Morgunblaðið - 29.01.1969, Page 24

Morgunblaðið - 29.01.1969, Page 24
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGR EIÐSLA • SKRIFSTOFA SÍMI 10.100 AUGLYSIN6AR SÍMI 22.4*80 MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 1969 Næg loðna fyrir flotann á rúniu veiðisvæði Hœgviðri á miðunum fyrir austan land VIÐ höfðum samband í gær við Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð- ing á síldarleitarskipinu Árna Friðrikssyni, þar sem skipið var statt fyrir austan land. Sagði Hjálmar að þeir hefðu farið í loðnuleit í gær allt norður undir Langanes, og um 90 mílur út frá landinu, en það hefði verið frem ur lítið að sjá á mælum eftir þvi sem norðar drægi. Loðnulóðning ar hefðu þó komið öðru hvoru á íandgrunnskantinum, en í mun smærri stíl heldur en sunnar á svæðinu út af Dalatanga. Hjálmar sagði að á svæðinu út af Dalatanga væri mjög mikil loðna. Loðnan er þar u.þ.b. 40 Ólöf Pálsdóttir rriílur í austur frá landinu og nær loðnubeltið út að 80 míl- unum, en það er um 30 mílur á breidd frá suðri til norðurs. Hjálmar sagði að nokkur daga skipti yæru á lóðningum, en þær þrjár nætur, sem þeir hefðu SATTAFUHDUR SÁTTAFUNDUR sjómanna og útvegsmanna með sáttasemjara stóð yfir frá kl. 3 e.h. í fyrradag til kl. 7 í gærmorgun. Sáttafund- ur hófst aftur kl. 20,30 í gær- kvöldi og stóð hann enn yfir þegar blaðið fór í prentun. Morðmólið brótt dómtekið — ÞINGAÐ var í máli Gunnars Frederiksens, meints morðingja Jóhanns Gíslasonar, deildar- stjóra Flugfélags fslands, í gær. Samkvæmt upplýsingum Þórðar Björnssonar, yfirsakadómara, má búast við því, að mumnlegur málflutningur hefjist eftir um þáð bil hálfan mánuð, en þegar að honum loknum, verður málið dómtekið. ,,Sfórbrotin myndrœn áhrif — Listgagnrýnandi Berlinske Tidende lýkur miklu lofsorði á listaverk Ólafar Pálsdóttur, sem nú eru á sýningu r Kaupmannahöfn 44 Einkaskeyti til Mbl. frá Rytgaard, — Kaupmannahöfn, þriðjudag: Listgagnrýnandi „Berlinske Tid- ene“ Jan Zibrandtsen mag. art. skrifar í dag um sýningu listafé- lagsins „Lille gruppe“, sem stendur yfir í Kaupmannahöfn. f ár er Ólöf Pálsdóttir þátttak- andi í sýningu félagsins ásamt þremur dönskum listakonum, sem verið hafa félagar hennar í Listaháskólanum í Kaupmanna höfn og buðu henni að gerast meðlimur í félaginu. Jan Zibrandtsen kemst m.a. að orði á þessa leið í grein sinni: „Höggmyndir Ólafar Pálsdótt- ur gefa hugmynd um verk henn- ar um árabil, alveg síðan hún vann gullverðlaun Listaháskól- ans og var nemandi þar. Gull- verðlaunin fékk hún fyrir styttu af ungum manni, sem situr með framrétta arma. Þetta verk var síðar sýnt á íslenzku sýningunni í Louisiana og á það hefur allt- af verið litið sem mikið listaverk. En það er sérkennilegt, að 1 hvert skipti sem maður horfir á það finnst manni að í því birtist ný myndræn verðmæti. Formið lif ir með óvenjulegum traustleika og spennu. Ef til vill á þetta yrk isefni að túlka ungan mann sem breiðir faðminn bjartsýnn móti sinni eigin framtíð. Þessi stytta ber nafnið „Sonur“. Það er hér á sýningunni í gifsi en Listasafn fslands í Reykjavík á það í bronsi. Frarahald á bls. 23 verið þar hefðu mjög stórar torfur verið tvær næturnar, en aðeins minna eina nóttina. Loðn- an hefur verið uppi á kvöldin um og ofan við 50 metra dýpi og haldið sig þar fram undir rnorgun, en farið þá niður á 200 metra dýpi. Sagði Hjálmar að sér virtist loðnan aðeins vera á hreyfingu suður á bóginn en hún færi rétt sigandi. Framhald á bls. 23 IGECAN hominn í log — Scotice tengdur í dag EINS OG sagt hefur verið frá í fréttum slitnuðu báðir sæsíma- strengirnir, Icecan og Skotice fyrir síðustu helgi. Viðgerð á sæsímastrengnum Icecan lauk á mánudagskvöld sl. um miðnætti. Viðgerðarskipið er nú á leiðinni að Skoticestrengnum, en hann er slitinn skammt fyrir sunnan Fær eyjar. Er skipið væntanlegt á slitstaðinn í dag og kemst sam- band því væntanlega í lag á morg Tvær ungar blómarósir á gönguferð um Austurstræti Tómasar einn undangenginn góðviðrisdaginn. Stuttklæddar og hressar í fasi. Einhver kynni að halda að hann hefði séð tvöfalt, en ljós myndarinn fullvissaði okkur að Þær hefðu verið tvær, en ná- kvæmlega eins klæddar. Ljósm. Mbl. Kr. Ben. Nýjung í fiskvinnslu hérlendis: Veiða hörpurfiska til vinnslu Bolungavíkurbátur með upp í tvö tonn af hörpudiski í róðri 20 manns vinna afla af einum bát Útgerðarfyrirtækið Guðfinnur Einarsson h.f. í Bolungarvik hefur að undanförnu látið gera tilraunir með veiðar á hörpudisk um til þess að vinna fiskinn úr skelinni og fiytja hann á erlend- an markað. Sl. ár sendi fyrirtæk ið nokkrum sinnum út bát til þess að ná í sýnishorn af hörpu diski og fleiri skeljum svo sem öðu og kúfiski. Athuganir sem voru síðan gerð ar á hráefninu hér heima og erlendis urðu til þess að Guð- finnur Einarsson taldi ástæðu tii að halda áfram á þessari braut og hefur verið lögð áherzla á hörpudiskaveiðar, sem hafa farið stöðugt vaxandi og virðast nú vera farnar að bera góðan árangur. Við fengum upplýsing- ar um þetta mál í gær hjá Guð- finni Einarssyni í Bolungarvík. Vélbáturinn Hrímnir frá Bol- ungarvík, sem er 25 tonn, hefur allan janúarmánuð verið við hörpudiskaveiðar á Jökulfjörð- unum og hefur mestur tíminn farið í að reyna mismunandi veið arfæri. Skipstjóri á Hrímni er Hörpudiskur. Guðmundur Róismundisson, en alls eru 3 skipverjar á bátnum. Hafa þeir Hrímnismenn þreifað sig áfram með veiðiaðtferðir og Framhald á bls. ^ Sútunarverksmiöja og prjónaverksmiðja áformaðar fyrir norðan líklega á Sauðárkróki PÁLMI Jónsson, forstjóri Hag- kaups hf. hefur ásamt fleiri mönnum haft áform um að stofnsetja sútunarverksmiðju, og einnig að koma upp sokka- buxnaverksmiðju í Norðurlands- kjördæmi vestra. Var í fyrstu í athugun að sútunarverksmiðjan yrði á Hofsósi, en nú er útlit fyrir að báðar verksmiðjurnar verði staðsettar á Sauðárkróki og hefur verið leitað fyrir- greiðslu bæjaryfirvalda í sam- bandi við það. Mbl. spurði fréttaritara Mbl. á Sauðárkróki, Kára Jónsson, um þetta. Sagði hann, að um- beðin fyrirgreiðsla yrði miðuð við ívilnanir á gjöldum fyrstu árin. Hefði bæjarstjórn haft málið til athugunar og muni hafa vísað því til lögfræðings síns til að semja við Pálma. Væri mjög almennur áhugi á Sauðárkróki á að þessi fyrir- tæki og önnur iðnfyrirtæki rísi þar upp, því iðnaður sé sú at- vinnugrein, sem þar hljóti að verða byggt á. í viðtali við Pálma Jónsson í blaðinu Norðanfara, er nánar skýrt frá áformum um báðar verksmiðjurnar. Hafa vélar þeg- ar verið keyptar í verksmiðjurn- ar báðar og sölumöguleikar kannaðir fyrir framleiðsluna. Hefur verið undirbúinn nægur markaður til að grundvalla framleiðsluna á, en samvinna verður um söluna við bandarísk- an sölusérfræðing, Thomas A. Holton, sem á undanförnum ár- um hefur annazt sölu á gærum og ullarvörum vestanhafs. Hefur í samvinnu við hann verið und- irbúinn nægur erlendur markað- ur, til að grundvalla framleiðsl- una á, en gengisfellingin í nóv- ember skapaði grundvöllinn fjrr- ir þessi fyrirtæki, að því er Pálmi segir. Aætlað er að sútunarverk- smiðjan framleiði 160 þúsund skinn á ári og muni skapa 40—50 manns atvinmi árið um kring. Auk þess munu opnast í sam- bandi við 'hana möguleikar á stofnun nýrra fyrirtækja, er Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.