Morgunblaðið - 23.11.1968, Blaðsíða 14
14
MORGUN’BLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1968
fðlingMttlrftifrifr
Útgefandi
Framkvæmdastjórí
Ritstjórar
Ritstj ómarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgrei'ðslg
Auglýsingar
Askriftargjald kr. 130.00
I lausasölu
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsison.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
á mánuði innanlands.
Kr. 8.00 eintakið.
HÖFNUM
HAFTASTEFNUNNI
¥ Ttvarpsumræðurnar í fyrra-
^ kvöld staðfestu enn, það
sem fram hefur komið áður,
að stjórnarandstæðingar,
Framsóknarmenri og komm-
únistar, sjá enga aðra leið út
úr efnahagsörðugleikum þjóð
arinnar en gömul og úrelt úr-
ræði, sem íslendingar hafa
áratuga reynslu af og hafa
reynst óhæf. Framsóknar-
menn og kommúnistar boða
nú opinskátt allsherjar höft,
innflutningshöft, gjaldeyris-
höft og fjárfestingarhöft.
Ólafur Björnsson alþm.
gerði þessari gömlu og úreltu
stefnu Framsóknarmanna og
kommúnista, einkar viðeig-
andi skil í útvarpsumræðun-
um er hann sagði: „Þegar
opinber leyfi þurfti til alls,
svo sem að kaupa gjaldeyri,
byggja sér bílskúr eða kaupa
bíl eða jeppa, tóku menn það
gjarnan til bragðs að leita þá
til fulltrúa síns flokks í nefnd
inni, sem leyfum úthlutaði og
biðja hann ásjár. Ef það gekk
ekki t.d. vegna þess, að borið
var við einhverjum reglum,
sem fylgja ætti við úthlutun-
ina, þá leitaði maðurinn í öng
um sínum til ráðherra síns
flokks eða annarra forustu-
manna, tíundaði afrek sín í
þágu flokksins og mæltist til
þess að forustumaðurinn
beitti áhrifum sínum við pilt-
ana í úthlutunamefndinni til
þess að leyfið fengist. Þannig
togaði Þríbjörn í Tvíbjörn og
Tvíbjörn í Einbjöm og gagn-
stætt því sem var í þjóðsög-
unum, þá gekk rófan stund-
um, leyfið fékkst.“
Haftakerfið var afnumið,
þegar viðreisnarstjórnin tók
við völdum og síðan eru brátt
liðin 9 ár. Á þessu tímabili
hafa ungir menn og konur
vaxið úr grasi, sem aldrei
hafa kynnzt höftunum af eig-
in raun. En einmitt þessi nýja
kynslóð hefur á undanfömum
mánuðum látið mjög til sín
heyra og krafizt þess að dreg
ið verði úr áhrifum og völd-
um stjórnmálamanna og
stjórnmálaflokka. Þetta unga
fólk ætti að kynna sér ræki-
lega ummæli Ólafs Björnsson
ar alþm. vegna þess að þau
sýna glögglega að haftakerfi
það, sem Framsóknarmenn og
kommúnistar heimta nú að
verði tekið upp á ný, þýðir í
raun að stjórnmálamönnum
og stjómmálaflokkum verða
afhent stóraukin völd og í
skjóli þeirra valda mun þró-
ast margvíslegt ranglæti, mis-
munun eftir stjórnmálaskoð-
unum og raunar bein spill-
ing.
Um þetta stendur valið í
dag. Haftastefnu Framsóknar
manna og kommúnista, sem
hafa mundi í för með sér hið
fullkomna flokksræði eða
djarfa stefnu núv. ríkisstjórn-
ar undir fomstu Sjálfstæðis-
flokksins til þess að virma
bug á erfiðleikunum með ráð-
um, sem tryggja frelsi ein-
staklingsins til athafna og
hvetja hann beinlínis til þess
að leita nýrra leiða, nýrra úr-
ræða.
NÝR
ÞINGFLOKKUR
VUirlýsing Björns Jónssonar
alþm. við atkvæða-
greiðslu um vantraust á rík-
isstjómina í fyrrakvöld, hef-
ur að vonum vakið mikla at-
hygli. Með þeirri yfirlýsingu
hefur Bjöm Jónsson bemm
orðum sagt, að þeir aðilar,
sem slitið hafa samstarfinu
við kommúnista hyggist nú
stofna sérstakan þingflokk
og bjóða fram til næstu al-
þingiskosninga.
Þessi yfirlýsing Bjöms
Jónssonar er vafalaust ein-
hver sögulegasti atburður í
þingsögu síðari tíma. Hún er
undanfari þess, að endahnút-
urinn verði rekin á það sam-
starf lýðræðissinnaðra manna
við kommúnista, sem hófst
með klofningi Alþýðuflokks-
ins 1938. Sú saga var rakin í
Mbl. fyrir nokkm en reynsla
bæði Héðins Valdimarssonar
og Hannibals Valdimarssonar
hefur glögglega sýnt, að með
kommúnistum er ekki hægt
að vinna.
Eftir er að koma í ljós
hvaða stefnu hinn nýi þing-
flokkur markar sér og hvaða
þingmenn ganga til liðs við
hann. En ljóst er að enn er
mikilla tíðinda að vænta
í röðum vinstri manna
og allt bendir nú til þess að
kommúnistar einangrist
smátt og smátt hér á landi og
verði aðeins lítill og áhrifa-
laus flokkur eins og þeir em
fyrir löngu orðnir í nálægum
löndum.
||l 'AN IÍR H FIMI
\iiiv U1 nli ui\ n L1IVI1
Herinn tekur völdin í
enn einu Afríkuríkinu
Enn einu nafni hefur verið
bætt við þann lista valda-
manna í Afríku, sem steypt
hefur verið af stóli með valda
ráni. A þriðjudaginn var velti
óþekktur herforingi Modbo
Keita forseta landsins úr
sessi. Liðsforinginn, Mussa
Traere, steypti stjórninni af
stóli í því skyni — eins og
skýrt var frá í útvarpstil-
kynningu — „að binda endi
á einræðisstjóm Modibos
Keita.“ Hvað síðan varð um
forsetann fyrrverandi, sem er
53 ára að aldri, var ekki vit-
að. t höfuðborginni Bamako
var sá orðrómur á kreiki, að
hann hefði verið handtekinn,
en ekkert fékkst staðfest þar
að lútandi. Útgöngubanni var
komið á og samband við út-
lönd rofnað að sinni.
Fréttirnar um, að Keita
hefði verið steypt af stóli,
komu frá Abijdan, höfuðborg
Fílabeinsstrandarinnar, þar
sem útsendingar útvarpsins í
Bamako heyrðust. í útvarpinu
var tilkynnt, að „tími frelsis-
ins væri runninn upp“, a'ð
Keita hefði verið steypt af
stóli og að herinn hefði tekið
völdin í sínar hendur. Þá var
frá því skýrt, að herinn myndi
bráðlega láta fara fram frjáls
ar kosningar.
Á milli útsendinganna voru
leikín hergöngulög og síðan
var tiikynnt, að „stjórn Keita
og vikapilta hans væri fall-
in“ og enn ennfremur, að kom
ið hefði verið á fót „þjóðlegri
frelsisnefnd", sem myndi leit
ast við að koma á legg „lýð-
ræðislegri stjórn og pólitísk-
um stofnunum". Þá var til-
kynnt, að sett yrði á útgöngu
bann um stundarsakir frá kl.
18. til kl. 6 að morgni.
Áður en þessar tilkynningar
Modibo Keita.
heyrðust, höfðu erlend flug-
félög, sem fljúga til Bamako,
verið látin vita, að flugvöllur
inn þar væri lokaður um
óákveðinn tíma. Voru ástæð-
urnar fyrir þessu ekki til-
greindar nánar.
Valdaránið í Mali er það
sfðasta af mörgum á undan-
förnum árum, sem orðið hafa
þess valdandi, að herinn hefur
náð völdunum í þeim ríkjum,
sem áður voru franskar ný-
lendur. Þeirra á meðal voru
Togo, Dahomey, Efri Volta,
Braxaville-Kongo og Alsír.
Keita var einn af kunnustu
byltingarleiðtogum Afríku.
Sem náinn vinur Kwame
Nkrumah, er velt var úr stóli,
og Sekou Touré, hins vinstri
sinnaða forseta Guineu, var
Keita óumdeildur leiðtogi
Mali, frá því að landið varð
sjálfstætt 1960.
í byrjun stjórnartímabils
síns fékk hann fjölda sér-
fræðinga frá Kína og Sovét-
ríkjunum til þess að koma til
Mali í því skyni að aðsto'ða
við efnahags- og tækniþróun
landsins og tók almennt upp
andvestræna stefnu í utanrik-
ismálum.
Hann forðaðist þó sjónarmið
öfgamanna, sem vimur hans
Nkrumah aðhylltist oft, og síð
ari ár hefur hann stöðugt snú
ið sér meira að Vesturlöndum,
einkum að Frakklandi og þeg
ið þaðan mikla efnahagsað-
stoð.
Mali, sem hefur hvergi a‘ð-
gamg að sjó, er næstum tvisvar
sinnum stærra en Texas, en
hefur minna en fimm millj.
íbúa. Flestir eru íbúarnir hirð
ingjar og útflutningur lands-
ins er fyrst og fremst bómull
og jarðhnetur.
Þetta land var eitt af ný-
lendum Frakklands þar til
1959, en gekk þá í ríkissam-
band við Senegal og myndaði
Maliríkjasambandið, sem lifði
aðeins stutt, en Keita var for-
seti þess.
Síidegismessur
í Dómkirkjunni
Barnasamkomur kirkjunnar fluttar í
Miðbœjarskólann
SÍÐDEGISMESSUR Dómkirkj-
unnar hefjast á morgun og verða
öðrum þræði í vetur, eins og ver
ið hefur. Hér er því tækifæri fyr
i þá að sækja messu, sem ekki
komast að heiman fyrir hádegi
á sunnudögum.
Þess er sérstaklega óskað að
fermingarbörn og foreldrar
þeirra sæki þessar messur með-
an á fermingarundirbúningi
stendur og gæiti því hér orðifi
um einskonar fjölskylduguðsþjón
ustur að ræða. Sú var tíðin að
börn og unglingar fylgdu foreldr
um sínum til kirkju og átti það
góðan þátt í því að efla einingu
fjölskyldulífsins. Munu ferming-
arbörnin taka sérstakan þátt i
þessum guðáþjónustum með því
að flytja bænir og lesa Riitninga
kafla.
Barnaguðsþjónustur Dómkirkj
unnar verða í vetur, í samkomu
sal Miðbæjarskólans, en þar er
skemmtilegur salur, er rúmar
um 120 börn. Hefjast samkomur
þessar kl. 11 f.h. hvern sunnu-
dagsmorgunn, og verða með svip
uðu sniði og áður. Talað verður
við börnin um valda ritningar-
kafla, sungið með þeim, og þeim
sagðar sögur við barna hæfi og
loks myndasýníng.
Barnasamkomurnar eru ekki
ætlaðar yngri börnum en fjög-
urra ára. Það væri einnig ánægju
legt, að sjá fullorðið fólk koma
með börnum sínum á samkomur
þessar.
i Varðbergs- og
SVS-íundni
EINAR Ágústsson, varaformaður
Ffamsóknarflokksins, talar um
síðasta þingmannafund NATO á
hádegisfundi Varðbergs og SVS
í dag, laugardag, í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Fundurinn er fyrir
félagsmenn og gesti þeirra. Hús-
| ið verður opnað kl. 12.
Verður 100 nrn
gömul í dng —
Hveragerði, 22. nðvember
í DAG verður Ólöf Gunnarsdótt-
ir, Simbakoti, 100 ára. Ólöf er
fædd 3. nóvember 1868 á Eyrar
bakka. Hún hefur síðastliðin 10
ár verið á elliheimilinu Ási í
Hveragerði. Ólöf er furðu hress,
les allar fyrirsagnir í blöðum,
gleraugnalaust, og fylgist vel með
öllu.Að sögn forstöðukonu Ás-
ar hefur Ólöf aðeins einu sinni
verið lasin í þau 10 ár, sem hún
hefur dvalið á Elliheimilinu.
— Georg.
/