Morgunblaðið - 14.08.1968, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1968
0 Pétur Njarðvík gerði
„fjallanótina“ fyrstur
Guðmundur Sveinsson frá Geirstöðum,
netagerðarmaður á ísafirði, skrifar:
„í Morgunblaðinu var fyrir nokkru getið
um nýja gerð síldarnóta, sem vélskipið
Sóley frá Flateyri notar. Hugmynd að
þessari nót er á engan hátt ný.
Pétur heitinn Njarðvík, netagerðarmeist-
ari á ísafirði, bjó til þessa gerð af síldar-
nót á árunum 1930 -1940, og var hún notuð
á samvinnufélagsbátunum oft á þessum
árum, er síld var grunnt á Skagafirði og
Húnaflóa. Var hún í gamni kölluð Fjallanót
Ræfillinn af þessari nót mun enn vera til
á Siglufirði hjá Söltunarstöð ísfirðinga".
£ Fúlt andrúmsloft í Fram-
sóknarferð
Svanhild Guðmundsson skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Ég var meðal þeirra, sem fóru með m.s.
Egju til Vestmannaeyja hinn 20. júlí sl., og
fór skipið á vegum Framsóknarflokksins.
(Hér mun hafa verið um e.k. sumarferð
Framsóknarmanna 1 Reykjavík að ræða.
Innskot Velvakanda).
Ég var á fyrsta farrými í fjögurra
manna klefa, nr. 10, sem var I raun og
veru tveggja manna klefi, en búið var um
á bekk fyrir tvær manneskjur. í klefa nr.
50, sem er tveggja manna klefi, voru hjón,
sem ég þekki, og höfðu þau sömu sögu að
segja og ég. Skipið valt nokkuð, og þeir,
sem ekki voru sjóhraustir, lágu 1 koju að
mestu leyti, og var ég meðal þeirra. Var
mér færður matur niður í klefa. Þjónustu-
fóikið var allt fyrsta flokks og kom I alla
staði mjög vel fram, og maturinn var góð-
ur um borð.
En það er annað, sem ég ætla að skrifa
um, stærð og loftleysi klefanna. Það var út-
lendingur um borð, sem var fróður um
ýmsa hluti, og mældi hann klefa minn og
reiknaði út, hve mikið loft var þar, og
reyndist það vera þrir rúmmetrar lofts á
hvem mann, en það á að vera 10 rúmmetr-
ar á mann. Svo sjá má á þessu, að loftieysi
er gífulegt í klefum skipsins. Mældur var
einnig út tveggja manna klefi, og var sama
ástandið þar.
f sumuim klefunum er enginn fataskápur,
svo að ekki sé talað um borð og stól.
Maturinn, sem komið var með á bakka til
okkar, varð að setja á gótfið, þvi að
enginn annar staður var til þess að setja
hann á. Svo voru allir vaskar stíflaðir, og
vora herbergisþemumar á þönum alla
ferðina með dælu án árangurs, og gaus upp
óþverrinn þegar þær voru að pumpa. En
loftleysi og hiti var svo mikill, að við
voram nærri köfnuð.
Vantaði æluask
Eitt var það, að enginn gubbudallur var
hjá konunni, sem var í kojunni fyrir ofan
mig, og fékk ég heldur betur að kenna á
því, ég vissi ekki fyrr en gubbugusan
gekk yfir mig, og varð mér heldur ónota-
lega við. Ekki var skipt á minni koju, en
sængurver og lak var tekið af hjá konunni,
sem gubbaði, en ekkert hreint sett á I stað
inn, og urðum við að liggja svona á heim-
leiðinni. Hvorki ljós né bjalla var I klefa
mínum, svo að ekki var hægt að láta í blað.
Útlendingurinn, sem mældi klefana, ætlaði
að raka sig með rafmagnsrakvél, en engin
innstunga var í klefa hans. Hann sagði, að
þessir klefar á fyrsta farrými á M.S. Esju
væru eins og verstu klefar á þriðja farrými
I járnbrautarlestum erlendis, en þar væri
víst ekki vöntun á lofti.
0 Salernisumgengni Islendinga
Það er ef til viU hægt að bjóða íslend-
ingum upp á allt, — þeir era nógu fínir í
fötunum, en umgengni og sóðaskapur
þeirra er fyrir neðan allar hellur. Á salem-
um Skipsins hengu uppi handklæði, sem
vora eins og gólftuskur eða eins og skó-
þurrkui, og ekki einu sinni skola þeir
niður úr salernisskálinni eftir notkun.
Þetta var mín fyrsta ferð til Vestmanna-
eyja og verður sú síðasta með M.S. Esju.
Fólkið, sem ég heimsótti 1 Vestmannaeyj-
um, var mjög vingjamlegt og gott, og mót-
tökurnar voru mér ógleymanlegar.
Ég hef ferðazt með M.S. Gullfossi, og er
það allt annað, þar fær maður það, sem
maður borgar fyrir, en á M.S. Esju vora
klefarnir verri en fangaklefar, því að fang
amir fá þó hreint loft til þess að anda að
sér.
Þá voram við svikin um Surtseyjarferð,
sem var á dagsskránni, en menn vita hve
tiðarfar breytist fljótt hér á landi, og
áttum við því að nota tæfcifærið að koma
við á leiðinni til Vestmannaeyja, því á
leiðinni heim var þoka, svo að ekkert var
hægt að sjá, en hljómsveit var um borð,
þurfti að flýta sér í land, til þess að spila
á dansleik um kvöldið, og var það álitið
þarfara.
Heilbrigðiseftirlitið ætti að athuga klefa
og aðbúnað farþega á M.S. Esju.
Svanhild Guðmundsson".
0 Flugmenn og flugumferðar-
stjórar
Grein „Flugmanns", sem birtist hér í
dálkunum fyrir skemmstu, vakti allmikla
athygli, ekki sízt í hópi starfsfólks við flug.
Flugumferðarstjórum þótti að sér vegið í
grein flugmannsins, og faefur félag þeirra
svarað hér í dáikunum.
Velvakandi hefur auðvitað Iltið sem
ekkert vit á því, sem þarna er um deilt,
og hafði satt að segja ekki áhuga á að
halla á neinn, hvorki starfshópa né ein-
staklinga, í dálkunum, en þeir era vett-
vangur umræðna um margvísleg mál, og
þótti "V elvakanda þvl rétt að birta athuga
semd „Flugmanns".
íslenzkir flugmenn hafa getið sér gott
orð, eins og kunnugt er, og allir vita, að
starf íslenzkra flugumferðarstjóra er
einnig þýðingarmikið ábyrgðarstarf, og
má í þvi sambandi benda á, að þeir sjá um
flugumferð á hluta Atlantshafsins í sam-
vinnu við Alþjóðaflugmálastofnunina.
Aftur á móti ætti ekki að þurfa að geta
þess, að það era auðvitað flugmennirnir,
sem stjórna flugvélunum.
Stxmdum verða árekstrar milli flug-
manna og flugumferðarstjóra, eins og geng-
ur, en engum lifandi manni dettur í hug,
að það geti stafað af öðra en því, að báðir
aðilar vilja gegna skyldustörfum sínum,
eins og bezt verður á kosið. Slíkir árekstr-
ar eru Htilfjörlegir, þvi að yfirleitt gengur
samstarf flugmanna og flugumferðarstjóra
snurðulaust. Fer lfka bezt á því, að svo sé,
þvi að tnikið er i húfi að vel takist til um
flug hér við land.
Flugumferðarstjórar urðu sárir yfir skrif
um „Flugmanns", og er það kannski
skiljanlegt. Ekki ætlar Velvakandd að fara
að svara fyrir bann, en vonandi verða
þessar umræður tid þess að hvetja alla aðila
til að setja niður deilur og vinna saman I
sátt og samlyndi og fullkomnu bróðerni.
Það er beinlínis skylda þeirra, sem að
flugmálum starfa.
Velvakandi harmar, ef flugumferðar-
stjórar halda, að hann hafi verið að ná sér
eitflhvð niður á þeim. Það er síður en svo.
Þess má að lokum geta, þótt ekki séu þess-
ir dálkar beinlínis vettvangur fyrir slík
skrif, að blaðamenn Mbl. hafa ætíð átt
mjög gott samstarf við íslenzka flugmenn
og flugumferðarstjóra og vona, að það
haldist, þrátt fyrir skeinuna frá
„Flugmanni".
0 Sorphaugurinn við
Gamla Garð
Borgari hér í bæ, sem kallar sig Veg-
faranda, skrifar:
„Hver sá, sem á leið eftir Hringbraut-
inni fram hjá Stúdentagarðinum, hlýtur að
hafa veitt athygli sorphaugi einum miklum
við vesturenda útbyggingar Garðsins, þló
að ekki væri nema vegna fnyksins, er legg-
ur fyrir vit vegfarenda í sunnanáttinni.
Þarna er hrúgað upp tómum pappakössum
— eða kannske eru þeir fullir — og öllu
mögulegu, er til fellur frá eldhúsi „hótels"
þessa, en svo má Mklega kalla það, vegna
hins mikla fjölda erlendra ferðamanna, er
þar dvelst að sumrinu til. Þarna eiga þeir
sem heimsækja vilja þjóðminjasafnið og
Listasafn ríkisins, innlendir sem erlendir,
leið fram hjá. Þama er fagurt útsýni yfir
Tjömina og miðborgina og allt yfirleitt
mjög snyrtilegt, að undanskildum sorp-
bingi þessum, sem er til hreinnar skamm-
ar, svo að efcki sé meira sagt.
Vitanlega er sjálfsagt að forráðamenn
hótelsins sjái svo um, að daglega sé ekið
burtu öllu sorpi, sem losna þarf við, en
bíða ekki eftir, að hreinsunarmenn borg-
arinnar komi þama á viku til tíu daga
fresti. Það er ekki nóg að hefja herópið
„Hreint land — fagurt land" eða „Hrein
torg — fögur borg", — menn verða að
fara eftir því.
Það kann að vera, að þegar þessi á-
bending birtist, sé búin að hreinsa til þarna
en trúlegt er, að byrjað sé að safna I
nýjan haug, til þess að þeir erlendu gest
ir, sem kunna að koma I þessari viku
eða þeirri næstu, fari heldur ekki á mis
við að kynnast hreinlætishugmyndum for-
ráðamanna staðarins.
Vegfarandi".
LEIðRÉTTING
Það er eins og fyrri daginn, þegar Vel-
vakandi fer að birta leiðréttingar- og um
vöndunarbréf, þá rangsnúast þau öll og
verða að óskiljanlegri þvælu. í gær var
birt hér bréf frá „Agústi", þar sem hann
var að skamma útvarpið fyrir málvillur,
og þar umturnaðist ein setningin. Rétt er
hún svona: „Það er náttúralega „fisks", en
.fiskjar" er eignarfall af ailt öðru orði
eða fiski", sem þýðir einfaldlega veiði...“
o. s. frv.
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Sími 22-0-22
Rauðarárstig 31
\~»siM' 1-44-44
mniF/m
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 3116«.
IV1AGNÚSAR
sKiPnomTl «mar21190
eftir lokun *lini 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hagstætt leigugjald.
Sfim* 14970
Eftir lokun 1497» eða 81748.
Sigurður Jónsson.
BÍLALEIGAN
AKBRAUT
SENDUM
SÍMI 82347
GOLFTÆKI
%
P. EYFELD
Laugaveigi 63
að BEZT
er að
auglýsa í
Morgunblaðinu
Tilboð óskast
í bifreið, Fíat 1500 L skemmda eftir veltu. Bifreiðin er
til sýnis að Sigtúni 47, Reykjavík, í dag og á morgun
mlli kl. 17 og 19. Tilboð, merkt: „Fíat 8072“ óskast
send auglýsingadeild Mb. fyrir föstudagskvöld 16.
ágúst nk.