Morgunblaðið - 01.03.1969, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1960
13
Cunnar Torfason, framkvœmdastjóri F B.
Hlutverk framkvæmda
nefndarinnar
Athugasemdir við ummceli Ottós Schopka
1 viðtali við Otto Scshopka, fram
kvæmdastjóra Landssambands
iðnaðarmanna, er birtist í Morg-
unblaðinu 20. febrúar 1969, vík-
ur hann mjög að hlutverki og
Gunnar Torfason.
starfsaðferðum Framkvæmda-
nefndar byggingaráætlunar.
Nauðsynlegt er að lefðrétta ýms-
ar missagnir og rangtúlkanir er
þar koma fram og sem vafalaust
má kenna vanþekkingu fram-
kvæmdastjórans.
Meðal annars fullyrðir hann
eftirfarandi:
Að Framkvæmdanefnd bygg-
ingaráætlunar (FB) hafi mis-
skilið hlutverk sitt og gerst
framkvæmdaaðili í byggingar
iðnaðinum og tekið upp stór-
fellda þjóðnýtingu hans.
Að ekkert byggingafyrirtæki
hafi verið nægilega stórt til
þess að taka að sér 1. áfanga
framkvæmdanna, þ.e. bygg-
ingu 312 íbú'ða og þvi hafi
slíkt fyrirtæki verið búið til.
Samið hafi verið við það um
framkvæmdirnar, í stað þess
að bjóða þær út og gefið bjóð
endum kost á valfrelsi um
byggingaraðferðir.
Að framkvæmdir FB hafi ekki
gert byggingariðnáðinn í land
inu hæfari til að sinna því
: hlutverki sínu, að framleiða
nægan fjölda íbúða á hVerj-
um tíma með hóflegum kostn
aði.
Hér sýna staðreyndirnar ofur-
lítið aðra mynd. Er því nauð-
synlegt að eyða nokkrum orðum
í það áð lýsa raunveruleikanum,
hvað útboð og fyrirkomulag
framkvæmda snertir.
Þegar Framkvæmdanefndin
hóf störf sín, ákvað hún að
koma á fót teiknistofu, er annast
skyldi hönnun allra þeirra bygg
inga, sem reistar yrðu á vegum
hennar. Þessi stofnun hefur síðan
annast mestalla hönnun á vegum
nefndarinnar, útboð, samninga-
gerð og eftirlit með framkvæmd
um, en alls engar framkvæmdir.
Meiri hluta efnisinnkaupa hefur
Innkaupastofnun ríkisins annast
og allt bókhald og greiðslur hafa
verið í höndum Veðdeildar
Landsbanka íslands.
Áður en lokið var teikningum
af íbú’ð 1. áfanga, auglýsti FB
eftir aðilum, er áhuga hefðu á
því að taka að sér byggingu
íbúða á hennar vegum á grund-
velli samkeppnisútlx>ðs. Úr þessu
forvali einangruðust síðan tveir
aðilar, er mynduðu nýtt verk-
takafyrirtæki.
Við þetta nýja fyrirtæki var
síðan samið í áföngum og náði
verkefni þess yfir grunngröft,
uppsteypu, þaksmíði, lokun og
múrverk, auk reksturs bygging-
arstáðarins. Þessi kostur var með
al annars valinn vegna þess að
hér var um nýja byggingarað-
ferð að ræða og forsvarsmenn
þessa fyrirtækis höfðu öðrum
fremur reynzlu á þessu sviði, en
stærð þess borin saman við
önnur byggingafyrirtæki, kom
þar ekki við sögu. Auk samnings
þessa, sem nær yfir rúm 40% af
Þegar vilji er fyrir hendi, eru íslenzkir iðnaðarmenn fljotir að tileinka ser nyja tækni, ny
tæki og nýjar aðferðir. Fjölbýlishús FB í uppsteypu.
deila, hvort verk eins og hér um
ræðir eigi að bjbða út eða ekki
og þá sem heildarútboð eða í
smærri verkliðum. Líta verður á
1. áfanga FB í Brefðholti í fyrsta
lagi sem tilraunaáfanga. Hefur
það fyrirkomulag útboða og
samninga, sem fyrir valinu varð,
þann stóra kost í för með sér,
að nú þegar þessum bygginga-
mh n.i4-
Utht íbuða FB í Breiðholti.
verkinu boðin út á frjálsum mark
aði, bæði undirverktök og efnis-
innkaup.
Frá upphafi hefur FB haft
náið samband vi'ð mörg verk-
taka- og framleiðslufyrirtæki á
byggingarsviðinu varðandi ýmis
hönnunaratriði. Hefur það verið
starfsmönnum nefndarinnar
styrkur í störfum og eiga þessir
aðilar þakkir skildar. I öllum
útboðum sínum hefur fram-
kvæmdanefndin íagt ríka áherzlu
á valfrelsi bjóðenda og í mörg-
um tilfellum óskað sérstaklega
eftir breytingatillögum.
Er því hér um stórfelldan mis-
skilning að ræða, þegar Otto
Schopka telur að nefndin hafi
ekki boðið verkin út, heldur
gerzt framkvæmdaaðili sjálf og
alls ekki gefið bjóðendum kost á
valfrelsi um framkvæmdaaðferð
ir.
Vitaskuld má alltaf um það
áfanga er lokið, getur fram-
kvæmdanefndin gert sér glögga
grein fyrir því, hvaða þættir
hinna nýju byggingaraðferða
hafa kostnaðarlega gefið góða
raun og hverjir ekki.
Hvað snertir hæfni byggingar-
iðnaðarins til þess áð sinna hlut-
verki sínu, má segja eftirfarandi:
Einmitt og eingöngu vegna
framkvæmda FB í Breiðholti og
þeirra fjöldaframleiðsluaðferða,
er þar hafa verið teknar upp,
hefur ýmsum verktökum verið
gert kleift, að koma sér upp
góðri framtíðaraðstöðu. Er hér
átt við aðstö'ðu, er gerir hin ýmsu
fyrirtæki samkeppnifærari, þegar
um stærri verkefni og fjölda-
framleiðslu er að ræða. Nægir
hér að benda á framleiðslu inni-
hurða, útihurða, glugga, skápa,
eldhúsinnréttinga og steinsteptra
eininga. Hefur verktökum á þess
um sviðum safnast . dýrrnæt
reynzla og þekking, og í mörgum
tilfellum bættur húsa- og véla-
kostur. Er lækkað verð á innrétt-
ingum á almennum markaði að
undanförnu talandi tákn um þá
jákvæðu þróun, sem hafizt hefur
með tilkomu framkvæmdanefnd-
arinnar.
Einmitt vegna framkvæmda FB
hefur byggingariðnaðurinn í dag
á áð skipá aðilum, sem hver á
sínu sviði getur með litlum fyrir
vara hafið fjöldaframleiðslu á
einmgum til íbúða. Jafnframt er
riokkur trygging fyrir því að
hagkvæmt verð fengist, hvort
heldur væri með samkeppnistil-
bo'ðum eða beinum samningum.
Um hæfileika íslenzkra iðnaðar-
manna til að framleiða gæða-
vöru þarf ekki að efast.
Otto Schopka heldur því fram
að FB hafi misskilið hlutverk
sitt og gefur í skyn að margt, ef
ekki allflest, hafi brugðizt í sam
bandi við framkvæmdir nefndar
innar í Breiðholti.
En er ekki staðreyndin sú að
þeir misskilja sitt hlutverk, sem
koma fram með vanhugsaðar full
yriðingar eins og þær sem víða
má sjá í grein Ottós.
Staðreyndirnar eru fyrir hendi,
nú þegar lokið er 1. byggingar-
áfanga FB. Byggðar hafa verið
mjög ódýrar, vandaðar íbúðir á
mjög stuttum tíma.
Að sjálfsögðu hefur nefndin
þurft að glíma við ýmis byrjunar
vandamál, en þegar á heildina er
litið, er augljóst að smávægilegir
vankantar á framkvæmdunum,
sem sniðnir hafa verið af jafn-
óðum, verða harla léttvægir á
móti hinni dýrmætu reynzlu í
notkun nýrra byggingaráðferða,
byggingartækja og byggingar-
efna, sem áunnizt hefur.
Framkvæmdanefnd byggingar-
áætlunar er í dag vel undir það
búin að hefja byggiragu næsta
áfanga.
LOFTUR H.F.
LJÖSMYNDASTOFA
•^gólfsstræti 6.
Pantið tíma í síma 14772.
TIL SOLU
Volvo Amazon, árg. 1968. Lít-
ið ekinn
Vellir hl.
Suðurlandsbraut 16.
Sími 35200.
Heildsalar
Innflytjendur
Iðnfyrirtæki vill komast í samband við innflytjanda sem tæki að sér
innflutning á hráefni. Hér gæti verið um mikil viðskipti að ræða.
Óskum viðræðna. Nöfn skilist á afgr. Mbl. fyrir miðvikudag merkt:
„Iðnaður — 2955“.
SKYI IDI2 iAL/ VESTURYSRI AÐALSTRÆT! 6 - 1 SÍMI 17575