Morgunblaðið - 14.08.1968, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1968
11
Vegakerfi landsins þenst út
Rætt við Sigurð Jóhannsson, vegamálastjóra,
um franrkvæmdir í sumar
Vegagerð ríkisins stendur fyrir
allmiklum framkvæmdum í sum
ar, eins og undanfarin ár. Vega-
kerfi landsins þenst út og sífellt
bætast nýir vegir við. Nú er
hægt að aka hringinn kringum
landið, nema um Skeiðarársand
en þar eru hafnar undirbúnings-
rannsóknir m.a. á því, hver á-
hrif jökulhlaup eru á sand-
inn. Má því e.t.v. vænta þess,
að í framtíðinni verði hægt að
aka á þjóðvegum allan hringinn.
Morgunblaðið hafði fyrir
skemmstu samband við Sigurð
Jóhannsson vegamálastjóra og
bað hann að segja frá þeim fram
kvæmdum, sem nú standa yfir í
vegamálum. Fyrsta spurning,
sem fyrir hann var lögð, var sú,
hve mikið fé Vegagerðin hefði
til ráðstöfunar á þessu ári.
„Tekjur Vegasjóðs á þessu ári
voru áætlaðar 342 milljónir
króna í vegaáætlun 1968, en við
þá upphæð bætast 109 milljónir
króna vegna hækkunar á ben-
zínskatti, þungaskatti og gúmmí
gjaldi samkv. breytingu á vega-
lögum og 104,5 milljón
króna lán til vegaframkvæmda
samkvæmd framkvæmdaáætlun
verður ráðstöfunarfé Vegagerð-
arinnar á þessu ári 555,5 mill-
jónir króna. Af þessari upphæð
fara þó 26,5 milljónir króna til
Kísilvegarins, sem ennþá er vega
sjóði óviðkomandi og 10,4 mill-
jónir til framkvæmda við Hafn-
arfjarðarveg í Kópavogi, sem að
öðru leyti epu greiddar af þétt-
býlisfé bæjarfélagsins. í>á fer
allmikið af upphæðinni til
greiðslu á lánum og þó sérstak-
lega vegna framkvæmdanna við
Reykjanesbraut á síðastliðnum
árum.“
„Hvernig skiptist svo það fé,
sem Vegagerðin hefur yfir að
ráða?"
„Því fé, sem Vegagerðin hef-
ur yfir að ráða, er skipt eftir
ákveðnum reglum, en því er síð
an varið í viðhald þjóðvega,
framkvæmdir í nýjum þjóðveg-
um, fjallvegi, brúargerðir, sýslu-
vegi, vegi í kauptúnum og kaup-
stöðum, til kaupa á áhöldum og
vélum og í stjórn og undirbún-
ing. Afgangurinn er síðan notað-
ur til þess að greiða greiðslu-
halla á vegaáætlun í fyrra.“
Snjómokstur dýr.
„Hvað viljið þér þá t.d. segja
um vegaviðhaldið?"
„Vegaviðhaldið er sú hlið
vegamála, sem snýr að öllum
vegfarendum, og það kostar á-
vallt mikið fé. Kostnaður við
snjómokstur á tímabilinu frá jan
Ú£ir til júlí þessa árs nam 23,9
milljónum króna og er það meiri
kostnaður en verið hefur um
langt árabil og hærri að króniu-
tölu en nokkru sinni áður. Með
vegaviðhaldi verður einnig að
telja viðgerðir á skemmdum, sem
urðu af vatnsflóðum víða um land
og þá sérlega á suður- og vest-
urland um mánaðamótin febrú-
ar-marz. Kostnaður við þess-
ar viðgerðir nam 6,8 milljónum
króna. Ofan á þetta bætist ým-
is sameiginlegur kostnaður við
vegaviðhaldið, um 46,7 milljón-
ir króna og heflun þjóðveganna,
sem á þessiu ári er búizt við að
muni kosta 27,1 milljón króna.
Annað viðhald, 61,8 millj.
króna.“
„En þér nefnduð framkvæmd-
ir við nýja þjóðvegi. Hvað verð-
ur gert í þeim málum á þessu
ári?“
„Það, sem ætlað er til fram-
kvæmda við nýja þjóðvegi skipt
ist í aðalatriðum í tvennt, til
hraðbrauta annars vegar og til
þjóðbrauta og landsbrauta hins
vegar. Hraðbrautir skiptast í
tvo flokka, A og B. f A-flokki
eru vegir, þar sem irman 20 ára
má búast við tíu þúsund bíla um-
ferð á dag yfir sumarmánuðina,
en í B-flokki eru vegir, þar sem
búast má við 1-10 þúsund bíla
umferð á dag yfir sumarmánuð
ina innan tíu ára.
Til hraðbrautanna er varið 31
milljón króna. Áætlað er, að 21
milljón króna verði varið til
greiðslu kostnaðar við undirbún
ing hraðbrauta árin 1966—1968
og kostnaður við samgöngu
málaathugun þá, sem unnið er að
á vegum Efnahagsmálastofnunar
innár.
Unnið er að undirbúningi hrað-
brautaframkvæmda héðan úr
Reykjavík, t.d. við Suðurlands-
veg á Selfoss og Vesturlands-
veg í Kollafjörð auk vegafram-
kvæmda á höfuðborgarsvæðinu.
Þessi undirbúningur felst í kort
lagningu, jarðvegskönnun og á-
ætlunum. Síðan verða þessi mál
tekin fyrir á Alþingi, þegar vega
áætlunin fyrir 1969—1972 verður
lögð fyrir þingið í haust.
Hraðbrautir fjórfaldar.
í framtíðinni á síðan sam-
kvæmt vegalöigunum að gera all
ar hraðbrautir í A-flokki fjór-
faldar, þ.e. með tveimur akrein-
ráð fyrir gert, að á þessu ári
verði lokið þar öllum fram-
kvæmdum öðrum en jarðgöngun
um, sem gera átti gegnum efsita
hluta heiðarinnar, en nú eru all
ar líkur á að það verk dragist
um ófyrirsjáanlegan tíma vegna
óhagstæðra aðstæðna. Við höf-
um látið fara fram þarna um-
fangsmiklar rannsóknir, og því
f Súgandafjarðarvegi til Suð-
ureyrar hefur verið unnið í sum-
ar og verður byrjað á Botns-
heiðinni og farið niður í Súg-
andafjörð. í Djúpvegimnn, sem
liggur sunnan frá ísafirði innst
í Djúpinu verður unnið aðallega
að austanverðu frá Skarði inn í
Skötufjörð og kemst vegurinn
væntanlega inn að Hjöllum.
Milli enda eru þá aðeins 6-7
kílómetrar í loftlínu, en því mið-
ur vantar enn 60 kílómetra lanig
an veg til að tengja endana sam
an. Þar við bætist, að mjög erf-
itt að leggja veg á þessum
slóðum.
Ný Fnjóskárbrú.
Á Norðurlandi er unnið að
ýmsum framkvæmdum í sumar
og vinnst aðeins tími til að telja
hið helzta. Á Siglufjarðairvegm-
um um Stráka verður lokið við
kaflann frá Hrauni út á Lamba-
nesá auk þess að gengið verður
fullkomlega frá Strákagöngum.
Helztu framkvæmdir í Þing-
eyjarsýslu er bygging nýrrar
brúar á Fnjóská, sem taka á við
af gömlu brúnni frá 1908 og svo
Kísilvegurinn. Vegurinn liggur
frá Mývatni og á að tengjast
Þingeyjarsýslubraut við Laxa-
mýri og mun framkvæmd verks-
ins kosta næstum 27 milljónir
króna í ár. Þá standa yfir fram
kvæmdir við veginn um Hálsa
um í hvora átt og setja á þær Sigurður Jóhannsson, vegamála- mim Raufarhafnar ag Kópa-
varanlegt slitlag, þar sem slíkt stjóri.
hefur ekki þegar verið gert. í
þessum flokki er t.d. vegurinn til
Hafnarfjarðar og vegurinn yfir
Elliðaánnar. f B-flokki er stefnt
að tvöfaldri akbraut með varan-
legu slitlagi og í þessum flokki
er Suðurlandsvegurinn austur
Reykjavík í Borgarnes og að
Dalsmynni o.fl. Alls eru vegir í
þessum flokki 3-400 kílómetra
Jangir.
Ef við snúum okkur hins veg-
ar að þjóðbrautum og lands-
brautum þá eru hinir fyrr-
nefndu vegir, sem ná til 1000
íbúa svæðis og telst hér með
merktur hluti hringvegarins um
landið frá því er hraðbrautun-
um sleppir, svo og vegurinn um
Snæfellsnes og Vestfirði o.fl.
brauta. f þessa vegi er á þessu
ári varið 76,4 milljónum króna
og að auki 52 milljónum króna
til hrúa.
Framkvæmdir í sumar.
Ef við lítum á það, sem gert
yrja hér sunnanlands.
er í sumar í vegamálum úti á
landsbyggðinni, þá er bezt aðb
Á Vesturlandsvegi rétt innan
við Skeiðhól í Hvalfirði er ver-
ið að færa veginn niður undir
sjó og með því er ætlunin að
losna við mjög slæma brekku,
sem vafalaust er hin versta í
Hvalfirði núna. Því miður verð-
ur þessu verki ekki lokið í sum-
Þá er verið að endurbyggja
aðra brúna á Seleyrargili undir
Hafnarfjalli. Þetta hefur löngum
verið mjög slæmur staður og
hættulegur, því blindhæðir er
að brúnni báðum megin.
Á Miðvesturlandi er unnið í
ýmsum vegum fyrir um 3,8 mill-
jónir króna, þ. á. m. í veginum
Heydal yfir á Skógaströnd.
Á Vestfjörðum er mikið unnið
í vegafnamkvæmdum. Þar ber
fyrst að telja hinn nýja veg sunn
an Þingmannaheiðar, en á þessu
ári verður þar unnið fyrir nær
6 milljónir króna, t.d. byiggðar
tvær brýr á leiðinni og er gert
ráð fyrir að þessi vegur verði
kominn saman í haust að undan
teknum 5 km kafla frá Litla-
nesi í Kjálkafjarðarbotn. Hug-
myndin er, að þeim kafla verði
lokið á næsta ári og þar með
losnað við Þingmannaheiðina,
sem er einn versti farartálmi á
Vestfjarðaveginum, og um leið
yrði vegurinn fær lengri tíma árs-
ins en nú er.
Þá er í sumar unnið á Breið-
dalsheiði fyrir mikið fé og er
meir, sem við höfum kynnt okk-
ur málið, því verr lízt okkur á
að gera þessi jarðgöng.
í Bolungarvíkurvegi hefur
verið mikið unnið að sprenging-
um í sumar til þess að breikka
og lagfæra veginn. Næsta ár
verður svo haldið áfram með
aðrar lagfæringar á veiginum.
skers og á Þingeyjarsýslubraut-
inni norður til Kópaskers.
Á veginum yfir Möðrudalsör-
æfi er unnið að endurbótum og
er vegurinn kominn nokkuð á-
leiðis austur fyrir Þrívörðu'háls.
Á Austfjörðnm er það helzt,
að í haust verður hægt að
hleypa umferð á síðasta áfang-
ann af veginum yfir Breiðdals
heiði niður í Breiðdalinn, en þar
er búið að byggja nýja brú
á Breiðdialsá. Á sama vegi vecrð-
ur byggð ný brú á Hamarsá í
Hamarsfirði, 110 metra löng. Ein
stærsta framkvæmdin á Aust-
fjörðum er á svonefndium Suð-
urfjarðarvegi fyrir Vattarnes.þ.
e. milli Reyðarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar. Þeim vegi verð-
ur lokið í sumar og þá losna
menn við að fara hið illræmda
Staðarskarð, sem lokast venju-
lega á vetrum.
Öllum fært í Öræfin.
í Öræfum er verið að byggja
brýr á Hrútá og Fellsá, en þá
verða aðeins óbrúaðar tvær smá
ár í Öræfunum, en þær eru fær-
ar flestum bílum, svo í haust má
segja, að fært verði öllum bílum
í Öræfi. Þá vantar aðeins veg
um Skeiðarársand til að hægt
verði að aka allan hringinn, en
á Skeiðarársandi eru hafnar
undirbúningsrannsóknir, svo sem
kortagerð og annað. Menn búast
við jökulhlaupi í sandiimiim um
1970 og fyrir þann tíma þyrftum
við að vera búnir að gera ýmsar
athuganir til að sjá hvernig
flóðið hagar sér.
Á Suðurlandi er það helzt, að
verið er að byggja nýja brú á
Hverfisfljót í Fljótshverfi og í
haust verður væntanlega hægt
að hleypa umferð , á nýja
Suðurlandsveginn í Elidhrauni
milli Ása og Klausturs. Þá verð
ur unnið í veginum milli Gull-
foss og Geysis og í Þingvalla-
veginum er dálítið unnið innan
þjóðgarðsins.
Þá hefur verið unnið talsvert
í veginum um Þrengsli og á að
ljúka þeim vegi 1 haust. Hann
hefur verið hækkaður, svo nú
er hægt að leggja á hann slitlag.
Að lokinn má geta þess, að
Vegagerðin hefur tekið að sér
fyrir Landsvirkjun að byggja
brú yfir Tungnaá hjá Sigöldu,
en þegar hún verður tilbúin, verð
ur unnt að aka í Veiðivötn án
þess að fara yfir Tungnaá á vaði
eða fara upp Búðaháls til þess
að komast yfir Köldukvísl.
Kveðja til Péturs Ottesen
EKKI má láta áttræðisafmæli
hins þjóðkunna þingskörungs,
Péturs Ottesens á Ytra-Hólmi,
líða svo með öllu hjá, að eigi
komi opinbarlega í ljós, hve
mikið bindindishreyfingin í land
inu á honum upp að unna. Það
er ekki einungis, að hann hefur
allá tíð verið bindindismaður
sjálfur og þannig haft áhrif
með fordæmi sínu, og það for-
dæmi hefur orðið eftir því sterk
ara, sem traust hans og virðing
hefur vaxið, persónulega og í
félagsmálum. Pétur Otteisen átti
sæti á Alþingi í 43 ár, ög allan
þann tíma var hann hvort
tveggja í senn: öruggur tals-
maður aukinnar bindindissemi
þjóðarinnar og óbifamlegur and-
mælandi allra tilrauma til að
draga úr áfengisvörnum. Þetta
varð snemma til að afla honum
virðingar og trausts bindindis-
manna víða um land, þótt þeir
hefðu engin kynni af honum per
sónulega og væri jafnvel and-
vígir honum í stjómmálaskoð-
unum. Þeir töldu sig finna, að
þama væri á ferð maður heill í
huga og trúr stefnu sinni og lífs-
skoðun. Þessu trausti hefur Pét-
ur Ottesen aldrei brugðizt á
langri ævi. Það er hvorum
tveggja mikil hamingja, manni
og málstað, þegar maður slíkrar
gerðar bindur ungur tryggð við
hugsjónir og lífsviðhorf, sem
eru holl honum og alþjóð.
Bindindishreyfingin á íslandi
á Pétri Ottesen mikið að þakka.
Hann var um langan aldur sjálf-
kjörimn forystumaður bindindis-
manna á Alþingi bæði í sókn og
vörn, einbeittur og alvörumikill,
hugdjarfur og heiil. Samur var
hann í afskiptum sínum af iþess-
um málum utan þings. Áhrifa
hans hefur gætt víða og gætir
enn. Og fordæmi hans og saga
mun lengi verða leiðarljós á
vegi bindindissinnaðra mianna,
sem til trúnaðarstarfa veljast,
hvort sem er á Alþingi eða ann-
ars staðar.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
Fasteignatryggð skuldabréf
til 5 ára, með hæstu bankavöxtum, til sölu á hagkvæmu
verði, Tilboð merkt: „Skuldabréf 8073“ sendist MbL
N auðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Fálkagötu 17, talin eign
Höskuldar Skagfjörð, fer fram á eigninni sjálfri, mánu-
daginn 19. ágúst nk. kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
AUGLYSINGAR
SÍMI SS*4«80
10 ARA ABYRGÐ
TVÖFALT
EINANGRUNAR
20 ára revnsla hérlendis
SIM111400 EGGERTKRISTJANSSONaCO HF
±
10 ÁRA ÁRYRGÐ