Morgunblaðið - 01.10.1968, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1968
21
Góðtemplarareglan hefur sótt Góðtemplarahússins að Jaðri.
um leyfi til borgaryfirvalda I»etta er annað elzta sam-
að mega flytja elzta hluta komuhús Góðtemplararegl-
Réttnrdagur í Fljótsdolsrétt
Sabahdeilan tekur
á sig dekkri blæ
Fljótsdalshéraði, 24. sept.
Frá Jónasi Péturssyni.
í DAG var réttardagur í Fljóts-
dalsrétt. í göngur er lagt fyrst af
stað 18. september á Vesturör-
æfi. Aðrir hópar fara síðar, t.d.
undir Fell, og í Rana hinn tutt-
ugasta. Smölun er svo lokið 23.
september, ef engar tafir henda,
svo sem þoka.
Að þessu sinni var veður
mjög hagstætt og gekk smölun
því vel. Lokið var að raka allt
safnið í rétt um kl. 9 í morgun
og hófst sundurdráttur þá strax
og var lokið kl. um þrjú. Er mik
ill fjöldi ungra og gamalla í rétt-
inni og flestir taka meiri og
minni þátt í sundurdrætti. Áber-
andi var í dag mikill fjöldi ungl-
inga og barna, enda veður hag-
stætt. Stillt og þurrt, þótt loft
væri skýjað og hiti lágur í nótt.
Eithvað misjafnt sýndist
mönnum um vænleika fjárins.
Ég held að diklar séu tæplega
jafn góðir og sl. haust, sérstak-
lega tvílembingar, en úr því á
reynslan eftir að skera. Gangna-
menn dáðust að því, hversu vel
gróður h;fði staðið á heiðunum.
Er ekki vafi á að dilkar þyngjast
enn til muna á heiðagróðrinum.
Gróður kom ekki að ráði fyrr
en í júlí til fjal'la, og stendur
hann ætíð lengur fram eftir þeg-
ar seint grær.
Auk þess er svo hin milda
veðrátta septembermánaðar,
sem h:fur stutt að grasvexti til
þessa. Tún eru yfirleitt enn
hvanngræn og hlíðarnar í Fljóts
dal að mestu grænar til efstu
brúna.
Jaðri?
unnar, var lengi vel eina
samkomuhúsið í Reykjavik og
voru haldnar þar alls kyns
samkomur og leiksýningar.
Einnig héit bæjarstjórn
Reykjavíkur lengi fundi sína
í húsinu, en það verður nú
að rýma fyrir bílastæðum
fyrir alþingismenn.
Mareos hótar styrjöld
FHippseyja kvatt út
Manila 28. sept. — NTB.
BREZKA ríkisstjórnin bar í dag
fram hörð mótmæli við stjórn
Filippseyja, eftir að stúdentar í
Manila réðust gegn brezka sendi
ráðinu þar í borg. Stúdentar
voru að mótmæla meintum stuðn
ingi Breta við Malasíu í deilu
landsins við Filippseyjar um ey-
ríkið Sabah.
John Mansfield Addis, brezki
sendiherrann í Manila, afhenti
í dag mótmæli stjórnar sinnar
Jose Ingles, starfandi utanríkis-
ráðherra. I mótmælunum var á
það lögð áherzla, að aðgerðir
stúdenta væru brot á friðhelgi
erlendra sendiráða og sendi-
manna. Ennfremur var talið, að
Filippseyjum bæri áð sjá sendi-
ráðinu fyrir vernd sem dygði.
Addis var nýkominn úr síð-
degisdrykkju er um 300 stúdent
ar af um 1.000, sem þátt tóku
í óeirðunum fyrir utan, ruddust
inn á lóð sendiráðsins og köstuðu
Heimavarnarlið
grjóti, spýtnabraki, logandi kyndl
um og áróðursspjöldum. Lenti
sumt af sendingum þessum á
þaki sendiráðsins, annað í glugg-
um þess. Þá brutu stúdentar
rúðu í einkabíl sendiherrans. Lög
reglan hindraði frekari eyðilegg
ingarstarfsemi.
Ferdinand Marcos, forseti Fil-
ippseyja, lýsti því yfir í gær-
kvöldi, að ef Malasíumenn stigju
fæti sínum á jörð Filippseyinga
mundi það óhjákvæmilega leiða
til styrjaldar. Sagði forsetinn
þetta á flokksfundi í Baguio, er
hann var spurður um Sabah-
deiluna. Filippseyinga hafa gert
tilkall til eyjarinnar, en hún er
við N-Borneo.
Varnarmálaráðuneytið í Manila
sagði í dag, að Ernesto Mata,
varnarmálaráðherra, hefði kvatt
út heimavarnarliðið á sama tíma
og þjálfun hersins hefur verið
stórlega aukin.
Framtíðcarstarf
Maður á aldrinum 25—30 ára, helzt með eitthvert iðnpróf t. d.
vélvirkjun, rafvirkjun, símvirkjun eða í öðrum ámóta iðngrein-
um óskast til starfa á tæknive kstæði. Hugsanleg sérþjálfun
erlendis seinna meir. Tilboð með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist blaðinu fyrir 4. október merkt: „Tæknistarf
— 2375“.
Enn finnast birgð-
ir Viet-Congmanna
2,000 tonnum at sprengjum varpað á
aðdráttarleiðir kommúnista
Saigon 28. sept. — AP.
BANDARlSKAR risasprengju-
þotur af gerðinni B-52 vörpuðu
nær 2.000 smálestum af sprengj-
um á stöðvar kommúnista sl.
sólarhring að því er tilkynnt var
hér í dag. Mesta sprengjumagn
inu var varpað á aðdráttarleiðir
kommúnista fyrir norðan Saigon.
Lítið er nú barizt á jörðu
niðri, en smáskærur eiga sér þó
stað að sögn. Herir Bandamanna
halda áfram að finna birgða-
geymslur kommúnista. í gær og
dag fundust 54 tonn af rís, 400
sprengjur í sprengjuvörpur, 20
kassar af TNT-sprengjuefni og
ýmis annar útbúnaður.
Bandaríkjamenn hafa tilkynnt
að ein orrustuþota hafi verið
skótin niður sl. sólarhring, svo
og smáfluigvél, sem notuð var til
könnunarferða. Þrír flugmenn
voru með vélum þessum, og var
þeim öllum bjargað.
SENDISVEINN
óskast strax.
Verzlun O. Ellingsen
Borgurtún 1 tíl sölu
Húseignin Borgartún 1 (að undanskilinni hæð Vá-
tryggingafélagsins h.f.,) er til sðlu í einu lagi eða
hlutum. Upplýsingar gefur Árni Kristjánsson, Ásvalla-
götu 79, simi 18220.
„Maiur skyldi halda aí) hann hefhi írandtitt þi sjálfur...
hann gerði ekki annað en ai sýna henni fORMICA merkið“
FORMICA
Þér getið ekki áfel'zt neinn fyrir að vera hreyk-
inn af FORMICA .Þetta heimsfræga vörumerki
tryggir það bezta, sem fáanlegt er á
eldhúsborð og önnur borð heimilisins, sem og
skrifborð og vezlunardiska. Látið ekki selja
yður annað í staðinn. Biðjið um FORMICA,
það er bezt.
G. ÞORSTEIIMSSOIM & JOHIMSSÓIM H.F.
Ármúla 1 — Grjótagötu 7 — Sími 2-42-50.