Morgunblaðið - 19.09.1968, Síða 11
MORGU'NBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. SEPT. 196«
11
- LEIKLIST
Framhald af bls. 8
hann, en í þessari uppfærslu er
hann mjög veigalítill og skilur
næstum ekkert eftir í minnirugu
áhorfandans, þótt hann sé þýð-
ingarmikill áhrifavaldur í at-
burðarás leiksins. Ég fæ heldur
ekki betur séð en að verkið sé
þannig frá höfundarins hendi, að
fóma yrði því sem bezt tekst á
sýningunni, þ.e.a.s. einhverju af
kímfnnni, til þess að draga skýr
ar fram þennan efnisþátt, og að
með því móti mundi allt fara út
um þúfur. Þetta er eihkum
vegna þess að ekki er um neina
tvöfeldni að ræða í textanum,
— kímnin er ekki tregablandin
eða harmur skopkenndur, held-
ur er þetta tvennt greinlega að-
skilið og skiptist á.
Enn er þó ótaluð ein mesta
prýði sýningarinnar, sem er
leikmynd Boris Aronsons. Hún
er ekki einasta afburðafalleg og
í alla stað smekkleg, heldur ein-
hver hin snjallasta að notagildi
fyrir verk með mörgum og tíð-
um sviðsbreytingum, sem ég hef
nokkru sinni séð. Ef íslenzka
leiktjaldamálara er ætlað að
fást við að gera leikmynd við
„Fiðlunginn", væri ekki úr vegi
fyrir Þjóðleikhúsið að vefja
teygjurnar utan af buddunni og
senda hann til London að sjá
verk Aronsons. Annan mikils-
verðan þátt má stjórn leikhúss-
íns ekki vanrækja. Þar hef ég í
huga stjóm dansatriða. Þjóðleik
Wisið hefur oft vanmetið hlut
,,kóreógrafs“ við uppsetningu
söngleikja og annarra leikhús-
verka með hópatriðum. Þó hef-
ur og verið vel til vandað
stundum, eins og til dæmis við
uppfærslu „Stöðvið heiminn“,
þegar leikstjórinn, Ivo Kramér,
var fyrrverandi ballettdansari
og afbur’ðasnjail „kóreógraf“.
Hvort sem vel tekst til um leik
í einstökum hlutverkum „Fiðl-
ungsins" í Þjóðleikhúsinu eða
ekki, hlýtur það að vera eitt
höfuðskilyrði fyrir því að sýn-
ingin verði með einhverjum
myndarbrag, að fenginn verði
að sæmilegur ,,kóreógraf“, því
að öllum mönnum, nema
fcannski að undanskildum for-
ráðamönnum Þjó’ðleikhússins, er
fyrir löngu orðið ljóst að enginn
slíkur er í hópi fastráðins starfs
fólks þar.
Líklega hefur það oft komið
fyrir gagnrýnendur, og það jafn
vel hina yngstu og óreyndustu
þeirra svo sem sjálfan mig, að
setja siig á of háan hest í af-
stöðu til söngleikja. Stjórnend-
um leikhúsa er oft legið á hálsi
fyrir að velja of mikið léttmeti
(hvað sem það orð kann a!ð
merkja). En ég gæti trúað að
þessi reiði í garð forráðamanna
leikhúsa ætti stundum fremur
að beinast gegn meðhöndlun
vérkanna en vaii þeirra. Ef leik-
TIL SÖLU!
CHEVROLET STATION ’63 í ÚRVALS LAGI
TIL SÝNIS OG SÖLU.
BÍLASALAN
ÁRMÚLA 18 — SÍMI 8 44 77.
Sölukonur
Sjálfstæðisflokkurinn óskar eftir duglegum sölukon-
um til að selja happdrættismiða úr bifreiðum.
Upplýsingar í síma 17100, eða í skrifstofum Sjálf-
stæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu í dag.
Hainfirðingar
RÝMINGARSALA. Verzlunin hættir.
\LLT Á AÐ SELJAST.
Verzlun Ragnheiðar Þorkelsdóttur
Vesturbraut 13.
VOLVO
EIGENDUR
VarahlUtaverzlunin verður lokuð á föstudag og
laugardag (20/9 og 21/9).
GUNNAR ÁSGEIRSSON HF.
Suðurlandsbraut 16, sími 35200.
Vandað raðhús
(um 500 rúmmetrar) í Laugameshverfi til sölu milli-
liðalaust á hagstæðu verði ef samið er strax.
Efri hæð: 4 svefnherb. bað og svalir. Neðri hæð: stofur,
eldhús, gestasalerni, þvottahús og geymsla. Nýjar
harðviðarinnréttingar, nýmálað og teppalagt. Bílsikúrs-
réttur. Hitaveita. Fullfrágengin lóð. Laust strax.
Upplýsingar í síma 31269 í dag.
stjórum og leikendum hug-
kvæmist og tekst að draga fram
skoplegar og sorglegar hliðar
lífsins á mannlegan hátt, þá er
óneitanlega um listsköpun að
ræða, sem leiðir af sér jákvæða
reynslu áhorfandans. Sýning
Leikhúss henmar hátignar á
„Ffðlungi á þakinu“ hefur auðn-
azt að gera meira en að stytta
fólki stundir, hún hefur losað
um tilfinningar þeirra hundruða
þúsunda manna, sem hana hafa
séð, sýnt því framandi umhverfi
Gyðingasamfélags fyrir mörgum
áratugum, en um leið gert því
Ijóst, mitt í öllum skringileg-
heitunum, að sorgir persónanna
og gleði eru ekki eins fjarlétgar
eðli þess og staður og stund
kunna að benda til. Þess vegna
hefur sýningin tekizt.
Örnólfur Arnason.
Hiíseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Bergstaðastr. lla.
Sími 15659. Opið kl. 5—7 alia
virka daga nema laugardaga
Sendisveinn
óskast eftir hádegi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140
Kennara vantar
að Barnaskóla Ólafsfjarðar. íbúð fyrir hendi.
Upplýsingar veitir undirritaður fimmtudag, föstudag
og laugardag milli kl. 6—8 að kvöldi í síma 41768.
INGÞÓR INDRIÐASON,
formaður fræðsluráðs Ólafsfjarðar.
ALLT GENGUR
(hvar sem er og hvenær sem er
- við leik og störf - úti og inni
og á góðra vina fundum -)
BETURMEÐ COCA-COLA
drykkurinn sem hressir bezt, léttir skapið
og gerir lífið ánægjulegra.
FRAMLEITT AF VERKSMIÐJUNNI VÍFILFKLL f UMBOCI THE COCA-COLA EXPORT OORPORATIOM