Morgunblaðið - 01.10.1968, Síða 10
JLL
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1968
Kosningarnar í Grikklandi:
NÝ STJÓRNARSKRÁ
GENGIN í GILDI
— en fjórði hver kjósandi sat heima
þrátt fyrir hótanir stjórnarinnar
um málssókn og fangelsisvist
Aþenu, Washington, Kaup-
mannahöfn, Varsjá, Osló 30,
sept. AP. NTB.
í ÞJÓÐARATKVÆÐA-
GREIÐSLUNNI, sem fór fram í
Grikklandi á sunnudag, lýstu
um 93,8 prs. kjósenda yfirstuðn
ingi við nýju stjómarskrána.
Þátttaka í kosningunum var
um 76,2 prs. Gegn stjómar-
skránni greiddu atkvæði
273.417, eða um 6 prs. Georges
Papadopoulos, forsætisráðherra,
fagnaði í dag úrslitunum og
sagði að þau bæru þess
gleggstan vott, að yfirgnæfandi
meirihluti grísku þjóðarinnar
stæði einhuga að baki stjóm-
inni.
Tveir þekktir fyrrverandi for
sætisráðherrar Grikklands
sýndu andstöðu sína með þvi að
kjósa ekki. Þeir era Georges
Papandreu og Panayotis Kan-
ellopoulos. Sá síðamefndi var
forsætisráðherra, þegar herfor-
ingjarair tóku völdin í april
1967. Papandreu er kominn yf-
ir sjötugt og var því lögum sam
kvæmt ekki skuldbundinn til að
kjósa.
Fyrir kosningarnar var lögð á
það mikil áherzla, að þung við
nrlög lægju við því, ef kjósend
nr skirrðust við að neyta at-
kvæðisréttar síns. Þrátt fyrir
þær hótanir sátu þó um 25 prs.
atkvæðisbærra manna heima og
fóra hvergi. Af hálfu stjómar-
innar hefur því verið lýst yfir,
að þessi tala sé villandi, þar
sem allmargir hafi verið farnir
úr landi, aðrir ellihrumir og
enn aðrir látnir.
Eins og fyrr segir voru sex
prósent kjósenda andvígir nýju
stjórnarskránni, en fréttaritar
ar benda á, að þessi tala þurfi
engan vegin að gefa rétta mynd
af því, hvem hug fólk hafi bor
ið til nýju stjórnarskrárinnar,
þar sem kjósendur þurftu að
biðja um sérstaka „nei atkvæða
seðla“ ef þeir vildu kjósa gegn
henni. Hafi þeir, sem það gerðu,
verið skráðir sérstaklega.
Papadopoulos, forsætisráð-
herra hafði tilkynnt, að ef þjóð
in lýsti eindregnum stuðningi
við stjórnarskrána yrði komið á
lýðræði í Grikklandi, sem önn-
ur ríki myndu hafa gott af að
taka sér til fyrirmyndar. Nýja
stjórnarskráin, sem nú hefur
verið samþykkt tekur þeg-
ar í stað gildi, þó að und
anskildum 12 greinum hennar,
sem einkum snúast um frelsi ein
staklingsins, opinber fundahöld
og ritskoðun grískra blaða. Þá
eru völd konungsins skert stór-
lega, en framkvæmdavaldið
eflt og nær öll ráð safnast á
hendur forsætisráðherrans og
stjórnarinnar. Er Konstantín
konungi voru sögð úrslitin, þar
sem hann dvelur í útlegð í
Rómaborg kvaðst hann ekki
reiðubúinn að gefa út neina yf-
irlýsingu um niðurstöður þjóð-
aratkvæðisins. í stjórnarskránni
er og stórlega dregið úr fjár-
veitingu til konungsfjölskyld-
Samkvæmt fréttastofufréttum
fór allt fram með friði og spekt
víðast hvar í Grikklandi á kjör
degi, enda hafði her og lögreglu
vörður verið efldur, einkum í
Aþenu og öðrum stærri borgum
landsins.
f ávarpi til grísku þjóðarinn-
ar á sunnudagskvöld sagði for-
sætisráðherrann, að greinarnar
12 myndu taka gildi innan tíð-
ar. Hann bætti því við, að með
hverjum degi sem liði myndi lýð
ræði verða aukið í landinu, þó
innan þeirra takmarka, sem
stjórnin teldi æskileg.
Byron Stamatopolos talsmað-
ur stjórnarinnar sagði, að meiri-
hluti þjóðarinnar hefði sýnt að
hún styddi stjórnina og bylting-
una af heilum hug. Næsta skref
ið í lýðræðisátt yrðu svo frjáls
ar þingkosningar, en ekki hefur
verið ákveðið hvenær þær fara
fram. Stamatopolos roinnti á, að
Papadopoulos hefði iðulega líkt
Grikklandi við sjúkling, sem
hefði annan fótinn í gipsi. Nú
hefði gríska þjóðin sannað að
líðan sjúklingsins væri mjög
góð. Aðspurður um, hvort þing-
kosningar yrðu haldnar fljót-
lega svaraði talsmaðurinn, að
forsætisráðherrann hefði jafnan
haft mesta yndi af því að koma
þjóð sinni gleðilega á óvart og
það skyldi hann einnig fá að
gera að þessu sinni. Þegar Sta-
matopolos var inntur eftir því,
hvort gripið yrði til einhverra
aðgerða gegn þeim stjórnmála-
mönnum sem ekki hefðu kosið
sagði hann, að dómsmálaráðherr
ann myndi taka ákvörðun um
það.
Á sunnudag efndu Grikk-
landsfélög í ýmsum löndum og
grískir útlagar til mótmælaað-
gerða og Andreas Papandreu
sagði í dag, að „eina bjargar-
vonin fyrir vora hlekkjuðu
Framhald á bls. 23
Nýnazistar
föpuðu tylgi
Hannover 29. sept. — NTB —
HINN öfgafulli hægri flokkur
þjóðernissinna (NPD) í Neðra
Saxlandi fékk færri atkvæði í
bæjarstjórnarkosningunum á
sunnudag, en fylkisþingkosning-
unum í júní 1967. Þá hlaut flokk
urinn 7 af hundraði atkvæða, en
nú aðeins milli 5 og 6 af hundr-
a»L
Mikill styrr hefur staðið um
flokk þennan og Ernst Benda,
innanríkismálaráðherra Vestur-
Þýzkalands upplýsti fyrir
skömmu að hann væri að safna
gögnum um starfsemi flokksins
sem hann myndi leggja fyrir
stjórnina. Þá myndi hann um
leið gefa upplýsingar um hvort
hann teldi að hægt væri að
banna flokkinn með hæstarétt-
ardómi.
Hiiui sérstaki flokkur demó-
krata sem berst gegn nýtnazisima
og endurreiisn nazismans teLuir
þetta ekki nauðsynlegt, í rauai-
inni sé þegar búið að barana
hann.
Þetta er rökstutt með því að
NPD sé bara nokkurs konar
fylgja hins hægri öfgaflokks,
sósíalistisikra ríkisflokksins, sem
bannaður var 1952, og það bann
igildi einnig um NPD.
í kosningum á sunmiudag bauð
NPD í fyrsta skiþti fram það
mikinn fjölda flokksmanna sinna
að flokkurinn hefði getað náð
einhverjum völdum að ráði,
hefðu þeir náð kosningu. Á
þeim þrem árum sem flokkur-
IWenntaskólinn
í Reykjavík
settur í dag
í dag kl. 2 verður Menntaskól
inn í Reykjavík settur við há-
tíðlega athöfn í Dómkirkjunni.
inn hefur starfað hefur honum
tekist að koma sextíu og einum
fulltjnía í sjö af tíu fylkisþing-
um Vestur-Þýzkalamds. Benda,
oig aðrir leiðtogar Vestur-Þýzka-
lands hafa varað fólk við þvi að
kjósi það NPD sé það að kjósa
landinu í óhag. Þeir eru ekki
aðeins órólegir vegna hótama
Rússa yfir framgangi flokksins,
heldur einnig vegna andúðar sem
orðið hefur vart í vestrænum
vimalöndum.
Vlll Ieigjo ísl.
síldnrskip til
iBandoríkjanna
FYRIR nokkra leytaði banda
rískur maður, Frank Lipmann
að nafni til Friðriks A. Jóns-
I sonar útvarpsvirkja og spurð
ist fyrir um möguleika á þvi
að fá leigð íslenzk fiskiskip
til síldveiða við austurströnd
Bandaríkjanna.
Vildi Lipmann leigja 2—3
báta um 250—300 tonn að
I stærð til þess að veiða síld
I á síldarmiðum, sem eru um
6 tíma stím frá hafinarborg-
inni Gloster í Massachusset-
1 fylki í Bamdaríkjumum. Glost-
I er er ekki alllamgt frá borg-
inni Boston. Kom til tals að
lexgja bátana til eins árs og
1 með ís'lenzkri áhöfin. Á um-
| ræddum síldarmiðum er 60
faðma dýpi, en vemjulega
stemdur síldin þar á 12—15
föðmum.
Einhver vandkvæði munu
vera á að leigja erlemd skip
il veiða við srendur Banda-
ríkjanna, en Friðrik visaði
málinu il Einars Sigurðssonar
I úgerðanmanms og mun hann
vera að ikanma málið.
Á myndinni sést staðurinn í Bjamarborg þar sem eldurinn varð
iaus, en á hæðinni fyrir ofan í þessu timburhúsi voru svefnher-
bergi. Brunaliðsmenn þurftu að rífa jám frá til þess að komast
að eldinum í veggjum hússins.
Hættulegar íkveikjur
Slökkviliðið var tvisvar kvatt
út vegna elds um helgina og
leikur grunur á að um íkveikju
bafi verið að ræða í bæði skipt-
in. Að undanförnu hafa komið
upp í nokkur skipti eldar í borg
inni, sem allar líkur benda til
að stafi af völdum íkveikja.
Annar bnmastaðurinn var hús
ið Bjarnarborg að Hverfisgötu
83 en hinn var verzlunar- og
í Bjarnarborg búa yfir 50
manns og hefði þarna getað farið
verr ef ekki hefði tekizt að ráða
niðurlögum eldsins eins fljótt og
raun bar vitni.
Rannsóknarlögreglan starfar nú
að rannsókn á eldsvoðum þessum.
Furðuróð símans
á Raufarhöfn
Raufarhöfn, 30. september. Frá
fréttaritara Mbl. Ólafi Ófeigs-
syni.
Starfsfólk símstöðvari*nar á
Raufarhöfn hefur nú fengið fyrir
mæli um að afgreiða ekki sím-
töl í gegnum stöðina innan sjálf
virka svæðisins, frá einka- og
fyrirtækjasímum hér. Vekur
þetta hreinustu furðu og mun
verða krafizt a'ð banni þessu
verði aflétt, hið bráðasta.
Við pósit og síma hér vinna 7
manns og hafði frekar verið talin
þörf á aukinni þjónustu gagn-
vart síldveiðisjómönnum og þeim
fjölda sem hér dvelur yfir síld-
veiðitímann. Lokunartími í stöð-
inni er kl. 20 að kvöldi og að-
eins opin 4 tíma á sunnudögum.
Söltunarstöðin saltaði úr Höfr
ungi III. 50 tunnur í nótt. Stöð-
in á von á Gísla Árna með 130
tonn.
Hlöðubruni
í Hornufirði
Höfn, Hornafirði, 30. sept.
KLUKKAN 19,30 í gærkvöldi
varð þess vart að eldur var kom-
inin í iheyhlöðu í Lindarbakka í
Hornafirði. Slökkvilið Hafnar-
hrepps var þegar kallað út og
auk þess var þagar brugðið við
frá nálægum gveitatoæjum, til að-
stoðar. Látlaust hefur verið unn-
ið að slökkvistarfinu í alla nótt,
og síðdegis í dag var því
ekki lokið. — Um 700 hestar
af heyi munu hafa verið í hlöð-
unni og hefur tekist að moka
nokkrum hluta út, en þó má ætla
að meira en ihelmingur heysins
brenni. Tekizt hefur að bjarga
hlöðunni. Er ennþá verið að
safna fólki til að vinna að björg-
un eins og hægt er.
Gunnar.
Kortinu, Grikklandi, 30. sept.
JÁRNBRÁUTARLEST með mörg
hundruð farþega innanborðs, ók
á fleygiferð á kyrrstæða lest
skammt frá Korintu í Suður-
Grikklandi í kvöld. Fyrstu fregn
ir hermdu, að yfir 300 manns
hefðu slasazt, a.m.k. 12 biðu
bana.
85 óra í dag
í dag er Þórarinn Olgeirsson
ræðismaður íslands í Grimsby
85 ára. Þórarinn var fæddur á
Valdastöðum í Árnessýslu 1. okt.
1883. Þórarinn var sjómaður og
útgerðarmaður í mörg ár. Hann
hefur verið búsettur í Grimsby
um langt árabil og verið þar
ræðismaður íslands og umboðs-
maður íslenzkra togaraeigenda í
Bretlandi.
JAZZBALLETTSKOLI BARU
Skólinn tekur að fullu til starfa 7. október.
Kennt verður í öllum aldursflokkum. Bamaflokkar — táninga-
flokkar — byrjendaflokkar — framha' dsflokkar.
Jazzballet fyrir alla!
Innritun alla daga frá kl. 9—7 f síma 8-37-30.
Dömur — líkamsrækt
Megrunaræfingar fyrir konur á öllum aldri. — Nýr þriggja
vikna kúr að hefjast. 4 tímar í viku. — Dagtímar — kvöld-
tímar. — Góð húsakynni. — Sturtuböð.
Frúarjazz einu sinni í viku.
Innritun alla daga frá kl. 9—7 í síma 8-37-30.