Morgunblaðið - 29.01.1969, Blaðsíða 2
2
MORG-UNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1969
BÚR. leitar tilboða í einn
til tvo skuttogara
Togarar útgerðarinnar öfluðu /7.63/
tonn síðastliðið ár — Betri út-
koma á rekstrinum en /967
HEILDARAFLAMAGN togara
iBæjarútgerSar Reykjavíkur sl.
ár var 17.631 tonn, og er það um
4 þús. tonna meira afli en var
árið áður. Aflaverðmætið var
rúmlega 109 milljónir króna, og
tekjur á hvern úthaldsdag er
veitt var fyrir erlendan markað
voru um 116 þús. kr. Tekjur fyrir
hvern úthaldsdag þegar stundað
ar voru veiðar fyrir innlendan
markað voru tæp 71 þús. kr., en
um 75% aflamagnsins var land-
að innanlands á sl. ári.
Gert er ráð fyrir að afkoma
togaranna verði nokkru betri á
sL rekstursári en var 1967.
Framangreindar upplýsingar
komu fram á fundi útgerðarráðs
Bæjarútgerðar Reykjavíkur, er
tekin var fyrir skýrsla forstjóra
bæjarútgerðarinnar um aflamagn
og aflaverðmæti togara útgerð*
arinnar 1968.
Þá kom einnig fram, að til
vlnnslu í saltfiskverkun var tek
in árið 1968 1.282 tonn, miðað
við fullsaltaðan fisk, til skreiðar
verkunar var tekið 175 tonn,
miðað við fullverkaða skreið og
freðfiskframleiðsla fiskiðjuvers-
ins var 1.634 tonn af frystum
fiski.
Þá var á fundi útgerðarráðsins
samþykkt að fela framkvæmda-
stjórum að útvega tilboð frá
skipasmíðastöðvum um byggingu
á einum tU tveimur skuttogur-
nm og skoraði útgerðarráð á borg
arstjórn að veita fyllstu fyrir-
greiðslu í þessu sambandi.
Nánari frásögn af fundi útgerð
arráðsins fer hér á eftir:
Aflamagn togara BÚR var ár-
ið 1968 17.631 tonn, þar af var
landað innanlands 13.232 tonn-
um og í Englandi var landað 1.616
tonnum og í Þýzkalandi var
landað 2.784 tonnum. Hefur því
um 75% af aflamagninu verið
landað innanlands 1968.
Aflamagn og aflaverðmæti tog
ara BÚR 1968 var eftirfarandi:
B.v. Ingólfur Arnarson
B.v. Hallveig Fróðadóttir
B.v. Jón Þorláksson
B.v. Þorkell máni
B.v. Þormóður goði __________
36 tonn af fiski, sem flokkaður
var til sölu á Nígeríumarkað, en
þess skal getið að leitast var við
að taka ekki annan fisk til skreið
arverkunar, en þann er líklegur
þætti til að geta gengið til sölu
á Ítalíumarkað.
Birgðir af fiski fyrir Afríku
markað af framleiðslu 1967 voru
1. janúar 1968 183.6 tonn, en nú
nýlega tókust samningar um sölu
á 68 tonnum til Cameroon.
Vinna í frystihúsi hefur á árinu
verið meiri en flest undanfarin
ár. Reyndist framleiðsla á árinu
1968 2.509 tonn, en til samanburð
ar árið 1967 var freðfiskfram-
leiðsla fiskiðjuversins 1.634 tonn
af frystum fiski og auk þess 324
tonn af frystri síld.
Árið 1968 hefur verið lögð
meiri áherzla á að pakka í neyt-
endapakkningar en áður, enda
verð miklu mun hagkvæmara á
fiski í þeim umbúðum og vinna
meiri.
Framkvæmdastjórar skýrðu
frá þvi að fyrir milligöngu Erl-
ings Þorkelssonar og fram-
kvæmdastjóra BÚR liggur fyrir
tilboð frá þýzkri skipasmíðastöð
um að skipta um aðalvélar og
hjálparvélar í b.v. Þorkeli mána
og er kostnaður við breytinguna
áætlaður um 30 milljónir króna,
þar með taldar nýjar vélar.
Útgerðarráð samþykkti að fela
framkvæmdastjórum að athuga
möguleika á að framkvæma
þessa breytingu innanlands eða
í Þýzkalandi og jafnframt að
Ieita eftir nauðsynlegu fjármagni
til framkvæmdanna.
Útgerðarráð var sammála um
að fresta ákvörðun um að skipta
um vélar í b.v. Hallveigu Fróða
dóttur og b.v. Jóni Þorlákssyni,
sem áður hefur komið til um-
ræðu, þar til skipt hefur verið
um vélar í b.v. Þorkeli mána og
reynsla fengin af þeirri fram-
kvæmd.
Eftir allmiklar umræður sam-
3.731 tonn kr. 23.779 þús.
3.395 — — 25.360 —
2.980 — — 18.037 —
3.456 — — 20.578 —
4.069 — — 21.519 —
Samtals 17.631 tonn kr. 109.273 þús.
Til samanburðar má geta þess,
að aflamagn árið 1967 var samt.
13.673 tonn og aflaverðmætið kr.
77.871.897,88.
Gert er ráð fyrir að afkoma
togaranna verði nokkru betri
‘ rekstursárið 1968 en árið 1967.
Tekjur per úthaldsdag þegar
stundaðar voru veiðar fyrir er-
lendan markað voru kr. 115.973,73
og eru þá siglingadagar á erlend
an markað meðtaldir. Hins veg-
ar voru tekjur per úthaldsdag
þegar stundaðar voru veiðar fyr
ir innlendan markað kr. 70.976,62
per dag.
í fiskverkunarstöð hefur í
i sumar verið stöðug vinna,
þó að vísu hafi nokkur mismunur
verið á fjölda þeirra, sem unnið
hafa í stöðinni á hverjum tíma.
Til vinnslu í saltfiskverkun
hafa verið tekin árið 1968 1.282
tonn, miðað við fullstaðinn fisk.
Til samanburðar voru á árinu
* 1967 tekin til vinnslu í saltfisk-
verkun 528 tonn. Mun verulegur
hluti af fiski þeim, sem tekinn
hefur verið til vinnslu árið 1968
verið fullverkaður fyrir Suður-
Ameríku markað.
Til skreiðarverkunar á árinu
1968 voru tekin til verkunar 175
tonn miðað við fullverkaða
skreið. Af þessu magni hefur
verið selt til Ítalíu 139 tonn og
hefur þá verið seldur allur sá
fiskur, sem hæfur er til sölu á
þeim markaðL Ennþá eru óseld
þykkti útgerðarráð að fela fram
kvæmdastjórum að útvega til-
boð frá skipasmíðastöðvum um
byggingu á einum til tveimur
skuttogurum með 175—185 feta
kjöllengd og yrði það haft í huga
að reynsla væri fengin af skipum
með sama eða svipuðu byggingar
lagi. Jafnframt verði athugaðir
lánsmöguleikar í sambandi við
kaupin. Skorar útgerðarráð á
borgarstjórn að veita fyllstu fyr-
irgreiðslu í þessu sambandi.
Atvinnumdla-
nelndirnnr þingo
ATVINNUMÁLANEFNDIR rík-
isstjórnarinnar héldu fundi í
gær og hélt yfirnefndin fund
með sérhverri nefnd sérstaklega.
Er áætlað að þeim fundarhqld-
um Ijúki í dag, en síðar í dag
verður sameiginlegur fundur hjá
nefndunum þar sem endanlega
verður gengið frá starfsreglum
nefndanna.
Ólafur Ölafsson, framkvæmdastjóri Hjarta- og æðavemdarsam-
taka fslands með framkvæmdastjóra Alþjóðasamtakanna, dr.
Borek Zofka.
Hjarta- og œðasjúkdóm-
ar fœrast í vöxt
segir dr. Borek Zofka, frkv.stjóri Alþjóð-
lcgu hjarta- og œðavernó arsamtakanna
Dr. Borek Zofka, framkvæmda
stjóri Alþjóða Hjarta- og æða-
verndarsamtakanna kom sl.
sunnudagskvöld í stutta heiúi-
sókn, og gafst fréttamönnum tæki
færi til að ræða stuttlega við
hann í rannsóknarstöð Hjarta-
og æðaverndarfélagsins við Lág
múla.
Kom Zofka hér við á leið
vestur um haf til að ræða við
samstarfsmenn sína þarlendis.
Ffafa aðaistöðvar saimtakanna ver
ið fluttar til Genf, þar sem einnig
er miðstöð Alþjóða Heilbrigðis-
má Lastofnunar innar.
í samtökum þessum eru 60
þjóðir með 65 félög starfandi, og
hefur mikið áunnizt á þeim 20
árum, sem samtökin hafa verið
starfandi.
Dr. Zofka, seun er lögfræðing-
ur að mennt, sagði það hafa ver-
ið æskiiegt af ýmsum ástæðum
að flytja þann hluta stofnunar-
innar, sem ekki fjallar um læknis
fræðileg efni og áður var stað-
settur í Boston í Massachussetts
í Bandaríkjunum, til Genfar, þar
sem Sviss er hlutlaust ríki.
Sagði hann ennfremur, að á
þeim 20 árum, sem þessi saimtök
hefðu verið starfandi, hefðu
stórmerkar rannsóknir átt sér
stað, og m.a. komið í ljós, að mest
ar líkur á hjarta- og æðasjúk-
dómum eru í iðnaðarþjóðfélög-
um. Helztar ástæður fyrir þess-
um sjúkdómum eru kyrrsetur,
reykingar og hóglífi. Færðust
þessir sjúkdómar í vöxt!
Krabbamein sagði hann standa
í stað, berklaveiki vera á undan-
ha'ldi, og svo mætti lengi telja.
Hann sagði, að mest af fjár-
magni því, sem runnið hetfði til
reksturs H & Æ samtakanna al-
þjóðlegu, hefði fram til þessa
komið frá Bandaríkjunum, en
betur mætti gera í framtíðinni,
og því stæðu vonir til, að Evrópa
láti til sín taka.
Miklu meiri áihugi væri al-
mennt hjá fólki í dag á sjúk-
dómum þessum, en fyrir 3—4
árum.
Sagði hann og að í ráði væri,
að árið 1970 yrði Aifþjóðlegt
Hjarta og æðarvemdarráð, og að
ætlunin væri að hrinda í fram-
kvæmd mikilli upplýsingas’arf-
semi fyrir almenning.
í júní verða tilbúnar áætlanir
um framkvæmdimar, og í sept-
ember n.k. verður haldinn fund-
ur í Genf vegna þeirra.
Árið Ii970 verður síðan haldinn
alþjóðlegur fundur í Royal Festi-
val Hall í London undir vernd
Bretadrottningar á 20 ára afmæli
samtakanna, og verður það
stærsta ráðstefna, sem haldin
hefur verið um þessi miálefni
hingað til.
Dr. Zofka kvað rannsóknar-
stöð Hjarta og æðaverndartfélags
ins hérna vera til fyrirmyndar.
AKUREYRI:
Þjófafélag afhjúpaö
Akureyri, 28. janúar:
f FYRRAVETUR var stolið 20—
25 þús. riffilskotum úr vöru-
geymsluhúsi við Oddeyrartanga.
Nú hefur lögreglan á Akureyri
komizt á slóð þjófanna og situr
einn þeirra í gæzluvarðhaldi. —
15.200 skot voru í vörzlum hans
þegar hann var handtekinn, en
ekki hefur enn tekizt að finna af
ganginn, sem mun vera rösklega
f jórðungur þýfisins.
Nokkrir menn úr Eyjafirði og
frá Akureyri munu vera viðriðn
ir málið og hafa sumir þeirra þeg
ar verið í yfirheyrslum hjá lög-
10 og 11 ára drengir lögðust
út eftir innbrotsleiðangur
— stálu fyrir tugi þúsunda og brutust
inn á marga staði sömu nóttina
sjoppunni á Brekkulæk 1.
TVEIR strákar 10 og 11 ára
gamlir lögðust út í Reykjavík
eftir að hafa brotizt inn á nokkr-
um stöðum í borginni í fyrri-
nótt. Fundust þeir í gærmorgun
á gangi í Bankastræti, en þeir
höfðu þá dvalizt í nýbyggingu
hluta næturinnar, þar sem þeir
skiptust á om að sofa.
Annar drengurinn hafði fyrir
noíkkru brotizt inn í Tjarnarbæ
og stolið þaðan 3000 kr., sem
hann notaði síðan til þess að
kaupa lykii að sjoppu, en lyk-
ilinn hafði einn félagi nans
fundið og seldi honum síðan fyr-
ir 1000 kr. Lykillinn gekk að
í fyrrinótt fór sá er hafði
keypt lykilinn í leiðangur ásamt
öðrum til og fóru þeir inn í sæl-
gætisverzlunina og stálu þar
tóbaki og ýmsum varningi fyrir
tugi þúsunda króna. Báru þeir
síðan fenginn í kofaskrifli, sem
stendur nálægt Kassagerð Rvík-
ur.
Þegar drengirnir komu ekki
heim á eðlilegum tíma í fyrra-
kvöld var farið að leita að þeim
og var þá m. a. leitað í fyrr-
nefndum kofa og fannst þá allt
þýfið. Drengirnir fundust ekki
fyrr en í gærmorgun um kl. 7 og
vor,u þeir þá á gangi í Banka-
stræti og á heimleið.
Eftir að hafa brotizt inn í búð-
ina við Brekkulæk, brutust þeir
inn í Sundlaugarnar og stálu þar
peningaveski með 30 kr. Síðan
brutust þeir inn hjá Kr. Kristj-
ánssyni við Suðurlandsbraut, en
stálu engu. Munu þeir þó hafa
leitað í bílum að góssi. Eftir
þetta ætluðu þeir að brjótast inn
í Tjarnarbæ, en þar Ikomu þeir
að öllu lokuðu og héldu
þeir þá inn f eina ný-
byggingu í miðborginni og lögð-
ust þar til hvílu. Stóð annar á
verði meðan hinn svaf. í gaer-
morgun fundust þeir svo eirvs og
að framan greinir á gönguferð í
Austurstræti.
reglunni. Við rannsókn málsins
mun hafa versnað allur vinskap
ur innan þessara þjófasamtaka
og við það hafa mörg þjófnaðar-
mál, sem ýmist voru óupplýst
eða ekkert vár vitað um nú ver-
ið dregin fram í dagsljósið. —
Nokkurt magn af ýmiskonar
varningi mun hafa fundizt í fór-
um þessara manna, m.a. niður-
suðuvörur. Sá sem í varðhaldinu
situr mun hafa komið við sögu
í flestum eða Qllum þessara þjófn
aða, en hinir nokkuð á víxl. Sum
innbrotin voru framin utan Ak-
ureyrar, m.a. eitt í Reykjavík.
Þá hefur sannazt að þeir munu
hafa hitt fyrir bilaðan bíl á Mið-
fjarðarhálsi í sumar og stolið úr
honum öllu steini léttara, og
seldu síðan einstaka hluti bíls-
ins, sem varahluti.
Rannsókn málsins er ekki
nærri lokið og má búast við að
enn fleira komi upp úr kafinu
áður en yfir lýkur.
— Sv. P.
Sjólfvirk sím-
stöð opnuð ó
Tólknnfirði
f fréttatilkynnimgu frá póst-
og símamálastjórninni segir að
miðvikudaginn 29. janúar kl.
16.30 verði opnuð sjálfvirk sím-
stöð á Tálknafirði. Stöðin er gerð
fyrir 60 númer, og 39 notendur
verða nú tengdir við hana, en 14
sveitasknar verða að bíða Hnu-
breytinga til þess að geta orðið
sjálfvirkir. Svæðisnúmer stöðv-
arinnar verður 94 en notenda-
númer 2500—2559.