Morgunblaðið - 29.01.1969, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.01.1969, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JAJSTÚAR 1969 Gunnar Loftsson, yfirflugvirki, Sarge Milton, Björn Jónsson, flugmaður, Páll Halldórsson, flugmaður, John Peoples og Guðjón Jónsson, flugstjóri. Láta sig ekki muna um 20 sjólendingar Þjálfun gœzluflugmannanna að Ijúka B AND ARÍ K J AMENNIRNIR tveir sem eru að kenna starfs mönnum Landghelgisgæzlunn ar að meðhöndla Albatros flug bátana héldu íslenzkum vin- um sínum smá kveðjuhóf á fimmtudagskvöld. Flugmaður inn, John Peoples, sagði að hófið væri haldið í fyrra lagi því þeir færu ekki fyrr en um mánaðamótin en ekki væri ráð nema í tíma væri tek ið og ekki myndi gefast mikið tóm til skemmtana á næstu dögum því veðurútlit væri gott og því yrði flogið ósleiti lega. Þeir félagar, og gæzlumenn irnir, hafa átt annasama daga síðan Albatrosbátarnir komu til landsins og þykir nú ekki mikið að framkvæma svosem 20 sjólendingar á dag. Sarge Milton, hefur ekki verið síð- ur önnum kafinn með sínum starfsbræðrum og að sögn flugmannanna sést sjaldnast nema í iljarnar á þeim út úr mótorunum. Þeir Sargi og John eiga báð ir langan feril að baki í her- þjónustu, þeir hafa víða farið og þjálfað marga flugmenn og flugvirkja.. Þeir eru mjög á- nægðir með hæfni íslenzku flugmannanna sem þeir segja 'tvímælalaust með þeim beztu á dag sem þeir hafi nokkursstaðar hitt. John sagði að mikil hæfni væri áreiðanlega nauðsynieg hér fremur en víða annarsstað ar vegna þess hve veðrabrigði eru tíð og snögg, flugmennirn ir þyrftu alltaf að vera á verði og reiðubúnir að bregðast fljótt og vel við nýjum vanda málum. Það væri einnig aug ljóst að miklar kröfur væru gerðar til flugvirkjanna. í lok hófsins færðu „kenn- ararnir" tveim nemendum sínum að gjöf fallegan skjöld með gylltum vængjum, og stóð á litlu spjaldi að hann væri gjöf frá þeim til beztu Albatros flugmanna sem fyr- irfyndust. TILKYNNINC FRÁ STOFNLÁNADEILD LANDBÚNADARINS Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1969 skulu hafa borizt bankanum fyrir 28. febrúar næstkomandi. Umsókn skal fylgja umsögn héraðsráðu- nautar, skýrsla um búrekstur og fram- kvæmdaþörf, svo og veðbókarvottorð. Lánsloforð, sem veitt voru á síðastliðnu ári, falla úr gildi 28. febrúar, hafi bankan- um eigi borizt skrifleg beiðni um að fá lánið á þessu ári. Engin ný skýrslugerð þarf.að fylgja slík- um endurnýjunarbeiðnum. Skjöl, sem borizt hafa vegna framkvæmda á árinu 1968 og ekki voru veitt lánsloforð um á því ári, verður litið á sem lánsum- sóknir 1969. Stofnlánadeildin telur ástæðu til þess að hvetja bændur til ítrustu varkárni með byggingaframkvæmdir og aðra fjárfestingu á árinu og telur horfur á, að ekki verði unnt að gefa lánsloforð nema til alveg bráðnauð- nauðsynlegra framkvæmda. Reykjavík, 27. janúar 1969. STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS. Höfum fyrirliggjandi DISCUS þakjarn í stærðunum 6 — 12 fet. M3ÓLKURFÉLAG REYK3AVÍKUR Stúlka óskast til starfa hjá félagsstofnun nú þegar, yngri en 30 ára kemur ekki til greina. Krafist verður algjörar reglu- semi, stundvísi og háttvísi. Starfið er fólgið í afgreiðslu, ræstingu og ýmsum þjónustustörfum. Tvískiptar vaktir. Eiginhandarumsókn, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, óskast send til bliaðsins fyrir 1. febrúar n.k. merkt: „Félagsstofnun — 6196“. leigaU aSeins * »«*-*1 w þér leig" fcöómetrag3a k eólaxbring - * afhend^ ati hringia> ° « mm8Mun% car rental serwice © Rauðarár'stíg 31 — Sfmi 22022 BEZT AÐ AUGLÝSA í MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.