Morgunblaðið - 11.09.1968, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. SEPT. 1968
27
Meö ástarkveoju til Rússlands
ÞESSI bréf eru frá sovézk
um hermönnum í Tékkó-
slóvakíu og skrifuð til vin-
kvenna þeirra heima. —
Bæði eru rituð í upphafi
hernámsins. Af tilviljun
komust bréfin í hendur
Tékkóslóvaka og í sl. viku
var þeim komið til starfs-
liðs brezka blaðsins Ob-
server í Prag. Bréfin eru
hér birt í lauslegri þýð-
ingu:
Kveðjur úr fjarlægu landi:
heil og sæl Nína! Hann Yuri
þinn sendir þér kveðjur úr
fjarlægð. Fyrst er þá £rá því
að segja, að ég fékk bréf þitt
ag þakka fyrir það af öllu
hjarta. Þa'ð kom að néttu til.
Nú höfum við gengið frá öll-
um útbúnaði okkar, og ég gef
mér tíma til að svara þér.
Nina, þú minnist á mynd af
þér. Ég hefði ekkert á móti
því að sjá mynd af þér og
vinkonu þinni. Eitt og hálft
ár er nú liðið, síðan ég hef
fengið nokkurt frí, svo að víst
væri mér ánægja að því að
sjá mynd af þér.
Nina, reyndu að hugsa þér,
að ég er langt inni í skógi
og fæ naumast notið svefns.
Við höfum búið vandlega um
farangur okkar og ég get að-
eins tekið föggur mínar upp
aftur með leyfi herforingj-
ans, svo að ég get ekki náð
í myndaalbúmið mitt. En ég
er lífs og mér llður vel, og
ég vona að þér Hði líka veL
Ég reyni að gera skyldu
mína. Núna erum við hér í
skóginum. Þeir segja, að við
förum brátt að hugsa til
hreyfings, ekki veit ég hvert.
Það var fluttur fyrirlestur
um það, hvers vegna við
komum hinigað. Grechko,
marskálkur, talaði tll her-
deildarinnar og hann sagði
að við ættum að fara inn í
Tékkóslóvakíu og mættum
ekki gera ráð fyrir, að okk-
ur yrði fagnað með blóma-
regni. Og hvað tekur við,
fyrst svo er? Það er ekki
aúðvelt að gera sér það í
hugarlund. Það er ekki tekið
út með sitjandi sældinni að
gera skyldu sína.
Ég hitti Mischa í gær. Við
reyktum og töluðum saman
stundarkorn. Ástandið er
annarlegt og þrungið spennu.
Nina, það er gott, að þú þarft
ekki að hugsa neitt að ráði.
Við höfum verið að hugsa um
þetta allt með sjálfum okk-
ur á löngum dimmum nótt-
um, og við þráum það eitt að
komast heim. Nina, ég skil
ekki, hvers vegna húsnúmer-
ið er 42 en ekki 47 úr því að
nýja húsið er reist við hUð-
ina á því gamla. Kveðjur til
móður þinmar, föður þíns og
Nötshu. Þinn YurL
Kveðjur úr fjarlægu landi:
heil og sæL Tonichka! I
fyrsta iagi ætla ég að láta
þig vita, að bréf þitt var að
berast mér í þessum svifum
og nú sit ég á mótorhjólinu
og skrifa þér. Þú segir, að
bréfin þín séu ekkert
skemmtileg, en eins og nú
standa sakir er mér ekkert
kærara en bréf frú stúlku.
Grechko marskálkur kom
til okkar í vikunni og úr-
skýdði allt fyrir okkur, bæði
hvernig og hvers vegna mál-
in væru á þennan veg, og
nú er þetta ljósara en áðuf.
Bara að þú gætir skilið það,
Tonya, hvers konar skyldu
við verðum að rækja? Ég hef
alltaf skrifað, að allt væri í
himnalagL en í rauntnni er
það aHs ekki. En mér reyn-
ist erfitt að skrifa um það og
ég segi þér nánar frá því, þeg
ar ég sé þig. Seinna. Við er-
um komnir 15 kílómetra inn
fyrir landamæri Tékkósdó-
vakíu og höldum ftríinni
áfram lenigra inn í landið.
Enn hefur ekki komið til tals
áð láta staðar numið. Hing-
að til hafa bréfin til mín ver-
ið opnuð, en ég ætla að
reyma hvað ég get til að svo
verði ekki gert, næst þegar
ég fæ bréf.
Vilja ráðstefnu með lýð-
ræðisöflum Alþýðubl.
HANNIBAL Valdimarsson, for-
maður Alþýðubandaiagsims,
skýrði frá því í sjónvarpsviðtali
í gærkvöLdL að fulltrúamir,
sem klufu sig úr kjördæmisráði
Alþýðubandalagsins á Vestfjödð-
um, heföu farið þess á leit við
sig, að haldin yrði ráðstefna
með öllum lýðræðisöflunum inn
Ræða við áhöfn
Pueblo
í fréttum sem borizt hafa til
Japans segir, að stjórn Norður-
Kóreu hafi ákveðið að leyfa
nokkrum erlendum blaðamönn-
um, sem nú eru á ferðalagi um
Norður-Kóreu, að hitta að máli
áhöfn bandaríska njósnaskips-
ins „Pueblo“ Fréttamennimir eru
frá sovézku fréttastofunni Tass
ýmsum blöðum annarra kommún
istaríkja og ennfremur nokkrir
frá vanþróuðu ríkjunum. Þeir
eiga að tala við áhöfnina á
fimmtudaginn, 12 september en
ekki er vitað hvar viðtalið fer
fram.
1 -------------------
- LÆKNAR OG...
Framliald af bls. 1
frá Tékkóslóvakíu sem hafa ósk
að eftir fá framlengingu dvalar
leyfis með það fyrir augum að
bíða átekta og sjá hverju fram
vindur heima fyrir.
Þá segir í frétt frá Oslo, að
SAS hafi að nýju itekið upp
flugferðir til Prag, en þær hafa
legið niðri frá þvi innrásin var
gerð í landið. í fréttum AP seg
ir hinsvegar, að Pan American
muni ekki taka að nýju upp
flugferðir tii Prag fyrr en fé-
lagið hafi fengið betri trygginig-
ingar fyrir öryggi flugvéla og
farþega.
Ford afþakkaði
Detroit, 10. sept. AP
Talsmaður Ford bifreiðaverk-
smiðjanna staðfesti í dag, að
Henry Ford n, forstjóra fyrir-
tækisins, Ford Moter Co, hefði
verið boðið að taka sæti í sendi
nefnd Bandaríkjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum, en hann hefði
hafnað þvi boði. Ekki vildi tals
maðurinn segja, hver hefði gert
Ford þetta boð, en talið er, að
það hafi verið Johnson, forseti.
an Alþýðubandalagsinis áður en
landsfundur bandalagsins verð-
ur haldinn eftir 1—2 mánuði.
Þá skýrði hann frá þvL að til
landsfundarins hefði verið boðað
án samráðs við sig.
MO.SKVA, 6. sept. — NTB. —
Aflýst hefur verið sýningum
Bolshoi-ballettsins, sem áætlaðar
höfðu verið í París í nóvember
n.k., að því er góðar heimildir
hér herma. Fylgir það fréttun-
um að ákvörðun um þetta hafi
verið tekin fyrir innrásina í
Tékkóslóvakíu og valdi henni
mikill kostnaður.
i .______
- TÉKKÖSLÓVAKÍA
Framhald af hls. 1
• Áður hafði verið skýrt frá
því að þeir Oldrich Cemik
forsætisráðh. Tékkóslóvakíu og
Alexei Kosygin, forsætisráðherra
Sovétríkjanna hefðu undirirtað
komulag þar sem kveðið er á um
samvinnu ríkjanna á ýmsum svið
um efnahagslífs. Ekki hefur ver
ið opinberlega tilkynnt hvað í
samkomulaginu felst, en talið,
að þar sé gert ráð fyrir sovézku
láni til Tékkóslóvakíu, sölu á
jarðgasi þangað frá Sovétríkj-
unum og samvinnu ríkjanna
um að leggja gasleiðslur til
Tékkóslóvakíu um sovézkt
land. Tass fréttastofan seg-
ir í dag, að samkomulagið sé til
„allmargra ára,“ en skýrir ekki
nánar frá því.
Cernik kom til Maskvu í morg
un ásamt tveimur efnahagssér-
fræðingum, Frantisek Hamouz
varaforsætisráðherra og Valcalv
Vales, ráðherra þeim er fjallar
um utanríkisviðskipti. Var talið,
að þeir mundu m.a. ræða það
tjón, sem efnahagslífið í Tékkó
slóvakíu varð fyrir af völdum
innrásarinnar, en orðrómur hef
ur verið uppi um, að Sovétmenn
hafi boðizt til þess að greiða
bætur, sem svari helmingi áælt-
aðs tjóns. „Rudo Pravo“, mál-
agn kommúnistaflokksins í Tékkó
slóvakíu hefur sagt, að aðeins
fyrsta hernámsvikan hafi valdið
tjóni, er nemi 227 milljónum doll
ara. Blaðið kvartaði einnig yfir
því, að Sovétríkin og bandalags
ríki þeirra í deilunni við Tékkó
slóvakíu hefðu ekki staðið við
skuldbindingar sínar um að sjá
Tékkóslóvakíu fyrir ýmiss kon
ar hráefnum.
Vasilí Kuznetsov, aðstóðar ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
aem verið hefur í Tékkóslóvakíu
og rætt við ráðamenn þar hélt
heimLeiðis í dag. Síðast ræddi
hann við Gustaf Husak, leiðtoga
kommúnistaflokksins í Slóvakíu
og var sagt, að þeim viðræðum
loknum, að þær hefðu verið
„hjartanlegar“. Hefur það gefið
byr undir vængi bollaleggingum
um að þeir hafi a.m.k. fundið
sameiginlegan viðræðugrundvöll
og Moskvustjórnin ætli sér e.t.v.
að stuðla að því Husak fái meiri
völd en hann hefur nú.
Husak hefur í ræðum sínum
m.a. lagt til að gerðar verði öfl
ugri ráðstafanir en til þessa, til
að koma í veg fyrir að flótta-
menn komist úr landi og hann
er hinn eini forráðamanna Tékkó
slóvakíu sem hefur talað um
„andbyltingaröfl" í landinu.
Fréttir frá landamærum Tékkó
slóvakíu og Austurríkis herma,
að af hálfu Tékkóslóvakíu sé
nú verið að herða eftirlitið þar
og hafi landamæraverðir skot-
ið af vélbyssum á þrjá flótta-
menn í gær. Jan Pelnar, hinn
nýju innanríkisráðherra lands-
ins, sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær, að gerðar yrðu
allar nauðsynlegar ráðstafanir
til þess að halda uppi friði og
lögum í landinu, með því móti
gætu Tékkóslóvakar sannað her
mönnum Varsjárbandalagsins, að
það væri óþarfi íyrir bandalag-
ið að hlutast til um málefni
landsins.
Annar forystumaður Tékkósló
vaka og einn af helztu endur-
bótasinnum landsins, Zdenek
Mlynar, hefur birt grein í „Rudo
Pravo“ þar sem hann segir að
til þess að unnt sé að koma
ástandinu í landinu í „eðlilegt
horf“, verði að tryggja mönnum
almenn réttindi. Vísar hann á
bug fullyrðingum sovézkra blaða
um að 40.000 andbyltingarsinnar
séu nú í Tékkóslóvakíu og nauð
synlegt sé að þagga niður í þess
um mönnum. Mlynar virði-st með
þessari grein vera að reyna að
kveða niður ótta manna um meiri
háttar lögregluaðgerðir af hálfu
Sovétmanna, því að hann segir,
að öll brot, sem framin séu ag
verði í Tékkóslóvakíu, muni sæta
meðferðar tékkóslóvakískra dóm
stóla og með þau verði farið
samkvæmt logum Tékkóslóvakíu.
Lætur Mlynar að því liggja, að
hann muni fremur segja af sér
embætti en hverfa frá grund-
vallarhugmyndum endurbóta-
sinna um lög og rétt.
Þá birtist í Prag í dag yfir-
lýsing, sem einnig virðist til þess
ætluð að sefa landsmenn. Var
þar að verki Otakar Pohl, for-
stöðumaður ríkisbankans í land
inu, sem visaði á bug hverskyns
orðrómi um breytingar í pen-
ingamálum. Orðrómur þar aðlút
andi hefur verið allsterkur und
anfarið. Hafði þar sín áhrif, er
birt var um það opinber yfir-
lýsing að peningaviðskipti hefðu
aukizt verulega fyrstu vikur inn
rásarinnar. Ennfremur hefur
svartamarkaðsgengi tékkóslóv-
akísku krónunnar gagnvart doll
ara læbkað verulega og loks
hafði það sín áhrif, þegar í ljós
kom„ að hermennirnir í inrrrás
arliðinu höfðu mieðferðis nýja
tékkóslóvakíska bankaseðla.
Fjáumál hafa verið mikið rædd
í Tékkóslóvakíu síðustu dagana.
m.a. birtist í „Rudo Pravo“ við-
tal við Vaclav Vales, áður en
hann fór til Moskvu, þar sem
hann sagði að tjónið, sem Tékkó
slóvakar urðu fyrir af völdum
innrásarinnar, komi aðallega
fram í því að þeir hafi ekki
getað staðið við vörupantanir til
Vesturlanda og það tjón verði
tæpast eða ekki bætt. Viðskipt-
in við Sovétrikin hefðu hinsveg-
ar gengið nokkurnveginn eðli-
lega, að undanskildum nokkrum
dogum. Valav sagði að það væri
Tékkóslóvakíu lífsnauðsyn að
halda áfram viðskiptasambandi
við Sovétríkin.
- NATO
Framhald af bls. 1
herra Bandaríkjanna, Clark
Clifford, hafi sagt á fundi með
nokkrum þingmönnum fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings, að at-
burðirnir í Austur-Evrópu muni
ekki krefjast aukningar í liði
NATO í Evrópu eða aukinna fjár
útláta Bandaríkjamanna vegna
herliðs þar.
Þá hefur NTB eftir heimildum
í aðalstöðvum NATO í Brússel,
að tæpast komi til herliðsaukn-
ingar bandalagsins vegna atburð
anna í Tékkóslóvakíu. Hefur
fréttastofan eftir heimildarmönn
um sínurn þar, að forystumenn
bandalagsins telji að innrásarher
Varsjárbandalagsríkjanna hafi
talið rúmlega tvÖ hundxuð þús-
und manns en ekki sex hundruð
þúsund, eins og gizkað hefur
verið á.
f sömu fregn segir, að Var-
sjárbandalagið ráði nú yfir 64
herfylkjum í Evrópu, en af þeim
megi sennilega í bili draga frá
sex herfylki Tékkóslóvaka. Atl-
antshafsbandalagið hafi hinsveg
ar 22 herfylki. Þá segir, að þær
styrkleikabreytingar, sem orðið
hafi við Lnnrásina í Tékkósló-
vakíu séu þær helztar, að herir
Varsjárbandalagsins hafi nú feng
ið betri aðstöðu, ef til árásar
kæmi. Áður hafi NATO getað
reiknað með nokkurra daga vij5-
vörunartíma en sá tími hafi nú
stytzt. Það sem því helzt
komi til greina að svo stöddu
sé að útbúa betur en áður við-
vörunarkerfi bandalagsins og
efla ýmiss konar tæknibúnað her
liðs þess.
NTB segir, að ástand mál-
anna í Austur-Evrópu hafi að
áliti forystumanna NATO dreg-
ið verulega úr möguleikum þess
að minnka spennuna í Evrópu.
og auka vinsamleg samskipti
ríkjaheildanna í Vestri og
Austri. Á hinn bóginn sé ekki
um að velja neina aðra stefnu
en þá að leitast í sífellu við að
draga úr spennunni því að ekk-
ert land í Vestur-Evrópu óski
að hverfa aftur til ára kalda
stríðsins, eins og það var verst.
I; -----►----------
- VIETNAM
Framhald af bls. 1
ingaferðalagi undanfama vibu,
m.a. um Texas og Kaliforníuríki,
þar sem honum var fagnað af
hundruðum þúsunda, en hann
tók sér stutta hvíld nú um helg-
ina. Humphrey hélt hins viegar
áfram kosningaferðalagi sínu eft
ir ræðuna í Philadelphiu til Den
ver í Kolorado og síðan til Los
Angeles, án þess þó að hann
hlyti þar betri móttökur, svo
neinu næmi, en í Philadelphiu.
Kosningabaráttan hefur ann-
ars vakið tiltölulega litla at-
hygH enn og svo kann vel að
fara, að það sem frambjóðend-
umir leggja mesta áherzlu á nú,
verði gleymt þegar kosningam-
ar fara fram í nóvember. Sama
má segja um skoðanakannanir
og tspádóma nú um úrslit kosn-
inganna.
Ef kosningamar yrðu látnar
fara fram nú, er talið nær víst,
að Nixon myndi sigra, en það
eru enn eftir 8 vikur til kjðr-
dags, og margt getur gerzt þang
að til. Báðir fylgjast þeir Hump
hrey og Nixon vel með því, sem
f&eorge Wallace aðhefst, en
hann getur haft úrslitaáhrif á
gang kosninganna fyrir þá báða.
Nafn hans verður á kjörseðlin
um í ýmsum ríkjum bæði í vest-
ur- og austurhluta Bandaríkj-
anna. Síðustu skoðanakannanir
leiða í ljós, að hann myndi nú fá
Um 20prs atkvæða og báðir leit
ast þeir Humphrey og Nixon við
að koma i veg fyrir, að hann
taki atkvæði frá sér.
Landissamband faglærðra verka
manna í Bandaríkjunum. AFL-
CIO, hefur lagt fram mikla fjár
muni í kosningasjóð Humphreys
og beitir sér mjög fyrir kjöri
hans. Leiðtogar sambandsins eru
síður en svo vissir um, að Hump
hrey muni sigra Nixon og hefur
viðleitni hins síðastnefnda í þá
átt að vinna til sín fylgi verka-
manna valdið kvíða á meðal for-
ystumanna AFL-CIO. Sá stuðn-
ingur, sem George Wallace virð-
Ist njóta á meðal lágt launaðra
verkamanna í stórborgunum, virð
íst ag benda til þess, að mikill
fjöldi atkvæða, sem demókratar
gátu verið vissir um áður, eru
nú ótrygg.
f undanförnum forsetakosning
um hefur það verið nokkuð ljóst
hvaða frambjððendum blökku-
menn, ýmis þjóðabrot og faglærð
ir verkamenn myndu ljá stuðn
ing sinn. Demokratar hafa allt-
af verið vissir um stuðning meiri
hluta þessa fólks, en nú óttast
þeir, að mikill hluti blökkufólks
munisitja heima á kjördag og að
mikill fjöldi faglærðra verka-
manna muni greiða Wallace at-
kvæði sitt. Ennfremur óttast dem
ókratar að atkvæði þjóðabrota
muni skiptast nú á milli þeirra
Humphreys og Nixons.
Kennedy styður Humphrey
Edward Kennedy, öldunga-
deildarþingmaður lýsti því yfir
í ræðu, sem hann flutti í Spring
field í Massaohussetts í gær-
kvöldi, að hann styddi eindneg-
ið frambjóðendur Demokrata-
flokksins til forseta ag varafor-
seta. Sagði Kennedy, að demo-
krataflobkurinn hefði valið
beztu mennina, sem kostur var á
með því að tilnefna Humphrey
sem forsetaframbjóðanda sinn og
Edward Muskie öldungadeild-
arþingmann sem frambjóðanda
til varaforsetaembættisins.