Morgunblaðið - 01.10.1968, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.10.1968, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1968 Átak Færeyinga í endurnýjun flotans ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Eiler Jacobsen í Torshavn eignað- ist nýttt og glæsilegt fiskiskip 11. september. Þann dag af- henti Ulstein Mek. Verksted kraftblakkarsnurparann „Sól- borg“, sem er fyrsta skip sinnar tegundar í Færeyjum. En sama smíðastöð er nú að breyta öðru skipi Eiler Jac- obsens, „ísborg“ í tanksnurp- ara líka. Færayingum finnst það ekki borga sig að veiða síld og makríl í bræðslu eins og mikill fjöldi norskra skipa gerir, en telja meiri hagnaðar von að flytja síldina kælda í tönkum á markað í Dan mörku, Skotlandi eða Þýzka- landi. „Sólborg“ kostar að vísu yfir 4 milljón krónur (danskar), • en eigendurnir trúa á að hún skili þeim pen- ingum aftur. „Sólborg“ er 138 feta löng, 28 feta breið og ristir 14 fet. Skipið er allt úr stáli, nema stýrishúsið úr áli. Aðalvélin hefur 1200 hestöfl og gefur skipinu 12,9 sjómílna hraða og skrúfan er vinduskrúfa (vripropel) en auk hennar eru tvær hliðarskrúfur fyrir 150 hestöfl hvor. Lestirnar eru tvær, hólfaðar í tvennt og geta rúmað 4.500 hektólítra. Daginn áður en „Sólborg" var afhent var öðru færeysku skipi hleypt af stokkunum hjá „Molde Verft“ (sem er dótturfélag Ulstein Mek. Verk sted.) Þetta er 169 feta lang- ur línuveiðari og þilfarið yf- irbyggt og upphitað, svo að hægt er að vinna að aflanum þó illa viðri. Þetta skip verð- ur fullsmíðað í desember og eigandi þess er Th. Örv í Tórshavn. — Þá hefur útgerð arfélagið „Klakkur" í Klaks- vík samið um smíði á 120 feta skipi, sem á að verða full gert í janúar. En annað fær- íbúð tíl leigu Góð 4ra—5 herb. íbúð við Háaleitisbraut til leigu. Er með teppum og gluggatjöld- um. Eittihvað af húsgögnum getmr fylgt, ef vill. Uppl. í síma 35185. HAFSTEINN BALDVINSSON HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR AUSTURSTRÆTI 18 III. h. - Síml 21735 STJÖRNU- hárgreiðslusloían (við Stjörnubíó) permanenf, lagningar, lifanir o. ff. LAUGAVEGI 96 sími: 21812 OSRAM flúrpípur, hringir, almennar perur, kertaperur, kvikasilfurs- perur, leifturperur o. fl. o. fl. OSRAM fœst um land allt vegna gæðanna Jóh. Ólafsson & Co. Hverfisgötu 18, Sími 11630 og 11632. Snyrtisérfræðingur frá ORLANE verður til viðtals og leiðbeininga fyrii* viðskiptavini í verzlun vorri í dag og á morgun VÖRU£ALAN Akureyri. eyskt félag hefur samið um smíði á frystiskipi við Ulstein Mek. Verksted. — Fyrir nokkrum árum keyptu Færeyingar línuveið- arann „Leivur Hepni“ frá „Hatlös Verksted" í Ulstein- vik. Þykir þetta enn mjög fullkomið skip og var mikil nýjung. En nú hefur hann smiðað nýtt skip líkrar teg- undar en miklu fullkomnarsi, með upphituðu aðgerðarþil- fari, tækjum til afísunar o. fl. Og annað skip — 200 feta verksmiðjuskip hefur Hatlö í smíðum fyrir P/F (Partafélag ið) Vesturvon. Alls hafa Fær- eyingar fengið 7 skip frá Hat lös Verksted. Þau fyrstu voru „Brestir" og „Beinir“ (1957), en „Leivur Hepni“ vakti sér- staka athygli vegna ýmsra nýjunga. Hann hafði t.d. vindu til að leggja línuna nið ur í stampana jafnóðum og hún var dregin, og vélar til að hreinsa smáfisk af línunni, þvottavél fyrir fisk og fl. „Leivur Hepni“ getur rúmað 500 tonn af saltfiski í lest og hefur 130 rúmmetra frystirúm fyrir beitu. Aðalvélin er 1200 hestöfl og skipið gengur 13.3 sjómílur. En áhöfnin er 27 manns. Þessi mikla endurnýjun fiskiflotans lýsir mikilli bjart sýni hjá Færeyingum á stund verðfalls og aflatregðu. — ESSKÁ. Lágmarksverð söltunarsíldar ákveðið Á fundi Verfflagsráðs sjávarút- vegsins í gær varff samkomulag um eftirfarandi lágmarksverff á síld til söltunar Norffan- og Aust anlands tímabilið 1. október til 31. desember 1968: Hver uppsöltuð tunna (með 3 lögum í hring kr. 505.00. Hver uppmæld tunna (120 lítr ar eða 108 kg) kr. 371.00. Síld sem afhent er utan hafna til söltunar um borð í skipum á miðunum, hvert kg kr. 1.90, e'ða hver uppmæld tunna 120 lítrar kr. 205.00. önnur ákvæði, sem gilt hafa um afhendingu síldarinnar o.fL eru óbreytt. Reykjavík, 27. september 1968. (Frá Verðlagsráði sjávarút- vegsins). RITSTJÓRIM • PRENTSMIÐJA AFGREIOSLA • SKRIFSTOFA SÍMI 10*100 FÉLAGSLÍF Knattspyrnufélagiff Víkingur, handknattleiksdeild Æfingatafla veturinn 1968—1969. Réttarholtsskóli: Meistaraflokkur karla mánu- daga kl. 8.40—10.20. I. og 2. flokkur karla sunnu- daga kl. 1.00—2.40. 3. flokkur karla sunnudaga kl. 10.45—12.00. 3. flokkur karla mánudaga kl. 7.50—8.40. 4. flokkur karla sunnudaga kl. 9.30—10.45. 4. flokkur karla mánudaga kl. 7.00—7.50. Meistara-, 1. og 2. fl. kvenna þriðjudaga kl. 7.50—9.30. Meistara-, 1. og 2. fl. kvenna laugardaga kl. 2.40—3.30. 3. flokkur kvenna þriðjudaga kl. 7.00—7.50. Laugardalshöll: Meistara-, 1. og 2. fl. karla föstudaga kl. 9.20—11.00. Mætið stundvíslega á æfingar. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.