Morgunblaðið - 29.01.1969, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.01.1969, Blaðsíða 1
24 SIDUR FRÁ opnun friffarviðræðnanna í París á laugardag. Fremst á myndinni er bandaríska nefndin, en á móti henni við borðið er nefnd Norður-Vietnam. „Þióðfrelsisfylkingin“ er til vinstri, og Suður-Vietnam til hægri. Næsti viðræðufundurinn er á fimmtudag. Aframhaldandi réttarhöld í Irak Stjórnin bodar fleiri aftökur, ef sakborningar reynast sekir Bagdadbúar fagna attökum meintra njósnara fyrir ísrael og krefjast fleiri blóðfórna New York, London, Róm, 28. jan. — (AP-NTB) • Stjórnir Bandarikjanna og Bretlands og málgagn páfastóls- ins hafa fordæmt aftökumar í Bagdad í gær, en þá voru 14 fraksbúar, 9 þeirra Gyðingar, hengdir opinberlega fyrir meint ar njósnir á vegum ísraels. — Strax í gær, eftir að tilkynnt hafði verið um aftökumar, skýrði U Thant framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna frá því að hann hefði reynt að miðla málum og varað íraksstjórn við hugsanlegum afleiðingum ef mennirnir yrðu líflátnir, og sama hafði franska stjórnin gert. • Abba Eban utanrikisráð- herra ísraels hefur ritað U Thant bréf þar sem hann fordæmir af- tökuraar. Segir hann þar að af- tökurnar hafi verið hrottalegt athæfi, og þrælslegri en jafnvel hefði mátt búast við frá þjóð, þar sem ofbeldisverk og morð em daglegir viðburðir. # U Thant ræddl við frétta- menn í dag og kvaðst þá sam- mála Nixon Bandaríkjaforseta nm að nauðsynlegt væri fyrir stórveldin fjögur, Bandarikin, Bretland, Frakkland og Sovét- rikin að beita áhrifum sínum til að draga úr hættunni í löndun- um fyrir botni Miðjarðarhafsins. # I Arabalöndunum hefur af- tökunum yfirleitt verið fálega tekið, aðeins skýrt frá þeim í fáum orðum án umsagnar, nema í írak. Þar hefur aftökunum verið ákaft fagnað og fjölmenn- ar hópgöngur verið farnar fram hjá gálgunum, þar sem líkin hanga öllum til sýnis og aðvör- unar. Þá hefur Iraksstjóm til- kynnt að fleiri hópar manna bíði nú dóms sakaðir um njósnir fyr- ir ísrael, og verði mennimir hengdir ef þeir reynist sekir. í ritstj órnargrein í málgagni páfa, „l’Osservatore Romano" er harmað áð stjóm íraks skyldi hafa látið verða úr hengingun- um þrátt fyrir áskoranir fjölda aðila, og segir blaðið að þessi ráðstöfun geti aðeins haft slæm áhrif á máistað friðarins. Einnig ræðst blaðið á fagna'ðarlæti á- horfenda við gálgana í Bagdad, en bætir því við að það vilji ekki láta 'túlka þessi ummæli sín sem afskipti af innanríkismálum ír- aks. Hins vegar hljóti það a@ vera réttur og skylda Páfagarðs að benda á að aftökurnax geti komið í veg fyrir frið. Talsmáður brezka utanríkis- ráðuneytisins skýrði frá því í dag að ráðuneytið hefði snúið sér til stjómar íraks fyrir nokkru og beðið mönnunum 14 griða. „Við hörmum það innilega að stjórn íraks taldi sér ekki fært áð milda dómana,“ sagði talsmaðurinn. „Þar sem þeir dæmdu virtust allir vera írask- ir borgiarar, var ekki ástæða tál formlegrar íhlutunar brezku stjómarinnar. Við tókum hins vegar málið upp óformlega á mannúðargrundvelili, eins og okkur skilst að fleiri hafi gert, hvöttum íraksstjórn tii að sýna mildi, og bentum á hver áhxif Framh. á bls. 16 Rússar framar eiga enga vim í Tékkóslóvakíu — segir Emil Zatopek — Hatrið á þeim fer stöðugt vaxandi 'PRAG 28. janúar, NTB, AP. '• 1 dag var plantað furutrjám 'umhverfis styttu heilags Wene- eslas í Prag og er. litið á þetta sem ráðstöfun af hálfu stjórn- arvaldanna til þess að koma í veg fyrir, að stúdentar geri styttuna að minnismerki, sem stöðugt skuli minna á Jan Pal- ach og fómardauða hans. Þá var skýrt frá því opinberlega í dag, að 17 ára gamall piltur í bænum Cheb við landamæri V-Þýzka- lands, hefði gert tilraun til þess að brenna sig til bana á sunnu- dag. • 1 viðtalj við austurríska blaðið „Die Neul Zeitung“ hef- ur tékkneski íþróttamaðurinn heimsfrægi, Emil Zatopek, lýst yfir þeirri skoðun sinni, að beiti Sovétríkin valdi í annað sinn í Tékkóslóvakíu, þá muni fólkið í landinu ekki liiorfa á aðgerða- laust. Kveðst hann óttast, að hvenær sem er kunni að sjóða þar upp úr. Hatrið á Rússum fari stöðugt vaxandi. — Rússar eiga ekki lengur neina vini í Tékkóslóvakíu, er haft eftir Zatopek. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum, að forysta kommún istaflokks Tékkóslóvakíu óttist, að stúdentar og verkamenn ýmeum mikilvægum starfsgrein- Framhald á bls. 16 Miami, 28. jarnúar. AP. TVEIR menn, sem beittu skamm byssu og einhverju, er líktist sprengju, rændu farþegaþotu af gerðinni DC-8 í eign bandaríska flugfélagsins National Airlines yfir Mexicoflóa í dag og neyddu flugstjórann, James Brown til þess að fljúga með þá til Kúbu. Flugvélin lenti í Havana kl. 15.63 að ísl. tíma. Þetta var önnur flugivélin i eigu National Airlines, sem rænt er á fimm dögum. Flugvél á leið til New York var neydd sl. föstu dag til þess að lenda i Haivana og átti þar hlut að máli maður, sem otaði hníif að flugstjóranum og sagðist hafa gerzt liðihlaupi úr bandaríska flotanum, sökum þesa að hann vildi ekki fara til Viet- nam og drepa fólk. Það var stuttu eftir kl. 14.00 að ísl. tíma, að Brown flugstjóri skýrði flugturninum í Miami, að tveir menn væru komnir inn í Framhald á bls. 3 Hjólporflutn- ingur til Biufru Genf, 28. jan. — NTB-AP: RÁÐ ALÞJÓÐA Rauða krossins í Genf skýrði frá þvi í dag, að af hálfu Rauða krossins muni senn verða hafhir birgðaflutning ar til nauðstaddra í Biafra frá flugvelli í Cotonou í Dahomey, sem liggur milli Toga og Nigeriu á vesturströnd Afríku. Hjálparflutningarnir til Biafra, sem séð hafa um 850.000 manns þar fyrir daglegu brauði, stöðv- uðust fyrir þremur vikum, eftir að Mið-Afríku Guinea bannaði Rauða krossinum að hafa bæki stöð í landinu, þaðan sem unnt var að halda uppi flutningum til Biafra. Á þeim tíma, sem lið- inn er, síðan þetta bann gekk í gildi og fram til nú, hafa full- trúar Rauða krossins átt í ströng um samningaviðræðum í því skyni að koma loftbrúnni á aft- ur. Flutningar á vegum hjálpar- stofnanna kirkjanna hafa hins vegar haldið áfram viðstöðulaust, því að þær hafa aðalstöðvar sín- ar á spænsku eynni Sao Tome Framhald á bls. 16 Grikklandi verði vik- ið úr Evrópurúðinu NEITAÐ 0PINBERLEGA AD K0SYGIN SÉ SJÚKUR Fundur Ulbrichts og Kosygins um Tékkóslóvakiu sagður hafa farið fram i Kaukasus STRASBOURG 20. janúar, NTB. Stjórnmálanefnd ráðgjafarnefnd ar Evrópuráffsins lagffi í dag fram tillögu, þar sem skoraff er óbeinlínis á stjórnir affildarríkj- anma aff binda endi á þátttöku Grikklands í sanitökunum. I tillögunni, sem tekin verður til atkvæðagreiðslu í ráðgjafar- nefnd Evrópuráðsins á fimmtu- dag, er mælt með því við ráð- herranefndina, sem fer með framkvæmdarvald Evrópuráðs- ins, að geTa ráðstafanir, sem hún telur nauðsynlegar til þess að gæta hagsmuna grísku þjóðar- innar. Tvo þriðju hluta atkvæða þarf til þess að tillaga ráðgjaf- arnefndarinnar hljóti samþykki. FRÉTTUM, sem verið hafa á kreiki um, að Alexej Kosygin, forsætisráðherra Sovétríkj- anna væri sjúfcur af lifrar- sjúkdómi og dveldist á heim- ili sínu fyrir utan Moskvu, var opinberlega neitað nú um helgina af hálfu sovézku ut- anríkisráðuneytisins. S a g ð i talsmaður ráðuneytisins,’ að „félaga Kosygin liði vel. Hann er í leyfi og er ekki í Moskvu eða nágxenni borgarinnar". Haft er eftir áreiðanlegum heimildum, að Kosygin og ýmsir aðrir háttsettir sovézk- ir embættismenn, sem ekki tóku þátt í viðhafnarmóttök- unum fyrra miðvikudag, er tekið var opinberlega á móti geimförunum fjórum úr Soy- us geimförunum, dveldust nú um sinn í Kaukasus ásamt Walter Ulbricht, leiðtoga kommúnistaflokks A-Þýzka- lands. Er haft eftir þessum heimildum, að Kirill Mazurov og Andrej Kirilenko, er báðir eiga sæti í forsætisnefnd sovézka kommúnistaflokksins, tækju þátt í þessum viðræð- Framhald á bls. 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.