Morgunblaðið - 16.08.1968, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTU'DAGUR 16. ÁGÚST 1966
Svipmyndir frá
Landbúnaðarsýningu
Flestar mynciirnar á þessari síðu eru teknar á búf.jársýningunni í upphafi Landbúnaðarsýning-
arinnar. A myndinni sjást þrír stóðhestar, sem verðlaun hlutu, hver í sinum aldursflokki. T. v.
Hrafn frá Efra Langholti í Ámessýslu, Hörður frá Kolkuósi, sem hlaut 50 þús. krónur í verð-
laun, og Bliki frá Vatnsleysu í Skagafirði.
......................
<•
ÉlSl
fggm
•X. --Oíö
í :x í ■■■ :■■■ ■■■ '<■
- <-•,
Höskuldur Eyjólfson, Hofstöðum í Borgarfirði, er hér ásamt
hesti sínum, Þyt, sem sýndi í flokki klárhesta með tölti. —
Höskuldur reið hesti sínum sjálfur og var elztur knapa á þess-
ari sýningu. Þótti mönum hann sitja hestinn vel.
Búvélamar á sýningarsvæði innflytjenda landbúnaðartækja
hafa mikið aðdráttarafl á börnin, sem sýninguna sækja, eins
og sjá má á myndinni.
Priestman-skurðgrafan á myndinni kom hingað til lands 1942,
og er ein af elztu skurðgröfunum hér. Hún gengur enn.
Lítiilátur heitir þessi myndarlegi hrútur og hér er hann ásamt afkvæmum. Ætthópur hans hlaut
fyrstu verðlaun í sýningarsamkcppninni, og er hann æði hreykinn á svip, þótt nafn hans bendi
til annars.
Og her er bolinn Neisti asamt afkvæmum sinum, en honum voru veitt fyrstu verðlaun í þeim
flokki. Á myndinni sjást einnig afkvæmin Hosa, Lýsa og Hlíð. Neisti er í eigu kynbótastöðvar-
innar að Laugardælum.