Morgunblaðið - 01.10.1968, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1968
25
ÖLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM:
LITLA BÍÓ
SVARTI PÉTUR
Ekki hafa örlögin hagað svo
til fyrr, að leið mín lsegi í Litla
Bíó, sem staðsett er að Hverfis-
götu 44. Þa'ð var því ekki með
það eitt í huga að skoða kvik-
mynd, sem ég kom þangað, held-
ur einnig til að skoða stofnun.
Húsnæðið er hreinlegt og
snyrtilegt og afar ólíkt öllum
öðrum kvikmyndahúsum, sem ég
hef séð til þessa. En sennilega
fer vel á því, þar sem hér er
um nýja gerð ^tofnunar að ræða.
Ekki er mér kunnugt um, hversu
vel reksturinn hefur gengið, en
sennilegt þykir mér þó, a'ð hann
eigi framtíð fyrir sér.
Þegar ég setti fram skoðanir,
fyrir nokkrum mánuðum, er ég
skrifaði um íslenzka kvikmynda
gerð, taldi ég litlar líkur til að
slíkur klúbbur yrði stofnaður.
En það sem hér hefur verið
gert er einmitt mjög í anda þess,
sem ég þá hafði í huga, og er ég
ekki með þessu að reyna að
eigna mér hugmyndina að
kvikmyndaklúbbnum í Litla-
bíói.
Sýnist mér af lítilli kynningu,
en nokkurri afspurn, að vel sé af
stað farið og vonandi að tilraun-
in takist. Ekki veitir af að lífga
upp á kvikmyndaúrvalið, eins
og það hefur verið síðustu sex
mánuði.
Myndin sem ég sá þarna er
hluti af hinni tékknesku Kvik-
myndahátíð, sem haldin er þama
í september. Nefnist hún Svarti
Pétur og er gerð af Milos For-
man, einum þekktasta leikstjóra
Tékka. Gerði hann meðal annars
nær fullri lengd almennrar kvöld
sýningar. Hún segix sögu ungs
pilts, sem ekki hefur mikla sjá-
anlega stefnu í lífinu, né áber-
andi hsefileika. Hann þvælist eins
og rekald úr þýðingarlausu starfi,
sem hann er illa fær um, á innan
tóma dansleiki, sem ekkert veita
honum, er klaufalegur í um-
gengni við stúlkur, skilur ekki
foreldra sína og þau skilja ekki
hann.
Samræðurnar eru dæmigerðar
fyrir það umtalaða fyrirbæri —
gjána milli kynslóðanna. Þær eru
meistaraleg hringiða meiningar-
leysis og tilgangsleysis, þar sem
flestir hljóta að sjá eitthvert
bergmál frá æsku sinni, eða sam
skiptum sínum við eigin böm.
Það er raunar svolítið dapur-
legt að heyra, þegar móðirin yfir
heyrir hann um hvað hann hafi
verið að gera og með hverjum
o.s. frv., að heyra svörin. Þau em
sjálfkrafa hálf-sannleikur eða
hrein lygi, án þess að nokkurn
tíma sé hugsað um að ekki sé
verið að segja satt. Því miður
em þetta viðbrögð mikils hluta
æskunnar í dag. Það þýðir ekkert
að láta það ergja sig. Það verður
að reyna að bregðast við því,
með ráðum, sem ég er ekki fær
um að kenna.
Það sem Forman er að gera, er
ekki að moralisera um vandamál
æskunnar og fullorðna fólksins,
heldur lýsir hann vandamálið
upp, þannig að öðrum verður
það Ijósara.
Aukamyndin heitir „Við höfn-
ina“, tíu mínútna mynd eftir
Þorstein Gunnarsson, sem nú
er farinn til Prag að læra kvik-
myndagerð. Er hann 22 ára áð
aldri og þetta fyrsta mynd hans.
Svo byrjað sé á göllunum er
textinn og lesturinn ekki góður
og væri myndin mun betri með
minna tali eða jafnvel engu. Um
myndatökuna má margt gott
segja, þó að Þorsteinn reyni óþarf
lega oft að gera eitthvað sniðug-
lega, í stað þess að gera það á
sem einfaldastan hátt. Fyrst reyn
ir hann að ná „stemmingum“,
þreytulegum verkamannaandlit-
um o.s. frv. Næst kemur skipu-
leg „dokumenter“-mynd, sem lýs
ir á tiltölulega greinilegan hátt
uppskipun og pakkhúsvinnu og í
lokin breytist hún í fréttamynd,
sem eltir Halldór Kiljan um borð
í Gullfoss, af því að hann er
kunnuglegt andlit. Allt þetta á
tíu mínútum. Samt er þarna
margt vel gert, þó að ekki eigi
það erindi í sömu kvikmyndina.
ÓS
blaðburðárfoIk
f eftirtalin hverfi:
Lambastaðahverfi — Hagamelur —
Hofteigur — Grettisgata I — Laufásvegur I — Skóla
vörðustígur — Ægissíða — Skerjafj. sunnanfl.
Talið við afgreiðsluna í sima 10100
: :'"'Æ ím «.• l í 8 91. « Listdansskóli GuSnýjar Pétursdóttur Kennsla hefst mánudaginn 7. október. Innritun og upplýsingar daglega frá kl. 2—7 í síma 40486.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS { ><><►
kvikmyndina „Astir ljóshærðrar
stúlku“, sem sýnd var hér á landi
fyrir nokkrum mánuðum.
Er þetta fyrsta mynd hans sem
VANDERVELL
Vélalegur
Ue Soto
BMC — Austin Gipsy
Chrysler
Buick
Chevrolet, flestar tegundir
Dodge
Bedford, disel
Ford, enskur
Ford Taunus
GMC
Bedford, disel
Thames Trader
Mercedes Benz, flestar teg.
Gaz ’59
Pobeda
Volkswagen
Skoda 1100—1200
Renault Dauphine
b. Jónsson & Co.
Síml 15362 og 19215.
Brautarholti 6.
1BIRGIR ÍSL.GUNNARSSON1
HÆSTARETTARLÖGMAÐUR
LÆKJARGÖTU 6B SÍMI22120
OPAL SOKKABUXUR
eru framleiddar úr úrvals crepegarni.
OPAL SOKKABUXUR
eru framleiddar af stærstu sokkaverk-
smiðju Vestur-Þýzkalands.
OPAL SOKKABUXUR
eru fallegar og fara sérlega vel á fæti.
OPAL SOKKABUXUR
eru á mjög hagstæðu verði.
OPAL SOKKABUXUR
seljast þess vegna bezt.
Kaupið aðeins það bezta
Kaupið OPAL 80KKA
og SOKKABUXUR
Einkaumboðsmenn:
Kr. Þorvaldsson & Co. heildverzl.
Grettisgötu 6, símar 24730 og 24478.
SÍLDARSTOLKUR
SÍLDARSTÚLKUR
Okkur vantar strax nokkrar vanar síldarstúlkur til Seyðisfjarðar. Saltað innanhúss — fríar ferðir — frítt hús-
næði — úrvals aðbúnaður. Upplýsingar á skrifstofu Sunnuvers h.f. í Hafnarhvoli sími 20955 í Keflavík í síma
1136 og Seyðisfirði í síma 147.
SUNNUVER HF. SEYÐISFIRÐI