Morgunblaðið - 01.10.1968, Page 1
32 SIDUR
Humphrey í útvarpi og sjónvarpi:
BOÐAR STODVUN LOFT-
ÁRÁSA Á N-VIETNAM
— nái hann forsetakjöri
Washington 30. sept. NTB.
Hubert Humphrey flutti út-
varps- og sjónvarpsræðu í kvöld,
þar sem hann gerði grein fyrir
stefnu sinni í Vietnamstyrjöld-
inni. Hann kvaðst reiðubúinn að
stöðva ailar loftárásir á skotmörk
í Norður Vietnam, ef hann yrði
kjörinn forseti, að því tilskildu
að kommúnistar virtu hlutlausa
beltið milli Suður og Norður-Vi-
etnam. Humphrey kvaðst mundu
gera þetta yrði hann kjörinn,
þar hann liti svo á að þetta gæti
orðið til þess að friður kæmist
á í Vietnam, en að sjálfsögðu
yrðu kommúnistar að færa sönn
ur á — í orði eða á borði —
að þeir væru fúsir til að virða
lilutlausa beltið.
Humphrey sagðist gera það að
tillögu sinni að Sameinuðu þjóð-
irnar eða einhver önnur alþjóða-
samtök hefðu eftirlit með vopna
hléi í landinu, og myndu þær
bera ábyrgð á að allt erlent her-
lið yrði á brott úr landinu. Vara-
forsetinn sagði að lykill að raun-
hæfri lausn væru kosningar, sem
öllum væri frjáls þátttaka í, og
þetta ætti einnig við um þjóð-
frelsishreyfinguna.
Samþykkt brezka Verkamannaflokksins:
Lögin um kaup- og verð-
bindingu falli úr gildi
lllikið áfall fyrir stjórn Wilsons I áður lýst því yfir að stefnunni
í launa- og verðlagsmálum verði
anna er enganvegin bindandi ekki breytt undir nokkrum
fyrir ríkisstjórnina, sem hefur I kringumstæðum.
Fylgi Humphreys
Blackpool, 30. sept. AP-NTB.
Á LANDSFUNDI brezka verka-
mannaflokksins í dag var tillaga
um að fella niður kaup- og verð
bindingarlög rikisstjórnarinnar
samþykkt með miklum meiri-
hluta atkvæða. Það voru flutn-
ingaverkamenn sem báru þessa
tillögu fram, en þeir mynda
sterkasta verkalýðsfélag Bret-
lands. Talið er að þetta þing
verði Harold Wilson, forsætisráð
ingi og það væri vandamálið
efni, sem hann hefur nokkru
sinni fengizt við.
Bæði Roy Jenkins, fjármála-
ráðiherra, og Barbara Castle, at-
vinnu- og framleiðslumálaráð-
herra, reyndu að tala um fyrir
þingfulltrúum. Jenkins sagði, að
ef brezka þjóðin legði hart að
sér í átján mánuði í viðbót
myndu nýir og betri tímar fram-
undan. Bretar hefðu alltof lengi
lifað á lánsfé frá öðrum þjóðum
og þegar komið væri að skulda-
skilum yrðu þeir að leggja hart
að sér.
Bárbara Castle sagði, að það
gæti verið undir þessu þingi
komið hvort hægt væri að bjarga
Verkamannaflokknum frá klofn-
anna er enganveginn bindandi
sem mest ætti að ræða. Hún
sagði, að í tíð Wilsons hefðu
grunnlaun hækkað hvert einasta
ár, án þess að framleiðslan ykist,
og að það væri engin lausn að
hækka skatta í stað verðbinding
arinnar eins og Frank Cousins,
formaður flutningavierkamann-
anna hefði stungið upp á.
Þessi samþykkt þingfulltrú-
Herferð gegn
bítlahári
Bagdad, 30. sept. AP.
ÍRAK hóf herferð gegn bítla-
hári í dag. Lögregluistjórinn
hér í borg sagði í yfirlýsingu,
að ungir menn sem hefðu sítt
hár gætu átt það á hættu að
vera handteknir, snoðaðir og
veitt tilsögn í mannasiðum.
Hann bætti því við, að frarn-
koma síðhærðra unglinga
væri í andstöðu við siði
Araba.
Washington 30. sept. AP-NTB.
NÝJUSTU skoðanakannanir,
sem hafa verið gerðar í Banda
ríkjunum um fylgi frambjóð
endanna þriggja til forseta-
kjörs sýna, að Hubert Hump-
hrey, varaforseti, og forseta-
efni demókrataflokksins hefur
Búdapest:
enn misst fylgi. Samkvæmt
þessum sko'ðanakönnunum hef
ur Richard Nixon 43% fylgi,
Humphrey 28% og Geong
Wallace 21%. Hefur fylgi
Humphreys rýrnað um 3 pró-
sent og fylgi Wallace aukizt
um tvö prósent.
Fundur 46 kommúnista
flokka hafinn
Búdapest 30. sept. NTB-AP.
FULLTRÚAR 46 kommúnista-
flokka hófu fund með sér í Búda
pest í sær, og er aðalverkefni
fundarins að undirbúa kommún
istafund þann, sem áformað er
að halda í Moskvu í nóvember.
Fundurinn er haldinn fyrir lukt
um dyrum, en stjórnmálafrétta-
ritarar segja, að helzta mál hans
sé að fjalla um framtíð alþjóða-
hreyfingar kommúnista eftir inn
rásina í Tékkóslóvakíu.
NTB-fréttastofan kveðst hafa
það eft.ir áreiðanlegum heimild-
um, að margir fulltrúar vest-
rænna kommúnistaflokka á Búda
pestfundinum séu þeirrar skoð-
unar að Moskvuráðstefnunni skuli
frestað þangað til umræðumar
um Tékkóslóvakíu hafi hjaðnað.
Talið er að fulltrúar Sovétríkj-
anna rísi öndverðir gegn þeirri
hugmynd.
Engin opinber tilkyrining var
gefin út um setningu fundarins
og ekki er gert ráð fyrir að
neinar orðsendingar verði gefnar
út um störf fundarins, fyrr en
honum lýkur.
Kurt Kiesinger, kanzlari Vestur-Þýzkalands, tók á móti de
Gaulle, Frakklandsforseta, er hann kom til Bonn á laugardag, til
viðræðna við vestur-þýzku stjórnina.
Varaði við
aðild Breta
—- að Efnahagsbandalaginu
Bonn, 28. sept. AP.
DE GAULLE, Frakklandsfor-
seti hélt heimleiðis í dag eftir
tveggja daga viðræður við Kurt
Kiesinger, kanzlara Vestur-
Þýzkalands. De Gaulle varaði
kanzlara Vestur-Þýzkalands við
því að Efnahagsbandalagið gæti
leystst upp ef aðilar að því
reyndu að fá aðild Breta, án
Frakka.
Hann sagði að Frakkland
myndi harma þetta, en það væri
nægilega sterkt til að standa á
eigin fótum. Kiesinger fullviss-
aði forsetann um að Vestur-tÞjóð
verjar hefðu ekkert slíkt í
hyggju.
Varnarmál voru einnig til um-
ræðu og þótt De Gaullie vildi
ekki samþykkja endurskoðun á
vörnum Vestur-Evrópu, sagði
hann að Frakkland myndi standa
við hlið Vestur-Þjóðverja ef svo
hörmulega færi að Rússar reyndu
að gera innrás.
Svartir mega
ekki berjast
við hvíta
Pnetoria, 30. september. AP.
STJÓRN Suður-Afríku hefur
ákveðið, að í framtíðinni fái
svartir og hvítir menn ekki að-
gang að sömu hnefaleikakeppn-
um. í ræðu á fundi Þjóðernis-
flokksins sagði dr. Carel de
Wet, heilbrigðismálaráðherra, að
það væri stefna stjórnarinnar að
svertingjar mættu koma til lands
ins til að keppa í hnefalieik, en
aðeins þá gegn öðrum svertingja.
Slíkar keppnir yrðu og aðeins
leyfðar á ábúðasvæðum svertingj
anna sjálfra.
Færum. valdiö til fólksins
— Frá aukaþingi ungra Sjálfstæðismanna
Á aukaþingi Sambands
ungra Sjálfstæðismanna
27.-29. sept. 1968 voru um
ræður um stjórnmálaflokk
ana störf þeirra og starfs-
hætti. Var einkum rætt um
Sjálfstæðisflokkinn, skipu
lag, starfshætti og stefnu-
framkvæmd. Mikil gagn-
rýni kom fram á starfsemi
stjórnmálaflokkana í land-
inu og talið var nauðsyn-
legt að gera nú þegar á
næsta landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins gagngerðar
breytingar á starfsháttum
flokksins til þess að opna
flokkinn, tryggja raunhæf
ara lýðræði, tryggja að
stefnumálum flokksins sé
haldið fram, efla tengsl
flokksins við forustumenn
sína og tengsl flokksins við
kjósendur og landsmenn
alla og tryggja meiri breyt
ingu og fjölbreytni í þing-
mannavali flokksins.
Á þinginu var samþykkt
eftirfarandi fréttatilkynn-
ing:
Alvarlegar blikur eru á
lofti í íslenzkum stjórnmál
um. Stjórnmálaflokkarnir
hafa að töluverðu leyti
misst tiltrú þjóðarinnar,
Framhald á bls. 23