Morgunblaðið - 01.10.1968, Síða 12

Morgunblaðið - 01.10.1968, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1968 NÚ er tízka hjá ungu fólki að hafa hugsjónir eins og um aldamótin. Menn vilja reyna eitthvað nýtt, menn vilja fara ótroðnar götur til tak- marksins. Og ungir leikarar hafa stofnað félagsskap, sem heitir Leiksmiðjan, og mark- mið hennar er, „að rækta ís- lenzka leiklist." Smiðirnir Myndina tók Sveinn Þormóðsson, þegar meðlimir Leiksmiðjunnar voru að segja blaðamönn- um frá fyrirhuguðu starfi í vetur. Islendingar trúa ekki á staö- reyndir, heldur á ævintýri — spjallað við ungan hóp leikara sem nefna sig Leiksmiðjuna boðuðu blaðamenn á sinn fund og skýrðu þeim frá Smiðjunni og fyrirhuguðum smíðisgripum og hugsjónum sínum, og það var auðheyrt, að þeir eru ákveðnir í að koma þeim í framkvæmd. í stofnskrá Leiksmiðjunnar segir, að einn meistari skuli móta listræna stefnu og marka starfshætti. Þessi meistari var kjörinn Eyvind- ur Erlendsson, leikstjóri. Hann sagði raunar, að ætlun- in væri að starfa á lýðræðis- legum grundvelli, og allar ákvarðanir væru teknar af meðlimum í sameiningu. „Þeir, sem vinna eingöngu fyrir Smiðjuna og helga henni krafta sína eru meðlimir hennar, en missa réttindi sín um leið og þeir fara að starfa að öðru. En auk þeirra virku, eru einnig aukameðlimir, sem vinna með okkur að ákveðnu verkefni, en taka ekki þátt í starfinu að öðru leyti,“ bætti Eyvindur við. „Ætlunin okk- ar er að reyna að skapa það samband milli framlefðenda listarinnar og neytendanna, sem okkur finnst vanta.“ „Sláturhúsið hraðar hend- ur“, sem við sýndum í sumar, var í rauninni frumeinkenni þessa hóps, eins konar fyrir- boði, enda starfa margir þeirra, sem þá léku, með okk ur nú, en aðrir hafa að sjálf- sögðu snúið til fyrri starfa. Þessi hópur hefur í rauninni myndazt vegna listræns þorsta, vegna þess að leikhús- in hafa, að okkar dómi, ekki það sem við erum að leita að.“ Menn spjölluðu svona sín í milli hvernig hugmyndirnar væru og vi'ð fengum að vita, að ætlunin væri að setja upp Galdra-Loft og Litla prins- inn. „Galdra-Loft ætlum við að setja upp,“ segir Eyvindur, „eins og við höldum að Jó- hann Sigurjónsson hafi hugs- að sér hann, — sem mann, sem ætlaði sér að verða mik- ilmenni og gera stóra hluti, en gat það ekki, vegna þess að það vantaði eitthvað í verkfð, og allt mistókst. Svona menn eru um allt. Við ætlum ekki að „modernisera" leikritið, það á ekki að „moderisera“ gömul leikrit. Nú, Litla prinsinn semjum við sjálf eftir sögunni. Við erum með hana á fjórum tungumálum og reynum að koma prinsinum til skila á tungutaki okkar. Magnús Jónsson stjórnar þeirri upp- setningu." í stofnskrá Leiksmiðjunnar segir á einum stað, að leggja skuli áherzlu á, að athuga ís- lenzka þjóðhætti, mál, tón- list og náttúrueinkenni til að finna séreinkenni íslenzks hugsunarháttar og skáldskap ar. Vi'ð spurðum, hvort hér væri á ferðinni einhver sér- stakur þjóðernisboðskapur. „Nei,“ svaraði Eyvindur. „Ég býst við, að við hefðum kannað rússneskt lundarfar, ef við hefðum starfað þar. Sérhver þjóð hefur sinn eig- in hugsunarhátt, og ég held, að það sé ekki rétt að flytja inn vöru til tjáningar í leik- húsum meira en nauðsynlegt er, heldur eigi að byggja á íslenzkum grundvelli, en til þess þarf auðvitað mikla vinnu, og eins og við vitum, eru Islendingar sérstæðir: Þeir trúa ekki á staðreyndir heldur ævintýri. Tökum t.d. mann, sem ætl- ar að níða Grímsnesið. Ef hann telur upp skipulega lið fyrir lið ókosti Grímsnessins, þar sé Ijótt, fullt af moldar- flögum, og Ijót hús, þá trúir honum enginn. En ef hann segir: í Grímsnesinu eru stór- ir skógar og i'ðgræn engi o. s.frv., trúa allir og vita, að það er ljótt í Grímsnesinu." Þau sögðu okkur, að ætl- unin væri að ljúka þessum tveimur verkefnum fyrir miðjan október. Þá á að sýna verkin út um land, enda töldu þau líklegt, að hægt væri að fá fólk út á landi til að horfa á leikrit um vetur ekki síður en á sumrin. Þau leggja mikið að sér, byrja daglega klukkan tíu og æfa allt, sem getur komið leikara að gagni. Þau eru níu, sem eru me’ðlimir Smiðjunnar: Eyvindur Erlendsson, Arnar Jónsson, Karl Guðmundsson, Edda Þórarinsdóttir, Þórhild- ur Þorleifsdóttir, Sigmundur Örn Arngrímsson, Níels Ósk- arsson, Sólveig Hauksdóttir og Bjarni Steingrímsson og með þeim starfa núna Mar- grét Helga Jóhannsdóttir og Magnús Jónsson. Að lokum spurðum við, hvort þau héldu, að þau gætu gert þá hluti, sem þau hefðu svo mikinn áhuga á að gera. „Það held ég,“ svaraði Eyvindur. „Við höfum fólk, sem hefur vilja og áhuga á að leysa vandann, en talar ekki bara og talar, en gerir aldrei neitt." Har. Bl. SLÖKKVITÆKI. Ólafur Gíslason & Co. hf. Ingólfsstræti 1 A. Sími 18370. SENDISVEINN ÓSKAST Sendisveinn óskast hálfan daginn. Viðskiptaráðuneytíð, Amarhvoli. Bílar til sölu Saab árg. 1966. Mjög fallegur bílil. Volkswagen 1600 fastback ekinn aðeins 26 þús. km. til sýnis og sölu í dag. SVEINN BJÖRNSSON & CO. Skeifan 11, sími 81530. VERZLUN OLA ÞÓR HÁTEIGSVEG GERIÐ ÓDÝR MATARINNKAUP ALLT Á GAMLA VERÐINU Ódýrir niðursoðnir óvextir KAFFI nðeins kr. 26,25 p.k. Mikið úrval af kjöt- og nýlenduvörum BRAUÐ Sr KÖKUR Allar vörur ódýrari i heilum og hálfum pakkningum SENDUM HEIM Opið frá kl. 8— 22 alla daga vikunnar NÆG BÍLASTÆÐI Engar verðhækkanir ennjbd S^MR HÁTEIGSVEGI 20 - SÍMI /6-8-17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.