Morgunblaðið - 25.07.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚL.Í 1968
13
Guðmundur H. Garöarsson, viÖskiptafrasðingur:
Orsakir markaðserfiðleika hraðfrystiiðnaðarins
Auknar fiskveiöar
Harðnandi samkeppni
Guðmundur H. Garftarsson, viðskiptafræðingur og
blaðafulltrúi S.H., sem hefur á undanförnum ár-
um fylgzt vel með markaðsmálum, hefur í samráði
við Morgunblaðið tekið saman eftirfarandi grein,
sem birtist í þrem hlutum um orsakir erfiðleika
hraðfrystiiðnaðarins með sérstöku tilliti til erlendr-
ar- samkeppni.
Þótt íslenzka þjóðin standi nú
frammi fyrir vaxandi örðugleik-
um vegna versnandi stöðu hrað-
frystiiðnaðarins í samkeppninni
á heimsmörkuðunum, er það
samt óhrekjanlegt, að hraðfrysti
iðnaðurinn hefur á síðustu ára-
tugum átt hvað ríkastan þátt í
að tryggja þjóðinni þau góðu
Mfskjör, sem hún hefur búið að.
Af þeirri ástæðu hljóta allir að
vona að úr þessum málum muni
rætast, þó að það geti orðið tál-
vonir, að markaðarnir nái sér
fljótlega upp úr þeirri lægð, sem
nú er og verið hefur s.l. 2 ár
og er enn að dýpka. Það var
óhjákvæmilegt, að hið óvenju
hagstæða markaðsástand, sem
var á tímabilinu 1962-1965 fyrir
hraðfrystar sjávarafurðir, myndi
framkalla aukna framleiðslu og
1. HLUTI
harðari samkeppni á heimsmörk
uðunum. Lögmál frjálsrar sam-
keppni um að framboð og eftir-
spurn leiti jafnvægis á grund-
velii framboðsmagns, söluverðs
t>g neyzlu, hlaut að segja til sín
í framleiðslu og sölu hraðfrystra
sjávarafurða, eins og í öðrum
vörutegundum sem líkt er ástatt
um.
Rökrett uppbygging:
Þegar jafn mikil vá er fyrir
dyrum og nú er í sölu og út-
flutningi sjávarafurða, hljóta
margir að spyrja hvort fyrir-
hyggjuleysi eða ódugnaður hafi
ekki ráðið stefnu og gjörðum í
þessum málum, eða hvort ekki
hefði verið æskilegra að byggja
upp aðra „öruggari“ atvinnu-
vegi. Um það atriði, hvort ís-
lendingar hefðu ekki átt að
byggja upp aðra atvinnuvegi,
er því fljótsvarað, að uppbygg-
ing sjávarútvegs og fiskiðnaðar
var í rökréttu samhengi viðsjálf
stæða viðleitni þeirra til að nýta
nálæg náttúruauðævi — fiski-
miðin — og byggja þannig upp
í eigin átaki smátt og smátt þann
þjóðarauð, sem búið er að, auk
þess sem ekki hafa staðið til
boða mörg tækifæri til stórra
átaka í efnahags- og atvinnumál
um, sem tryggt hefðu jafngóðan
eða betri árangur. Ósannað er,
að aðrar atvinnugreinar skili
meiru, þótt þær geti tryggt meira
jafnvægi og séu samhliða nauð-
synlegar.
Því, hvort hraðfrystiiðnaður-
inn hafi verið byggður upp af
fyrirhyggjuleysi og því ekki skil
að þjóðarbúinu viðhlýtandi ár-
angri er m.a. til að syara, að ár-
||gt framlag hraðfrystiiðnaðar
ins í myndun þjóðarteknanna er
með hinu mesta sem ein atvinnu
grein lætur í té, auk þess sem
um 25-30% árlegra gjaldeyris-
tekna af vöruútflutningi kemur
frá útfluttum hraðfrystum sjáv-
arafurðum. Þar við bætist, að án
hraðfrystiiðnaðarins myndu ýms
ir kaupstaðir og sjávarþorp
ekki geta þrifizt. Fremur mætti
segja, að það hafi verið gæfa
þjóðarinnar, að fyrirhyggja,
kjarkur og framtakssemi réði
því að íslendingar voru fljótir
að tileinka sér nýjar framleiðslu
aðferðir í nýtingu sjávaraflans
með skjótri uppbyggingu hrað-
frystiiðnaðarins í síðustu heims
styrjöld á árunum 1939-1945 og
þar á eftir. Vegna þessa hefur
í tvo áratugi tekizt að selja
mikið magn hraðfrystra sjávaraf
urða á góðum verðum á þýðing-
armestu mörkuðum heims, eins
og í Bandaríkjunum, Sovétríkj-
unum, Tékkóslóvakíu og Eng-
landi, svo nokkur lönd séu
nefnd. Því til sönnunar, að ís-
lendingar voru í forustunni má
benda á, að markaðsstaða ís-
lendinga á mikilvægasta markað
num, Bandaríkjunum, hefur frá
upphafi verið miklu betri en t.d.
Norðmanna. Verður síðar vikið
nánar að því.
Stutt þróun:
En hverjar eru þá megin ástæð
ur hinna síendurteknu erfið-
leika hraðfrystiiðnaðarins s. 1.
2 ár og orsakir hins alvarlega
ástands, sem nú blasir við?
Til þess að unnt sé að svara
þessari spurningu á viðhlýtandi
hátt, er nauðsynlegt að líta til
fortíðarinnar og gera sér grein
fyrir þróun og uppbyggingu
hraðfrystiiðnaðarins í heiminum.
Framleiðsla sjávarafurða, á sér
ekki langa sögu. Þróunarsagan
nær yfir 30-40 ára tímabil og
má segja, að þessi aðferð, hrað-
frysting matvæla í stórum stíl,
ryðji sér ekki til rúms fyrr en
um og eftir árið 1930, þegar
Bandaríkjamenn riðu á vaðið
með nútíma framleiðslu- og sölu
tækni. Aðrar þjóðir fóru hægt
af stað og mun það m.a. hafa
stafað af því, að kaupgeta al-
mennings í öðrum löndum heims,
sem til greina komu, en það var
einkum í V-Evrópu, hafi verið
svo lítil af völdum heimskrepp-
unar, að af þeirri ástæðu einni
hafi þessar þjóðir ekki getað
hafizt handa í hraðfrystingu mat
væla svo nokkru næmi. Geta al
mennings til að kaupa sér auk-
in lífsþægindi, þ.á.m. kæliskápa,
var mjög takmörkuð, nema í
Bandaríkjunum, en kæli-
skápurinn á heimilum fjöld-
ans er algjör forsenda þess
að unnt sé að afla hrað-
voru langt á undan öðrumþjóð-
um. Á styrjaldarárunum urðu
litlar breytingar í þessum efnum
en strax að aflokinni styrjöld-
inni, í kjölfar hinnar miklu end
urreisnar V-Evrópu með aðstoð
Bandaríkjanna varð bylting í
neyzluháttum V-Evrópuþjóðanna
Samhliða átti sér stað endur-
reisn í A-Evrópu, sem beindist í
sömu áttir.
Velmegun og kaupgeta jókst
og kröfur gerðar um aukin lífs
þægindi. Kæliskápurinn og „þæg
indavörur", þ.e. vörur sem eru
sem rnest tilbúnar frá framleið-
anda og seljanda, svo húsmóð
irin þurfi sem minnst að hafa
fyrir matartilbúningnum, varð
ein af megin líflskjarakröfum. Á
þessu þróunarstigi betri lífs-
kjara koma hraðfryst matvæli og
þ.á.m. hraðfrystar sjávarafurðir.
ísland í forustunni:
Sem fyrr segir hófst þessi þró
un ekki, svo nokkru nam, fyrr
en eftir lok seinni heimsstyrjald
arinnar 1945. íslendingar voru
þá vel undir það búnir að vera
meðal hinna fremstu í fram
leiðslu og sölu hraðfrystra sjá
varafurða. Hérlendis hafði á
styrjaldarárunum myndast all-
mikil framleiðslugeta í tugum
hraðfrystihúsa, sem framleiddu
tugir þúsunda smálesta hrað-
frystra sjávarafurða fyrir Breta
sem skorti mjög alls kyns mat-
væli.
í styrjaldarlok stóðu íslend-
ingar því framarlega í fram-
leiðblu hraðfrystra sjávarafurða
og voru þær þegar veigamikill
þáttur í myndun þjóðar- oggjald
eyristekna.
í forustu hraðfrystiiðnaðarins
voru þá ungir og framsæknir
menn, sem höfðu óbifanlega trú
á framtíð þessarar atvinnugrein
ar. Þegar brezki markaðurinn
brást að styrjaldarlokum brugðu
þeir skjótt við og leituðu nýrra
markaða. Varð það upphaf öfl-
sveifla, sem jafnan eiga sér stað
í Bandaríkjunum. Hins vegar
var og er ekki unnt að útiloka
að langvarandi verðlækkanir á
markaðnum í heild komi ekki
niður á íslenzkum framleiðend-
um sem öðrum, á sama hátt og
þeir njóta stígandi verðlags.
Við Sovétríkin hafa árlega síð
an 1947, að undanskilum 2-3 ár-
um, verið gerðir samningar við
Prodintorg, innkaupafyrirtæki
ríkisins, um mikið magn hrað-
frystra sjávarafurða.
M.a. vegna þess, hversu vel
Islendingar voru undir það bún-
ir að framleiða hraðfrystar sjáv
arafurðir þegar upp úr 1945,
tókst þeim að verða á undan öðr
um þjóðum, einkum Norðmönn-
um, Dönum, Bretum og Vestur-
Þjóðverjum, að tryggja sér og
vörumerkjum sínum þessa mik
ilvægu markaði og njóta þeirra
öðrum þjóðum fremur allt til árs
ins 1966, þegar markaðirnir
hrundu.
Þýðing Bandaríkjanna og Sovét-
ríkjanna:
Tímabilið 1945-1965 seldu ís-
lendingar hraðfrystar sjávaraf-
urðir til ýmissa annarra landa,
en hinna tveggja framangreindu
en það var í litlum mæli. Þó áttu
sér stað tímabundið verulegar
árlegar sölur til Englands,
Tékkóslóvakíu, Póllands, Aust-
ur-Þýzkalands, Hollands og
Frakklands. Verðhækkanir í
Bandaríkjunum og Sovétríkjun-
um, breyttir viðskiptahættir, toll
ar, aukin eigin framleiðsla o.fl.
hafa orðið þess valdandi, að við-
skiptin við þessi lönd hafa stór-
lega dregizt saman með þeim af-
leiðingum, að Bandaríkin og So-
vétríkin hafa síðustu árin keypt
svo til alla frystiflakafram-
leiðslu íslendinga, eða um og yf-
ir 90% sl. þrjú ár. Þessi þróun
hefur gert íslendinga háðari sér-
hverri sveiflu og breytingum á
þessum tveim mörkuðu en ella.
Breyttir tímar:
Hverjar breytingar hafa á orð-
ið, er gera stöðu fslands svo ó-
trygga á heimsmörkuðunum, sem
raun ber vitni?
Sem fyrr segir fengu íslend-
ingar ákveðið forskot, sem þeir
hafa haldið fram á síðustu ár.
Nú er þessu forskotstímabili lok
ið, ef svo mætti að orði kom-
ast. Aðrar þjóðir hafa byggt
upp öflugan hraðfrystiiðnað á
sjó og í landi. Þessar þjóðir hafa
smátt og smátt þrengt að mögu-
leikum íslendinga á fyrrum góð
um mörkuðum og nú síðast í
Bandaríkjunum, þar sem þær
leita sterklega inn með afurðir
sínar.
Helztu keppinautar:
Hverjar eru þessar þjóðir og í
hverju er samkeppnisaðstaða
þeirra sterkari?
Hinar helztu, sem keppa við
íslendinga í Bandaríkjunum eru
Kanada, Noregur, Danmörk, Eng
land, V-Þýzkaland og Pólland,
auk bandarískra framleiðenda.
í Vestur-Evrópu eru það hin-
ar sömu þjóðir, að Kanadamönn-
um undanskildum, en að viðbætt
um Sovétmönnum og A-Þýzka-
landi.
í Austur-Evrópu er það eigin
framleiðsla A-Evrópuþjóðanna
eins og t.d. Sovétríkjanna, Pól-
lands og Austur-Þýzkalands
sem fullnægir stöðugt betur eig-
in þörf fyrir fiskmeti, auk þess
sem þessar þrjár framangreindu
þjóðir ásamt Norðmönnum, V-
Þjóðverjum og Bretum bjóða
stöðugt meiri fisk inn á A-Ev-
rópu-markaðina.
Samkeppni — eftirspurn:
Um samkeppnisstyrk þessara
þjóða er það að segja, að sam-
eiginlegt hafa þær það fram yf-
ir íslendinga, að framleiðslu-
kostnaður vegna verðbólguþró-
unar hefur ekki hækkað svipað
því og átt hefur sér stað hér-
lendis síðustu áratugi. Þá hafa
Framhald á bls. 15
frystum matvælum nægra
markaða. Undanfari þessa er
uppbygging „frystikeðj unnar“ á
landsmælikvarða, en með því er
átt við, að fyrir hendi séu frysti
vörugeymslur, járnbrautarvagn
ar, bifreiðar- og flutningaskip,
sem geta flutt og varðveitt vör-
una í óbreyttu og frystu ástandi
frá framleiðslu til sölustaðar,
auk heildsölu- og smásöluverzl-
ana útbúnum frystigeymslum
kæliborðum og öðrum nauðsyn-
legum útbúnaði. Fyrir seinni
heimsstyrjöld voru það örfá
lönd, sem fullnægðu þessum skil
yrðum, en I þeim efnum höfðu
Bandaríkin algjöra sérstöðu og
ugra viðskiptasambanda við
Bandaríkin og Sovétríkin, sem
íslendingar hafa búið við svo til
óslitið i rúma tvo áratugi.
Uppbygging markaða:
Uppbygging þessara markaða,
sem ásamt Englandi, hafa jafnan
verið megin markaðir íslend-
inga fyrir hraðfrystar sjávaraf-
urðir, hefur vegna gjörólíks þjóð
skipulags þeirra, átt sér stað
með ólíkum hætti. í Bandaríkj-
unum kom S.H., aðalútflytjand-
inn, sér upp sjálfstæðri sölu-
skrifstofu og síðar verksmiðju,
sem gerði íslendinga óháð-
ari stærstu og verstu afleið-
ingum hinna miklu verð- og sölu
Hins vegar er það staðreynd, að
hvað verð snertir, hafa þeir ver-
ið hagkvæmastir og eru enn,
þrátt fyrir verðlækkanir.
Til glöggvunar birtist hér á
eftir útflutningur íslendinga á
hraðfrystum fiskflökum til þess-
ara tveggja landa sl. 3 ár (verð-
mæti fob):
Síðustu tvo áratugi hefur ís-
lenzkur hraðfrystiiðnaður risið
upp og tryggt þjóðinni góð lifs-
kjör. — Nú er þessum atvinnu-
vegi ógnað vegna offramleiðslu
og harðnandi samkeppni erlend-
is, þar sem fiskveiðar stórþjóð-
anna njóta ntikilla ríkisstyrkja.
Lönd: 1965: 1966: 1967:
millj. %-hlut- millj. %-hlut- millj. hlut-%-
kr.: deild: kr.: deild: kr.: deild-
Bandaríkin: 732,8 68,8 765,3 72,5 529.2 58,6
Sovétríkin: 190,8 16,6 241,7 22,8 301,5 38,3
923,6 80,4 1007,0 95,3 830,7 91,9