Morgunblaðið - 01.10.1968, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIBJUDAGUR 1. OKTÓBER 1968
31
Æðri skólarnir að
hefja vetrarstarfið
Frá setningu Menntaskólans í H -mrahlíð.
Kvöldeftirlit í hverf-
um borgarinnar
Breyttur útivistartími barna og unglinga
ÆÐRI SKÓLARNIR, mennta-
skólar, Kennaraskólinn og Verzl-
unarskólinn eru að hefja vetrar-
starfið um þessar mundir. Sum-
ir skólamir hafa þegar hafið
kennslu, en aðrir eru við það
að byrja. Við höfðum samband
við skólana í gær og inntum
frétta af nemendafjölda í hverj-
um skóla og skólasetningu.
Kennaraskóli íslancks mun hafa
um 820 nemendur í vetur og hafa
þeir aldrei verið fleiri. í I. betkk
verða um 270-280 nemendur.
í Kennaraskólanum verða
væntanlega 34 bekkjardeildir, að
!því er dr. Broddi Jóhannesson,
skólastjóri, tjáði okkur í gær.
Kennaraskólinn hóf starf 3.
september sl., en þá hófst
ibennsla hjá hinni nýju fram-
haldsdeild og kennaradeild
stúdenta. Einnig birjuðu þá 130
gagnfræðingar á námskeiði í
stærðfræði og eðlisfræði. Nú um
mánaðarmótin ;eru I. bekkingar
að undirbúa sig undir að hefja
vetrarstarfið, en skólinn verður
formlega settur einhvfern tíma
fyrri hluta október.
Menntaskólinn í Reykjavík
verður settur í dag kl. 2 við há-
tiðlega athöfn í Dómkirkjunni.
Einar Magnússon rektor tjáði
okkur í gær að nemendafjöldi í
vetur yrði um 1040. Fjöldi kienn-
ara verður sami og í fyrra, eða
alls 75. Þar af eru 36 stunda-
kennarar, en 39 fastir. Bekkjar-
deildir verða 44 og þar af eru 15
fyrstu bekkjardeildir með um
380 nemendur. í lærdómsdeild
eru alls um 660 nemiendur. Skól-
inn er tvísettur með 540 nemend-
ur árdegis og um 500 nemendur
síðdegis. Einar sagði að s.l. ald-
arfjórðung hefði engum með til-
skilin réttindi verið synjað um
iskólavist og að húsrými væri
nóg fyrir þennan fjölda, þó svo
- ÍÞRÖTTIR
Framhald af bls. 30
fyrir Leeds. Liverpool er nú
komið upp í annað sæti eftir
stórsigurinn á Molineux-vellin-
um í Wolverhampton. Það var
hinn ungi Alun Evans, sem átti
ekki hvað minnstan þátt í þessu
tapi Úlfanna á heimavelli í ára-
tugi. Hann skoraði tvö glæsileg
mörk gegn sínu gamla félagi.
'Hin mörkin skoruðu Rogeir Hunt
og Peter Thompson, tvö hvor.
A'lan Ball skoraði þrjú fyrir Ever
ton og átti 'stórkostllegan leik og
Everton þakkaði West Brom-
wich fyrir síðast á eftirminni-
legan hátt, en þessi lið mættust
í úrslitaleik bikarkeppninnar í
vor og þá sigraði West Brom-
wioh á einu marki, eftir fram-
lengdan leik. David Thomas, 17
ára unglingur, skoraði bæði mörk
in fyrir Burnley, len Bobby
Tambling fyrir Chelsea. Mark-
vörður Sundarlands, Montgo-
mery, átti stórkostlegan leik gegn
Arsenal.
Blackpool tapaði nú í fyrsta
skipti. Það var annað falliiðið
úr 1. deild s.l. ár. Sheffield Uni-
ted sem lágði þá að velli. Keppn
in í annari deild er sérlega
skemmtileg, þar sem ekki mun-
ar nema þremur stigum á efsta
liði og hinu ellefta.
í þriðju deild er Luton efst
mieð 16 stig, en Barrow og Rother
ham hafa 14 stig hvort og Bourne
mouth 13. Oldham er neðst með
4 stig og Gillingham hefur 6.
Darlington, í 4. deild, er nú eina
taplausa liðið í Englandi. Dar-
lington er efst með 16 ijtig, en
Doncaster fylgir fast eftir með
sama stigafjölda. f þriðja sæti er
Chester mieð 15 stig.
Dundee United er efst í Skot-
landi með 8 stig eftir 4 leiki, eða
100%. í næstu sætum eru Mor-
ton, St. Mirren og Rangers með
6 stig hvert.
hann áliti slíkan nemendafjölda
í m .nntaskóla of mikinn.
Menntaskólinn á Laugarvatni
var settur kl. 4,30 í gærdag. Jó-
hann Hannesson skólameistari
sagði okkur að 163 nemendur
yrðu í skólanum í vetur og hefðu
þeir aldrei verið fleiri. 9 fastir
kennarar kenna við skólann og
3 stundakennarar. Undanfarin
tvö ár hafa verið tekin í notkun
tvö heimavistarhús og nú er ver-
ið að taka það þriðja 1 notkun.
Það fjórða og síðasta í bili verð-
ur fullgert næsta haust, en eftir
það verður hafist handa um að
reisa raunvísindahús fyrir skól-
ann. Jóhann skólameirstari tjáði
okkur að í haust yrði farið með
af stað í skólanum nýtt kerfi,
valgreinakerfi, sem að visu væri
ennþá á tilraunastigi, en væri
fyysta sporið frá gömlu deilda-
skipTThgunni.
Menntaskólinn á Akureyri
v.srður settur í dag kl. 2, en alls
verða um 510-520 nemendur við
nám í skólanum í vetur. 23
bekkjadeildir verða við skólann,
en kennarar verða um 30 tals-
ins. Steindór Steindórsson skóla-
meistari sagði okkur að helzta
nýjungin í skólastarfinu væri
náttúrufræðideildin, sem tók til
starfa s.l. vetur og yrði haldið
áfram á þeirri braut.
Verzlunarskóli fslands var sett
ur mánudaginn 16. sept. sl. Nem-
endur eru 620 og eru þá meðtald-
ir gagnfræðingar, sem sækja nám
skeið í skólanum. 33 kennarar
verða við skólann og þar af eru
19 fastir, en alls eru bekkjar-
deildirnar 24. í lærdómsdeild, 5.
og 6. bekk, eru 70 nemendur, en
Blönduósi, 30. sept.
EFTIR langvarandi góðviðri
brast á norðan óveður um miðj-
an dag á laugardag. Skipti þá
engura togura að jörð varð grá
niður að sjó. Vindur var hvass
af norðaustri og stórsjór.
f allan gærdag var hið versta
veður í norður hluta sýslunnar,
en betra frammi í dölunum, að
minnsta kosti fyrri hluta dags-
ins. Um tvö leytið kom bíll að
sunnan til Blönduóss. Hann fékk
sæmilegt veður og færi, nema
síðasta spölinn. Eftir það voru
bílar að koma ihingað langt fram
á kvöld og höfðu alliir tafizt mik-
ið vegna vatnsviðris, hríðar og
hálku. Áætlunarbíll Norðurleiða
var tvo kl'ukkutíma frá Varma-
hlíð til Blönduós, en það er 50
km leið. Þá var stórviðri í Langa
dal, blindhríð og vegurinn gler-
'háll.
Norðurleiðabíllinn frá Reykja-
vík kom 3 klst. á eftir áætlun til
Blönduóss. Þá var orðið slæmt
veður og færi að bílstjóriinii
ákvað að fara ekki lengra.
Aðrir ferðamenn á norðurleið
tóku sama kostinn.
Knattspyrnukappleikur við
Völsunga á Húsavík og Snæfell-
inga átti að fara fram á Blöndu-
ósi og hefjast kl. 3 í gær. För
beggja liðanna seinkaði talsvert
og þegar hingað kom þótti ekki
fært að hefja leikinn.
Hlviðrið færðist í aukana og
knattspyrnumeninimir urðu að
halda heimleiðis án þess að clrepa
fæti sínum á vðllinn.
Gestarúm á Hótel Blönduósi
urðu brátt fullskipuð, en gestum
sem þurftu að fá gistingu og ann
í I. bekk eru 120 nemendur.
Að sögn skólastjórans dr. Jóns
Gíslásonar, verða nokkrar breyt-
ingar á kennsluháttum við skól-
ann. M.a. hefur verið ákveðið að
leggja niður Örsted einkunnar-
kerfið og taka upp venjulega 10
stiga kerfið.
Menntaskólinn í Ilamrahlíð var
settur sl. laugardag og eru nem-
endur þar tæplega 470. í fyrra
voru þeir 320. 17 fastir kenn-
arar verða við skólann og um 10
stundakennarar. Alls eru bekkj-
ardeildir í skólanum 19, að sögn
Guðmundar Arnlaugssonar rekt-
ors.
Þegar skólinn var settur var
afhjúpuð stytta Ásmundar Sveins
sonar, Öldugjálfur, en Reykja-
víkurborg gaf skólanum stytt-
una, sem er staðsett fyrir utan
skólann.
an greiða fjölgaði jafnt og þétt.
Engm þurfti samt að úthýsa, því
að hóte'lsjórann, Þorseinn Sigur-
jónsson, skorti hvorki ráð né góð
an vilja til að greiða fram úr
vanda gestanna. Var þó e'kki vit-
að langt fram yfir miðjan dag
að neinnar óvenjulegrar gesta-
komu væri að vænta. Næturgest
ir voru um 100. Ferðafólkið lagði
svo af stað í morgun. Margir
höfðu orðið að skilja bíla sína
eftir einhvers staðar í nágrenn-
inu, sumir í Langadal, aðrir á
Ásum og í Þingi. Ekki er þó vit-
að um nein alvarleg óhöpp.
í nótt lægði og létti til og í dag
er glaða sólskin og logn. En
vetrarlegt er um að litast. Blanda
er þakin krapahrönn og þrátt fyr
ir sólskinið klökknar lítið. Húna-
vatn er ísilagt.
Gangnamenn á Grímstunguh.
og Auðkúluheiði voru lagðir af
stað áður en óveðrið skall á. Ekki
hafa fréttir borist af þeim aðr-
ar en þær, að Auðkúluheiðar-
menn, sem gistu á Hveravöllum
aðfaranótt sunnudagsins lögðu af
stað um morguninn og ætluðu
eins og venjlega að 'hafa næsta
náttstað á Kolkuskála, sem er
marga tugi kílómetra norðar á
heiðinni. Gangnamenn á þessum
heiðum munu koma til byggða í
kvöld og stóðið verður réttað á
morgun í Auðkúlurétt og Undir-
fellsrétt.
í fyrri göngum var því öllu
smalað norður undir byggð og
þessar síðari göngur eru fyrst og
fremst eftirleit.
Bjöm Bergmann.
FRÁ og með 1. október breytist
útivistartími barna og unglinga í
Reykjavík, samkvæmt reglum
í lögreglusamþykkt borgarinnar,
þannig að börn innan 12 ára
mega ekki vera á almannafæri
eftir kl. 20,00 (klukkan 8 að
kvöldi), og börn innan við 15
ára aldur ekki eftir kl. 22,00,
nema í fylgd með fullorðnum,
sem beri ábyrgð á þeim.
Barnaverndarnefnd Reykjavík
ur mun, eins og undanfarin ár,
í samstarfi við lögreglu borgar-
innar, stuðla að því, að þessum
reglum sé framfylgt, með sér-
stöku kvöldeftirliti í hinum
ýmsu hverfum borgarinnar.
Verður hert á því eftirliti nú við
hinn breytta útivistartíma.
Nefndin vill enn sem fyrr
leggja áherzlu á, að slíkt eftirlit
er gagnslítið, nema að til komi
samstarfsvilji foreldra og heim-
ila og skilningur á iþví, að hér
er annarsveigar velferðarmál
barna og unglinga, sem nauð-
synlegt er að gefa gaujn, — þá
ekki hvað sízt að koma börnun-
uim sj álfum í skilning um, að það
Háskóla-
fyrirlestur
PRÓFESSOR J. Bisnnett Mi'ller
frá lagadeild Glasgowháskóla
dvelur hér á landi í boði Háskóla
íslands og á vegum British Coun
cil. Hann flytur fyrirlestur
þriðjudag 1. október n.k. kl. 5.30
e.h. í I. kennslustofu Háskólans.
Fyrirlesturinn nefnist „Putting
Academic Standards into Prac-
tice“.
Öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum.
(Frá Háskóla íslands).
Fyrirlestur í
iMorræina liúsinu
FRITS VON DER LIPPE leik-
hússtjóri og stofnandi norska
Riksteatret, hélt í gærkvöldi
fyrirlestur í Norræna húsinu.
Fyrirlesturinn fjallaði um norr-
æn leikhúsmál og einnig var
sýnd kvikmynd um „riksteatret
i Skandinavia“.
er fyrst og fremst í þeirra þágu
að þau læri að virða og temja
sér eðlilegar og hollar venjur í
þessu efni. f því sam'bandi skal
vakin athygli á rödd, sem ný-
lega kom frá reyndum ísienzk-
um skólamanni um svefnþörf
barna og unglinga og niðurstöð-
ur af könnun, er hann gerði á
isvefntíma allmargra reykvískra
barna. Sú könnun gefur tilefni
til að álykta, að þorri reykviskra
skólabarna sitji vansvefta og
sjálfum sér ónóg í kennslustund-
um. Þarf ekki að fjölyrða um,
hvaða áhrif slíkt hefur á náms-
árangur og almenna líðan bam-
anna.
Sé litið einungis á íbúafjöld-
ann, þá getur Reykjavík ekki
kallazt stórborg. Hún hefur þó
óumdeiLanlega tileinkað sér í
vaxandi mæli ýmis einkenni stór
borgarinnar nú á síðustu árum,
og uggvænlegar eru tölur í
skýrslu Barnaverndarnefndar
Reykjavíkur frá s.l. ári, aem
sýna, að afbrotum uniglinga,
einkum hinum alvarlegri fer
fjölgandi, afbrotum, sem mörg
;eru framin í skjóli náttmyrkurs
og reiðileysis götunnar, eftir að
leyfilegum útivistartíma er lok-
ið.
Nú þegar vetur fer í hönd og
dimmir dagar, heitir Barnavernd
arnefnd á foreldra og alla þá,
sem hafa með höndum forsjá
barna og unglinga, að gera sam-
stillt átak um að koma í veg fyr-
ir óþarfan slæping þeirra og
göturáp að kvöldlagi og bægja
þannig frá dyrum margvíslieg-
um vanda og hættum, sem slikt
hefur í för með sér. Sérstökum
tilmælum skal beint til skóla og
annarra aðilja, sem skipuleggja
ýmiskonar félagisstörf ungmenna
að stefna að því, eftir því sem
framast er kostur, að starfsem'i
þeirra gangi ekki fram yfir til-
se'ttan útivistartíma.
Barnaverndarnefnd hlefur á
ýmsan hátt orðið 'þess vör, að s\l-
menningur er ánægður með og
þakklátur fyrir þá aðstoð, sem
nefndin í ágætu samstarfi við
lögreglu borgarinnar hefur veitv
með áróðri og aðgerðum í úti-
vistarmálum barna og unglinga.
Vænir hún áfram góðs og irang-
ursríks samstarfs við alla þá að-
ilja, sem þeim málum vilja
leggja lið.
(Frá Barnaverndarnefnd
Reykjavíkur).
A 2. hundrað manns
tepptust á Blönduósi
— fyrsti haustsnjórinn féll um helgina