Morgunblaðið - 13.08.1968, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.08.1968, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ; ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 196« Cathrina með 1600 tunnur til Raufarhafnar Raufarhöfn, 12. ágúst. SÍLDARFLUTNINGASKIPIÐ Cathrina, sem Síldarútvegs- nefnd hefur á leigu, kom hingað á laugardagskvöld með 1600 tunnur af saltaðri síld. Síld þessa tók Cathrina úr 8 skipum: Gjafari VE 101 tunnu, Faxa GK 204, Berg VE 32, Magnúsi Ólafs- syni GK 145, Ólafi Sigurðssyni AK 84, Júlíusi Geirmundssyni ÍS 153, Goðanum 10 og Guðrúnu GK 47 tunnur. Hér fara í land 776 tunnur og skiptast þær þannig niður á stöð amar: Norðursíld 305 tunnur, Óð inn 84, Björg 195, Borgir 145 og til Húsavíkur fara 47 tunnur héð an. Með afganginn fer Cathrina til Vopnafjarðar, en hér tekur skipið tómar tunnur og salt. Síldin virðist sæmileg vara ekki stór en nær því fitumagni, sem samið er um. Tveir íslendingar eru um borð í Cathrinu og róma þeir mjög liðlegheit og hjálpsemi skips manna á Áma Friðrikssyni og Goðanum. Síldarverksmiðjur ríkisins á Raufarhöfn hafa tekið á móti 427 tonnum til bræðslu, en á sama tíma í fyrra höfðu 21.000 tonn borizt á land til bræðslu. — Ólafur. Fundu rœkju í þremur fjörðum VÉLBÁTURINN Þórveig ÍS 222 hefur undanfarið stundað rækju leit á Austfjörðum á vegum Haf rannsóknarstofnunarinnar. Leið- angursstjórinn, Hrafnkell Eiríks son, sagði Morgunblaðinu í gær, að leitað hefði verið á þremur fjörðum, Seyðisfirði, Mjóafirði og Reyðarfirði, og fannst rækja í þeim öllum. Mest magn fannst í Seyðis- firði og fékkst þar allt að 600 kg á klukkustund. Var rækjan mjög góð, en hún virtist halda sig á takmörkuðu svæði í firð- inum. f Mjóafirði fannst mjög lítið rækjumagn, mest um 25 kg á klukkustund og var sú rækja miklu smærri og blandaðri, en rækjan i Seyðisfirði. Sömu sögu er að segja úr Reyðarfirði, en þar fengust þó mest 50-60 kg. á klst. Bjóst Hrafnkell við, að leitinni í Reyðarfirði lyki í þess ari viku og kvað hann ekkert á- kveðið um áframhaldandi rækju- leit á Austfjörðum. Sagði Hrafn kell, að þessi mál, þyrfti að at- huga betur, en mikill straumur hefur verið á þessum slóðum undanfarið og sagði Hrafnkell það ekki góðar aðstæður til rækjuleitar. Fiskinnflytjandinn Nnana Kalu með skreið, sem nú er orðin mjög sjaldséð í Biafra. Ekki vitað um sölu á skreið til Biafra — kaupmaður þar segist þó hafa fengiö 7 tonn frá íslandi NORSKA fréttastofan NTB skýrði frá því í gær að fisk- innflytjanda einum í Aba í Biafra hafn nýlega tekizt að fá flugleiðis sjö tonn af skreið, og hafi skreiðin kom- ið frá fslandi. Er frásögn fréttastofunnar vægast sagt nokkuð undarleg, því eina ís- lenzka skreiðin, sem flutt Haukur sigraði HAUKUR Angantýsson bar sig- nr úr býtum á alþjóðlegu ung- lingamóti í skák, sem háð var í Skanderborg í Danmörku og lauk sl. laugardag. Hlaut Haukur 6 vinninga af sjö mögulegum, gerði tvö jafntefli, en tefldar voru sjö umferðir eftir Monradkerfi. Keppenduir í meistaraflokki voru frá 13 þjóðum. I öðriu sæti vaxð ögárd frá Nooregi með 5 vinninga, í 3-7 sæti voru Feddeir, Danmörkiu, Jaoobsem, Danmörtou, Horner, Englandi, Henry, írlandi og Lombard frá Sviss. Haukiur mun tatoa þátt í stoák- keppni unglinga frá Narðurlönd- um við unglimga frá Sovét'ríkjun um og hefst keppnin í Taillim í Eistlandi 18. ágúst. Norrænir ráóherrar og háskólamenn á Lögbergi Norræn samvinna setti svip sinn á Þingvelli á laugardag- inn var, er mættust á Lög- bergi helga tveir norrænir hópar, landbúnaðarráðherrar Norðurlanda með fylgdarliði sínu, og þátttakendur norræna sumarháskólans, sem starfaði hér í Reykjavík síðastliðna viku. Norræni sumarháskól- inn lauk starfsemi sinni þá um morguninn og þátttakend- ur héldu síðan í skemmtiferð um Súðurland. Vegna ein- dreginna óska allmargra þátt takenda sumarháskólans var skipulögð ferð að Gullfossi strax að fundarhöldum lokn- um og sameinaðist síðan sá hópur meginþorra þátttakend anna í Skálholti. Var Skál- holtsstaður skoðaður og síðan hlýtt á athöfn í Skálholts- kirkju þar sem prófessor Jóhann Hannesson talaði og Gils Guðmundsson spilaði á orgel. Síðan var haldið til Þingvalla en þess hafði verið farið á leit við forráðamenn sumarháskólans, að ráðherr- amir fengju þar að slást í hóp sumarháskólamanna og hlýða á fyrirlestur og lýsingu staðarins af Lögbergi. Var beð ið nokkra stund eftir ráð- herrunum, en enginn taldi þá bið eftir sér, þar sem veður var hið fegursta. Þokan, sem grúfði yfir Reykjavík þennan dag, lét Þingvelli í fri'ði, en þar skartaði náttúran sínu fegursta — vellir voru græn- ir, vatnið skínandi blátt og fjöllin kvik af margslunginni litadýrð. Var hrifning þátt- takenda mikil og helzt að skilja, að engin þjóðtungn- anna fimm ætti nógu sterk orð til að lýsa íslenzkri nátt- úrufegurð. Er ráðherrar voru mættir á staðinn, flutti Jón Hnefill Aðalsteinsson, fil.lic stutt yfir lit um Þingvelli og þinghald íslendinga til forna. Var síðan haldið til Valhallar, þar sem ráðherranna beið kvöldverð- ur, en þátttakendur sumarhá skólans sátu kveðjuhóf sitt. Þar var sumarháskólanum formlega slitið og lét þá próf- essor Þór Vilhjálmsson af for mennsku og tók við Einar Thorsrud, prófessor í Oslo, en sumarháskólinn mun koma saman á ný í Noregi að ári. hefur verið til Biafra að und- anförnu, eða frá því borgara- styrjöldin hófst í Nígeríu, mun hafa verið flutt þangað á vegum Alþjóða Rauða-kross ins. Mbl. sneri sér í gær til Braga Eiríkssonar, fram- kvæmdastjóra Samlags skreið arframleiðenda, og gat hann ekki gefið frekari skýringar á þessari fregn NTB. „Að því er ég bezt veit,“ sagði Bragi, „hafa íslendingar ekki getað sent neina skreið til Biafra, og ég hef enga hugmynd um hvaðan þessi 7 tonn eru kom- in.“ NTB-fréttin er höfð eftir blaðamianni fréttastofunnar, Arne Bru, sem staddur er í Aba. Símar Bru að hann hafi átt við- tal við fiskinnflytjandann Nnana Kalu, en Kalu þessum hafi tekizt það, sem aðrir töldu útilokað vegna hafnbannsins, það er að flytja inn flugleiðis þessi sjö tonn af storeið fyrir hálfum mánuði. Áður en borg- arastyrjöldin hófst fyrir 17 mán uðum hafði Kalu samband við skreiðarútflytjendur á íslandi, að sögn Bru, og samdi við þá um kaup á skreið. Giiti þessi samningur einnig eftir að styrj- öldin hófst. Skreiðartonnin sjö eru fyrsti árangur þessa samn- ings, og segir Bru íslendinga treysta Kalu það vel, -að hann fái að bíða með greiðslu þar til styrjöldinni lýkur. Einnig greiði íslendingar allan flutnjngskosfn að alla leið til Biafira. íslenzka skreiðin sé flutt sjó- leiðis til ótiltekinnar hafinar, þar sem flugvöllur er í nánd, og það an með flugvélum. Hafa yfir- völdin í Biafra viðurkennt sölu- samninginn að sögn Bru, og er skreiðin seld á vegum Biafra- stjórnar á viðurkenndu verði. „Mér er það ljóst, að erfitt er að koma á svona skipulaigi", hefur Bru eftir Kalu, ,,en fs- lendingar hafa sýnt það að þeir treysta mér, og fyrsta storeiðar- sendinigin barst meira að segja áður en þeir höfðu fengið greiðslutryggingu mína. Ég vildi gjarnan greiða þeim sendingarn ar jafn óðum og þær berast, en það er svo erfitt að útvega gjald eyri, meðan á styrjöldinni stend ur, að mér er ómögulegt að kom ast yfir nægilega upphæð í doll urum eða sterlingspundúm. (Jngir Sjálf- stæðismenn á Norðurlandi Þing Sambands ungra Sjálfstæðismanna á Norður- landi verður háð í Sjálfstæðishúsinu á Siglufirði laug ardaginn 17. þ.m. og hefst kl. 2 e.h. DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning nefnda og nefndastörf. 3. Almennar umræður um landsmál og skipu- lagsmál Sjálfstæðisflokksins. Félög ungra Sjálfstæðismanna á sambandssvæðinu eru hvött til að skipuleggja ferðir á þingstað og gang ast fyrir góðri mætingu. Stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna á Norðurlandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.