Morgunblaðið - 01.09.1968, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPT. 1968
E
Nútímanum hæfir frjálsræði
í efni og stíl
Viðtal við Helga Hallgrímsson, arkitekt
hægt sé a'ð tala um neitt, sem
við getum eignað okkur alveg.
í>að er tæplega hægt að benda á
íslenzkan stíl. Þarna gætir á-
hrifa, sem sum eru nokkuð náin,
eins og er eðlilegt. Samt eru til
óteljandi frumlegir hlutir, sem
sen og Hans Wegner, sem eru
skólabræður okkar Skarphéðins
Jóhannssonar, alltaf síðan uftnið
með húsgagnameisturum og er-
um nú meðal kunnustu manna á
þesssu sviðið í Danmörku. Ég
held að kannski sé það einmitt
slík samvinna, sem hér vantar.
— Af hverju er það?
— Það er líklega báðum að
kenna. Við erum fáir og fjárhags
lega erfitt að standa oft undir
skyldi. í Danmörku er árlega
húsgagnasýning. Þar standa hús
gagnasmiðirnir að hertni, öfugt
við það sem hér er, og þeir leita
til arkitektanna um nýjungar
vegna þessara sýninga. Allir að-
ilar búa sig undir þetta. Þarna
koma fram og eru sköpuð góð
form, sem í fyrstu eru notuð á
einstaka hluti, en síðan nýtur
verksmiðjuiðnaðuririn góðs af.
Hér væri líkiletga of émfliitt að
Helgi Hallgrimsson, húsgagnaarkitekt, í hluta af sýningarbás sínum. Þarna er stofusamstæða,
einingar sem setja má saman og hægt er að taka í sundur til flutnings. Áklæðið er sútað sauða-
skinn og púðamir mjúkir. Hornborðið hefur grásteinspiötu, en sófaborðið undir viðarplötunni,
hafa h ú sgaiginasý n iingiu árleg’a.
[ Elzti þátttakandinn i sýningu
1 húsgagnaarkitekta í nýbyggingu
Iðnskólans er Helgi Hallgríms-
son, en hann hefur nú starfað í
| Reykjavík sem húsgagnaarkitekt
| í nákvæmlega 30 ár. Ekki er þó
! að sjá að húsgögnin, sem hann
i sýnir séu síður nútímaleg en
i önnur sem þar eru. Þarna er nýj
I ungar að sjá, m.a. notar hann
| mjúkt garvað sauðskinn sem á-
klæði á húsgögnin, og grásteins
plötu á hornborð. Mbl. átti stutt
samtal við Helga í tilefni sýning
j arinnar og 30 ára starfsafmæli
j hans.
i — Já ég kom heim haustið
1938, eftir nám í Danmörku og
hálfs árs námsdvöl í Þýzkalandi,
svaraði Helgi fyrstu spurningu
okkar. Og byrjaði strax með
m teiknistofu, var satt að segja sá
i fyrsti sem setti upp slíka teikni
I stofu, ætlaði mér að lifa af því
! og hef gert það síðan, ásamt
i kennslu í Iðnskólanum. Ég vinn
1 mikið á teiknistofunni á sumrin
1 og með kennslu á vetrum. Hefi
aldrei tímt að sleppa því. Einnig
rak ég ásamt öðrum verkstæði,
Vinnustofuna Innbú, frá 1941 til
1946, og framleiddi þar húsgögn.
— Það hlýtur að hafa verið
nokkuð erfitt að setja upp teikni
stofu fyrir húsgögn og innrétt-
ingar hér fyrir stríð, þegar engin
slík hafði verið til áður?
— J'ú, en ég var svo heppinn
að komast strax í samband við
Sigurð Guðmundsson, arkitekt,
‘ og varð úr því prýðis samvinna.
, Hann var þá að teikna hús fyrir
Ríkharð Thors og ég fékk það
! verkefni að innrétta. Sigurður
sá það strax, að hann gæti notað
slíka samvinnu. Síðan hefi ég
átt gott samstarf við marga arki
tekta. Sá skilningur hefur reynd
' ar ekki alltaf verið fyrir hendi
að láta okkur innanhúsarkitekt-
ana vinna okkar skerf af verk-
unujn.
— Það hafa orðið miklar breyt
ingar á húsgögnum á þessum 30
árum, er það ekki? Voru stál-
húsgögnin ékki ríkjandi þegar
þú byrjaðir?
— Stálhúsgögnin voru farin
að dala. Þau voru upprunnin í
Þýzkalandi og voru mikið notuð
eftir 1930. En 1938 var funktional
isminn eiginlega búinn að vera
í Þýzkalandi vegna þjóðernis-
stefnunnnar. Handverkið sem
slíkt stóð þó mjög háu stigi í
Þýzkalandi
— Breytingar hafa orðið mikl
ar, og einnig viðhorfin til þess-
ara mála, sagði Helgi ennfremur.
Áður var algengast að fólk keypti
sér settin, sem kölluð voru. Þá
er allt í nákvæmlega sama stíln
um. Það hefur haldizt ótrúlega
lengi. Þó er fólk nú frjálslynd-
ara á þessu sviði. Þetta gerði það
að verkum, að á stofunni varð
frekar einhliða bragð og oft
þunglamalegur svipur, því litlar
stofur báru þetta varla.
— Og nú? 'Hefur orðið alger
umbylting?
— Allt byggir á gömlu. Funk
isstíllinn var ekki hlýlegur, þó
hann væri að mörgu leyti prakt
iskur og þægilegur í umgengni.
Á síðari árum hefur verið lagt
meira upp úr því að gera heimil
in hlýleg. Varla er hægt að tala
um neinn ákveðinn stíl. Nútím-
anum hæfir frjálsræði bæði í
efni og útliti.
Og eitt vi)l ég tatoa fram, að
emigu síðuir er milkilvægt að velja
vel það sem noitiað er mieð hús-
gögin/umuim en þaiu sjálf.
—Er til eitbhvað sem heitir
íslenzkur stíll í húsgögnum?
— Því miður held ég varla að
sem draga má til hliðar.
eru langt frá því að vera stæling,
þó þeir séu ekki sér íslenzkir.
Ekki er í rauninni óeðlilegt að
þetta beri blæ af því sem er á
Norðurlöndum, því við höfum
flestir lært á Norðurlöndum. Þar
stendur þessi grein líka í mikl-
um blóma. Að hún hefur nú svo
langt þar, er mikið að þakka
góðri samvinnu húsgagnameist-
ara og ' húsgagnaarkitekta. Sú
samvinna hefur staðið í 30—40
ár. T.d. hafa þeir Börge Mogen-
sýningum. Tímarnir hafa verið
þannig, að húsgagnameistarar
hafa verið svo uppteknir við á-
kveðin verk og því ekki fljótir
að snúa sér að nýju. Það stafar
af ofþenslu á vinnumarkaðinum.
Við húsgagnaarkitektar höfum
unnið mikið að föstum innrétt-
ingum í heimili og fyrirtæki,
banka, verzlanir, kirkjur o. fl.,
og farið í það mikið af okkar
tíma, svo við höfum ef til vill
ekki sinnt húsgögnunum sem
En aniniað hvert ár væiri gokt otg
miuimdi ha/lidia samhengi í þessu.
— 'Hvernig finnst þér þessi hús
gagnasýning hafa tekizt, sem nú
stendur yfir?
— Sýningin var byggð þannig
upp, að ákveðið var að hafa
ekkert eftirlit með vali. Hver
um sig átti að koma með það,
sem hann vildi kynna. Þegar á
leið gerðum við könnun á því
til að þetta yrði ekki of einhliða.
Það kom í ljós að margir eru
hvað hver hefði fram að færa,
með stofuhúsgögn eða sæti og
borð. Það þótti ekki koma að
sök og var haldið áfram. Þegar
sýningin var komin upp, var
taisverð fjölbreytni yfir henni,
bæði að efni og formi. Þar eru
ný form og fjölbreytt. Ekki er
hvað sízt gaman að álhúsgögn-
unum, því þetta efni hefur ekki
verið notað svona áður hér, þ.e.
í formuðum plötum.
— Sjálfur ertu með nýjungar?
T.d. sauðskinn í áklæði?
— Já, sauðskinn ihafa verið
lítið notuð, en það ætti að vera
miklu meira. Þetta er ekki gæra
heldur sútuð hárlaus húð. Hún
er mjúk eins og fataefni. Og
verðið er ekki meira en á góðu
áklæði. Ég nota þetta á mjúka
púða í stólunum. Ég held að
að þetta eigi mikla framtíð fyrir
sér sem húsgagnaáklæði. Ásgrím
ur Lúðvíksson bólstraði allt fyr
ir mig og Ingvi Viktorsson smíð
aði það sem smíða þurfti. Ég
sýni sófaborð og staka stóla í
sama stíl. Þetta eru einingar,
sem tengja má saman. Á horn-
borðinu er grásteinsplata, sem
steiniðja Magnúsar Guðnasonar
gerir. Margir þekkja ekki grá-
steininn og finnst skrýtið að sjá
hann þarna. Ég er mjög ánægð-
ur með samvinnuna við þessa
menn. Auðvitað kom ég allt of
seint til þeirra með þetta. Og
ég heyri, að samvinna allra arki
tektanna við meistarana hefur
verið mjög góð og það á sinn
þátt í því hve vel þessi húsgagna
sýning hefur tekizt.
Sýningunni átti að Ijúka á
sunnudagskvöld, en nú mun
vera ákveðið að framlengja
henni til þriðjudagskvölds.
HIN NÝJA HÚSETGENDATRYGGING INNIFELUR EFTIRTALDAR TRYGGINGAR:
VATNSTJÓNSTRYGGINGU
GLERTRYGGINGU
FOKTR Y GGINGU
BROTTFLUTNINGS- OG
HÚSALEIGUTRYGGINGU
INNBROTSTRYGGINGU
SÓTF ALLSTR Y GGINGU
ÁB YRGÐ ARTR Y GGINGU
HÚSEIGENDA.
í HINNI NÝJU HÚSEIGENDATRYGGINGU ERU SAMEINAÐAR f EINA TRYGGINGU FASTEIGNA-
TRYGGINGAR, SEM HÆGT HEFUR VERIÐ AÐ KAUPA SÉRSTAKLEGA UNDANFARIN ÁR.
MEÐ ÞESSARI SAMEININGU HEFUR TEKIZT AÐ LÆKKA IÐGJÖLD VERULEGA.
KYNNIÐ YÐUR HIN HACKVÆMU TRYGGINGAKJÖR