Morgunblaðið - 14.08.1968, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.08.1968, Blaðsíða 10
10 MOKGUNBLA.ÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1968 arnar í Biafra MYNDIRNAR frá Biafra sem hér birtast eru teknar af Kurt Strumpt, ljósmyndara AP- fréttastofunnar í Frankfurt. Strumpf fór meff flutninga- flugrvél Rauða krossins frá spænsku eyjunni Femando Po og dvaldist í nokkrar klukku- Flóttamenn frá Biafra á flótta undan hermönnum sambands- stjómarinnar. Enski texti myndarinnar ber fyrirsögnina: „Eng inn áfangastaður". Um fimm milljónir flóttamanna hafast nú við inni í frumskógum Biafra þar sem lítið er um fæðu og þúsundir deyja daglega úr hungri. Dr. Ezekwe Ojinmah og hin þýzkfædda kona hans, Helga, eru bæði flóttamienn í Biafra og starfa nú við sjúkrahúisið í Aba í austurhluta Biafra. — Hér sýnir Ojinmah ljósmynd- ara AP áhrif hungursins á barn, sem nýtur meðferðar í sjúkrahúsinu. Hér að neðan sést er læknir í Biafra deilir úr mjólkur- Skómmtum úr þurrmjólkur- dufti til þurfandi barna. Það er skylda læknisins að gefa þeim aðeins mjólk, sem sýnt er að búi enn yfir nægilegum lífsstyrk, til að geta fram- fleytt Lífinu á svo naumum næringarskammti. Flogið var með mjólkurduftið til Biafra af fífldjörfum flugmönnum í úrsérgengnum flugvélum. Ljósmyndori AP lýsir nohkra stnnda dvöl í Biafra Til vinstri á myndinni sést sjálfboðaliði við heræfimgar í Bi- afra. Á myndiuni til hægri heldur örvæntingarfull móðir á deyjandi barni og horfir bænaraugiun á ljómyndarann. Barn- ið dó við barm móður sinnar nokkrum mínútum eftir að mynd in var tekin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.