Morgunblaðið - 11.09.1968, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPT. 1968
Morgunblaðsmenn
hlutu hæsta vinninginn
TÓLF starfsmenn Morgunblaðs-
ins duttu heldur betur í lukku-
þottinn, þegar dregið var í gaer
í Happdrætti Háskóla íslands.
Dregnir voru 2.300 vinningar að
fjárhæð 6.500.000 krónur, en
hæsti vinningurinn kr. 500 þús-
und kom í hlut Milljónar hf,
happdrættisfélags starfsmanna
Morgunblaðsins, á hálfmiða nr.
44647. Þeir áttu röð af miðum og
'fengu einnig báða aukavinning-
ána, samtals kr. 20 þúsund. 100
þúsund krónur komu á heilmiða
tnr. 51519, og voru allir þessir
miðar seldir í umboði Frímanns
Frímannssonar í Hafnarhúsinu.
Páll H. Pálsson hjá happdrætt-
inu tjáðj Mbl. í gær, að mjög
mikið væri um það, að starfs-
félagar innan margra stofnana,
spilafélagar, sauimaklúbbs’konur
o. fl. mynduðu með sér happ-
drættisfélag ag keyptu röð af
miðum. Þannig yrðu margir um
'kostnaðinn við að endurnýja, en
gæftu á hinn bóginn fengið góð-
an skilding í sinn hlut ef heppn-
in væri með.
tslendingar á f iskmjöls-
f r amlei öendaráðstef nu
— Ranghermi að Norðmenn hati boðað
Málverkasýning þeirra Önnu Sigríðar Björnsdóttur og Ragnheiðar Jónsdóttur í nýbyggingu
Menntaskólans hefur verið vel sótt. 400 manns hafa séð sýninguna og 8 málverk selzt. Sýn-
ingunni Iýkur um næstu helgi, en hún er opin daglega til kl 22. Hér sést Anna Sigríður við
tvær af myndum sínum.
„Nýjar aðferðir gagnbylt-
ingarsinna í Tékkóslóvakíu"
til ráðstefnu um lýsissölu
RÁÐSTEFNA Alþjóðasamtaka
fiskmjölsframleiðenda (Inter-
national Association of Fish-
meal Manufacturers) verður
haldin í Bremen í Þýzkalandi
dagna 30. sept. tii 4. okt. n.k.
Þar verða markaðshorfur á mjöli
fyrst og fremst til umræðu, en
einnig á lýsi.
íslendingar eru aðilar að
þessum alþj óðasamtökum og
mtmu senda fulltrúa til Brem-
an-fundarins. Framkvæmdastjóri
Félags ísl. fiskimjölsframleið-
enda, dr. Þórður Þorbjarnarson,
sækir fundinn væntanlega, auk
Sveins Benediktssonar, Val-
garðs Ólafssonar og Jónasar
Jónssonar.
Á ráðstefnunni í Bremen mun
maður að nafni Harry Kriegel
flytja fyrirlestur um lýsisfram-
leiðslu í heiminum og markaðs-
mál. Sami maður mim einnig
flytja fyrirlestur á fundi sam-
taka sem nefnast Intemational
Association of Seed Crushers,
sem haldinn vedður í Bandaríkj-
unum í lok september. Þetta eru
samtök framleiðenda á feitmet-
isvörum til manneldis, fóðurs og
iðnaðar, en framleiðsla á þess
konar feitmetisvörum er talin
nema 37—38 milljónum tonna á
ári, þar af um 1 til 1.1 milljón
tonn af lýsi.
Á ráðistefnu þessara síðast-
nefndu samtaka er lýsissala
m.a. á dagskrá. íslendingar
munu aldrei hafa sótt fundi
þessara samtaka. Það hafa Norð
menn hins vegar gert. Hitt er
alrangt, sem fullyrt hefur verið
í dagblaði í Reykjavík, að Norð-
menn hafi boðað til sérstaks
fundar í Bandaríkjunum til að
ræða markaðshorfur á mjöli og
lýsL
Charles E. Goodell
Republikaninn Chorles E.
Coodell tekur við sæti Kennedys
GERT var ráð fyrir því í
gær, að Nelson Rockefeller
ríkisstjóri í New York ríki,
myndi tilnefna republikan-
ann Charles E. Goodell sem
öldungadeildarþingmann í
stað Roberts heitins Kenn-
adys, en sæti hans í öldunga-
deild bandaríska þingsins
hefur staðið autt, frá þvi hann
var myrtur fyrir þremur mán
uðum. Goodell hefur átt sæti
í fuUtrúadeild bandaríska
þingsins í 9 ár.
Goodell er lögfræðingur að
mennt og nam við Williams
College og Yale-háskóla.
Hann er 42 ára gamall og átti
mikinn þátt í því, að sam-
komulag náðist á flokksþing-
inu á Miami í Florida um
stefnu varðandi Víetnam-
styrjöldina, svo að bæði Nix-
on og Rockefeller gátu fallizt
á hana.
Margir republikanar hafa
áður látið í ljós gagnrýni
vegna þess að þeim hefur
þótt líða of langur tími, án
þess að skipaður yrði nýr
öldungadeildarþingmaðux eft-
ir dauða R. Kennedys. Af
hálfu demokrata hefur þetta
verið gagnrýnt einnig og það
opinberlega.
Áður á Rockefeller að hafa
innt Lindsay borgarstjóra í
New York, eftir því hvort
hamn sem æðsti maður Repu-
blikanafl., næst sér í New
York ríki, vildi taka vfð sem
öldungadeildarþingmaður. —
Gerði Roekefeller þetta sök-
run þess, að hann vildi ekki
bera ábyrgðina á því, að
Lindsay yrði að láta af borg-
arstjóraembættinu, nema því
aðeins að Lindsay væri því
sjálfur fylgjandi. Hefði Lind-
say tekið við sætinu í öld-
ungadeildinni, myndi demó-
kratinn Frank D. O’Connor,
forseti borgarstjómarinnar í
New York, sjálfkrafa hafa
tekið við stöðu borgarstjóra
af Lindsay.
— segir „Pravda", og sakar blöð þar
— um tvöfeldni í fréttaflutningi
Moskvu, 10. sept. AP. —
Sovézk blöð og fréttastofn-
anir halda áfram kvörtunum sín
um yfir því hversu hægt gangi
að koma ástandinu í Tékkóslóv-
akíu í „eðlilegt horf“ en það
hugtak hefur ekki fengizt skil-
greint af sovézkri hálfu.
„Pravda“ málgagn sovézka
kommúnistaflokksins, sakar í
dag blöð og fréttastofnanir í
Tékkóslóvakíu um tvöfeldni í
fréttaflutningi og um að berjast
gegn Moskvu samkomulaginu.
Blaðið segir, að „gagnbylting
arsinnar" í Tékkóslóvakíu séu
nú að taka upp nýjar aðferðir.
Þeir tali hástöfum um „eðlilegt
ástand“ og þykja samþykkir
Moskvusamkomulaginu, en í
reynd séu þeir jafn andvígir því
og áður og berjist hatrammri bar
áttu fyrir því að geta haldið
áfram starfsemi sinni. „Pravda“
segir, að ýmis blöð í Tékkóslóv-
akíu reyni að villa almenningi í
Tékkóslóvakíu sýn með því að
staðhæfa að þar hafi aldrei ver
ið nein gagnbylting og andbylt-
ingar- eða igagnbyltingarsinnar
séu 'hvergi starfandi í landinu.
Þá segir „Pravda“, að blöðin
birti allskyns umsagnir og grein
ar, sem séu í algerri andstöðu
við þær ræður og opiwberu til-
kynningar, sem þau birti jafn-
framt.
f gær var það TASS-frétta-
stofan sem kvartaði sáran undan
því frelsi, sem ennþá ríkti hjá
blöðum og fréttastofnunum Tékkó
slóvakíu og er augljóst, að leið-
togar sovézkra kommúnista ótt-
ast þessa aðila mjög. Tass sagði
m.a., að sum blöð Tékkóslóvak-
íu birtu yfirlýsirigar, sem væru
fjandsamlegar innrásinni og inn
rásarliðinu, önnur blöð sveipuðu
igagnrýni sína einhversonar
blæju, sem þó allir sæju gegnum.
Sagði Tass, að nauðsynlegt væri
að blöðunum yrði stjómað af
Málning hf. reynir
útf lutning á málningu
— íslenzk málning á fœreyskum markaði
MÁLNING HF heíur nýlega sent
á markað í Færeyjum málningu
fyrir u. þ. b. 20 þúsund danskar
kr. Kolbeinin Pétursson, for-
stjóri, er nýfeominn heim frá
Færeyjum, þar sem hann kann-
aði markaðsmöguleika og verð
og gæði þeirrar málningarvöru,
sem þar er seld. f ljós kom að
íslenzk málning frá Málningu er
fyllilega sambærileig innfluttri
Lýst eftir
ökumönnum
MAÐUR handleggsbrotnaði, þeg-
ar hann varð fyrir Volkswaigen-
bil á Vesturlandsvegi, skammt
austan við Korpu, um klubkan
16:00 í fyrradag. Rannsóknarlög-
reglan biður konuna, sem ók
Volkswagenbílnum, að gefa sig
fram. Konan nam staðar við ó-
happið og ræddi við manninn, en
hann taldi sig með öllu ómeiddan
og ófe konan þá brott.
Ekið var á Y-583, sem er grá-
blár Daf, þar sem bíllinn stóð á
stæði við Tryggvagötu í gær-
morgun. Ramnsóknarlögreglan
biður ökumanninn, sem bílnum
óik, svo og vitni að gefa sig fram.
málningu frá Danmörku, Noregi
og Þýzkalandi, miðað við verð
og gæði.
Þegar Mbl. innti Kolbein
frétta af útflutningstilraunum
'fyrirtæfeisins, sagði hann, að
]þeim hefði þótt tilhlýðilegt að
ireyna fyrst slík vðskipti við sem
nálægaStar og skyldastar þjóðir.
Kolbeinn lagði áherzlu á, að á
þeim útflutningsviðskiptasviðum
sem væri verið að reyna í fyrsta
isimn, yrði að fara varlega og
feynna sér viðskipti, þar sem
ýmis vandamál kærnu til greina.
Fyrir Færeyjamarkað kvað
Kolbeinn helzt um að ræða
iskipamáliningu, utanhúss olíu-
málningu á járn og tré og svo
,spred satin málningu og voru
iþessar málningantegundir í send-
pingunni, sem er komin á markað
í Færeyjum. Umboðsmaður Máln
ingar hf í þessum útflutningi er
Agnar Samúelsson, kaupmaður í
Kaupmannahöfn.
RITSTJÓRIM • PREIMTSMIÐJA
AFGREIÐSLA»SKRIFSTOFA
5ÍMI 10*100
„hreinum höndum“, eins og frétta
stofan komst að orði.
Tass hefur ennfremur birt um
mæli nokkurna Sovétleiðtoga
um innrásina. M.a. hafði hún eft
ir Alexander Shelepin í tilvitn-
un í ræðu, sem hann hélt í
sendiráði Norður Kóreu í Moskvu
að herlið kommúnistaríkjanna í
Téfckóslóvakíu mundi „teiða hina
göfugu baráttu sína til sigurs“.
Á hinn bóginn hafa sovézk
blöð og fréttastofnanir ekki
minnzt á það einu orði, að de
Gaulle forseti Frakklands, hafi
fordæmt innrásina í Tékkóslóv-
akíu. Tass birti einungis stutta
frásögn af blaðamannafundi
hans og ræðu og blöðin birtu
þá sömu frásögn. Þar var ekkert
minnst á Tékkóslóvakíu.
Þá berast þær fregnir frá Ung
verjalandi, að menntamenn þar í
landi hafi sent miðstjórn komm-
únistaflokksins orðsendingu þar
sem mótmælt var aðild Ungverja
lands að innrásinni í Tékkóslóv-
akíu. Orðsending þessi mun vera
tilefni greinar, er í dag birtist
í blaðinu „Magyar Memzet", þar
sem sagði, að atburðirnir í Tékkó
slóvakíu hefði leitt til átaka með
al ungverskra menntamanna, en
vafalaust mundu skoðanir
margra þeirra breytast, er þeir
hefðu fengið nákvæmari upplýs
ingar um það, sem þar gerðist og
skýringar á því hversvegna „að
stoð bræðraþjóðanna við Tékkó
slóvakíu var nauðsynleg." Blað
ið segir að meirihluti ungverskra
menntamanna, sem hafi gengið
gegnum „gagnbyltinguna" í Ung
verjalandi 1956 og þá andlegu
ringulreið, er ríkti þar á eftir,
geri sér grein fyrir því, aðmenn
verði að „viðurkenna stjórnmála
legar staðreyndir."
Greiddi 60
þúsund kr.
út oð kvöldi
Seyðisfirði, 10. sept.
jí GÆRKVÖLDI er söltun'
lauk úr Óskari Halldórssyni, ^
! greiddi Ólafur Óskarsson, |
söltunarlaunin jafnóðum og k
i stúlkurnar skiluðu merkjun-
I um, samtals 60 þúsund krón-
| ur. Þetta kom sér vel, þar i
sem hér var aðallega um,
‘ vinnu húsmæðra og unglinga'
I að ræða, sem litla atvinnu'
| hafa haft í sumar. Allir fóru I
ánægðir heim, en breiðast 1
'brosti Ólafur eigandi síldar-J
kinar, og Söderman, kaup- ‘
I andinn. — Sv. G.