Morgunblaðið - 13.08.1968, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.08.1968, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1963 11 voru Jón Bjarnason og Birgir Jónasson með 142 stig . Fjórði varð Þorvaldur Hafsteinsson með 135 stig. Við röbbuðum stuttlega við Vigni eftir keppnina, og sagði hann okkur frá því hvernig keppni þessi færi fram. Kvað hann keppnina hefjast á því, að keppendur fengju blað með 100 spurningum, og væri beðið um svör um ýmislegt er varðaði drátt arvélina, svo sem vélfræði, gæzlu og viðhald, öryggi og akstur, um ferð o.fl. Drægju keppendur síð- an tvær spurningar úr hverjum flokki og ættu að svara þeim. Þá væri komið að akstrinum. Lögð væri 15 hlið, er væru aðeins 15 sm breiðari en breiðasti hluti hluti vagnsins, er dráttarvélin drægi, og þýddi það stigatap ef vél eða vagn snertu hliðstang- irnar. Hliðin væru yfirleitt sett upp á mjög áþekkan hátt og því væri brautin oftast mjög svipuð í hverri keppni, nema hyað aksturssvæðið gæti verið misjafnlega slétt. Kvað Vignir brautina í gær hafa verið erfiða sökum þess hve óislétt var. — Hefur þú oft keppt í þess- ari grein áður? spurðum við Vigni? — Þetta er í þriðja skipti, sem ég keppi í þessari íþrótt. Ég byrjaði að æfa hana heima á- samt þremur öðrum piltum fyrir landsmótið á Laugarvatni, og tok svo upp þráðinn að nýju fyrir landsmótið nú í sumar. — Og hvernig hefur útkoman orðið hjá þér? — Ég get ekki annað en ver- ið ánægður. Mér hefur tekizt að fyrstu verðlaunin í öll þrjú skiptin sem ég hef keppt. Þótt Vignir væri langt að kom inn til keppni á sýningunni, höfðu ýmsir aðrir einnig farið langan veg einungis til að sækja þarna fróðleik og skemmtun. Bændur í ýmsum héruðum lands ins hafa tekið sig saman og sótt þessa sýningu, og í gær hittum við til að mynda tvo bænd- ur úr Skagafirði, þar sem þeir voru að skoða búdýrin. Voru það Ottó Þorvaldsson frá Víðimýrar seli í Skagafirði og Pétur Sig- urðsson, Hjaltadal. Við spurðum þá, hvort þeir hefðu sótt sýning una í bændaför Skagfirðinga. Þeir svöruðu neitandi. — Upp haflega stóð það nú til, en þeg- ar á reyndi varð ekkert úr bændaför, svo við drifum okkur hingað suður á eigin vegum ein- göngu. — Og hvernig lýst ykkur á landbúnaðarsýninguna? Fljótt á litið verður ekki annað sagt en mjög fallegur blær sé-yfir sýningunni og skipulagn- ingin eins góð og bezt verður á ko.si-ð, sagði Ottó, —. Og það hef ur glatt mig sérstaklega að sjá hve vel er að dýrunum búið hér. Á hinn bóginn hefur yfirferðin hjá okkiur verið of hroð til að hægt sé að kvéða upp neinn raunihæfan dóm, við höfum aðal- lega haldið oktouir hjá hæossuin- am, en á þeim höfum við.sérstak an áhuga. Því miður komum við ekki í bæinn fyrr en í morgun og gátum því ekki séð samtoeppn ina í gær. Hefði ég haft mikinn áhUga að sjó hrossunum riðið hér um svæðið — slíkt gleður jafnan augu hestamanna. Við spurðum þá félaga hvort þeim þætti eitthvað ábótavant í skipulagningu sýningarinnar. Þeir kváðu svo ekki vera: — ! Hins vegar hefði okkur ekki þótt það illa til fundið, ef kleift i hefði verið, að hvert hérað hefði | haft búfjársýningarskála fyrir ' sig, og dómnefnd veitt verðlaun þeim skála, er beztum gripum | hefði á að skipa yfir heildina. Slíkt gæti örfað samkeppni á milli héraða og vakið frekari áhuga bænda fyrir þessum sam- Keppendumir í dráttarvélaakstri í gaer: Lengst til vinstri er sig urvegarinn Vignir Vigfússon, þá Þorvaldur Hafsteinsson, Birgir Jónasson og Jón Bjarnason. keppnissýningum, sögðu þeir fé- lagar að endingu. Landbúnaðarsýningin er opin daglega frá kl. 10 til 22. Dag- skráin í dag er í stórum drátt- um á þá leið, að tol. 4 er göml- um munum lýst í þróunardeild, kl. 6 eru kynbótaærnar leiddar í dómhring og stundarfjórðungi síðar eru naut og afkvæmahóp- ar sýndir í dómhring. Klukkan 20 er svo dagskrá á vegum Hestamannafélagsins Harðar í Kjós og klukkan 9 mun Karla- kór Reykjavíkur syngja í sýn- ingarhöllinni. Fjórar stúlkur sýndu kvígukálfa á sunnudag af 11 sýndum alls. Stúikumar röðuðu sér í fjögur efstu sætin með kálfa sína og eru þa:r (t.h): Ingibjörg Jóhannesdóttir, Amarhóli í Gaulverjabæjar hrepp, Guðrún Magnúsdóttir, Blesastöðum, Skeiðahrepp, Hulda Harðardóttir Stóru-Mástungu, Gnúpverjarhrepp og Herdís Brynjólfsdóttir, Hreiðurborg í Sandvikurhrepp. „Öðlingur ertu, Öðlinigur minn“ hefur Haukur Gíislason á Stóru Reýkjum vafalaiust mælt við þennan hrút, en hann færði eig- anda sínum fyrstu verðlaun í flokki einistakra hrúta. ! Nemendur Húsmæðrakennaraskólans kynna grænmetisrétti á ! Landbúnaðarsýningunni í gær. I Sýnikennsla í starfsíþróttum: i Starfsíþróttir kynntar - AUDEN Framhald af bls. 28 from Iceland“ að ferðinni lokinni. Síðan liðu mörg ár áður en Auden kom aftuir til íslands; þá ferðaðist hann eiwnig um landið og þá gafst íslendingum kostur á að heyra þennan sértoennilega skáldjöfur lesa úir ljóðum sínium, en harin er frábær upplesari og fyrirlesari og hefur, að fram kemur í fyrr- nefndri grein, um helming tetona sinna af þeirri starf- semd. Auden er brezkur „í blóð og merg“, að hann segir sjálf- ur, en gerðist bandarískur ríkisborgari fyrir nokkrum árum. Hann heimsækir land sitt þó á hverju ári; dvelst noktorar vitour árlega í London og nokkum tíma i Oxford hjá forr áðam önnum Christ College þar sem hann er heiðursdoktor. En hann segir, að Englendingar séu orðnir smekklausir og hafi óafvitandi orðið smáborgara- legir. Og brezkar stéttavenj- ur bæli niður hæfileika roanna. Ekki kveðst Auden hrifimn af Haro'ld Wilson, nú- verandi forsætisráðherra Bretlands, segir hann hafa yf irbragð hégómagirm. Auden segist hafa komizt að því, að hann hafi gert rétt í því að hverfa hrott firá Eng- landi á sínum tíma, vegna þeirra hömluráðstafana sem síðan hafa verið gerðar — „en ég vissi það ektoi þá“, bætir hahn við — og segir síðan: „Ég hafði tekið þá ákvörðun, að kæmist laga- frumvarpið um skattlagningu bandarískra ríkis'borgiara er- lendis í gegnum bandaríska þingið, mundi ég sækja um ríkisborgararétt á íslandi. Ég hef þar sambönd. Ég mundi hafa skrifað bréf til „New York Times“ og útskýrt þar, hvað ég væri að gera og hversvegna. Bn sem betur fór felldi fulltrúadeildin frum- varpið“. Einhvern næstu daga mun Morgunblaðið birta frekari frásögn af greininni um Auden, en þar er meðal ann- ars sagt frá heimsóton í bú- stað hans í Kircbstetten í Austurríki, þar sem hann dvelst að jafnaði hluta árs- ins. f gær fór fram á landbúnaðar- sýningunni, sem liður í starfsí- þróttum, kynning á grænmetis- réttum og tiibúningi þeirra. Sölu félag Garðyrkjumanna gekkst fyrir kynningu þessari, og lagði allt efni til. Landbúnaðarsýning in sér fyrir aðstöðu til kynning- arinnar á áhorfendapöllum sýn- ingarhallarinnar, en Húsmæðra- kennaraskóli tslands sá um þátt- inn, og alla vinnu þar að lútandi. Þrjár kynningar fóru fram um daginn, kl. 2, kl. 5 og kl. 8. Nemar í Húsmæðrakennaraskól anum bjuggu til allan matinn, og frú Vigdís Jónsdóttir skólastjóri, stjórnaði. Þarna voru matbúin kynstur af mat, m.a. brásalötum, blað- laukssúpa, ostadýfur, salatsós- ur, og blómkál, bakað í ofnL f dag vsrður sameiginleg kynn- ing SÍS og KEA, og síðan verða allar starfsíþróttirnar endurtekn ar í sömu röð og frá byrjun, ein á dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.