Morgunblaðið - 31.12.1968, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 31.12.1968, Qupperneq 5
MORGUNBÍLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1968 5 j Virðuieg útför Péturs Ottesens ÚTFÖR Péturs heitins Ottesens frv. alÞingismanns og bónda og hreppstjóra að Ytra-Hólmi var gerð frá Akranesskirkju sl. laug- ardag. Hófst athöfnin kl. 14.00 í kirkjunni. Áður hafði farið fram húskveðja að heimili hins látna að Ytra-Hólmi og flutti séra Jón Guðjónsson sóknarprestur á Akranesi þar bæn. Mikið fjölmenni var við útför- ina og komu hópar manna úr Reykjavík bæði með bílum og varðskipinu Ægi, sem flutti m. a. forseta íslands. forsætisráðherra, ásamt þremur öðrum ráð'herrum, marga alþingismenn, jafnt úr flokki samherja hins látna sem úr flokkum andstæðinga, einnig fulltrúa félagasamtaka, þar sem Pétur Ottesen hafði verið í fylk- ingarbrjósti. Útfararræðu flutti séra Jón Guðjónsson en séra Einar Guðna son prófastur í Reykholti flutti minningarræðu og kveðju hér- aðsbúa. Organisti var Haukur Guð- laugss'on, en kirkjukór Akraness- kirkju söng, en Magnús Jónsson söngkennari aðstoðaði við stjórn kórsins. Flutti kórinn m. a. „Slá þú hjartans hörpustrengi“ eftir Bach. Karlaraddir úr kórnum sungu ,,Ég krýp og faðma fót- Framhald á bls. 9 Ráðherrar og alþingismenn bera kistu hins látna úr kirkju. Kista Péturs Ottesens kórdyrum. Akraneskirkju. Séra Jón Uuðjónsson í Þessi mynd er af heiðursborgarabréfi, er ræðisafmæli hans 2. ágúst 1968. Pétur Ottesen var sæmdur af Borgarfjarðarsýslu á átt- Nýjársdagsmorgunn Að vanda opnar MÚLAKAFFI kl. 6 árdegis Nú bjóðum við yður kjötrétti og heitar samlokur úr hinu nýja GRILLI sem við vígjum í dag: Kjúklinga-, Mínútusteik-, Turnbauta-, London- lamb og fl. o. fl. allt með frönskum kartöflum. grænmeti og heitur og köldum sósum. Ileitar sainlokur, 5 tegúndir. GRILLRÉTTUR DAGSINS ER GRILL A LA MÚLAKAFFI. Enn sem fyrr er okkar „Nýárs-speciale“ franska lauksúpan svo og bacon og egg og skinkuegg. — Bara hringja og við sendum yður matinn heim. Hátlðarmatur dagslns, heitur matur frá kl. /7 árd. til kl. 20 hjá okkur er svohljóðandi: Rósinkálsúpa Innbökuð smálúðuflök m/remouladesósu Saxaður bauti með eggi Vínarsneið Garne Lambasteik m/grænmeti Grísastcik m/rauðkáli Hamborgarhryggur m/rauðvínssósu ís m/ananassósu Kaffi Hátíðamatur hjá okkur er sannkallaður hátíðamatur nú sem fyrr, — en er þó ódýr. Múlakaffi við Hallarmúla sími 37737

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.