Morgunblaðið - 29.01.1969, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1969
Sigríður Þórisdóttir
afgreiðslustúlka
Fædd 29. marz 1935.
Dáin 20. janúar 1969.
í dag kL 3 verður gerð írá Foss
vogskirkju útför Sigrfðar Þóris-
dóttur afgr.stúlku á Bæjarleið-
um, til heimilis að Hjallaveg 52.
Sigríður var fædd í Reykjavík,
en ólst upp á Akureyri til 6 ára
aldurs, en þá fluttu foreldrar
hennar til Reykjavíkur, þau hjón
in Þórunn Rögnvaldsdóttir og
Þórir Ólafsson stýrimaður. Hann
fórst með Goðafossi í því hörmu
lega slysi 10. nóv. 1944, og var
Agga þá, (eins og hún var oftast
kölluð) aðeins 9 ára gömul. Agga
var eina bam þeirra hjóna, en
faðir hennar átti eina dóttur
fyrir hjónaband, er Guðbjörg
heitir, og er hún gift og búsett
á Akureyri. Þær hálfsysitur voru
mjög samrýmdar.
Eftir að Þórir faðir öggu féll
frá bjuggu þær mæðgur alla tíð
saman og nú síðustu árin að
Hjallavegi 52, þar sem þær höfðu
sameiginlega byggt upp sitt litla
hlýlega heimili fyrir sig og böm
in tvö, sem Agga átti og var að
ala upp með aðstoð móður sinn-
ar, drenginn Þóri, 10 ára og stúlk
t
Konan mín
Halldóra Jónsdóttir,
verður jarðlsungin frá Dóm-
kirkjunni fimmtudaginn 30.
þ.m. kl. 3. síðdegis. Þeir sem
vildu minnast hinnar látnu
vinsamlegast láti líknarstofn-
anir njóta þess.
Fyrir hönd vandamanna.
Steinn KrLstjánsson.
t
Eiginma'ður minn og faðir
okkar
Jóhannes S. Michelsen
Hoffelli, Fáskrúðsfirði,
sem lézt 18 þ.m. verður jarð-
settur frá Fáskrúðsfjarðar-
kirkju í dag miðvikudag 29.
jan. og hefst athöfnin kl. 2
síðdegis.
Guðfinna Árnadóttir
og börn.
Konan mín,
Elín Guðmundsdóttir
verður jarðsett frá Kirkju-
vogskirkju, í Höfnum, mið-
vikudaginn 29. þ.m. kl. 2 e.h.
Bílferð verður frá Umferðar-
miðstöðinni kl. 12.30 sama
dag.
Ketill Ólafsson.
t
Útför móður okkar og tengda-
móður, ömmu og langömmu
Jóhönnu Jóhannsdóttur
frá Bíldudal,
verður gerð frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 30. jan.
kL 10.30 f.h.
Guðríður Júlíusdóttir,
Valur KrLstjánsson,
Guðlaug Júlíusdóttir,
Guðmundur Jónsson,
Sigríður Júliusdóttir,
Jósef Finnbjarnarson,
barnaböm og bamabarna-
böm.
una Þórunni, 14 ára, sem n/ú
verða að sjá á bak móður sinni
svo ungri að árum og svo óvænt.
Agga naut Gagnfræðaskóla-
náms eftir barnaskólagöngu og
gekk henni mjög vel námið í
skóla, enda vei gefin og skörp
í hugsun. En Agga þurfti eins og
svo margir aðrir að hætta námi
og snúa sér að brauðstriti dag-
legs lifs sér og sdnum til fram-
dráttar. Vann hún þá að ýmsu,
svo sem verzlunar- og þjónustu-
störf. Var hún me'ðal annars um
skeið við afgreiðslustarf lang-
ferðabifreiða á vegum B.S.Í., en
síðustu 6 árin vann hún við
afgreiðslustörf hjá Bifr.st. Bæjar
leiðum. Rækti hún það starf með
svo miklum ágætum að vart
verður á betra kosið, enda aflaði
hún stöðinni slíkra vinsælda í
hópi vi'ðskiptavina og sér í hópi
starfsfélaga, að um langan aldur
mun hún lifa meðal vor í minn-
ingum liðins tíma og eigi gleym-
ast.
Við starfssystkin öggu þekkt-
um hana vel og fundum vissu-
lega að hún skapaði okkur fyrir-
mynd í starfi sínu, en afgreiðslu-
störf á bifreiðastöð eru bæði
erfið og vandaaöm, þar sem þau
eru tvíþætt þjónustustörf, annars
vegar þjónusta við viðskiptavin-
ina og hinsvegar við bifreiða-
stjórana. Reynir þá oft mikið á
a'ð gera öllum til hæfis, en þá
þraut reyndist Öggu létt að leysa,
og eins og af Guðs náð var hún
sköpuð fyrir þetta starf svo vel
fórst henni það úr hendL Og
lengi verður rómuð hennar ljúfa
lund samfara lipurð, kurteisi og
skarpskyggni svo af bar í þessu
vandasama og oft vanþakkláta
starfL
Agga mín, aldrei verður þér
t
Jarðarför
Daghjartar Bjamadóttur
Efstasundi 32,
fer fram frá Fossvógskirkju
fimmtudaginn 30. þ.m. kl. 1.30
e.h.
Kristján Jóhannesson,
böm, barnaböm og
barnabamaböm.
Konan min
Elín Guðmundsdóttir
verður jarðsett frá Kirkju-
vogskirkju, í Höfnum í dag
miðvikudag kl. 2 e.h. Bílferð
verður frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 12.30 sarna dag.
Ketill Ólafsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi
Helgi Jónsson
fulltrúi,
verður jarðsunginn föstudag-
inn 31. janúar kl. 14 frá Garða
kirkju á Álftanesi. Blóm eru
vinsamlega afþökkuð, en þeim
sem vildu minnast hins látna
er bent á Krabbameinsfélagið.
Lára Valdadóttir, böra,
tengdabörn og baraabörn.
fullþakkað þinn stóri hlutur á
Bæjarleiðum og sárt er að sjá
skarðið í hópi okkar starfssyst-
kina, sem seint verður bætt.
Vina mín, ég vil nú að lefðar-
lokum þakka þér með hrærðu
hjarta fyrir allar þær hugljúfu
samverustundir bæði í starfi og
leik. Ennfremur vil ég bera hug-
heilar þakkir til þín £rá öllum
starfsfélögum þínum og vinum
og við munum öll geyma minn-
ingarnar í hugum okkar þar til
við hittumst öll aftur á ný hand-
an við hafið. Þú hefur nú verið
leyst frá öllurn þrautum þessa
lífs og þín bíður eilífð framtíðar-
innar. Ég bið þér allrar blessun-
ar í Guðs friði.
Börnunum þínum og móður
þinni aldra'ðri, sem hefur verið
réttur þessi beiski bikar, bið ég
Guð að styrkja í þeirra dimmu
sorg og senda þeim sinn verm-
andi sólargeisla inná heimilið
þeim til huggunar. Ég votta þeim
fyrir mína hönd og starfsfélag-
anna allra á Bæjarleiðum okkar
innilegustu samúð.
Þorkell Þorkelsson.
Sigrfður Þórisdóttir (Agga),
eins og hún var alltaf kölluð af
vinum sínum og ég held öllum,
sem kynntust henni, hefir nú
lokið vegferð sinni hér í heimi.
Þessi tápmikla, hrausta og lífs-
glaða stúlka er horfin, kölluð
burt í blóma lífsins frá hálfvöxn-
um bömum sínum, aldraðri og
lifsþreyttri móður og frá hug-
þekku starfi, þar sem hún naut
trausts og óvenju almennrar við-
urkenningar vegna hæfni og ríkr
t
Þökkum auðsýnda samúð og
vinsemd við andlát og jarðar-
för
Valgerðar Vigfúsdóttur
Bræðraborgarstíg 53.
Vandamenn.
t
Innilegar þakkir færum við
öllum sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og út-
för eiginmanns míns og föður
okkar
Kristjáns Bjarnasonar
Austurvegi 15, tsafirði.
Guðbjörg Gestsdóttir
og dætur.
t
Þökkum auðsýnda samúð við
andlát og jarðarför
Sigurðar Sv. Sveinssonar
Borgarfirði-eystra.
Einnig viljum vi'ð þakka starfs
fólki Sólvangs og þeim sem
sýndu honum hlýhug í veik-
indum hans.
Vandamenn.
ar viðleitni til að gera alltaf sitt
bezta.
Henni tókst öll þau ár, sem
hún vann fyrir okkur á Bæjar-
leiðum að leysa störf sín þannig
af hendi að vart var á betra kosið
og er þó ekki vandalausf að
vinna fyrir okkar stétt, svo ekki
sé meira sagt, en þetta gerði hún
þannig að hún ávann sér vináttu
og bróðurhug okkar allra, sem
kynntust henni í gegnum starf
hennar á stöðinni.
í argi og þrasgjömu hversdags
starfi okkar daglega lífs, virkaði
röddin hennar eins og ferskur
blær, þegar hún hljómaði gegn-
um talstöðvamar, þróttmikil, ró-
leg og alltaf full af hlýju og vin-
semd að hverjum sem hún
beindi orðum sinum. Þar var
hún sannarlega fyrixmynd ekki
aðeins starfssystkinum sínum við
afgreiðsluborðið, heldur og ekki
síður var hún fyrirmynd okkar
bifreiðastjóranna um háttvísi og
prúða framkomu í daglegu starfL
Fyrir þetta og ótal margt ann-
að viljum við allir þakka kæra
„Agga“. Og þakkir okkar, óskir
og heitar fyribænir fylgja þér nú
yfir móðuna miklu, þar sem við
trúum, að þú sért kölluð til
nýrra starfa og við biðjum góðan
Guð að rétta nú út sína styrku
föðurhönd, vernda og styðja
blessuð börnin þín og gtefa móð-
ur þinni þrek til að bera þær
þungu byrðar, sem nú eru lag’ðar
á hennar lúnu herðar, láta ekki
þennan mikla missi verða henni
ofurefli.
Far þú í friðL Friður Guðs þig
blessi. Hafðu þökk fyrir allt og
allL
L.S.
EFTIR BILLY GRAHAM
HVAR í Bibliunni er postullega trúarjátningin? Er
gert ráð fyrir, að við notum hana í guðsþjónustum?
Ég hef tekiö eftir því, að sumir söfnuðir nota hana og
aðrir ekki.
Postullega trúarjátninin er ekki í Biblíunni. En
hún styðst við kenningar Biblíunnar, og þannig
má segja, að hún sé biblíuleg.
Ýmsar játningar eru notaðar í kirkjum kristn-
innar. Allar eru þær grundvallaðar á Ritningun-
um og greina í stuttu máli frá trúaratriðum hinna
mörgu kirkjudeilda. Postullega trúarjáningin er
þeirra elzt, og hefur hún verið notuð síðan á ann-
arri öld, aðeins með óverulegum breytinum. Meþó-
distar nota hana, einnig fullorðinsskírendur og öld-
ungakirkjumenn og margar aðrar kirkjudeildir mót-
mselenda. Níkeujátningin og Aþanasíusarjátningin
tíðkast í helgihaldi kaþólsku kirkjunnar. Lútherska
kirkjan notar Ágsborgarjátninguna og minna kver
Lúthers. Öldunakirkjumenn nota bæði Westminst-
erjátninguna og postullegu játninguna, og sumar aðr-
ar kirkjur nota Heidelburgkverið. Játningar þessar
eru allar greinargerðir á undirstöðuatriðum trúar-
innar. Þær voru reistar á Ritningunum, og menn
hafa þær yfir, þegar ætlazt er til, að trúin sé játuð.
Helzta hættan í sambandi við allar trúartjáningar er
sú, að þær verði þulur, sem hafst enga merkingu. Á
hinn bóginn geta einlægir, helgaðir menn hlotið
mikla uppbyggingu og styrk við það að játa í heyr-
anda hljóði, hverju þeir trúa. Engin þessara játn-
inga eru í Biblíunni, eins og áður segir. En þær eru
allar grundvallaðar á Biblíunni.
Gunnlaugur Pétur
Sigurbjörnsson
Fæddur 18. febrúar 1893.
Dáinn 16. janúar 1969.
KVEÐJA
frá Guðrúnu Benediktsdóttur.
Ég hef svo margs að minnast
já, margs er yljar lund
þeim góðu er gott að kynnast,
það gleður marga stund,
þú áttir hönd svo heita
að hjartað ylinn fann.
Þú vildir öðrum veita
að vona á kærleikann.
t
Innilegt þakklæti fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og
jarðarför systur okkar
Maríu Eiríksdóttur
Krosseyraveg 3, Hafnarfirði.
Guðrún Eiríksdóttir,
Eiríkur Bjömsson,
Margrét Bjömsdóttir,
Jón Bjömsson.
Og hún er sárt þín saknar
þér samhent ætíð var.
Og mörg nú minning vaknar
um margt er gjörðist þar
sem er mín ævisaga
skein ungum vonarsól
þið áttuð unaðsdaga
og öðrum veittuð skjól.
Minn dreyminn huga dreymir
nú dags og nætur skil.
Ég veit að guð allt geymir
sem gott og bjart er til.
Oft blómailm þú breiddir
á bernsku minnar s-tíg
þú litla bamið leiddir
nú leiðir engill þig.
(G. G.)
Góði vinur! Er ég kveð þig nú
hinztu kveðju er efst í huga mér
þakklæti fyrir falslausa vináttu
og tryggð ykkar hjónanna, allt
frá æskudögum mínum. Og ekki
síður hin síðari ár. Hjartans þakk
ir fyrir þá fómarlund og aðstoð
sem þið voruð ætíð reiðubúin
a'ð veita mér og mínu fólkL
Megi algóður Guð gefa þér
frið og blessun og ástvinum þín-
um öllum huggun og styrk.