Morgunblaðið - 26.03.1969, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.03.1969, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1969 fólk í fréttunum I Hættu við rannsókn Ástrclska þingið fellir tillögu um að kanna siðsemi Gortans TILLAGA um að kanna siðsemi forsætisráðherrans, John Gortons, var nýlega felld í fulltrúadeildinni með 75 |gegn 34 atkvæðum. Voru þetta lyktir heiftúðugra um- :'l ræðna vegna aðdróttana varð andi einkalíf ráðherrans. Spunnust þær af orðrómi sem bendlaði nafn ráðherr- ans við leikkonuna Lizu Min- elli (dóttur Judy Garland leikkonu). í slúðursagnadálki var þess getið, að Liza Minelli hefði skrifað grein fyrir Lundúnablað, og átti hún að hafa farið niðrandi orðum um ráðherrann. Var banda- rísku leyniþjónustunni borið á brýn, að hafa greitt Lund- únablaðinu 15.600 Bandaríkja dali fyrir að þagga málið niður. (TalsmaðuT leyniþjón- ustunnar kvað aðspurður ekkert hafa um málið að segja). Gorton sagði í þinginu, að ungfrú Minelli hefði borið á móti því að hafa skrifað þessa grein, og væri þetta allt helber lygi. Sjálfur neit- aði hann að nokkur fótur væri fyrir þessum eða öðr- Liza Minelli um gróusögtum. Einn fulltrúanna sagði að atburðurinn, sem átt væri við ætti að hafa átt sér stað í nætoidklúbb í Sidney á Bali, er forsætisráðherrann heim- sótti Indónesiu og í Canberra um jólin. Haft var eftir ungfrú Min- elli, að allar sögurnar væru ósannar og hlægilegar, og John Gorton svo ótrúlegar, að erfitt væri að ím.ynda sér, að nokkur maður legði trúnað á slíkt. Hún hefði aðeins einu sinni hitt ráðherrann, og hefði það verið, er hann kotm með föru- neyti sitt bak við tjöldin eft- ir leiksýningu. Hefði hann verið elskulegur ekki aðeins við sig, heldur við mágkomu sína og tengdamóður, sem þar hefðu verið staddar. Einnig var rætt um að ráðherxann hefði farið með blaðafulltrúa sínum og nítján ára gamalli stúlku úr opinberri veizlu í Canberra klukkan 2.30 um morgun til til a.meríska sendi ráðsins og hefði honum dval- izt þar til kl. 5.30. Væri hægt að hugsa sér, hvaða álits- hnekki samstarfið við Banda- ríkin gæti beðið við slíkt. Gorton sagðist hafa farið úr veizlu um kl. 11.45 til bandaríska sendiherrans, er hefði tvívagis hringt í veizl- una um kvöldið og beðið sig að líta inn á hekmleiðinni, íþótt seint yrði. Hefði hann gert það, og staðið við svo sem hálftím.a. Stúlkan, sem væri dóttir gamals vinar, hefði beðið um að fá að sitja í, og hefði hún setið aftur í hjá blaðafulltrúanum (hann vonaði, að hann yrði ekki tekinn fyrir næstur), og hefði þetta einnig verið svo, .er þau yfirgáfu sendiráðið. Sendiherra Bandaríkjanna gaf út yfirlýsingu þess eðlis, að allt stæði heim.a, er for- sætisráðherrann hefði sagt um málið. Ingólfur Jónsson - MÖGULEIKI Framhald af bls. 24. ihún verði komin í fulla stærð érið 1972, sem er þrem árum tfyrr en umræddur samning- •ur gerir ráð fyrir. Áætlanir um Búrfellsvirkjun miðast við það, <að fyrri virkjunaráifanganum, sem er 105 megavött, ljúki á |>essu ári um leið og 1. áfanga élbræðslunnar, en aflþörf hans er 60 megavött. Og síðari virkj- •unaráfanganum, áður, eða um Ðeið og álbræðslan er komin í tfulla stærð, en þá er virkjunin >210' megavött og aflþörf bræðsl- lunnar 110 megavött. Eigj bræðslan að geta verið íkomin í fulla stærð 1072 er íiauðsynlegt að ljúka báðum áföngum Búrfellsvirkjunar fyrir þann tíma, og hefur þegar verið að því stefnt með því að flytja Tilutá af framkvæmdum seinni virkjunaráfangans yfir á þann fyrri. í desember 1965 var stofn- kostnaður seinni áfanga virkj- unar við Búrfell áætlaður 305,5 millj. kr. á þáverandi gengi, að vöxtum á bygginigartíma frá- ‘töldum, eða um 520 millj. kr. á núverandi gengi. Að vöxtum og verðhækkunum meðtöldum á- ætlast þessi kositnaður nú 661 .millj. kr. eða 7,5 millj. dollara. ,Sé framkvæmdum við seinni láfangann hraðað. verður ekki íyrir hendi það fé, sem upp- íhaflega var ætlunin að verja til (þeirra úr rekstri árin 1972—1975 'samfara minni framkvæmda- hraða. Því er fyrirsjáanlegt, að taka verður lán fyrir öllum kostnaðinum við seinni áfang- ann að fjárhæð 7,5 millj. doll- •ara, og þess vegna er þetta frv. iflutt. Að sjálfsögðu er gert ráð fyr- ir því, að lög um Landsvirkjun gildi áfram óbreytt, en þau fela 'í sér heimild fyrir ríkisstjórnina Itil að taka lán, sem komi að Ihluta eða öllu leyti í stað ábyrgð ar og endurlána það ILandsvirkjun. Það hefur verið gert ráð fyrir nokkurri breytingu á fram- kvæmdum í sambandi við ál- verksmiðjuna. Þannig er gert .ráð fyrir, að með 1. stigi verði .framleidd 33 þús. tonn á ári og isú starfsemi hefjist í september lá þessu ári. Með öðru stigi bæt- as't við 10 þús. tonn á ári og það komist í framkvæmd í júní 1970. Með III. stigi bætast við .23 þús. tonn á ári og er gert ráð fyrir, að það verði tilbúið í júhí 1972. fEKJUR AF ÁLBRÆÐSLUNNI í sambandi við það, að hér er talað um nýja lántökur, er rétt að gera sér grein fyrir þekn tekjum, sem fásf af rafmagns- sölu og sköttum til álverksmiðj- unnar. Á fyrsta srtigi fæst 1,5 millj. dollara, á 2. stigi 0,41 millj. dollara. Á 1. stigi fæs-t fyr dr raforkusölu 1,5 millj. dollara. 1Á 2. stigi 1,95 millj. dollara, á 13. stigi 2,5 millj. dollara. í ísl. 'kr. á 1. stigi 132 millj. kr., á 2. stigi 172 millj. kr., á 3. sti'gi 220 millj. kr. Skattar af verksmiðj- unni á 1. stigi verða 36 millj. •kr., á 2. s'tigi 46 millj. óg á 3. stigi 116 millj. Tekjur, skattar •og raforkusala á 1. stigi 168 •millj. kr., á 2. stigi 220 millj. kr., á 3. stigi 336 millj. kr. Meginlánið sem tekið hefur verið til virkjunarinnar við Búr- •fell, er til 25 ára með 6% vöxt- um. Það er afborgunarlaust •fyrstu 5 árin. Það er því ljóst, að tekjurnar af orkusölunni og ■álbræðslunni gera talsvert meira •heldur en að s'tanda undir þess- um erlendu lánum. Þykir rétt að vekja athygli á því við þetta tækifæri, þar sem - í seinni tíð hefur verið talað um mikla greiðslubyrði, sem íslendingar hafa af erlendum lánum. Þess má einnig geta, að á ár- unum 1984—1987 hækka skatt- arnir smám saman af verksmiðj- unni úr 116 millj. kr. í 203 millj. eða úr 1,35 millj. dollara í 2,31 millj. dollara á ári. Það hefur verið rætt um að stækka bræðsl una úr þeim 66 þús. tonnum, sem samið hefur verið um, í 86 þús. tonn, ef samningar um það takast, og að sú stækkun taki til starfa 1974. Slík stækkun mundi þurfa um 40 þús. kíló- vött og eigi að vera hægt að anna þeirri aflþörf, olíuhreins- unarstöð o. 11., sem rætt hefur verið um, er nauðsynlegt að ráðast í Sigölduvirkjun sem fyrst. En það er ekki langt síð- an frá því var sagt, að stjórn Landsvirkjunar stefndi að því að hraða framkvæmdum við Búrfellsvirkjun, Þórisvatn og Sigöldu og að þeim framkvæmd um yrði lokið ekki seinna held- ur en á árinu 1976, þ.e.a.s. öll- um þessum framkvæmdum. Það er þá reiknað með, að við rekst- ur bræðslunnar atarfi fyrst í stað 350 manns og sá fjöldi fari upp í 500—550 manns eftir því, hvort bræðslan verður 60 þús. eða 86 þús. tonn. Verði bræðsl- an gtækkuð samkvæmt því, sem hér hefur verið talið og 20 þús. tonn að auki má reikna með, að byggingarframkvæmdir verði meina og minna samfelldar tii 1974 og við þær vinni að jafnaði um 120 menn. Reikna má með, að á árunum 1970—1971 muni vinna allt að 150 mianns við Þórisvatnsmiðlun og stækkun virkjunar við Búrfell, og sé ráð- izt í Sigölduvirkjun, mun hún ein þurfa að jafnaði um 400 menn á árunum 1970—1974. Magnús Kjartansson ræddi virkjunarmálin og álverksmiðj- una og sagði að rikisstjórnin léti allt sitja á hakanum fyrir stóriðjunni. Því væri komið sem komið væri fyrir aðalatvinnu- vegum okkar. Þeir væru í kalda koli og skapaði það stórfellt at- vinnuleysi. Og ríkisstjórnin hefði greinilega ráðagerðir uppi um að halda áfram á sömu braut og selja erlendum auð- hringium raforkuna fyrir lítið verð. Jóhann Hafstein, iðnaðar- málaráðherra, sagði að Magnús Kjartansson og sálufélagar hans væru iðnir við að reyna að koma því inn hjá almenningi að atvinnuleysið nú væri að kenna stefnu ríkisstjórnarinnar í stór- iðjumálunum. Spyrja mætti þingmanninn að því hvort það væri hans álit að meiri síld hefði veiðst sl. s'umar ef enginn álsamningur hefði verið gerður? — Hvort togararnir hefðu aflað betur? Hvont borgarastyrjöldin í Nígeríu hefði þá engin áhrif haft á skreiðarsölu okkar? Ráðherra sagðj að vitanlega hefðu framkvæmdirnar við Búr- fell og Straumisvík ekki dregið úr möguleikum annarra at- vinnuvega, heldur hefði þvert á móti þeirra vegna verið hægt að efla aðrar atvinnugreinar Jóhann Hafstein svo mikið sem raun bæri vitni. Ráðherra vakti athygli á því, að sú fullyrðing Magnúsar Kjartanss'onar að . stóriðjufram- kvæmdir veiittu ekki nema tak- markaða atvinnu, hefðu við lítil rök að styðjast. Sagði hann að í álverksmiðjunni mundi t. d. vinna um 500 manns og það mundi þýða, samkvæmt þeirri reynslu er við hefðum að at- vinnuaukning yrði hjá að m. k. 1500 manns. Reynslan sýndi að þegar gjaldeyrisitekjur okkar hefðu aukizt hefðu þjóðartekj- urnar a.m.k. fjórfaldast. Ál- verksmiðjan kæmi til með að skila um 700 milljónum króna í gjaldeyristekjur og það rhundi þýða um 2800 millj. kr. aukn- ingu þjóðartekna. Þá sagði ráðherra að fullyrð- ingar þingmannsins að ríkis- •sitjórnin gerði ekkert til að efla aðrar iðngreinar vœru út í blá- inn. Iðnþróunarráð fjallaði stöð- ugt um aukinn og fjölbreyttari iðnað hér á landi og mætti nefna s-em dæmi að nú hefði verið unnið að því að rannsaka möguleika á auknum skinnaiðn- aði, og gæiti fairið svo að í ná- inni framtíð gætum við unnið úr ver.ulegum hluta af skinna- framleiðslunn'i sjálfir. Þá mætti einnig- nefna stálskipasmíðina, en sú iðngrein hefði ekki verið •til hérlendis fyrir nokkrum ár- um. Þá hefði ríkiss'tjórmn enn- fremur la.gt kapp á að efla veið- arfæraiðnaðinn, þrátt fyrir að þar væri við ramman reip að draga. Ráðherra sagði að spyrja mætti að því hvort ekki hefði verið annað ástand í atvinnu- málunum, ef ekki hefði verið ráðizt í þessar s'tórframk væmd- ib. Tekjurnar sem af þessum framkvæmdum kæmu yrðu meiri því fyrr sem lokið yrði, með að efla atv.innujöfnunar- 'sjóð verulega og þar með at- vinnu og iðnað, ekki sízt úti á 1 a n dsby g g ðinni. Magniús Kjartansson og Ing- ólfur Jónsson raforkumálaráð- herra tóku til máls aiftur, en sið- an var frumvarpinu vísað til 2, umræðu og nefndar. HÆTTA A NÆSTA LEITI —eftir John Saunders og Alden McWilliams CORRECT) RAVEN/ MEN WILL Flock from the corners of THE WORLD TO LEAVE FORTUNES AT My FEET/ THE MONEy WILL BE MINE,„ ALONEÍ Land ykkar er á eftir tímanum, herrar mínir. Og þér ætlið yður að bæta úr því í Beach City, eða hvað? (2. mynd). Al- reg rétt, Raven. Mcnn munu flykkjast allsstaðar að úr heiminum, og skilja eft- ir gífurleg auðævi í spilavítunum. Og þau auðævi verða mín eign. (3. mynd). Axtella er of heiðarleg til að taka þátt í fyrirætlunum mínum . . . svo að mín kæra systir mun hverfa með ykkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.