Morgunblaðið - 13.08.1968, Page 27

Morgunblaðið - 13.08.1968, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1968 27 Hæstn vinn- ingnr í Hn- skólnhnpp- drættinu LAUGARiDAGINN 10.' ágúst var dregið í 8. flokki Happdrættis Háskóla íslands. Dregnir voru 2,300 vinningar að fjárhæð 6,500, 000 krónur. Hæsti vinningurinn, 500,000 krónur, kom á hálfmiða númar 12926. Tveir hálfmiðar voru seid ir í umboði Helga Sivertsen í Vesturveri, þriðji hálfmiðinn í umboði Frímanns Frímanssonar í Uafnanhúsinu og sá fjórði í um boði Guðrúnar Ólafsdóttur, Aust urstræti 18. 100,000 krónur komu á heil- miða númer 37'643. Voru báðir heilmiðamir seldir í umboði Frí manns Frímannssonar í Hafnar- húsinu. 10,000 krónur: 119 2011 2732 6204 6238 8640 8728 11211 12335 12925 12927 17450 18372 19101 19823 20179 20983 21096 22427 23439 24314 25565 25982 26144 27.241 27410 28261 30173 30909 32741 33823 36193 39870 42331 42663 45457 45974 46260 48664 49028 49097 58816 58482 53595 53979 55608 58260. (Birt án ábyrgðar) Hnrður nrekstur n Hvnlf jnrð- nrströnd HARÐCR árekstur varð á Hval fjarðarströnd um ellefuleytið á föstudagskvöld skammt frá bæn um Kalastöðum, er tvær bifreið- ar, sem voru á leið að Ferstiklu lentu saman með þeim afleiðing- um að báðar höfnuðu fyrir utan veginn. Ökumaður annarrar bif- reiðarinnar slasaðist eitthvað. Stór amerískur bíll hafði stanzað við ræsi, Vegna umferð ar, sem kom á móti. Þoka var og slæmt skyggni og Volkswagenbif reið, sem kom á eftir lenti aft- aná bifreiðinni og köstuðust báð ar við áreksturinn til sitthvorr- ar handar út af veginum. Litli bíllinn fór út af vinstra megin, en sá stóri hægra megin. Volks- wagen-bifreiðin skemmdist mjög mikið að framan, og sá banda- riski talsvert. Ökumaður litlu bifreiðarinnar var fluttur í sjúkrahús, en þrennt annað slapp að m'estu ómeitt Líðan ökumanns ins er eftir atvikum góð. Iceberg við bryggjiu og Oceancvgraph utan á þvi í höfninni í gær. Ljósm.: Kr. Ben. Rússarnir að lokinni Hvalfjarðarför: Hvílast nú i Reykjavíkurhöfn RÚSSNESKU veðurathugun- arskipia tvö, komu inn í Reykjavikurhöfn í gærmorg- un, og enn var verið að mála þau árdegis í gær. „Nú hins vegar bíðum við og hivílumst á meðan umboðsmaðuriinn er að útvega vatn og vistir", sagði Fedotov, skipstjóiíi, er við áttum við hann tal í kvöld sólinni í gær. — Þið hafið verið heppnir með veður meðan á dvöl ykk- ar hefur staðið. — Já, eimstaklega, sagði skipstjórinn. — Við komum með góða veðrið. Ég skal lofa ykkur góðu veðri upp frá þessu, sagði Fedrov og hló nú dátt, ein bauð okkur síðan um borð til þess að skoða skipið. Fedotov upplýsti okkur um að skipið væri austur-iþýzkt — eða þýzkt, eins og hann sagði, líkt og aðeins væri til eitt Þýzkaland. Skipið kvað hann 15 ára gamalt og eru bæði skipin eins. Þau hafa það hlutverk að því er hanm tjáði okkur, að sigla fram og aftur. samsíða um Atlantshaf- ið á svæðdnu frá íslandi suð- ur á móts við írland. Skipið er ekki stórt og gangar eru fremur tþröngir. Káeta skipstjórans er lítt stærri en hvers annars há- seta eða eins og hann sagði: „Káetan er lítil, en þó er hér allt hið nauðsynlegasta", og hann benti á vask, rúm og skrifborð, en yfir því hékk mynd af félaga Lenin, sem fylgdist með öllu sem fram fór fránum augum. Fedotov upplýsti okkur einnig um, að frammi í skip- inu væru rannsóknarstofur veðurfræðinganna og þamgað var okkur að vísu boðið, ein þar sem skipshöfnin var í óða önn að búa sig til kvöldverð- arboðs í rússneska sendiráð- inu, var boðinu ekki fullnægt. Skipin tvö, Oceanograph og Iceberg, voru nú orðin mjög sæmilega útlítandi — bæði borðin máluð, svo að augljóst er að þau hafa ekki komið hdngað til einskis. 69 daga á reki mafarlausir Sydney og Honiara, 12 ágúst. (AP-NTB) Skipverjar á strandferðaskip- inu Vula, sem annast flutninga um Salómonseyjar á Kyrrahafi, björguðu á sunnudag tveimur fiskimönnum frá Formósu, sem verið höfðu á reki á smá-fleka um Kyrrahafið i 69 daga. Voru þeir af áhöfn togskipsins Hsien schin, sem fórst norður af Fiji- eyju 5. júní s.l., eftir að spreng- ing varð í skipinu. Tuttugu manna áhöfn var á Hsienschin, og fórst einn mann- anna í sprengingunni, sem einn- ig eyðilagði björgumarbát skips- ins. Ekki sökk skipið strax, og tókst áhöfninni að útbúa nokkra björgunarfleka úr tómum olíu- « tunnum, glerduflum og bambus- stöngum. Einn flekanna rak á land á Santa Cruz eyju 14. júlí, og björguðust á honum 6 menn. Annan fleka rak á land á svip uðum slóðum nokkrum dögum síðar, og voru á honum þrír menn. Enn síðar fund- ust fjórir menn látnir á þriðja flekanum, en þrátt fyrir víðtæka leit fundust ekki fleiri flekar fyrr en á sunnudag, þegar mönn unum tveimur var loks bjargað. Hafði þá rekið um 1.290 kíló- metra á þessum 69 dögum. Skipbrotsmennirnir tveir eru bræðurnir Lee Ah Nong og Lee Ah Yung. Þegar þeir yfirgáfu skip sitt höfðu þeir með sér rúm tvö kíló af kexi, en ekki ann- að nesti. Entist kexið þeim í þrjá daga, en eftir það nærð- ust þeir á fiski, sem þeim ein- staka sinnum tókst að veiða með höndunum. Þegar þeim var bjargað, voru þeir nær dauða komnir af hungri og máttu ekki mæla. Voru þeir fluttir til sjúkra húss í Honiara á Salómonseyj- um, og voru á batavegi í dag. Eisenhower hressist Washington 12. ág. AP. LÆKNAR Eisenhowers, fyrv. Bandarikjaforseta, tilkynntu að væri á góðum batavegi. Liðin er nú vika síðan Eisenhower fékk síðasta hjartatilfellið, og var hann þá nær dauða en lífi í sól- arhring. Spónsko Guineo fær sjólfstæði Santa Isabel, 12. ág. AP. ÍBÚAR Spönsku Guineu gengu til kosninga á sunnudag um nýja stjórnarskrá landinu til handa, þegar það fær sjálfstæði, ÚrsJit urðu þau, að sjötíu prósent igreilddu atkvæði mieð því að stjómarskráin taeki gildi og land ið yrði sjálfstætt, en það hefur lotið yfirráðum Spánverja í mieira en tvö huindruð ár. Spánska Guiinea hilýtur sjáMstæði sitt formlaga 12. október n,k. Þoka setti allt úr skorð um hjá flugfélögunum ÞOKAN, sem grúði yfir hluta landsins fyrir helgina, olli mik- illi röskun á áætlunarflugi Loft- leiða og Flugfélags íslands. Síð- an að þokunni létti hafa flugfé- lögin lagt allt kapp á að vinna upp tafirnar og'á sunnudag tókst Fiugfélaginu að koma inn- anlandsflugi sínu í réttar skorð- ur, en utanlandsflugið var á eft- ir áætlun þar til í morgun. Bú- izt var við, að flug Loftleiða kæm ist aftur í sínar réttu skorður í gærkvöldi. Einar Helgason hjá Flugfélag inu tjáði Morgunblaðinu í gær, að allar áætlanir félagsins hefðu farið verulega úr skorð- um. Einikum gerði það erfitt fyr- ir, hve ójafnt þokan lokaði hin- um ýmsu flugvöLlum og tepptust þvi margar vélar félagsins úti á landi. Aðfaranótt laugardags varð fluigvél félagsins, sem var að koma að utan, að lenda á Sauðárkróki og komst hún ekki til Reykjavíkur fyrr en upp úr hádeginu á laugardag. Síðari hluta dags á laugardag tepptist ein vél á Akureyri og vélin frá Egilsstöðum varð að lenda á Ak- ureyri, en báðar vélarnar kom- ust til Reykjavíkur á sunnudag. Á laugardag fór ein vél félags- ins til Grænlands og átti hún að koma aftur á laugardagskvöld, en vegna þoku komst hún ekki itl báka fyrr 'en seinni partinn á sunnudaig. Gullfaxi, þota fé- lagsins, átti að lenda í Kefla- vík á föstudagskvöld, en gat það ekki fyrr en daginn eftir. Auk þessara stórtafa urðu ýms- ar smærri tafir á leiðum félags- ins. Eftir hádegi á sunnudag opn uðust allir flugvellir og var þá allur vélakostur félagsins nýtt- ur til hins ýtrasta til að vinna áætlunina upp. Ein aukaferð var farin til Akureyrar á sunnudag í saimibanidi við leik KR og ÍBA. í .gærmOTiguin hafði tekizt að vinna upp tafirnar í innanlandsflug- inu, en Gullfaxi, sem átti að fara utan klukkan 08:30 í gærmorg- un fór ekki fyrr en klukkan 15:00 í gær og kvaðst Einar vona að það væri síðasta seink- unin í utanlandsfluginu. Jóhann'es Óskarsson hjá Loft- leiðum sagði Morgunblaðinu, að á föstudag hefðu trvær vélar fé- lagsins á leið frá Ameríku ekki getað lent í Keflavík og urðu þær því að yfirfljúga. Á laug- ardag lentu allar fimm Rolls Royce vélar félagsins í Keflavfk, en á laugardagskvöld varð vél- in frá Scandinaviu að fljúga yf- ir Keflavík og beint vestur um haf. Á laugardagskvöldið lokaðist svo Kennedyflugvöllur vegna þoku og gat ekki n’ema önnur vél félagsins lent þar, en hin varð að lenda í Montreal og komst hún ekki til New York fyrr en á sunnudagsmorgun. Kvaðst Jóhannes vona, að áætl unarflug félagsins kæmist aftur í réttar skorður í gærkvöldi. Þrátt fyrir mikla þoku og erf- ið flugskilyrði um helgina var mikil flugumferð um Keflavik- urflugvöll. Á föstudag lentu þar 8 farþegavélar, þar af 3 stórar 'þotur og á laugardag voru all- ar Rolls Royce vélar Loftleiða samtímis á Keflavíkurflugvelli auk þotu Flugfél. fslands. Milli klukkan 12:00 og 15:00 á laugar dag voru yfir 900 farþegar i flugstöðvarbyggingunni á Kefla víkurflugvelli. - TÉKKÖSLÓVAKÍA Framh. af bls. 1 ar, að Dubcek hafi hug á að bæta samskipti Tékkóslóvakíu og V-Þýzkalands, enda þótt hann hafi orðið að draga nokk- uð sarna'n seglin, eftir Bratislava fundiin'n. Við lok heimsóknar Títós, Júgóslavíuifonseta, sem var að sögn, ein samfelld sigurganga, var sagt, að hann kæmd fljótlega' aftur til Tékiklóslóvakíu og þá í opimbera heimsókn. Fréttastofan Ceteka segir, að Tékkóslóvakía og Júgóslavía muni auka mjög samvimnu sína á sviði efnahags- mála á næstunni. Það hefur einnig flogið fyrir að löndin tvö ásamt Rúmeniíu geri með sér sér stakan viináttuisaimning. Tító sagði við brottförina, að tilgang- urinm með komu simni hefði ver- ið að sýna vináttu, er hann bæri til leiðtoga Tékkóslóvakíu og kommúnistaflokkiair landanna beggja væru eimhuga og hefðu sömu skoðanir á málumum. Blöð í Sovétrikjumum minnt- ust mjög lítillega á heimsókn Títós til Prag, en einbeittu sér þess í stað að því að gagnrýna hugsjónafræðilega andstæðinga sína innan alheimskommúnista- hreyfingarinnar. Nicolae Ceausescu, foringi rúm enskra kamimúnista ítrekaði í dag stuðniing við lýðræðisöfl i Tékkóslóvakíu og sagði, að hver einstakur kommúnistaflokkur hefði fullan rétt til að ráða mál- um sínum sjálfur. Ceauescu er væntanlegur til Prag á fimmtu- dag. Sovétríkin hófu á siunnudag enn á ný heræfingar skammt frá landmærum Tékkóslóvakíu og var tilky.nning þess efnis birt, skömmu eftir að sagt hafði verið að hinum úmfamgsmiklu heræf- ingum á þessum slóðum væri lokið. Ekki var tekið fram, hversu lengi æfingarnar myndu standa yfir að þessu sinni. í dag réðdst Pravda, máigagn sovézka kommiúnistaiflokksins, harkalega á NATO-heræfingar þær, sem eru fyrirhugaðar i Norðaustur-Grikklandi í næstu viku og kallar þær nýja ögrun sem stefnt sé gegn hinum sósíal- ísku ríkjium. Að því er NTB segir í dag minntist fréttastofan Nýja-Kína í fyrsta skipti á laugardag á þró- um þá, sem hefur orðið í sam- skiptum Tékkóslóvakíu og Sov- étríkjanna. Vitnar fréttastofan I grein í albanska málgagninu Zeri I Popullitt. Segir þar, að téfekóslóvakíska þjóðin eigi I örðugleikum um þessar mundir og sé ógnað af öflum, bæðd utain landsins og innan. Þetta sé af- leiðing endurskoðunarsteflnu í báðum löndum og samvimnu heimsvaldaisinna og endurskoð- unarsinTia: Tékkóslóvakía sé að slíta sig frá áhangendum Krús- jeffs og vilji gera bandalag við Bandaríkin og heimsvaldasinna á Vesturlöndum. Kreml hafi gert samsæri við emdurskoðunarsin'na í Póllandi, A-Þýzkalandi, Búlg- ariu og U'mgverjalandi og reyni að þrýsta Tékkóslóvakíu í sama farveg og áður. Hæstaréttardðm- arilætur af starfi Bulawayo, Rhodesia 12. ág. NTB John D. Young, dómari í hæsta rétti Rhodesíu tilkynnti í dag, að hann hefði sagt af sér embætti þar eð lögfræðileg samvizka hans krefðist þess. Ákvörðun dómarans var birt eftir að hæstaréttardómararnir níu í Salisbury kom-u saman til að ræða viðhorfið til stjórnar Ian Smith, en meðal lögfræðinga og dómara í Rhodesiu hefur lengst af verið dreginn í efa lagalegur réttur stjórnarinnar eftir sam- bandsslitin við Breta árið 1965. Hæstaréttardómararnir komust að þeirri niðurstöðu að stjórn- in væru lögleg, en Youmg lýsti yfir því að hann sæi sér ekki fært að styðja stjórn, Smiths.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.