhöfn fyrir og á ferða-
laginu. Veliið réttina sjálf — hringið eða
komið í verzlunina.
Strandgötu 4,
Hnfnorfirði,
sími 50102
J