Morgunblaðið - 01.10.1968, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.10.1968, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1968 Ályktanir aukaþings SUS: Fyllsti stuðningur við forustu Sjálfstæðisflokksins — við lausn efnahagsvandans — Nýjar kosningar eigi síðar en nœsta haust A aukaþingi S.U.S., sem lauk í fyrrakvöld voru sam- þykjstar tvær tillögur. í annarri þeirra er lýst yfir því, að óhjákvæmilegt sé að grípa til róttækra ráðstafana vegna efnahagsvandans og jafn- framt lýst yfir fyllsta stuðn- ingi við viðleitni forustu- manna Sjálfstæðisflokksins til þess að finna lausn á vand anum, f hinni tillögunni er lýst yfir eindreginni andstöðu við hugmyndir um þjóðstjórn, talið að leita heri víðtækrar samstöðu um lausn vandans og að halda eigi nýjar kosn- ingar við fyrsta tækifæri og eigi síðar en næsta Sumar. Á aukaþinginu fór fram skoS- anakönnun um það, hvort þing- fulltrúar vildu kosningar, þjóð- stjórn, áframhaldandi stjórnar- samvinnu núverandi stjórnar- flokka eða annað. Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þess ar: Kosningar 51, þjóðstjórn 10, áframhaldandi stjórnarsamvinnu 18, óbreytta stjórn, en kosningar I vor 9, auðir 9, annað 3. Þess skal getið að þingfulltrúarnir Voru nær 200, þannig að mikill fjöldi þeirra voru fjarstaddir, eða tóku ekki þátt í skoðanakönnun- inni, þegar hún fór fram. „Aukaþing S.U.S., haldið 27.— 29. sept. 1968, lýsir yfir eindreg- inni andstöðu við þjóðstjórnar- hugmyndir þær, sem nú eru uppi. Þingið telur, að leita beri víð- tækrar samstöðu um lausn nú- verandi efnahagserfiðleika, án þess að til þjóðstjómar komi. Jafnframt lýsir þingið yfir þeirri skoðun sinni að halda eigi nýjar kosnngar við fyrsta tæki- færi, og eigi síðar en næsta sum- ar. Frumkvæði Sjálfstæðisflokks ins um slíkar aðgerðir er í beztu saimræmi við forystuhlutverk flokksins í þjóðmálum. Tíminn fram til næstu kosn- iniga noti Sjálfstæðisflokkurinn til þess að undirbúa nýja og ít- arlega stefnuskrá flokksins." „Aukaþing S.U.S. vekur at- hygli á þeim gífurlegu áföllum, sem íslenzkur þjóðarbúskapur hefur orðið fyrir á sl. tveimur árum og m. a. leitt til rúmlega 40% samdráttar í gjaldeyristekj- um landsmanna. Aukaþing S.U.S. telur ó>hjá- kvæmilegt að gripið verði til rót- tækra ráðstafana til að skapa at- vinnuvegunum rekstrargrundvöll á ný og koma á eðlilegu jafn- vægi í efnahagslífinu. Aukaþing S.U.S. lýsir yfir fyllsta stuðningi við viðleitni for- ystumanna Sjálfstæðisflokksins til þess að finna lausn á þessum vanda.“ Drasl á 2 bíla týnt upp við veginn Markholt, 29. sept. P. H. LIONSFÉLAGAR í Lionsklúbb Kjalarnesþings, hittust að Hlé- garði kl. 9 í morgun. Þar voru fyrir 2 stórir vörubílar. Liðinu var skipt í tvo hópa og fór ann- ar hópurinn norður að Köldu- kvísl, en hinn suður að mörk- um Reykjavíkur. Hreinsa átti allt drasl af þjóðveginum og í næsta nágrenni hans. Hóparnir hittust svo um kl. 11 hjá Hlíðartúni, og var ótrúlegt að sjá árangur hreinsunarinnar, 2 stórir vöru- flutningabílar svo hlaðnir að varla var hægt að koma meiru á þá. Félagarnir héldu síðan hver heim til sín, ánægðir yfir vel unnu starfi, en furðu lostnir yfir þeim kynstrum af drasli, sem Eftirlit hert með sœlgœtisgerðum Nokkur brögð að tollsvikum hjá þeim FJÁRMÁLARÁÐUNEYTH) hef- ur hert eftirlit með sælgætisgerð um. Ný reglugerð kom til fullra framkvæmda fyrsta ágúst sl. og samkvæmt henni má ekki af- greiða innlendar tollvörur, þ.e. sælgæti og gosdrykki, og annað slíkt, nema með þar til gerðum reikningum með stimpli ráðu- neytisins. Ekki má heldur dreifa vörunum nema í merktum um- búðum, og ef ekki er hægt að merkja vöruna, þá skal merkja kassa í heildsölur. Nokkur brögð hafa verið að því, að menn hafi ekki viljað hlýða reglugerðarákvæðunum, m. a. hefur það oft komið fyrir, að farið er með fulla bíla af sæl- gæti út á land. Greitt er út í hönd, og sælgætisgerðin gefur engin fylgiskjöl til heildsalanna og greiðist því hvorki tollur eða skattur, og sömu sögu er að segja um smásalana. Steinar Berg Björnsson tjáði Mbl. í gær, að ráðuneytið fylgdi nú mjög fast eftir að menn hlýddu reglugerðarákvæðunum. M.a. hefði sælgætisgerð í Kópa- vogi verið lokað um tíma, en hún fékk að starfa á nú, eftir að bú- ið var að koma málum í eðli- legt horf. Þá stendur til að loka annarri sælgætisgerð á mánudag, ef hún verður ekki búin að gera hreint fyrir sínum dyrum. Steinar sagði, að ef fyrirtæki fylgdu ekki þessum reglum, yrðu þau tafarlaust svipt leyfi til starf semi um lengri eða skemmri tírrua. safnaðist saman á ekki meiri | fólk fjölmenni að Hlégarði 30. vegalengd. Þess ber að geta að : nóvember næstkomandi. þarna virtist alls ekki vera | Núverandi formaður Lions- meira drasl en gengur og gerist klúbbsins er Oddur Ólafsson, yf- meðfram þjóðvegum okkar áður en hreinsað var. Lionsmenn eiga heiður skilið fyrir framtak sitt og fagurt fordæmi. Lionsklúbbur Kjalarnesþings hefur starfað í rúm 4 ár. Hann hefur starfað af krafti og er skammt að minn- ast þess, að í sumar fóru Lions- félagar eina kvöldstund saman, og báru áburð á hlíðarnar í Úlf- arsfelli og Lágafelli, má þar greinilega sjá árangurinn af því starfi, þegar ekið er um Mos- fellssveitina. Þá hafa klúbbfé- lagar gefið ýmsar góðar gjafir s.s. súrefnistæki til sundlaugar- innar að Varmá, sjónprófunar- tæki til Varmárskóla, auk ýmsra annarra smágjafa. Til þess að hægt sé að vinna að þessum mál um þarf klúbburinn á þó nokkru fé að halda. Fjáröflunarsamkoma verður haldin að Hlégarði laug- ardagskvöldið 30. nóvember næst. komandi, og er klúbbfélögum mikið í mun að sú samkoma tak- ist vel því að klúbburinn er með ýmis stórhuga áform á prjónun- um. Það er því von þeirra, sem velja styðja þessa starfsemi, að Ltisýitingin framlengd ÚnSÝNINGIN á Skólavörðu- holti hefur verið framlengd til n.k. isunnudaigskvöldsi, vegna mikillar aðsóknar og góðs veð- urfars. irlæknir, Reykjalundi. — P.H. FJÖRUTÍU ára starfsafmæli á í dag, Egill Sigurðsson hjá Ála- foisverksmiðjunni. Egill er þekktur sem framúrskarandi trúr og samvizkusamur starfs- maður. Hann hefur unnið við kemto- ingarvélar verksmiðjunnar frá fyrstu tíð og notið fádæma trausts eigenda og samstarfisfólks hjá Álafoss h.f. Egill á heimili að Álafossi og hefur um fjölda ára bil verið umboðsmaður Morguntolaðsins á staðnum. Blaðið sendir Agli beztu árnaðaróskir á þessum tímamótum, og þakkar honum jafnframt ágætt samstarf á liðn- um árum. Ýmis athyglisverð verk — á bókauppboði Sigurðar Ben. r dag SIGURÐUR Benediktsson efnir til bókauppboðs í Þjóðleikhús- kjallaranum í dag. Alls verða á þessu uppboði 110 númer, og er Vinnuvélaeigendur mótmæla samningsgerð vegna 850 m kafla Vesturlandsvegar FÉLAG vinnuvélaeigenda hélt almennan félagsfund um atvinnu ástand og framtíðarverkefni fé- lagsmanna síðastliðinn laugar- dag. Á fundinum var m.a. rætt um samning Vegagerðar ríkisins við íslenzka aðalverktaka run byggingu fyrsta hluta Vestur- landsvegar innan Elliðaáa. Gerði fundurinn ályktun í því efni, og fer hún hér á eftir. Þá ræddi fundurinn hækkun gjaldskrár vegna verðhækkana, greíðslu fæðispeninga vélstjóra, aðild að Vinnuveitendasambandi Islands og verkefni skrifstofu félagsins, sem opnuð var í júlí sl. Var fund urinn fjölsóttur og ríkti eining um hagsmunamál félagsmanna. I stjóm félagsins eiga sæti: Jón G. Halldórsson, Almenn bygg- mgarfélaginu, Sigurður Sigurðs- son, Loftorku, Pálmi Friðriks- son, Jarðvinnslunni og Óli Páls- son, Jarðýtunni. Ályktunin var svohljóðandi: „Almennur fundur í Félagi vinnuvélaeigenda, haldinn laug- ardaginn 28. september að Suð- urlandsbraut 32, Reykjavík, mót- mælir þeirri samningsgerð, sem nýlega hefir átt sér stað milli vegamálastjóra og íslenzkra aðal verktaka um byggingu um 850 m vegarkafla af fyrirhugu'ðum Vesturlandsvegi. Félagið mótmælir þessu á þeim forsendum, að íslenzkir aðalverk takar séu ekki hhitgengir á inn- lendum vinnumarkaði. Hlutverk þeirra og starfssvið er bundið framkvæmdum fyrir varnarliðið á íslandi. Islenzkir aðalverktakar eru stofnaðir á sama hátt og Sameinaðir verktakar, í beinu framhaldi af þeim og í samráði við ríkisstjóm Islands „til þess að sjá um byggingarframkvæmd ir fyrir varnarliðið á íslandi." Fyrirtækinu eru þar me'ð sköpuð föst verkefni og stöðugar tekjur. Á þeim forsendum, að íslenzk- ir aðalverktakar vinna fyrir vam arliðið, á þeirra afmörkuðu svæð um á landinu, hafa þeir flutt til landsins vinnuvélar, án þess að greiða af þeim tilskilin aðflutn- ingsgjöld, sem innlendum verk- tökum er gert að greiða. Sam- keppnisaðstaða þeirra með sínar tollfrjálsu vélar er því með öllu óe'ðlileg og ósambærileg aðstöðu innlendra verktaka. Félagi vinnuvélaeigenda hefir verið tjáð, að ástæðan til þess að nú er samið við Islenzka aðal verktaka sé sú, að fyrirtækið geti lánað fé til verksins. Félag vinnuvélaeigenda telur hins veg- ar, að íslenzkum aðalverktökum hafi verið sköpuð sérstaða af hálfu ríkisvaldsins til verkefna og fjáröflunar, og því sé alls óéðlilegt að veita því fyrirtæki, Framhald á bls. 20 þarna ýmislegt að finna, sem áhuga vekur hjá bókasöfnurum. Til að mynda er á þessu upp- boði öll Lesbók Morgunblaðsins til ársloka 1964, og er hún bund- in í skinn. Ennfremur má þarna finna Hæstaréttardóma allt til ársins 1954, óbundna, svo og all- ar Árbækur Ferðaféíags íslands, óbundnar og að auki tvo hluta úr því verki. Þá má nefina frumútgáfu af Árbókum Jóns Espólíns, Nátt- úrufræðinginn í heild, svo og ís- lenzka fyndni, einnig í heilu lagi. Bæði þessi verk eru óbumdim. Þá er að geta þriggja binda af Prestaævum á íslandi í handriti, sem Sighvatur Gr. Borgfirðing- ur hefur safnað. Einnig verður boðin upp Sturlungasaga, fyrra og annað bindi, prentað í Kaup- mannahöfn 1817-20 og Laxdæla- saga, sem prentuð var í Höfn 1826. Jarðatal á íslandi, sem J. John sen tók saman og gefin var út í Kaupmannalhöfn 1847, er eftir- sótt verk, að sögn Sigurðar, og verður boðið þarna upp. SömU sögu er að segja um ársritið Jólagjöfin eftir Jochum Eggerts- son. íslenzk þjóðlög, ér Bjarni Þorsteinsson safnaði, hefur lengi verið ófáanleg bók Og er jafnan vinsæl á uppboðunum. Þá er þarna að finna ennfremur Islenzk-dönsk orðabók Sigfúsar Blöndal í frumútgáfu, og Mann- tal á íslandi árið 1703. Margir kynnu líka að hafa áhuga á Niðjatali Þorvalds Böð- varssonar eftir Th. Krabbe, sem út kom í Reykjavík 1913 og á Farðabók Þorvalds Thoroddsens, er kom út í Kaupmannahöfn 1913-15. Tvær ljóðabækur er þarna að finna, mjög eigulegar að sjá. Er það ljóðasafn Stefáns Ólafssonar frá Vallajmesi í frumútgáfiu og ljóðabók Jóns Thoroddsens, prentuð í Kaupmannahöfn 1871. Loks skal hér upp talið Ársrit Verkfræðingafélags íslands, mjög heillegt safn af Blöndu og af Dýravininum. Þá er þarna eitt kort — Generalstabens Topgrafiske Kort — af íslandi. Lýst eftir ökumanni RANNSÓKNARLÖGREGLAN biður mann, sem ók blágrænni Volkswagenbifreið áustur Hellis- heiði á þrettánda tímanum á laug ardag að hafa samband við sig. Um klukkan 12:20 mætti kona á Moskvits þessum manni rétt við Smiðjulaut og kastaðist þá grjót frá Volkswagenbíln-um í framrúðuna hjá konunni og braut rú'ðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.