Morgunblaðið - 24.11.1968, Síða 14

Morgunblaðið - 24.11.1968, Síða 14
14 MORGUN’BIAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1968 New York 19. nóv. Frú Aristoteles Onassis, áð ur frú John F. Kennedy, kom heim frá ’.ondon í gær. Eiginmaður henaar auðkýf- ingurinn og skipakóngurinn, var ekki samferða henni, en hún var samt ekkl eins síns liðs, þvi að með henni var fylgdarmaður, fimm ferða- töskur og hvítur peking hund ur, Daisy. Frú Onassis, lundurinn og Golin Simpson, yfirmaður hjá flugfélagi manns hennar, Ól- ympic Air flu>gu á fyrsta farrými með Trans World Flugfélaginu, ferð nr. 701, Jackie með franska aipa- húfu á sveitasetri Lee systur sinnar Radziville. sem lenti á Kennedy flug- velli ki. 20.12. Fulltrúar heilbrigðisyfir- valdanna og tollsins fóru um borð, strax eftir lendipgu í regni og þoku, og gengu frá skilríkjum frúarinnar vel- þekktu á augabragði. Christ- ina, átján ára gömul dóttir Onassis, fékk að fara um borð til að taka á rnóti nýju stjúpunni sinni. S'Tona er einn ig tekið á móti Bítlunum,Burt on hjónunum og Páli páfa sjötta! Frú Onassis fór síðust 114 farþega frá borði. Sjónarvott ar sverja og sárt við leggja, að það hafi stytt upp sam- stundis, er hún kom út á tröppur flugvélarinnar. Hún leit yfir hóp 55 fréttamanna og Ijósmyndara, sem beðið höfðu hennar í þrjár klukku- stundir í rigningunni, brosti og gekk niður þrepin. Hún hélt á sex rauðum rós- um, sem Olympic flugfélagið hafði sent henni. Fylgdarmað ur hélt á hundinum. Frú Artemis Garoufalidou og frú Nicholas Konialidis, systur hr. Onassis biðu henn- ar í stórum bíl, og fóru þaer síðan burt í honum, en marg- ir fulltrúar frá Olympic flug- félaginu fylgdu eftir í öðrum. Trans World Flugfélagið bauð fréttafólki í te, samlok- ur og kaffi.... Flugið hafði verið viðburða laust, að undanskilinni milli- lendingu í Boston til að taka benzín og flukkutíma hring- flugi yfir New York, en um allt þetta var veðurskilyrðum kennt og tafði það flugið um tvo klukkutíma og 32 mínúit- ur alls. Frú Onalssis drakk te, las dálítið í bók, horfði umstund á sakamálaþátt í sjónvarpinu með Rod Taylor og Christop- her Plummer. Þá var komið fram að kvöldmat, og flug- freyjan varð afar undrandi, er hún bað um heUa pylsu. Hún fékk blandaða smá- rétti og glóðaðan nautageira. Hundurinn Daisy fékk ekki að rápa fram og aftur um gangana, heldur var geymdur mest af ferðinni, sem stóð í níu klukkutíma og átján mín- útur, í ljósblárri hundatöku við fætur frú Onassis og herra Simpsons. Henni vai- aðeins hleypt einu sinni út til að gæla við hana og gefa henni smá vatnssopa úr barnapela, en ekki neina steik. Jill Hodgson, ein af flug- freyjunum á fyrsta farrými sagði, að frúin hefði verið hrífandi og eðlileg. Caroline og John F. Kenne dy yngri, komu ekki að taka á móti mömmu sinni vegna bandi við Thanksgiving dag- inn, með Hugh D. Auchin- schloss, og konu hans, en þau eru móðir frú Onassis og stjúpfaðir. Nancy Tuckerman, einka- ritari frú Onassis, sagðist alls enga hugmynd htfa um, hvað gert yrði, fyrr en frúin kæmi, og pað hefði he'ldur enginn annar. Louis Harris, sem stjórnr skoðanakannanaskrifstofu, sagði að 61prs. fólksins, sem hann hefði talað við væri þeirrar skoðunar, að það sem nýju hjónin gerðu væri þeirra einkamál, en ekki fódksins. Betty Beale í Washington Star, upplýsti, að hún hefði séð pað á herskyldukorti, að Qnassis væri 68 ára, en ekki 62ja, eins og hann hefði til- kynnt er þau voru gefin sam- an. Annar staðar segir: Jacqueline Onassis sá í gær, er hún kom, að hún myndi annaðhvort þurfa að kaupa sér stórhýsi, eða flytja í stærri íbúð. í stigagangi þjónustufólks- ins voru deilur milli þjón- Jacki Onassis og Noreyev á Turnville Grange. veðráttunnar, en biðu hennar í íbúðinni á Fifth Avenue. Þau höfðu ekki fengið að sjá hana síðan skömmu eftirbrúð kaupið. Drengurinn, sem er alnafni föður síns, á afmæli 25. nóv- ember, og verður þá átta ára, en Caroline systir hans verð- ur ellefu ára tveimur dögum síðar. Ef haldið verður upp á af- mælið, er ekki ólíklegt að það verði haldið hátíðlegt í sam- Stanislas prins og Lee Radisville kona hans, Jacquelina Onassis, mágkona hans og Rudolf Nureyev í heimsókn á sveitasetrí Radzivillanna, Turville Grange í Henley- on- Thames. Voru Onassis hjónin þar helgargestir ásamt Mar- got Fonteyn og eru öll aðhorfa á Radziville börnin á hestbakL ustufólksins Hennar og Hans. Aðeins eru fjögur herbergi fyrir fólkið í íbúðinni hennar á Fifth Avenue númer 1040. Þjónn og einkaþjónn Onass- is byrjuðu að flytja, sjálfa sig og húsbóndann ir.n á ró- legt svið heimilis fyrrverandi frú Kennedy, fyrir nokkrum dögum. Og ekki hefur gengið á öðru en togstreitu í tilfinn- ingalífinu í eldhúsi og óæðri vistarveium íbúðarinnar síð- Þjónar hr. Onassis áttu að setja fötin hans inn í eitt af fimm svefnherbergjum fjöl- skyldunnsir, en ekki var til mægilegt skápapláss. Frú Onassis hefur sjálf aðeins tvo klæðaskápa í her bergi sínu og þá sendir hún eftir árstíðum 1 geymslu úti í bæ. Nágrannarnir segja, að þjón ustustúlkur Jackie, séu alltaf að hlaupa úr vistinni að ástæðulausu, og það sé ekki nægilegt pláss þarna uppi fyr ir allt þetta þjó iustufólk, sem þjóni hvoru um sig af trú- mannsku íbúð frú Onass's, er miklu íburðarminni, en það, sem maður hennar hefur átt að venjast á undanförnum árum, jafnvel þótt rúmið hennar, sem er gríðarstórt, franskt, sé sagt 10.000 dala virði. Frú in sefur í 18. aldar rúmi, sem stendur eins og sófi upp við vegg, og er skýlt rykktum silkiijöldum. Vinir hennar segja, að rúmið eigi sér merka sögu og eigi í framtíðinni að vera gjöf til Caroline frá frú Paul Mellon. Herra Onassis verður í fyrr verandi gestaherberg, sem er við hlið herbergis frúarinnar. Caroline, John yngri Kenn edy og barnfóstra þeirra hafa hin þrjú herbergin, sem eru sólrík, og sér úr þeim yfir vatnsból borgarinnar Eru öll herbergin í sömu álmu. Frú Kennedy, fyrrverandi, leizt vel á íbúðina. vegna stærðar barnaherbergjanna. í íbúðinni eru gamlir fransk ir innviðir í a+ofunni, sem voru -teknir úr gömlum kast- ala fyrir utan París og flutt- ir til New York fyrir fyrr- verandi eiganda, frú Lowell Weiker, en samt er húsbún- aður einfaldur í samanburði við allt sem On-.ssis hefur í seinni tíð áfct að venjast. Þegar frúin kom heim, var íbúðin yfirfull að blómum sem henni höfðu verið send, og hafði á sér þann jarðar- fararblæ, sem hún haiar. Húsverðir í húsinu gerðu lítið annað á komudaginan en að flytja blóm upp í lyftunni, svo að mæfcti koma þeim fyrir áður en hún kæmi Meðal auðugra og félags- lyndra Grikkja í New York, er mikið skrafað, um þá lifn- aðarháttu, sem annaðhvort On assis hjónanna verður að semja sig að í náinni framtíð. Vinir hans segja, að hann muni flytja úr íbúðinni henn- ar, og eins, að hún heimti, að hann selji lystisnekkjuna sína Christina, vegna þess, að frú Onassis segi, að snekkjan sé ills viti langs sambands hans við Mariu Callas og glyslífis hans þar um borð. Sagt er þegar, að hr. On- assis hafi pantað aðra snekkju í stað Christinu, sem nýja konan hans muni ráða öllu um skreytingar á. Sögur bornar til baka. New York, 19. nov. AP. Blaðafulltrúi frú Onassis neitaði því í dag, að við nokk ur vandamá'l væri að etja vegna þjónustufólks á heimiil- inu. Nancy Tuckermon, einka ritari frúarinnar sagði, að að þetta væri það nlægileg- asta sem hún hefði heyrt. Þjónustuliðið væri hið sama og fyrir fjórum árum og allar sögusagnir væru algerlega tilhæfulausar. Onassis litast um fyrir ut- an Turville-Grange,, hjá Radzivillunum. Breytingar á dómaskipan landsins — rœddar á aðalfundi Dómarafélagsins DÓMARAFÉLAG fclands hélt aðalfund sinn dagana 31. október k>* 1. nóvember sl. Sátu hann flestir félagsmanna þeirra, er Ibúsettir eru í Reykjavík og ínarglr héraðsdómarar utan Reykjavíkur, sýslumenn og bæj- jarfótgetar. Rædd voru ýmis lög- gjafarmálefni, svo sem breyting- ;ar á dómaskipan landsins o. fl. Þá komu á fundinn ráðuneytis- stjórarnir Hjálmar Vilhjálmsson og Jón Sigurðsson og ræddu og reifuðu ýmis málefni, er varða stjórnsýslustörf þau, er sýslu- menn og bæjarfógetar fara með. Þá talaði Klemenz Tryggvason jhagstofustjóri um gerð dóms- málaskýrslna og fulltrúar Trygg- ingarstofnunar ríkisins ræddu við sýslumenn og bæjarfótgeta um ýmis málefni stofnunarinnar, en þeir eru umboðsmenn hennar hver í sínu umdæmi. Meðal þeirra mála, sem tekin voru til umræðu, voru lögkjör dómara og starfsaðstaða þeirra. Samþykkti aðalfundurinn nokkr- ar ályktanir um þau efni. Stjórn félagsins var endur- kjörin, en hana skipa Hákon Guðmundsson, yfirborgardómari, formaður, Bjarni K. Bjarnason, borgardómari, formaður Dómara félags Reykjavíkur, Jón ísberg, sýsliumaður, formaður sýslu- mannafélagsins, Benedikt Sigur- jónsson, hæstaréttardómari og Torfi Hjartarson, tollstjóri. Forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn og kona hans frú Hall- dóra tóku á móti fundarmönn- um og konu þeirra í síðdegis- boði á Bessastöðum og Einar Ingimundarson, bæj arfógeti og sýslumaður í Hafnarfirði sýndi skrifstofur embættisins, en það hefur á þessu ári flutt í nýtt og hagkvæmt húsnæði. Var því næst dvalizt stutta stund á heimili bæjarfógetahjónanna Ein ars og frú Erlu. 1 Laugardaginn 2. nóv. bauð Landsvirkjunin fundarmönnum austur að Búrfelli og var hin mikla mannvirkjagerð þar skoð- uð undir leiðsögn Halldórs Jónatanssonar skrifstofustjóra og verkfræðinganna Páls Flyg- enrings og Neelands. Frá Dómarafélagi íslands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.